Morgunblaðið - 10.06.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 10.06.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 BÍLAMERKINGAR Vel merktur bíll er ódýrasta auglýsingin Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is B irt m eð fyrirvara um verð- og m yndabrengl. Óbreytt verð: 4.990.000 kr. Fimm ára ábyrgð + 178 hestöfl, 400 Nm + 2ja tonna dráttargeta + Fjórhjóladrif með læsingu + Ótrúlega rúmgóður + Gott aðgengi + Fimm ára ábyrgð Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2020 Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Bílaríki, Akureyri Glerárgötu 36 Sími: 461 3636benni.is Sjálfskiptur ÖRFÁ SÝNINGAREINTÖK Á LAGER! Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Maður sem var dæmdur til að greiða sekt fyrir að fella níu aspir sem gróðursettar voru til minningar um þau sem létust í snjóflóðinu á Flat- eyri árið 1995 segir málið sorglegt og er fluttur frá bænum vegna þess. „Það voru engin illindi þarna á bak við, ég leit svo á að við þyrftum að sinna okkar lóð og lóðinni fyrir aftan húsið þar sem bæjarfélagið var mjög óliðlegt við að aðstoða okkur,“ segir Sveinn Yngvi Valgeirsson, maðurinn sem var dæmdur, í sam- tali við Morgunblaðið. Aspirnar felldi hann þar sem þær voru farnar að skemma klæðningu á húsi hans og var húsið þakið af kvoðu frá öspunum, að því er kemur fram í dómnum. Þá höfðu rætur asp- anna orðið til þess að göngustígur í grenndinni skemmdist og datt drengur sem hjólaði þar síðasta sumar. Seldi og kom sér í burt „Það vita það allir að þetta skemmir út frá sér,“ segir Sveinn, sem kvartaði ítrekað við Ísafjarðar- bæ vegna trjánna. Að eigin sögn hafði enginn frá bæjaryfirvöldum samband við Svein fyrr en hann var kærður. Aspirnar voru á milli tveggja húsa en Sveinn bjó í öðru húsinu og hafði gert það upp. Húsið hafði áður verið í slæmu standi í tuttugu ár. Eftir að ákæra barst ákvað Sveinn að flytja frá Flateyri. „Þegar þetta sprakk allt upp í loft í fyrra sumar ákvað ég að selja og koma mér í burt því ég nenni ekki þessu rugli. Við keyptum þetta hús handónýtt og endurnýjuðum það allt svo manni finnst við ekki alveg eiga þetta skilið.“ Í dómnum kemur fram að Sveinn hafi ætlað að gróðursetja víði í stað aspanna. Það ákvað hann að gera ekki eftir að hann var kærður. „Ég hætti snarlega við það þegar þessi óánægja kom í ljós.“ Sveinn segir að það hefði mátt hugsa málið til enda þegar aspirnar voru gróðursettar. „Aspirnar eru kannski voða krúttlegar og litlar þegar þær koma þangað en þetta kemur ekkert til með að minnka. Þær voru farnar að skemma klæðn- ingu á húsinu hjá okkur og fleira.“ Sveini var gert að greiða 200.000 krónur í sekt og rúmar 640 þúsund krónur í sakarkostnað. Flutti úr bænum eftir höggið  Hjó minningaraspir  Kæran gerði ekki boð á undan sér Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flateyri Sveinn Yngvi segir að dómurinn hafi komið sér á óvart. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Nefndin var sammála um að skoða málið betur og því var ákveðið að ræða við ráðherra og biðja hana um að kanna þetta betur,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður at- vinnuvega- nefndar og þing- maður Vinstri grænna. Vísar hún í máli sínu til frumvarps Þór- dísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur ferðamálaráðherra. Frumvarpið sneri að breytingum á lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatil- högun. Greindi Þórdís frá því í síð- ustu viku að stjórnarfrumvarpið hefði ekki stuðning meirihluta Al- þingis. Ef af hefði orðið væri ferðaskrif- stofum og flugfélögum heimilað að endurgreiða fólki með inneignarnótu í stað peninga fyrir pakkaferðir sem féllu niður sökum faraldurs kórónu- veiru. Að sögn Lilju var frumvarpið til umræðu í atvinnuveganefnd. Þar hefðu nefndarmeðlimir verið sam- mála um að óska eftir endurskoðun ferðamálaráðherra. „Við fengum til okkar marga gesti, þar á meðal stjórnsýslufræðinga og EES-sér- fræðinga. Að því loknu leist okkur þannig á málið að við værum ekki að fara að flytja málið sökum vafa um nokkur atriði,“ segir Lilja og bætir við að umrætt frumvarp hafi m.a. vakið spurningar um stjórnarskrár- varin réttindi einstaklinga. „Sérfræðingar gerðu athuga- semdir er vörðuðu EES-rétt og eign- arréttinn. Nefndin var sammála um að í ljósi athugasemda sérfræðing- anna þyrfti að ræða við ráðherra og biðja hana um skoða málið, sem hún gerði,“ segir Lilja, sem kveðst gera ráð fyrir að afstaða ESB til málsins hafi vegið þungt við ákvörðunartöku ferðamálaherra. Aðspurð segir Lilja að hún eigi síður von á því að sambærilegt frum- varp verði lagt fram úr þessu. „Tíminn hefur liðið og nú er hann í raun að renna út miðað við tímabilið sem þetta átti að nýtast á,“ segir Lilja. Hlustuðu á rök sérfræðinga  Afstaða ESB til málsins vó þungt Lilja Rafney Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.