Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Varðskipið Óðinn mun sigla frá
Reykjavík til Akraness nk. föstu-
dag. Þar verður skipið til sýnis al-
menningi. Er þetta einskonar heið-
ursferð fyrir hollvini Óðins sem
Faxaflóahafnir standa fyrir í sam-
vinnu við Akraneskaupstað.
Varðskipið Óðinn sigldi út úr
Reykjavíkurhöfn í fyrsta skipti í
meira en áratug 11. maí síðastliðinn
en þá hafði verið unnið að því að
gera við vélar skipsins sem ekki
höfðu verið notaðar í 15 ár.
„Ég stakk upp á því að siglt yrði
upp á Skaga þegar vélarnar yrðu
ræstar og var áhugi fyrir því. Þá
var kórónuveirufaraldurinn í gangi
og fáir máttu
vera um borð,“
segir Gísli Gísla-
son, hafnarstjóri
Faxaflóahafna,
þegar hann er
spurður um til-
drög þess að
skipinu er nú
siglt upp á Akra-
nes. Hugmyndin
er nú að komast í framkvæmd.
Heiðursferð fyrir hollvini
Óðinn er hluti af Sjóminjasafninu
í Reykjavík og varðveitt í því
ástandi sem það var þegar þangað
var komið. Hollvinir Óðins hafa lagt
mikla vinnu í björgun skipsins á
sínum tíma, varðveislu þess, viðhald
og umhirðu. Nú síðast hefur verið
unnið að standsetningu véla skips-
ins.
Gísli segir að ferðin upp á Akra-
nes sé einskonar heiðursferð fyrir
hollvini skipsins. Þeim verður boðið
upp á skoðunarferð um Akranes og
í hádegisverð og skipið verður al-
menningi til sýnis milli klukkan
12.30 og 14.30.
Á meðan Óðinn var í þjónustu
þjóðarinnar sem varðskip átti hann
oft leið framhjá Akranesi en Gísli
segir að ekki sé vissa fyrir því að
skipið hafi lagst þar að bryggju.
„Heimsókn Óðins er því fagnaðar-
efni og heiður að fá þetta sögu-
fræga skip á Akranes, en ekki síður
ánægjulegt að taka á móti holl-
vinum Óðins, sem hafa af elju og
þrautseigju unnið mikið þjóðþrifa-
verk með sjálfboðaliðsvinnu og
ómetanlegu framlagi,“ segir í til-
kynningu frá Faxaflóahöfnum.
Í þorskastríðum og björgun
Óðinn var smíðaður í Álaborg í
Danmörku árið 1959. Óðinn tók
þátt í öllum þremur þorskastríð-
unum á 20. öld. Öflugasta vopn
skipsins er 57 mm fallbyssa, stað-
sett á palli fyrir framan brúna.
Þekktasta og árangursríkasta vopn-
ið í þorskastríðunum var þó tog-
víraklippurnar sem sjá má á aftur-
dekki skipsins.
Óðinn reyndist sérstaklega vel
sem björgunarskip. Hann dró alls
tæplega 200 skip til lands eða í
landvar vegna bilana, veiðarfæra í
skrúfu eða eldsvoða um borð. Einn-
ig dró hann flutninga- og fiskiskip
14 sinnum úr strandi. Þá bjargaði
áhöfn Óðins áhöfnum strandaðra
skipa þrisvar og tvisvar bjargaði
hún áhöfnum sökkvandi skipa. Óð-
inn sinnti alla tíð almennu veiðieft-
irliti. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Öldungur Athygli vakti þegar varðskipið Óðinn sigldi út úr Reykjavíkurhöfn í síðasta mánuði eftir langa hvíld við Sjóminjasafnið. Þá var siglt út á sundin en nú er stefnan sett á Akranes.
Siglir með hollvini til Akraness
Talin fyrsta ferð varðskipsins Óðins á Skagann Verður til sýnis fyrir almenning á föstudag
Gísli Gíslason
GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ Í HAFNARFIRÐI
FÖGNUM Í GARÐINUM HEIMAOG NJÓTUM NÆRUMHVERFISINS