Morgunblaðið - 17.06.2020, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
ÚR BÆJARLÍFINU
Margrét Þóra Þórsdóttir
Eyjafjörður
Þjóðhátíðardagur Íslendinga er
runninn upp og Akureyringar fagna
honum líkt og aðrir landsmenn. Með
óhefðbundnu sniði að þessu sinni.
Hefð er fyrir samkomum í Lysti-
garði og miðbæ sem ekki verða nú í
ár. Viðburðum í tilefni dagsins verð-
ur dreift á sex staði víða um bæinn.
Tveir þeirra verða við dvalarheimili
bæjarins.
Ásthildur Sturludóttir bæjar-
stjóri flytur ávarp við dvalarheimilið
Lögmannshlíð og Kvennakór Akur-
eyrar flytur þjóðsönginn ásamt fleiri
atriðum. Dagskrá verður við dval-
arheimilið Hlíð og þar verður ávarp
fjallkonunnar sem Sigurlína Guðný
Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur úr
framvarðarsveit Sjúkrahússins á
Akureyri í baráttunni gegn veirunni,
flytur að þessu sinni. Jafnréttisvið-
urkenning Akureyrarbæjar verður
afhent við þetta tækifæri. Leikhóp-
urinn Lotta kemur sér fyrir á gras-
flöt austan Lundarskóla og
skemmtir börnum á öllum aldri.
Skemmtun verður fyrir börn á
Minjasafnsflötinni þar sem m.a.
verður skátatívolí og hoppukastalar.
Söfnin í Innbænum verða opin og
frítt inn. Ljósmyndasýningin Í gegn-
um linsuna – Lífríki norðurslóða
verður opnuð við Hof síðdegis og þá
bjóða skipverjar á eikarbátnum
Húna ll upp á ókeypis siglingu um
Pollinn. Þá verður sérstakur blóma-
bíll á ferð um bæinn frá kl. 13.
Alls bárust 68 athugasemdir frá
almenningi og fimm umsagnir, frá
hverfisnefnd Oddeyrar, Isavia,
Minjastofnun, Norðurorku og Vega-
gerðinni vegna breytinga á aðal-
skipulagi á Oddeyri. Athugasemdir
og umsagnir voru kynntar á síðasta
fundi skipulagsráðs Akureyrar-
bæjar.
Breytingin sem um er að ræða
nær til reits sem afmarkast af
Hjalteyrargötu, Kaldbaksgötu,
Gránufélagsgötu og Strandgötu og
er hluti af stærra þróunarsvæði þar
sem gert er ráð fyrir mikilli endur-
nýjun. Í tillögunni felst að svæði,
sem er að mestu skilgreint sem at-
hafnasvæði, verði breytt í íbúðar-
svæði og heimilt verði að byggja sex
til átta hæða hús með verslunar- og
þjónustustarfsemi á jarðhæð. Frá
þessu er greint á vef Akur-
eyrarbæjar.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á liðnu hausti tillögur um
breytingu á aðalskipulagi fyrir Odd-
eyri vegna hugmynda frá verktaka-
fyrirtækinu SS Byggi en þær gengu
út á að byggja á svæðinu 6-11 hæða
fjölbýlishús. Fyrirhuguð háhýsa-
bygging hefur verið mjög umdeild
meðal bæjarbúa á Akureyri.
Skipulagsráð frestaði afgreiðslu
málsins á síðasta fundi og var sviðs-
stjóra skipulagssviðs og formanni
skipulagsráðs falið að funda með
hagsmunaaðilum um framhald máls-
ins.
Mikilvægt þykir að hraða sem
kostur er framkvæmdum við tvær
nýjar tjaldflatir norðan útilífs-
miðstöðvarinnar við Hamra. Aðal-
fundur Hamra, sem sjá um rekstur
miðstöðvarinnar, ítrekaði í ályktun
beiðni til Akureyrarbæjar að hraða
vinnu við stækkun svæðisins til
norðurs og einnig var skorað á bæj-
aryfirvöld að tryggja fjármagn til
verksins á þessu ári og næstu ár eft-
ir því sem framkvæmdum miðar
áfram.
Fjölgun ferðamanna, breyttur
ferðamáti og ferðatími tjaldgesta,
sem og mikið álag á tjaldflatir á úti-
lífsmiðstöðinni að Hömrum við Ak-
ureyri, ásamt lokun tjaldsvæðis við
Þórunnarstræti, leiðir til þess að
brýnt þykir að koma málinu í þenn-
an farveg.
