Morgunblaðið - 17.06.2020, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Njóttu þess að hvílast
í hreinum rúmfötum
Háaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Við þvoum og pressum rúmfötin
- þú finnur muninn!
Heimilisofbeldi er því miðurallt of algengt, það er oftfalið og erfitt að átta sig á
því. Heimilið nýtur friðhelgi og inn-
an veggja þess geta gerst hlutir
sem fara algjörlega framhjá öðrum.
Heimildisofbeldi getur aukist við
erfiðar aðstæður eins og eru í sam-
félaginu nú. Tökum eftir og bjóðum
fram aðstoð. Leyfum börnum að
njóta vafans. Tilkynnum til barna-
verndar. Fram hefur komið að í ár
fjölgaði tilkynningum um heimilis-
ofbeldi þar sem börn koma við sögu
hlutfallslega mjög mikið milli mán-
aða og hafa ekki verið fleiri í upp-
hafi árs í rúman áratug.
Mikilvægt að leita aðstoðar
Leitaðu aðstoðar ef þú óttast að
verða fyrir ofbeldi eða ef þig grun-
ar ofbeldi einhvers staðar. Leitaðu
aðstoðar ef þú óttast að missa
stjórn eða að þú beitir ofbeldi. Eng-
inn hefur rétt á að meiða á nokkurn
hátt, að bregðast við slíku er mikil-
vægt. Ofbeldi getur verið margs
konar, andlegt, líkamlegt, fjárhags-
legt, kynferðislegt og félagslegt.
Sjá nánar á www.heilsuvera.is. Hjá
heilsugæslunni eru starfandi hjúkr-
unarfræðingar, ljósmæður, sálfræð-
ingar og læknar sem geta aðstoðað
og veitt stuðning.
Koma með áverka
annan hvern dag
Rannsóknir sýna að á Landspít-
alann kemur kona með áverka eftir
heimilisofbeldi annan hvern dag.
Heimilisofbeldi hefur gríðarleg
áhrif á heilsufar viðkomandi, bæði
líkamlegt og sálrænt. Skömm og
sektarkennd eru algengar tilfinn-
ingar sem geta hindrað þolendur í
að leita sér aðstoðar. Eftir því sem
heimilisofbeldið er alvarlegra og
því lengur sem það stendur yfir
hefur það meiri áhrif á þolandann.
Því skiptir miklu máli að leita
hjálpar sem fyrst. Áhrif á sálræna
heilsu eru mikil og langvinn og geta
verið kvíðaraskanir, þunglyndi,
fíkn, mikil þreyta og orkuleysi,
Saman gegn heimilisofbeldi
Morgunblaðið/Eggert
Sársauki Afar mikilvægt er að bregðast tafarlast við ef okkur grunar að börn búi við vanrækslu eða ofbeldi.
Heilsuráð
Ástþóra Kristinsdóttir
sérfræðiljósmóðir, Þróun-
armiðstöð íslenskrar heilsugæslu
geta leitað til, til dæmis góðan ætt-
ingja, skólahjúkrunarfræðing eða
vin.
Heimilisofbeldi getur haft lang-
vinnar og alvarlegar afleiðingar
langt fram á fullorðinsár. Dæmi um
afleiðingar ofbeldis gagnvart börn-
um eru lágt sjálfsmat, kvíði, þung-
lyndi, aukin hætta á langvinnum
sjúkdómum, sjálfsvígshugleiðingar
og áfengis- og fíkniefnanotkun. Þó
svo að heimilisofbeldi beinist ekki
að barninu sjálfu hefur það áhrif á
líðan þess og þroska, því börn eru
sérfræðingar í að finna hvernig
andrúmsloftið er á heimilinu.
Við berum öll ábyrgð
Öll þurfum við að taka ábyrgð og
leggja okkar af mörkum til að gera
samfélagið okkar betra. Verum
góðir grannar og tilkynnum til
barnaverndar, ekki bíða og sjá til.
Ekki líta fram hjá ofbeldi, láttu vita
að hegðunin er ekki í lagi. Hjálpum
viðkomandi að leita sér aðstoðar.
Nánari upplýsingar má finna á
www.heilsuvera.is.
Morgunblaðið/Sverrir
Hnefinn Heimilisofbeldi hefur sterk áhrif á heilsufar, líkamleg og sálræn.
svefntruflanir. Líkamleg einkenni
geta verið höfuðverkjaköst, bak-
verkir, brjóstverkir, kynsjúkdómar
og fleira.
Heimilisofbeldi getur haft mikil
áhrif á börn og þar með talin börn
sem eru enn í móðurkviði. Sýnt hef-
ur verið fram á að áföll í móður-
kviði geta haft áhrif á heilaþroska
barns. Ofbeldi á meðgöngu getur
aukið tíðni á mörgum meðgöngu-
kvillum, þar á meðal eru: hækkaður
blóðþrýstingur, bjúgur, blæðingar,
sýkingar, ógleði og fyrirbura- og
léttburafæðingar. Fæðingar-
þunglyndi er mun algengara hjá
konum sem hafa orðið fyrir ofbeldi
á meðgöngu.
Sum börn hljóta mikinn skaða
Afleiðingar heimilisofbeldis á
börn eru einstaklingsbundnar og
sum hljóta mikinn skaða af meðan
önnur spjara sig betur. Það sem
skiptir mestu máli er að börnin hafi
stuðningsaðila sem þau treysta og
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins.
Hátíðarhöld á Akureyri í dag, 17.
júní, verða með öðru sniði en venju-
lega. Ekki verður safnast saman í
Lystigarðinum eða miðbænum. Þess
í stað verður sérstakur blómabíll á
ferð um bæinn frá kl. 13 og kl. 15
hefst skemmtidagskrá fyrir yngri
kynslóðina á flötinni við Minjasafn-
ið. Dagskrá hefst kl. 13 við dval-
arheimilið Lögmannshlíð í Síðu-
hverfi, þar sem Ásthildur
Sturludóttir bæjarstjóri flytur ávarp,
Kvennakór Akureyrar flytur þjóð-
sönginn og sr. Sindri Geir Óskarsson
fer með bænagjörð og blessun.
Ávarp fjallkonunnar verður flutt
við dvalarheimili Hlíð um kl. 14.30
og við Minjasafnið í Innbænum
hefst kl. 15 fjölskyldudagskrá og
frítt er inn á söfn og sýningar. Þar
má nefna Minjasafnið, Iðn-
aðarsafnið, Leikfangasýninguna í
Friðbjarnarhúsi og Nonnahús, en
þessi menningarsetur eru öll í Inn-
bænum.
Þá verður í menningarhúsinu Hofi
opnuð kl. 16 ljósmyndasýning sem
ber yfirskriftina Í gegnum linsuna
og þar er sýndar myndir af lífríki
norðurslóða. Þá bjóða skipverjar á
eikarbátnum Húna II upp á ókeypis
siglingu um Pollinn kl. 16, 17 og 18.
Þjóðhátíð á Akureyri
Víða skemmt-
anir og blóma-
bíll fer um bæ
Akureyri Höfuðstaður Norðurlands.
Hverfishátíðir verða við Fífuna,
Fagralund, Salalaug og Kórinn í
Kópavogi milli kl. 14 og 16 í dag,
þjóðhátíðardainn 17. júní. Alls stað-
ar er rúmt um gesti þannig að hægt
er að tryggja tveggja metra reglu
fyrir þá sem það kjósa. Á þessum
stöðum verða kynnar og skemmtifól
þau Saga Garðarsdóttir, Ísgerður
Elfa Gunnarsdóttir, Vilhelm Neto og
Vilhelm Anton Jónsson. Listamenn-
irnir sem koma fram eru: GDRN,
Jón Jónsson, Friðrik Dór, Herra
Hnetusmjör og fleiri. Listamennirnir
koma allir fram á tveimur stöðum
þannig að dagskráin er ólík á milli
svæða.
Ekki verða hefðbundin hátíðar-
höld á Rútstúni, eins og venjan er,
heldur eru umfangsminni skemmt-
anir víða um bæinn, eins og að
framan er lýst. Bílalestir verða á
ferð um bæinn frá kl. 12 til 14, upp-
taktur að hátíðarhöldunum. „Vegna
aðstæðna í þjóðfélaginu var ljóst að
ekki væri unnt að hafa hátíðarhöld
með hefðbundnum hætti. Hins veg-
ar var ríkur vilji til þess að gefa
íbúum tækifæri til þess að gleðjast
á þjóðhátíðardeginum. Niðurstaðan
varð að dreifa hátíðarhöldum um
bæinn og lofa ég mjög skemmtilegri
og fjölbreyttri dagskrá,“ segir Ár-
mann Kr. Ólafsson bæjarstjóri.
Við Menningarhúsin í Kópavogi
verður dagskrá milli kl. 13-16, hvar
Valgerður Guðnadóttir syngur á
tvennum tónleikum í Salnum og
söfn bæjarins verða opin. Svonefnt
17. júní hlaup Breiðabliks verður
haldið klukkan 10 um morguninn en
það er ætlað börnum í 1. til 6. bekk
grunnskóla. Sundlaug Kópavogs
verður opin frá kl. 10 til 18.
Krakkar fá frítt í hoppukastala og
leiktæki og allar hendur verða
sprittaðar. Hvatt er til þess að börn
og ungmenni séu í forgangi á hátíð-
unum þannig að þau fái svæðin fyr-
ir sig.
Kátt verður í öllum Kópavogi á þjóðhátíðardeginum
Hverfishátíðir verða haldnar á
fjórum stöðum í bænum í dag
Ljósmynd/Aðsend
Kópavogur Falleg er fánaborgin.