Morgunblaðið - 17.06.2020, Síða 43

Morgunblaðið - 17.06.2020, Síða 43
43 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020 Kastað Veiðimaður naut veðurblíðunnar í Laxá í Kjós þegar ljósmyndari átti leið þar um. Flestar laxveiðiár verða opnaðar fyrir mánaðamót og má segja að laxveiðisumarið hefjist formlega í vikulok. Kristinn Magnússon Hafi einhvern tíma verið þörf fyrir öflugt einkaframtak, – snjalla frumkvöðla, útsjónar- sama sjálfstæða atvinnurek- endur, einstaklinga sem eru til- búnir til að setja allt sitt undir í atvinnurekstri til að skapa verð- mæti og störf – þá er það núna og á komandi árum. Líkt og áð- ur verður það einkaframtakið – viðskiptahagkerfið – sem leggur þyngstu lóðin á vogarskálar verðmætasköpunar. Án öflugs einkaframtaks tekst okkur ekki að komast út úr erfiðum efnahagsþreng- ingum, tryggja öflugt velferðarkerfi og góð lífskjör. Þessi einföldu sannindi vefjast fyrir mörg- um, ekki síst þeim stjórnmálamönnum sem telja það sér til framdráttar að ala á öfund og fjandskap í garð einkaframtaksins. Ónýtt tækifæri til að leggja steina í götu atvinnu- rekenda eru í hugum þeirra, sem líta árangur í rekstri hornauga, glötuð tækifæri. Oft hefur andað köldu í garð atvinnurek- enda frá ríkisvaldinu en líklega næðir hvergi meira um sjálfstæða atvinnurekandann en í höfuðborginni. Varnarstríð Kaupmenn hafa verið í stöðugu varn- arstríði við borgaryfirvöld. Engu er líkara en að meirihluti borgarstjórnar leggi sérstakan metnað í að flæma alla verslun úr miðbænum. Skipulega hefur verið dregið úr umferð með þrengingum, lokunum og fækkun bílastæða. Aðgengi hefur verið heft og það kemur illa niður á viðskiptum í verslun og þjónustu. Léleg lýs- ing og umhirða gera ástandið verra. Sjónarmið kaupmanna eru hundsuð, lítið gert úr athuga- semdum og ábendingum um hvað mætti betur fara til að styrkja verslun og þjónustu í miðbænum – gera hann líflegri og skemmtilegri. Fyrir liðlega sex árum komu borgaryfirvöld í veg fyrir að einkafyrirtæki fengi leyfi til að safna lífrænum úrgangi frá heimilum. Engu skipti þótt Reykjavík sinnti ekki þessari „grunnþjón- ustu“ við borgarbúa og geri raunar ekki enn. (Hér verður harmsaga gas- og jarðgerðar- stöðvar Sorpu ekki rakin). Íbúar Akureyrar og Dalvíkur hafa í mörg ár flokkað lífrænt sorp sem nýtt er til moltugerðar. Þá þjónustu veitir Gámaþjónustan í samstarfi við sveitar- félögin. Borgarráð hefur komið í veg fyrir að sama fyrirtæki geti boðið sína þjónustu í Reykjavík. Nokkrum árum áður lagði Reykjavík til at- lögu við Gámaþjónustuna, sem hafði boðið borgarbúum upp á Endurvinnslutunnuna. Hernaður borgaryfirvalda gagnvart Flug- görðum á Reykjavíkurflugvelli hófst fyrir nokkrum árum og stendur enn. Flugskólar, flugklúbbar, fyrirtæki og einstaklingar eru innan Fluggarðanna sem eru hluti af þekk- ingarþorpi flugsins á Íslandi. Flugfélagið Ernir hefur átt í vök að verjast og nýlega var ráðist að fyrirtækinu þar sem henda átti eignarréttindum út í hafsauga. Sú tilraun mistókst – að minnsta kosti í bili. Er furða þótt komist sé að þeirri niður- stöðu að einkaframtakið sé eins og fleinn í holdi meirihluta borgarstjórnar? Forréttindi ríkisfyrirtækja Því miður er ríkisvaldið oft mótdrægt einkarekstri, þó það sé ekki alltaf með sama skipulega hættinum og gerist í höfuðborginni. En dæmin eru fyrir hendi – sum verri en önnur. (Að þessu sinni eru ekki tök á því að fjalla um hvernig flóknar reglugerðir og íþyngjandi lagafyrirmæli gera fyrirtækjum erfitt fyrir ekki síst þeim sem minni eru. Hið sama á við um skatta- og gjaldumhverfið). Ríkið hefur tryggt sér forréttindi á sviði smásöluverslunar. Með skatta- og tollleysi hafa yfirburðir Fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verið tryggðir, á kostnað kaupmanna og innlendra birgja (innflytj- enda). Markaðsráðandi staða Fríhafnarinnar í snyrtivörum er ekki vegna þess að starfs- menn ríkisfyrirtækisins séu snjallari og betri kaupmenn en aðrir. Í þessu sambandi er ágætt að halda til haga hvernig opinbera hlutafélagið Isavia kom fram við Kaffitár þegar því að bolað út úr Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þá opin- beraðist vel sú leyndarhyggja sem hefur grafið um sig í opinberum hlutafélögum, sem eru í samkeppnisrekstri við einkaaðila. Annað ríkisfyrirtæki missteig sig alvarlega þegar það ruddist inn á prentmarkaðinn. Opinber hlutafélög hafa jafnvel reynst opinberum eftirlitsaðilum erfið. Það tók Rík- isendurskoðun mörg ár að fá stjórnendur Ríkisútvarpsins ohf. til að fara eftir ákvæðum laga um fjárreiður ríkisins. Í tvö ár virti ríkisfyrirtækið skýr lagafyrirmæli um stofn- un dótturfélags vegna samkeppnisrekstrar að vettugi. Ekki má gleyma því hvernig ríkið hefur ákveðið að koma í veg fyrir eðlilega og sann- gjarna samkeppni á fjölmiðlamarkaði. Með skattheimtu á einkarekna fjölmiðla og millj- arða forgjöf frá skattgreiðendum, er yfir- burðastaða Ríkisútvarpsins geirnegld. Það sem meira er; Ríkisútvarpið nýtur einhverrar sérstakrar friðhelgi umfram allar aðrar ríkis- stofnanir. Sjálfstæðum fjölmiðlum blæðir út og hugmyndin um að setja einkarekna fjöl- miðla á ríkisstyrk fær byr undir báða vængi, enda segjast allir vilja veg frjálsrar fjölmiðl- unar sem mestan. Ronald Reagan, fyrrverandi forseti Banda- ríkjanna, hitti naglann á höfuðið þegar hann lýsti hugmyndum ríkisafskiptasinna: „Ef það hreyfist, skattleggðu það. Ef það heldur áfram að hreyfast, settu lög. Ef það stoppar, settu það á ríkisstyrk.“ Velferðarsamfélag góðra lífskjara verður ekki byggt upp með slíkri hugmyndafræði. En það skiptir þá engu sem í hjarta sínu telja einkarekstur af hinu vonda. Eftir Óla Björn Kárason »Ríkisvaldið er oft mótdrægt einkarekstri, þó það sé ekki alltaf með sama skipulega hættinum og gerist í höfuð- borginni. En dæmin eru fyrir hendi. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Einkaframtakið er líkt og fleinn í holdi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.