Morgunblaðið - 17.06.2020, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 17.06.2020, Qupperneq 38
VESTMANNAEYJAR38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Eins og víða annars staðar á landinu var veturinn erfiður í Vestmanna- eyjum. Þar þurfti að grípa til sér- staklega strangra smitvarnaaðgerða eftir að hópsmit blossaði upp í þessu smáa samfélagi. „Á tímabili var eins og allt hefði stoppað og þegar gengið var um bæinn á kvöldin hefði mátt halda að Eurovisi- on væri í gangi því enginn var á ferli,“ segir Íris Róbertsdóttir. „Eyjamenn tók- ust á við þetta verkefni af ótrú- legri elju og dugn- aði, og gekk í raun ótrúlega vel. Það sást vel í vetur að við erum alls ekki óvön því að endrum og sinnum hendi náttúran í okkur krefjandi verkefnum sem verður þá einfaldlega að takast á við.“ Íris er bæjarstjóri Vestmannaeyja- bæjar og mæddi mikið á henni og starfsfólki bæjarins í kórónuveiru- faraldrinum. Ljóst er að veiran hefur haft bæði kostnað og tekjutap í för með sér fyrir bæjarfélagið og nefnir Íris að ákveðið hafi verið að koma til móts við bæjarbúa með því að rukka aðeins fyrir veitta þjónustu en ýmis starfsemi bæjarins breyttist mikið í faraldrinum og var t.d. aðeins í boði leikskólavistun annan hvern dag, stofnanir lokaðar almenningi og íbú- um sinnt gegnum fjarfundabúnað. „Það er lán í óláni að faraldurinn skyldi berast hingað á þeim tíma árs sem er rólegastur í ferðaþjónustunni og áhrifin því vægari en ella fyrir þann tiltekna hluta atvinnulífsins, þó skaðinn sé samt mjög mikil. Sjáv- arútvegsfyrirtækjunum tókst líka að haga málum þannig að ekki þurfti að gera hlé á veiðum eða vinnslu. Loka þurfti leikskóla, grunnskóla og íþróttahúsum eftir að fjöldi starfs- manna var sendur í sóttkví, en í einkageiranum þurfti aðeins eitt stórt fyrirtæki að skerða starfsemi sína verulega um skeið.“ Margt um að vera í sumar Er óhætt að segja að Vest- mannaeyingar hafi glaðst yfir komu sumarsins og er lífið í Eyjum smám saman að komast aftur í eðlilegt horf. „Búið er að slaka á takmörkunum og er t.d. tveggja metra reglan núna val- kvæð. Samfélagið er tekið að glæðast innan þeirra takmarkana sem fylgja þarf og hefur verið líflegt í bænum það sem af er sumri,“ segir Íris en fyrsta stóra íþróttamót sumarsins var haldið á dögunum þegar ÍBV hélt TM-mótið þar sem fræknar ungar stúlkur í 5. flokki sýndu góða takta á vellinum. Fleiri stórviðburðir og há- tíðir eru í kortunum og er fótboltamót drengja, Orkumótið, á dagskrá í lok þessa mánaðar. Bjórsnillingarnir á Brother‘s Brewery hafa líka boðað til bjórhátíðar 20. júní og goslokahátíðin verður á sínum stað. Hátíðahöld á sjómannadaginn voru ekki felld niður heldur reynt að fagna innan þeirra marka sem reglurnar leyfa: „Við höf- um ekki blásið hátíðirnar af heldur breytum frekar áherslum ef þess þarf. Þannig er fyrirhugað að gos- lokahátíðin leggi að þessu sinni meira upp úr barnadagskránni og menning- arviðburðum á meðan hefðbundnir næturviðburðir í Skvísusundi og Skipasundi falla niður enda kalla samkomutakmarkanir á að mann- fögnuðum ljúki ekki seinna en kl. 11 á kvöldin. Við finnum öll fyrir því að þetta verður ekki venjulegt sumar, en ætlum samt að gera okkur glaðan dag að því marki sem það er hægt.“ Að því sögðu er ekki enn ljóst hvort Þjóðhátíð í Eyjum verður á sínum stað eða hvernig skipuleggjendur gætu aðlagað viðburðinn að smit- varnakröfum. „Ég reikna með að að- standendur hátíðarinnar komist að niðurstöðu á næstu tveimur vikum en ólíklegt er að Þjóðhátíð verði með hefðbundnu sniði enda viðburðurinn alla jafna sóttur af um 15-17.000 manns og dagskrá í gangi til kl. 4 að nóttu. Miðað við þær takmarkanir sem núna eru í gildi væri ekki hægt að halda þannig viðburð. Hins vegar er hefðin sterk og jafnvel ef ekki verður hægt að fylla Herjólfsdal af gestum þá verður örugglega haldin hátíð með einhverju sniði enda skemmtun sem er veigamikill hluti af menningararfi okkar með sögu sem nær allt aftur til ársins 1874.“ Tvær aukastundir í sólarhringnum Gaman er að segja frá því að íbúum Vestmannaeyja fjölgar hægt en örugglega og segir Íris sérstaklega ánægjulegt hvað ungir Vestmanna- eyingar hafa verið duglegir að snúa aftur heim eftir að hafa sótt sér menntun og starfsreynslu annars staðar. „Hér nýtur fólk ákveðinna lífsgæða sem ekki má ganga að vísum á höfuðborgarsvæðinu. Vegalengdir eru styttri, auðvelt að koma börnum að hjá dagmæðrum og leikskóla og fasteignaverð mun hagstæðara en í höfuðborginni. Daglegt líf kallar ekki á mikinn akstur eða skutl og þeir sem flytjast hingað hafa oft á orði að tvær aukaklukkustundir bætist við daginn af þeim sökum.“ Íris á von á því að kórónuveiru- faraldurinn verði til þess að fleiri skoði vandlega þann möguleika að flytja í smærra samfélag eins og Vestmannaeyjar og vinna fjarvinnu fyrir vinnuveitendur á höfuðborg- arsvæðinu. „Ég held að faraldurinn hafi flýtt þróuninni í fjarvinnu um a.m.k. sex ár og bara á bæjarskrif- stofunum hafa vinnubrögð tekið tölu- verðum breytingum af þeim sökum. Raunveruleikinn er sá að margir eiga þess núna kost að þurfa ekki að búa í næsta nágrenni við vinnuveitanda sinn enda ekki sama þörf á að vera á staðnum daglega og þá getur verið freistandi kostur að setjast að í skemmtilegu og lifandi bæjarfélagi eins og Vestmannaeyjum.“ Bíða eftir sjúkraþyrlu Að því sögðu þá eru nokkur mál óleyst sem bæta myndu líf fólksins á svæðinu. Íris segir samgöngur á milli lands og Eyja loksins komnar í ágætt horf með nýrri ferju en í vetur var í fyrsta skiptið sem Landeyjahöfn hélst opin og nægilega djúp allan vet- urinn. Hún segir hagsmunagæslu á sviði samgangna og heilbrigðismála alltaf í forgrunni og er næsta stóra verkefni að þrýsta áfram á að heil- brigðisþjónustan á svæðinu verði bætt. Bendir Íris á að óheppilegt sé að ekki skuli vera skurðstofuvakt í Eyjum en ein lausn sem lögð hefur verið til er að fjárfest verði í sjúkra- þyrlu sem staðsett verði á Suður- landi. „Við höfum óskað eftir að hún verði staðsett hér í Eyjum, a.m.k. yfir vetrartímann, en við ákvarðanatöku á þessu sviði þarf m.a. að hafa í huga að á sumrin fjölgar mjög fólki á Suður- landinu. Sumar helgar er íbúafjöldi Vestmannaeyja fjórfaldur á við það sem hann er alla jafna, og á vissum tímum árs má reikna með að um og yfir 15.000 manns búi í sumarhúsum á Suðurlandi. Er þá eftir að telja með þann mikla fjölda ferðamanna sem streymir þar í gegn í venjulegu ár- ferði. Verður heilbrigðisþjónusta á svæðinu að taka mið af þörfum þessa mikla mannfjölda.