Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 29

Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 29
www.tilfyrirmyndar.is | #tilfyrirmyndar | @tilfyrirmyndar Takk fyrir að vera til fyrirmyndar er hvatningarátak tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Fyrir 40 árum stigum við Íslendingar framfaraskref á heimsvísu og vorum til fyrirmyndar með því að vera fyrst þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Á þessum tímamótum er vert að staldra við, huga að því sem vel er gert og þakka þeim sem við teljum vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Í dag, á þjóðhátíðardegi okkar, fylgir Morgunblaðinu bréf með yfirskriftinni „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar“. Hvetjum við alla landsmenn til að senda þessi bréf til fjölskyldu, vina, vinnustaða og annarra sem bréfritarar vilja þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt. Fleiri eintök af bréfinu má nálgast víða um land, á pósthúsum, í útibúum Landsbankans og í verslunum Nettó. Rafræn eintök af bréfinu á fjölmörgum tungumálum má nálgast á heimasíðunni tilfyrirmyndar.is. ,,TAKK veggir” verða málaðir víða um land. Skemmtilegt er að taka myndir af sér og sínum og deila á samfélagsmiðlum. Fylgstu með og taktu þátt!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.