Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Skoðaðu glæsilegu
sumartilboðin okkar á
hotelork.is/tilbod
Gisting í
superior herbergi
3ja rétta kvöldverður
á HVER Restaurant
Morgunverðarhlaðborð
19.900 kr.
fyrir tvo á virkum dögum
29.900 kr.
fyrir tvo um helgar
Hér færðu öll verkfærin sem þú þarft
í eldhúsið – allt frá mæliskeið upp í
eldavél. Kokka selur vandaðar og
endingargóðar vörur sem duga þér
ævina út, eða svo til. Verslunin býður
einnig upp á heimsendingar og birtir
einstaka sinnum uppskriftir fyrir þá
sem vilja spreyta sig á græjunum í
eldhúsinu.
Kokka – Laugavegi 47 – 101
Reykjavík.
Vefslóð: kokka.is
Franska sælkeraverslunin Hyalin er
ein sinnar tegundar hér á landi. Fyrir
utan hversu falleg verslunin er, þá
finnur þú allt sem þig dreymir um úr
franskri matargerð – olíur, ólífur,
andapaté, sinnep, pasta, jafnvel sard-
ínur og edik í allskyns útgáfum er á
boðstólum. Sannkallaður sælkera-
matur í dós!
HYALIN – Hverfisgötu 35 –
101 Reykjavík.
Vefslóð: hyalin-reykjavik.com/
Vandað kjötborð og glæsilegt úrval
af ferskum fiski er að finna í útvöld-
um verslunum Hagkaupa. Þú þarft
því ekki að leita langt yfir skammt
eftir hágæða hráefni þegar þú stend-
ur í innkaupum fyrir heimilið – því
Hagkaup bjóða einnig upp á girnileg-
an salatbar, ásamt nýbökuðu brauði
og bakkelsi.
Hagkaupsverslanir eru víða
um land.
Vefslóð: hagkaup.is
Margverðlaunuðu kokkarnir í nýopn-
aðri Sælkerabúð leggja áherslu á
fyrsta flokks hráefni, persónulega
þjónustu og heildarlausnir í sælkera-
matargerð. Hér snýst allt um fyrsta
flokks kjötvörur og lúxusmeðlæti, en
Sælkerabúðin býður einnig upp á
glæsilega matarpakka, líka fyrir
grænkera.
Sælkerabúðin – Bitruhálsi 2 –
110 Reykjavík
Vefslóð: saelkerabudin.is
Í rótgróinni kaupmannsbúð finnur þú
glæsilegt kjöt- og fiskborð sem mikl-
um sögum fer af. Í Melabúðina sækja
ekki bara Vesturbæingar því vin-
sældir verslunarinnar ná langt út fyr-
ir póstnúmerið 107 – hjá þeim sem
vilja persónulega þjónustu og breitt
vöruúrval.
Melabúðin – Hagamel 39 –
107 Reykjavík
Vefslóð: melabudin.is
Það þarf vart að kynna Ostabúðina
sem hefur fylgt okkur síðustu 20 árin
með afburðahráefni. Verslunin er úti
á Granda og býður upp á breitt úrval
af afbragðsostum. Hér getur þú einn-
ig sest niður í hádegismat eða pantað
veislumat af bestu gerð. Hið sí-
vinsæla grafna og reykta kjöt þeirra
er sannarlega þess virði að smakka,
ásamt hinni margrómuðu og heit-
reyktu gæsabringu, villibráðarpaté,
sósum, dressingum og svo ótal mörgu
fleira sem kætir bragðlaukana.
Ostabúðin – Fiskislóð 26 – 101
Reykjavík
Vefslóð: ostabudin.is
Hér er brakandi ferskt og íslenskt
grænmeti í fyrirrúmi. Frú Lauga leit-
ar einnig uppi spennandi matvörur
fyrir viðskiptavini sína sem sumir
hverjir koma langt að til að versla.
Hér færðu einnig glútenfríar vörur
og kombucha af krana, sem er það
allra vinsælasta í dag hjá þeim sem
kjósa heilbrigðan lífsstíl.
Frú Lauga, Laugalæk 6.
Vefslóð: frulauga.is/
Ein af elstu sælkeraverslunum
landsins er Vínberið, sem upphaflega
var matvöruverslun en breyttist árið
1995 í sælkeraverslun sem sérhæfir
sig í súkkulaði. