Morgunblaðið - 17.06.2020, Síða 36

Morgunblaðið - 17.06.2020, Síða 36
FORSETAKOSNINGAR 202036 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020 VIÐTAL Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Ég hef aldrei sett mig í neinar stellingar og tel að mér hafi tekist að gegna þessu embætti á mínum eigin forsendum þannig að fólki líki. Það hefur kannski komið sjálfum mér á óvart hversu mikið ég hef notið þess að hitta fólk um land allt,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, for- seti Íslands, sem senn lýkur fyrsta kjörtíma- bili sínu í embætti. Nú eru liðin hartnær fjög- ur ár frá því að Guðni bar sigur úr býtum í forsetakosningunum árið 2016. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim tíma og hefur Guðna á undanförnum árum tekist að setja mark sitt á embættið með nokkuð afgerandi hætti. Segja má að forsetanum hafi á tímabilinu tekist að færa embættið nær almenningi, en Guðni hefur að flestra mati verið alþýðlegur og auðmjúkur. Hann gefur nú kost á sér til áframhaldandi setu á Bessastöðum í kosning- unum 27. júní. Auk Guðna er í framboði Guð- mundur Franklín Jónsson, hótelstjóri og fyrr- verandi verðbréfasali,en Guðni hefur notið umtalsvert meira fylgis í skoðanakönnunum. Átti von á mótframboði Spurður hvort umrætt mótframboð hafi komið honum á óvart kveður Guðni nei við. Sé þróun síðustu ára skoðuð hafi mátt gera ráð fyrir að annar aðili myndi bera víurnar í emb- ættið. „Ég fann fljótt og hef fundið alla mína forsetatíð fyrir miklum stuðningi. En á hinn bóginn er ljóst að sú helgi sem hvíldi yfir emb- ættinu á síðustu öld er breytt. Þá jaðraði við móðgun að bjóða sig fram gegn sitjandi for- seta og voru þeir sem slíkt íhuguðu jafnvel kallaðir kynlegir kvistir. Nú er öldin hins veg- ar önnur. Ólafur Ragnar fékk tvívegis mót- framboð. Út frá þróun síðustu ár kom mér ekki á óvart að aðrir hefðu áhuga á að bjóða sig fram og að einhverjum tækist að safna til- skildum fjölda meðmælenda,“ segir Guðni. Til að reynast kjörgengur til embættis for- seta Íslands þurfa viðkomandi einstaklingar að hafa meðmæli minnst 1.500 kosningabærra manna. Hefur sú tala haldist óbreytt frá stofn- un lýðveldisins árið 1944. „Nú situr stjórnar- skrárnefnd að störfum og íhugar breytingar á stjórnarskrá sem meðal annars lúta að stöðu forseta Íslands. „Vissulega hafa heyrst þær raddir að okkur hafi fjölgað í samfélaginu og eðlilegt væri að hækka fjölda meðmælenda sömuleiðis. Ég skil þau rök að það sem þótti skynsamleg tala þegar við vorum 120 þúsund þyki ekki endilega eins skynsamleg núna þeg- ar við erum yfir 350 þúsund,“ segir Guðni. Góð samskipti við fyrri forseta Ýmislegt hefur drifið á daga Guðna undan- farin fjögur ár. Þau Eliza Reid kona hans hafa tekið á móti fjölda erlendra þjóðhöfðingja og haldið í opinberar heimsóknir erlendis, ís- lenskir íþrótta- og listamenn hafa náð eftir- tektarverðum árangri og Íslendingar halda áfram að vekja athygli á alþjóðavettvangi. Þá hefur Guðni aukinheldur komið að stjórnar- myndunarviðræðum í tvígang. Segir hann að vandasamt geti reynst að eiga aðild að slíkum viðræðum. „Ég er ánægður með að við skyld- um komast klakklaust í gegnum viðræðurnar. Forseti hefur ákveðnu hlutverki að gegna, hann veitir umboð og fylgist með gangi mála. Hann ákveður hvenær á að grípa inn í at- burðarásina og stýrir viðræðunum þannig að þær leiði til niðurstöðu. Ég einsetti mér að enginn stjórnmálaleiðtogi þyrfti að fá það á tilfinninguna að ég drægi taum eins á kostnað annars. Að mínu mati verður það að vera leið- arljós forseta hverju sinni,“ segir Guðni, sem kveðst ekki hafa leitað til fyrri forseta meðan á framangreindum viðræðum stóð. „Ég gerði það ekki en ég efast ekki um að þau hefðu veitt mér góð ráð. Ég tel að í þessu sem öðru gagnist mönnum að spyrja ráða ef svo ber undir en um leið finnur maður á þessum stað að ábyrgðin er alltaf bara á eins manns herð- um. Á öðrum vettvangi hef ég hins vegar átt í góðum samskiptum við bæði Vigdísi Finn- bogadóttur og Ólaf Ragnar Grímsson,“ segir Guðni. Verður ekki í fararbroddi útrásar Fyrr á þessu ári barst faraldur kórónuveiru hingað til lands. Í kjölfar áhrifa og útbreiðslu hennar stefnir Ísland nú í djúpa efnahags- lægð, en ráðgera má að halli ríkissjóðs sökum þessa hlaupi á hundruðum milljarða króna. Hefur ferðaþjónusta hér á landi nær lagst af og ljóst er að fram undan er samdráttur í efnahagslífinu. Í forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar bar talsvert á því að embætti for- seta beitti sér í þágu íslenskra fyrirtækja á er- lendri grundu. Liðkaði slíkt fyrir viðskiptum