Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 10

Morgunblaðið - 10.06.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2020 hönnun en Logoflex sá um prentun á texta og myndum og útvegaði und- irstöður og uppistöður. Gunnar Þor- valdsson og Tryggvi Rúnar Hauks- Minningarskilti um Björn Þóri Sig- urðsson, sem alltaf var kallaður Bangsi, var afhjúpað í lok sjómanna- messu á Bangsatúni á Hvammstanga á sjómannadaginn 7. júní síðastliðinn að viðstöddu fjölmenni. Birgir Jóns- son, bróðursonur Bangsa, afhjúpaði skiltið og að því loknu var boðið upp á veitingar. Kótilettunefndin í Húnaþingi vestra hefur haft veg og vanda að uppsetningu skiltisins. Í nefndinni sitja sr. Magnús Magnússon, Jóna Halldóra Tryggvadóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðlaug Sig- urðardóttir, Geir Karlsson og Jó- hanna Jósefsdóttir. Nefndin setti saman íslenskan texta með æviágripi og persónulýs- ingu á Bangsa og Sigurður Líndal gerði útdrátt á ensku. Myndirnar eru úr myndasafni Bangsa, Birgis Karls- sonar, Feykis og Árna Sæbergs, ljós- myndara á Morgunblaðinu. Kristín Guðmundsdóttir á Hvammstanga sá um grafíska son sáu um uppsetningu skiltisins. Kirkjukór Hvammstanga söng við messuna undir stjórn Pálínu Fann- eyjar Skúladóttur, organista við Hvammstangakirkju, en Magnús Magnússon, sóknarprestur á Hvammstanga, þjónaði fyrir útialtari og prédikaði. steinthor@mbl.is Bangsatún Frá afhjúpun minningarskiltisins um Björn Þóri Sigurðsson, eða Bangsa á Hvammstanga. Viðhöfn á Bangsatúni  Minningarskilti um Bangsa afhjúpað Stykkishólmsbær hefur í samvinnu við Félag íslenskra landslags- arkitekta, FÍLA, auglýst eftir þátt- takendum í forval vegna samkeppni um hönnun útsýnisstaðar í Súgand- isey, einni af náttúruperlum Breiða- fjarðar, eins og það er orðað í til- kynningu bæjarins. Eyjan var upphaflega sjálfstæð rétt utan Stykkishólms, en var á síðustu öld tengd landi með uppfyll- ingu þegar ný hafnaraðstaða var útbúin fyrir Breiðafjarðarferjuna. Markmið hönnunarsamkeppn- innar er að auka útsýnis- og nátt- úruupplifun íbúa og gesta svæð- isins, auka aðdráttarafl Stykkishólms sem eftirsóknarverðs ferðamannastaðar á Snæfellsnesi og ekki síst að tryggja betur öryggi þeirra er ganga á Súgandisey. Verkefnið hlaut í mars styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamanna- staða. Valin verða fjögur teymi til þátt- töku og fær hvert greiddar 750 þúsund krónur fyrir tillögur sínar. Að auki verða fimm þúsund krónur greiddar fyrir verðlaunatillöguna og er stefnt að því að semja við verðlaunahöfunda um áframhald- andi hönnun útsýnisstaðarins. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í forvalinu eru beðnir að senda upplýsingar fyrir kl. 16 á morgun, fimmtudag, til Ráðhúss Stykkis- hólmsbæjar við Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi. Senda má umsóknir með rafræn- um hætti til verkefnisstjóra, Sigur- bjarts Loftssonar, á netfangið baddi@w7.is. Nánari upplýsingar eru á vefnum fila.is. Stykkishólmur Súgandisey er fremst á myndinni, áberandi kennileiti. Hanna á útsýnisstað í nátt- úruperlunni Súgandisey  Efnt til samkeppni meðal arkitekta Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Óánægja er meðal íbúa í Hruna- mannahreppi með áherslur, vöruúr- val og verðlagningu hjá Samkaupum á Flúðum. Þar var til skamms tíma starfrækt búð undir merkj- um Strax, en henni svo breytt snemma á þessu ári og heitir nú Krambúðin. Þar er nú meiri áhersla en áður lögð á að sinna ferðafólki með skyndiréttum, sætindum og öðru slíku. Heimamenn sakna hins vegar þeirra verslunarhátta sem voru; að á Flúðum sé alhliða nýlenduvöruversl- un. „Krambúðin stendur ekki undir væntingum heimafólks hér og hefur valdið vonbrigðum,“ segir Halldóra Hjörleifsdóttir, oddviti Hruna- mannahrepps. Allra algengustu nauðsynjar og matvara fáist vissu- lega í versluninni, en álagningin sé há. Verðlagið fæli frá, rétt eins og kemur fram á Facebook, á umræðu- þræði íbúa sveitarfélagsins þar. Í gær var hrundið af stað undirskrifta- söfnun í sveitinni vegna verslunar- mála hvar segir: „Okkur íbúum í Hrunamannahreppi finnst verðlagn- ing á vörum í Krambúðinni á Flúðum of há í krafti einokunar. Því skorum við á stjórn Samkaupa að bregðast vel við ákalli íbúa og lækka vöru- verð.“ „Í Krambúðinni er slikkerí og alls- konar góðgæti sem ferðafólk grípur með sér, en þarfir þeirra sem búa hér í sveitinni að staðaldri eru af- skiptar. Okkur hefði líka fundist að grænmeti og afurðir héðan af svæð- inu ættu að vera hafðar í öndvegi í búðinni, enda eru hér stórar garð- yrkjustöðvar og öflug matvælafram- leiðsla. Við höfum talað fyrir því við fulltrúa verslunarfyrirtækja að fá hingað lágvöruverðsverslun,“ segir Halldóra Hjörleifsdóttir og enn- fremur: „Við teljum fullan grundvöll fyrir slíku, enda eru Flúðir miðsvæð- is á stóru svæði þar sem á góðum dögum eru þúsundir fólks, meðal annars í sumarhúsabyggðum hér í uppsveitum Árnessýslu. Góð alhliða verslun er einfaldlega hluti af inn- viðum hvers samfélags, rétt eins og t.d. skóli, heilbrigðisþjónusta og net- tengingar.“ Ekki náðist í forsvarsmenn Sam- kaupa í gær. Krambúðin á Flúðum veldur vonbrigðum  Heimamenn vilja öðruvísi verslun  Verðlagið fælir frá  Breytinga þörf Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flúðir Verslunin er í miðju þorpinu. Nú er þar höfðað talsvert til ferðafólks en heimamenn telja sig sitja eftir og vilja aðrar vörur og lágvöruverðsbúð. Halldóra Hjörleifsdóttir Nýr samningafundur hefur verið boðaður í kjaradeilu Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga við rík- ið. Fundurinn fer fram í húsakynn- um ríkissáttasemjara klukkan 14:30 á morgun, fimmtudag. Síðasti samningafundur var á mánudag og honum lauk án niðurstöðu eftir að hafa staðið í tæpar þrjár klukku- stundir. „Þetta var þungur fundur og erfiður,“ sagði Aðalsteinn Leifs- son ríkissáttasemjari við mbl.is eft- ir þann fund. Þá þótti ekki tilefni til að boða nýjan fund en það hefur nú verið gert. Verkfall hjúkrunarfræðinga hefst 22. júní ef samningar nást ekki fyrir þann tíma. Verkfallið myndi myndi lama heilbrigðis- kerfið og setja verkefnið um skim- un á landamærum landsins í upp- nám. Boðað til samningafundar á fimmtudag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.