“ „Endrum og sinnum hendir nátt- úran í okkur krefjandi verkefnum“  Vestmannaeyingar eru komnir í sumarskap eftir krefjandi vetur og undirbúa fjölda hátíða Ljósmynd/Óskar Friðriksson Upplifun „Við höfum ekki blásið hátíðirnar af heldur breytum frekar áherslum ef þess þarf,“ segir Íris. Enn ríkir óvissa um Þjóðhátíð. Ljósmynd/Óskar Friðriksson Snjall Mjaldrarnir una sér vel í Eyjum og flytja senn í rúmgóða sjókví þar sem gestir munu geta heimsótt þá. Íris Róbertsdóttir Páll Scheving og fjölskylda eru lýsandi dæmi um þann drifkraft og athafnasemi sem ein- kennir Vestmannaeyinga. Páll er verksmiðju- stjóri hjá Ísfélaginu en rekur að auki með konu sinni og mágkonu veitingastaðinn Tang- ann og tunnuhótelið Friðarból í Herjólfsdal. Páll játar að það mæði einkum á konu hans og mágkonu að halda utan um rekstur ferða- þjónustufyrirtækjanna enda nóg að gera hjá honum í Ísfélaginu. „Þær eru lykilmanneskj- urnar og skipta á milli sín daglegu utanum- haldi á veitingastaðnum og í gistingunni en ég látinn hlaupa undir bagga þegar frí er hjá Ísfélaginu.“ Kannski hafa lesendur hnotið um það hér að ofan að Páll skuli reka „tunnuhótel“. Frið- arból býður nefnilega ekki upp á neina venju- lega gistingu heldur er um að ræða svokallað „glamping“-tjaldstæði þar sem gestir geta ýmist tjaldað eða gist í tunnu- laga skálum þar sem að- búnaðurinn er öllu betri en í dæmigerðu tjaldi. „Orðið „glamping“ er bræðingur af ensku orðunum „glam- orous“ og „camping“ og vísar til þess að um er að ræða útilegugistingu þar sem fólk fær upplifunina af því að verja nótt- inni á tjaldsvæði en með töluvert meiri lúxus. Við hófum þennn rekstur fyrir fimm árum og komum upp nokkrum skálum sem rúma tvö þægileg rúm og litla stofu. Skálarnir eru upp- hitaðir en til að komast í sturtu eða nota sal- erni þarf að rölta yfir í þjónustuhús.“ Tanginn býður líka upp á óvenjulega upp- lifun en Páll lýsir staðnum þannig að þar sé áherslan lögð á heiðarlega matseld og sann- gjarnt verð. „Sérstaðan felst þó ekki síst í því að veitingastaðurinn er í húsi sem skagar út í höfnina og flæðir undir bygginguna. Þykir mörgum notalegt að snæða með þetta góða útsýni yfir hafnarsvæðið og enn betra ef hægt er að sitja úti á verönd í blíðskapar- veðri.“ Rekstur Tangans gengur vel en Páll bendir á að markmiðið með starfseminni sé ekki síst að þjónusta vel þá sem heimsækja Vest- mannaeyjar. Þar hefur orðið mikill vöxtur í framboði á alls kyns þjónustu og spannar veitingaframboðið mjög breitt litróf: „Ég tók mig eitt sinn til og taldi hátt í 20 staði þar sem fer fram veitingasala af einhverju tagi. Tel ég þá með bakaríin og söluturnana, en við eigum líka veitingastaði af fínustu gerð og allt þar á milli,“ segir hann. „Nú er bara von- andi að komum ferðamanna muni fjölga með bættum ferjusiglingum milli lands og Eyja svo að gróskan verði enn meiri. Hér er svo margt um að vera og margt að sjá, hægt að komast í návígi við sjóinn og dýralífið og leit- un að betri stað til að finna lunda.“ ai@mbl.is Hafa mikla breidd í þjónustu við gesti  Hjá Friðarbóli í Herjólfsdal má gista í tunnulaga skálum sem bjóða upp á lúxus-tjaldstæðisupplifun Gæði Útsýnið úr matsalnum er ekki amalegt. Páll Scheving MVið elskum Ísland »46
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.