Morgunblaðið - 17.06.2020, Side 43
43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Kastað Veiðimaður naut veðurblíðunnar í Laxá í Kjós þegar ljósmyndari átti leið þar um. Flestar laxveiðiár verða opnaðar fyrir mánaðamót og má segja að laxveiðisumarið hefjist formlega í vikulok.
Kristinn Magnússon
Hafi einhvern tíma verið þörf
fyrir öflugt einkaframtak, –
snjalla frumkvöðla, útsjónar-
sama sjálfstæða atvinnurek-
endur, einstaklinga sem eru til-
búnir til að setja allt sitt undir í
atvinnurekstri til að skapa verð-
mæti og störf – þá er það núna
og á komandi árum. Líkt og áð-
ur verður það einkaframtakið –
viðskiptahagkerfið – sem leggur
þyngstu lóðin á vogarskálar
verðmætasköpunar. Án öflugs
einkaframtaks tekst okkur ekki
að komast út úr erfiðum efnahagsþreng-
ingum, tryggja öflugt velferðarkerfi og góð
lífskjör.
Þessi einföldu sannindi vefjast fyrir mörg-
um, ekki síst þeim stjórnmálamönnum sem
telja það sér til framdráttar að ala á öfund og
fjandskap í garð einkaframtaksins. Ónýtt
tækifæri til að leggja steina í götu atvinnu-
rekenda eru í hugum þeirra, sem líta árangur
í rekstri hornauga, glötuð tækifæri.
Oft hefur andað köldu í garð atvinnurek-
enda frá ríkisvaldinu en líklega næðir hvergi
meira um sjálfstæða atvinnurekandann en í
höfuðborginni.
Varnarstríð
Kaupmenn hafa verið í stöðugu varn-
arstríði við borgaryfirvöld. Engu er líkara en
að meirihluti borgarstjórnar leggi sérstakan
metnað í að flæma alla verslun úr miðbænum.
Skipulega hefur verið dregið úr umferð með
þrengingum, lokunum og fækkun bílastæða.
Aðgengi hefur verið heft og það
kemur illa niður á viðskiptum í
verslun og þjónustu. Léleg lýs-
ing og umhirða gera ástandið
verra. Sjónarmið kaupmanna eru
hundsuð, lítið gert úr athuga-
semdum og ábendingum um
hvað mætti betur fara til að
styrkja verslun og þjónustu í
miðbænum – gera hann líflegri
og skemmtilegri.
Fyrir liðlega sex árum komu
borgaryfirvöld í veg fyrir að
einkafyrirtæki fengi leyfi til að
safna lífrænum úrgangi frá
heimilum. Engu skipti þótt
Reykjavík sinnti ekki þessari „grunnþjón-
ustu“ við borgarbúa og geri raunar ekki enn.
(Hér verður harmsaga gas- og jarðgerðar-
stöðvar Sorpu ekki rakin). Íbúar Akureyrar
og Dalvíkur hafa í mörg ár flokkað lífrænt
sorp sem nýtt er til moltugerðar. Þá þjónustu
veitir Gámaþjónustan í samstarfi við sveitar-
félögin. Borgarráð hefur komið í veg fyrir að
sama fyrirtæki geti boðið sína þjónustu í
Reykjavík.
Nokkrum árum áður lagði Reykjavík til at-
lögu við Gámaþjónustuna, sem hafði boðið
borgarbúum upp á Endurvinnslutunnuna.
Hernaður borgaryfirvalda gagnvart Flug-
görðum á Reykjavíkurflugvelli hófst fyrir
nokkrum árum og stendur enn. Flugskólar,
flugklúbbar, fyrirtæki og einstaklingar eru
innan Fluggarðanna sem eru hluti af þekk-
ingarþorpi flugsins á Íslandi. Flugfélagið
Ernir hefur átt í vök að verjast og nýlega var
ráðist að fyrirtækinu þar sem henda átti
eignarréttindum út í hafsauga. Sú tilraun
mistókst – að minnsta kosti í bili.
Er furða þótt komist sé að þeirri niður-
stöðu að einkaframtakið sé eins og fleinn í
holdi meirihluta borgarstjórnar?
Forréttindi ríkisfyrirtækja
Því miður er ríkisvaldið oft mótdrægt
einkarekstri, þó það sé ekki alltaf með sama
skipulega hættinum og gerist í höfuðborginni.
En dæmin eru fyrir hendi – sum verri en
önnur. (Að þessu sinni eru ekki tök á því að
fjalla um hvernig flóknar reglugerðir og
íþyngjandi lagafyrirmæli gera fyrirtækjum
erfitt fyrir ekki síst þeim sem minni eru. Hið
sama á við um skatta- og gjaldumhverfið).
Ríkið hefur tryggt sér forréttindi á sviði
smásöluverslunar. Með skatta- og tollleysi
hafa yfirburðir Fríhafnarinnar í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar verið tryggðir, á kostnað
kaupmanna og innlendra birgja (innflytj-
enda). Markaðsráðandi staða Fríhafnarinnar
í snyrtivörum er ekki vegna þess að starfs-
menn ríkisfyrirtækisins séu snjallari og betri
kaupmenn en aðrir.
Í þessu sambandi er ágætt að halda til
haga hvernig opinbera hlutafélagið Isavia
kom fram við Kaffitár þegar því að bolað út
úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þá opin-
beraðist vel sú leyndarhyggja sem hefur
grafið um sig í opinberum hlutafélögum, sem
eru í samkeppnisrekstri við einkaaðila. Annað
ríkisfyrirtæki missteig sig alvarlega þegar
það ruddist inn á prentmarkaðinn.
Opinber hlutafélög hafa jafnvel reynst
opinberum eftirlitsaðilum erfið. Það tók Rík-
isendurskoðun mörg ár að fá stjórnendur
Ríkisútvarpsins ohf. til að fara eftir ákvæðum
laga um fjárreiður ríkisins. Í tvö ár virti
ríkisfyrirtækið skýr lagafyrirmæli um stofn-
un dótturfélags vegna samkeppnisrekstrar að
vettugi.
Ekki má gleyma því hvernig ríkið hefur
ákveðið að koma í veg fyrir eðlilega og sann-
gjarna samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Með
skattheimtu á einkarekna fjölmiðla og millj-
arða forgjöf frá skattgreiðendum, er yfir-
burðastaða Ríkisútvarpsins geirnegld. Það
sem meira er; Ríkisútvarpið nýtur einhverrar
sérstakrar friðhelgi umfram allar aðrar ríkis-
stofnanir. Sjálfstæðum fjölmiðlum blæðir út
og hugmyndin um að setja einkarekna fjöl-
miðla á ríkisstyrk fær byr undir báða vængi,
enda segjast allir vilja veg frjálsrar fjölmiðl-
unar sem mestan.
Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Banda-
ríkjanna, hitti naglann á höfuðið þegar hann
lýsti hugmyndum ríkisafskiptasinna:
„Ef það hreyfist, skattleggðu það. Ef það
heldur áfram að hreyfast, settu lög. Ef það
stoppar, settu það á ríkisstyrk.“
Velferðarsamfélag góðra lífskjara verður
ekki byggt upp með slíkri hugmyndafræði.
En það skiptir þá engu sem í hjarta sínu telja
einkarekstur af hinu vonda.
Eftir Óla Björn Kárason »Ríkisvaldið er oft mótdrægt
einkarekstri, þó það sé ekki
alltaf með sama skipulega
hættinum og gerist í höfuð-
borginni. En dæmin eru fyrir
hendi.
Óli Björn
Kárason
Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Einkaframtakið er líkt og fleinn í holdi