Hörgársveit fagnaði 10 ára af-
mæli sínu í liðinni viku, 12. júní síð-
astliðinn. Fundur var í sveitarstjórn
þann dag og í tilefni afmælisins sam-
þykkti hún að sveitarfélagið hæfi
þegar undirbúning að því að gerður
yrði göngu- og hjólastígur frá Lóns-
bakka að Þelamerkurskóla, með
samvinnu við Vegagerðina og Norð-
urorku. Þá þarf að gera breytingu á
skipulagi og ýmislegt fleira.
„Verkið hefur ekki verið hannað
og kostnaðarreiknað, en sá undir-
búningur fer nú í gang, segir Snorri
Finnlaugsson, sveitarstjóri í
Hörgársveit. Hann sagði að óskað
yrði eftir samvinnu við Vegagerðina
varðandi framkvæmd og fjár-
mögnun á öllum stigum. „Við mun-
um nú hið fyrsta leita eftir slíkri
samvinnu,“ segir hann.
Þá hefur verið óskað eftir sam-
vinnu við Norðurorku varðandi þann
kafla á stígunum sem fer um svæði
þar sem félagið mun leggja nýja
Hjalteyrarlögn í Kræklingahlíðinni
þegar þar að kemur.
„Það er ljóst að þessi stígur er
ekki að koma á morgun, en undir-
búningur er að hefjast, það er byrj-
unin,“ segir Snorri.
Íbúar Hörgársveitar voru 620
talsins þann 1. janúar 2020. Sveitar-
félagamörkin við Akureyri eru við
Lónið, á móti Akrahreppi við Grjótá
á Öxnadalsheiði og á móti Dalvík-
urbyggð eru mörkin skammt norðan
við Fagraskóg. Hörgársveit varð til
við sameiningu Arnarneshrepps og
Hörgárbyggðar 12. júní 2010.
Nokkru fyrr eða 1. janúar 2001 varð
sveitarfélagið Hörgárbyggð til með
sameiningu Glæsibæjarhrepps,
Öxnadalshrepps og Skriðuhrepps.
Ferðafólk streymdi út í Hrísey
um liðna helgi og var mikið líf og fjör í
eyjunni. Stjórn Akureyrarstofu sam-
þykkti fyrr í þessum mánuði að veita
tvær milljónir króna í styrk til Ferða-
málafélags Hríseyjar til að gera því
kleift að fella niður fargjöld í Hríseyj-
arferjuna Sævar í samstarfi við
rekstraraðila hennar. Enginn þarf því
að greiða fargjald það sem eftir lifir
júnímánaðar og er skemmt frá því að
segja að það hefur mælst vel fyrir.
Óvenjumargir voru á ferðinni
um liðna helgi, þá fyrstu sem ókeyp-
is er í ferjuna. Og engu líkara en
stórviðburður væri þar í gangi miðað
við umferðina.
Ákvörðunin var hugsuð til að
styðja ferðaþjónustu í eyjunni og
einnig til að kveikja áhuga lands-
manna á að heimsækja Hrísey. Ný-
leg könnun leiddi nefnilega í ljós að
tæpur helmingur þjóðarinnar, 46%,
hefur aldrei komið til Hríseyjar. Nú
er um að gera að grípa tækifærið
þegar hægt er að spara sér fargjaldið
og njóta lífsins í perlu Eyjafjarðar.
Þjóðhátíð á víð og dreif um bæinn
Óhefðbundinn 17. júní á Akureyri Hörgársveit 10 ára Straumur ferðamanna til Hríseyjar
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Akureyri Hjartað í miðbænum dregur að vegfarendur, stóra sem smáa.
Verktaki vinnur að síðasta áfanga
Dettifossvegar. Verkinu á að ljúka á
næsta ári.
Lengi hefur verið unnið að lagn-
ingu nýs vegar að Dettifossi og teng-
ingum við þjóðvegakerfið. Hluti hans
var lagður í tveimur áföngum. Syðsti
hlutinn, frá Hringvegi að Dettifossi,
var lagður eftir árið 2008 auk bíla-
plans og vegar að fossinum. Á árinu
2014 var lagður kafli nyrst á Detti-
fossvegi. Eftir er um 13 km kafli sem
unnið hefur verið að. Gunnar H.
Guðmundsson, svæðisstjóri Vega-
gerðarinnar á Akureyri, segir að öll
áhersla sé lögð á að leggja þennan
kafla bundnu slitlagi á þessu ári.
Þá verði eftir nýr vegur niður í
Hólmatungur og Vesturdal og stæði
fyrir bíla. Verkinu á að ljúka á næsta
ári.
Heildarkostnaður, samkvæmt út-
boði, er um 1,5 milljarðar króna.
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dettifoss Ferðamannaleiðin meðfram Jökulsá að vestanverðu verður
áhugaverðari valkostur fyrir fólk með endurbættum vegi.
Slitlag á Dettifoss-
veg fyrir haustið
Ferðamannaleið loks í röð góðvega