viðkomandi fyrirtækja og studdi þannig óbeint við sköpun umtalsverðra gjaldeyris- tekna. Minna hefur borið á slíku í forsetatíð Guðna. Aðspurður segir Guðni að embætti forseta Íslands snúist ekki fyrst og fremst um að vera í fararbroddi útrásar íslenskra fyrir- tækja. „Ég fann það mjög í forsetakjörinu árið 2016 að það var ekki endilega ákall um annan Ólaf Ragnar ef svo má segja. Rétt eins og þeg- ar hann náði kjöri var ekki beint ákall um að ný Vigdís settist á Bessastaði. Í því ljósi getur vel verið að fólk telji að ég sé ekki af sama meiði og Ólafur Ragnar. Vissulega hefur alltaf legið fyrir að ég sá ekki fyrir mér að einn meginstarfi forseta væri að vera í fararbroddi einhvers konar útrásar en að sjálfsögðu er það í verkahring forseta að stuðla að farsæld ís- lenskra fyrirtækja erlendis eftir því sem tök eru á. Þannig hefur forseti hag Íslands í fyrir- rúmi og greiðir götu Íslendinga í útlöndum.“ - En með hvaða hætti getur forseti skapað verðmæti fyrir Ísland horft til næstu fjögurra ára? „Ég held að forseta sé ekki ætlað að skapa bein verðmæti fyrir landið í krónum talið. Hlutverkið var ekki mótað þannig og ég tel ekki að Íslendingar sjái embættið þannig fyrir sér. Forseti á hins vegar að geta lagt góðum málum lið. Þannig hef ég til dæmis bent á mikilvægi lýðheilsu og forvarna í samfélaginu og þegar vel er að gáð getur aukin áhersla á þá málaflokka sparað samfélaginu stórfé, fyrir utan aukin lífsgæði fyrir fólkið í landinu.“ Aðlaga verði stjórnarskrá Á síðustu fjórum árum hefur Guðni ekki nýtt sér málskotsrétt forseta samkvæmt 26. grein stjórnarskrár. Í tuttugu ára forsetatíð Ólafs Ragnars beitti hann því synjunarvaldi þrisvar. Að sögn Guðna væri til bóta að bæta við ákvæði í stjórnarskrá er myndi kveða á um að tiltekinn fjöldi kjósenda gæti krafist þjóð- aratkvæðagreiðslu. „Ég vil ekki nefna fyrir fram undir hvaða kringumstæðum ég myndi vísa máli í þjóðaratkvæðagreiðslu. Öll mál lúta eigin lögmálum og það skiptir máli hvernig þau þróast í samfélaginu, innan þings og utan. Ég tek hins vegar undir þær skoðanir sem heyrst hafa að setja megi í stjórnarskrá ákvæði sem kveður á um að ákveðinn fjöldi geti krafist þjóðaratkvæðis,“ segir Guðni. Sá ekki fyrir sér að verða forseti Að því er fram kemur í skoðanakönnunum nýtur Guðni yfirburðastuðnings fyrir kosning- arnar 27. júní. Hefur hann jafnframt notið stuðnings drjúgs meirihluta þjóðarinnar síð- ustu fjögur ár. Segir Guðni að hann hafi frá fyrsta degi fundið fyrir miklum meðbyr. Þá hafi hann reynt að gegna embættinu á eigin forsendum. „Ég hef reynt að hafa að einkunn- arorðum það sem segir í laginu: „Vertu þú sjálfur, gerðu það sem þú vilt. Faðmaðu heim- inn, elskaðu.“ Það hefur gengið vel. Vissulega hafa sumir dagar verið erfiðir og mér hefur orðið á en þá skiptir mestu að viðurkenna eig- in mistök og gera betur. Að gegna embætti forseta er einstakur heiður hvern einasta dag,“ segir Guðni. - Sástu fyrir þér að einn daginn myndir þú gegna embætti forseta Íslands? „Nei, það sá ég ekki fyrir mér en maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér.“ - Hversu lengi gætirðu hugsað þér að gegna embættinu? „Ég hef sagt og bergmála þar sjónarmið sumra forvera minna að ég telji 2-3 kjör- tímabil æskilega setu á Bessastöðum. Ég tel það við hæfi frá mínum bæjardyrum séð en tala auðvitað ekki fyrir munn annarra. Að setja takmörk á embættistíð forseta eins og þekkist víða úti í heimi gæti vel komið til álita við endurskoðun stjórnarskrár.“ - Sérðu fyrir þér að snúa aftur til fyrri starfa þegar forsetatíð þinni lýkur? „Að rannsaka liðna tíð, skrifa hnausþykkar bækur og kenna sögu var líf mitt og yndi. Mér finnst brýnt að við Íslendingar kunnum skil á sögu okkar og reynum ekki að skapa glans- mynd af liðinni tíð. Það er nánast skrifað í starfslýsingu forseta að stuðla að einingu frekar en sundrung, að horfa bjartsýnn fram á veg. Á hinn bóginn eiga þeir sem sinna rann- sóknum á sögu og samtíma fyrst og fremst að horfa gagnrýnum augum á viðfangsefni sitt en ekki hugsa um það hvað komi þjóðarhag eða valdhöfum best hverju sinni. Og þegar þessum kafla í lífi mínu lýkur hlakka ég til að hverfa aftur í heim fræðanna, í þann heim sem ég kom úr.“ Situr lengst í átta ár til viðbótar  Gegnir embættinu á eigin forsendum  Ekki hlutverk forseta að vera í fararbroddi útrásar Morgunblaðið/Eggert Forseti Guðna hefur á undanförnum árum tekist að setja mark sitt á embættið með nokkuð afgerandi hætti. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur hann stuðnings meirihluta þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.