Morgunblaðið - 17.06.2020, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 141. tölublað 108. árgangur
FULLKOMIN
ÓVISSA UM
LÍFEYRISSJÓÐI
SENDUM
HVERT ÖÐRU
KVEÐJU
SVAKALEGUR
DAÐI FREYR
Á AIRWAVES
HVATNINGARÁTAK 2 OG 12 EUROVISIONSTJARNA 64VIÐSKIPTAMOGGINN
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Sælgætisgerðin Nói Síríus telur full-
reynt að ná samningum við stjórn-
völd um að rétta samkeppnisstöðu
innlendra framleiðenda við erlendar
sælgætisgerðir. Því sé aðeins fær sú
leið að stefna ríkinu vegna „blygð-
unarlausrar mismununar“.
Þetta segir Finnur Geirsson, for-
stjóri fyrirtækisins. Vísar hann til
þeirrar staðreyndar að háir tollar á
innflutt mjólkurduft valdi því að
fyrirtækið verði að kaupa íslenskt
mjólkurduft sem kosti í flestum til-
vikum að minnsta kosti tvöfalt meira
en mjólkurduft að utan.
Tollarnir valdi því að hráefnis-
kostnaður fyrirtækisins hækki um
allt að sextíu milljónir króna á ári
hverju og það veiki samkeppnisstöðu
fyrirtækisins gagnvart erlendum
keppinautum sem flytji vörur sínar
fullunnar, með mjólkurdufti í, inn til
landsins án þess að á þær leggist
tollar á borð við mjólkurduftið
óblandað.
„Við höfum reynt að fara samn-
ingaleiðina að því að rétta þessa
stöðu en það hefur ekki borið árang-
ur. Samtök iðnaðarins hafa verið að
vinna að þessu með okkur, þ.e. að
jafna þessi skilyrði, en það hefur
gengið brösuglega. Nú held ég að við
verðum að taka þetta mál í eigin
hendur,“ segir Finnur um málið. Nói
Síríus fagnar 100 ára afmæli nú í
júnímánuði. »Viðskiptamogginn
Nói hyggst leita
atbeina dómstóla
Segir ofurtolla á mjólkurduft draga úr samkeppnishæfni
Framboð viðskipta- og hagfræðings-
ins Guðmundar Franklíns Jónssonar
til embættis forseta Íslands kom
sitjandi forseta, Guðna Th. Jó-
hannessyni, ekki á óvart. Segir
Guðni að út frá þróun síðustu ára
hafi mátt gera ráð fyrir að annar að-
ili myndi bera víurnar í embættið.
Sjálfur kveðst hann lengst ætla að
gegna embætti forseta Íslands
næstu átta árin. Að þeim tíma lokn-
um muni hann hverfa á ný inn í heim
sagnfræðinnar.
Í viðtali í Morgunblaðinu í dag er
sömuleiðis rætt við Guðmund
Franklín, sem er gagnrýninn á störf
sitjandi forseta. Telur hann Guðna
hafa brugðist í veigamiklum málum
á borð við orkupakka þrjú. Þá undr-
ast hann afstöðu Fréttablaðsins,
Sýnar og Hringbrautar til framboðs
hans. Segir hann umrædda fjölmiðla
ásamt „ESB-klíkunni“ hafa unnið
markvisst gegn sér. Þrátt fyrir það
kveðst Guðmundur bjartsýnn á sig-
ur í kosningunum 27. júní. »36-37
Berjast um
embætti for-
seta Íslands
Fánar blöktu í leikskólanum Sólborg í Reykjavík
í gær í aðdraganda 17. júní þegar útskrift fór
fram. Kolfinna og Helga Júlía, sem er í rólunni,
voru að kveðja Sólborg, í sínu fínasta pússi, og
systir Helgu, Sigrún Björk, lengst til hægri,
mætti að sjálfsögðu á athöfnina.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gleðilega þjóðhátíð!
Guðmundur
Franklín Jónsson
Guðni Th.
Jóhannesson
Mótframboð
kom ekki á óvart
„Þetta er framtíð verslana við
Laugaveg. Með þessum gjörningi
erum við fyrst og fremst að reyna
að ná til almennings. Það þýðir ekki
að tala við meirihlutann í Reykja-
vík,“ segir Gunnar Gunnarsson,
talsmaður Miðbæjarfélagsins í
Reykjavík, við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þess að
stór hópur kaupmanna við Lauga-
veg hefur nú hengt upp svarta
ruslapoka í búðargluggum sínum
til að mótmæla götulokunum. Eru
pokarnir sagðir tákna það sem að
óbreyttu kemur; rekstrarstöðvun.
Hátt í 30 verslunarmenn taka þátt í
þessum mótmælum í dag. »2
Táknræn mótmæli
kaupmanna í miðbæ
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
GERÐU GÓÐ KAUP Í NETTÓ UM HELGINA!
Bláber
125 gr
229KR/PK
ÁÐUR: 458 KR/PK
Nautalund
3.299KR/KG
ÁÐUR: 5.998 KR/KG
-50%
-40%
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 18. - 21. júní
-45% Lambalærissneiðar
Blandaðar, kryddaðar
1.559KR/KG
ÁÐUR: 2.599 KR/KG