Morgunblaðið - 10.06.2020, Síða 8

Morgunblaðið - 10.06.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 Brynjar Níelssonalþingismaður víkur í pistli á Fésbók að sýndarmennsk- unni í pólitíkinni. Til- efnið er sjónvarps- þáttur „um ásakanir á hendur Samherja tengdar viðskiptum í Namibíu“ og þrír stjórnarandstæð- ingar í stjórnskip- unar- og eftirlits- nefnd þingsins hafi þegar gripið boltann á lofti og óskað eftir frumkvæðisathugun á hæfi sjávarútvegsráðherra vegna tengsla við Samherja, „sem munu vera þau að hann starfaði fyrir 20 ár- um hjá fyrirtækinu og þekkir vel for- stjóra þess,“ segir Brynjar.    Þá rekur hann að farið hafi veriðrækilega yfir málið í nefndinni og að eftir „að nefndarmenn höfðu verið mataðir með teskeið um allt sem tengist hæfi og vanhæfi í stjórn- sýslunni var öllum ljóst, sem ekki eru fastir í sýndarmennsku, að sjávar- útvegsráðherra uppfyllir allar hæf- isreglur til að gegna embættinu, en hann þurfi, eins og aðrir ráðherrar, að gæta að hæfi sínu við hverja ákvörðun“.    Meirihluti nefndarinnar hafi þvíákveðið að ljúka frumkvæðis- athuguninni en fyrstu fyrstu við- brögð Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, pírata og nefndarformanns, hafi ver- ið að „dylgja opinberlega um feluleik og samtryggingu annarra nefndar- manna“. Sorglegt hafi verið að for- maður Viðreisnar hafi elt hana í þessu, en Brynjar segir „miður að formaður stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar þingsins skuli misnota for- mennsku í nefndinni til að reyna að koma höggi á pólitíska andstæðinga sína. Trúverðugleiki nefndarinnar er að veði. Trúverðugleiki formannsins er hins vegar ekki að veði enda eng- inn fyrir.“ Brynjar Níelsson Enginn trúverðug- leiki ekki að veði STAKSTEINAR Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskaði eftir því við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis að gerð yrði undanþága um hollustu- hætti í aðgerðarrými fótaaðgerða- stofu. Ekki er ljóst um hvaða fóta- aðgerðastofu ræðir, en í umsókninni var þess óskað að undanþága yrði veitt frá kröfu um handlaugar í að- gerðarrýminu. Í reglugerð um holl- ustuhætti er kveðið á um að í aðgerð- arrými skuli vera handlaug, vaskur til að þrífa áhöld og gott aðgengi að skolvaski. Aðspurður segir Hörður Þor- steinsson, framkvæmdastjóri Heil- brigðiseftirlits Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis, að ráðuneytið hafi heimild til að óska eftir undanþágu. „Í einstaka tilfellum leita aðilar til ráðuneytis vegna undanþágu varð- andi einhvern búnað,“ segir Hörður og bætir við að auk framangreindrar leiðar geti aðilar kært úrskurði eftir- litsins. „Við gerum kröfu um eitt- hvað ákveðið og ef viðkomandi aðili er ekki sáttur hefur hann möguleika á að kæra til Úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála. Þá getur hann sömuleiðis óskað eftir undan- þágu,“ segir Hörður. Ráðuneyti óskaði eftir undanþágu  Vildi að fótaaðgerðastofu yrði veitt undanþága frá reglum um hollustuhætti Morgunblaðið/Jim Smart Snyrting Óskað var eftir undan- þágu fyrir fótaaðgerðastofu. Efling stéttarfélag gerði í fyrra hátt í 700 kröfur fyrir hönd félagsmanna vegna þess að fyrirtæki greiddu ekki rétt laun samkvæmt kjarasamning- um eða ráðningarsamningi. Hljóðuðu þessar kröfur upp á rúmlega 345 milljónir króna. Þessar upplýsingar koma fram í nýbirtri ársskýrslu Eflingar fyrir seinasta ár. Félagar í Eflingu eru hátt í 27 þúsund talsins, af 56 þjóðernum, en á seinasta ári aðstoðuðu starfs- menn Kjaramálasviðs Eflingar tæp- lega 1.100 þeirra. Fram kemur að fyrirvaralausar uppsagnir starfsfólks voru áberandi meðal þeirra mála sem komu til kasta Kjaramálasviðs Efl- ingar í fyrra. Lögmönnum falin 370 mál Alls voru fyrirvaralausar uppsagn- ir 143 talsins og voru flestar tengdar fyrirtækjum í gisti- og veitingaþjón- ustu. Margar þeirra enduðu í launa- kröfuferli þar sem félagið þurfti að innheimta laun á uppsagnarfresti fyr- ir viðkomandi félagsmenn sem fengu ekki vinnu hjá vinnuveitanda á upp- sagnarfresti og var þar með ólöglega sagt upp störfum að mati félagsins að því er segir í ársskýrslunni. Meðalupphæð þeirra krafna sem félagið gerði fyrir hönd félagsmanna í þeim tilvikum þar sem fyrirtæki greiddu þeim ekki rétt laun var 492 þúsund kr. eða sem jafngildir einum og hálfum mánaðarlaunum fyrir um 700 einstaklinga sem eru á lágmarks- launum að því er fram kemur í skýrsl- unni. ,,Langflestar kröfurnar voru settar fram gagnvart aðilum í ferða- þjónustu, t.d. veitingahúsum og gisti- stöðum og annarri tengdri þjónustu. Lögmönnum félagsins voru falin 370 mál til frekari innheimtu og námu kröfur um launagreiðslur vegna þeirra tæplega 290 [milljónum króna]. Fjöldi krafna að verðmæti um 80 [milljóna kr.] voru vegna gjald- þrota fyrirtækja.“ omfr@mbl.is Gerðu 700 kröfur fyrir félagsmenn  Efling aðstoðaði um 1.100 félaga Efling Starfsmenn kjaramálasviðs höfðu í nógu að snúast í fyrra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.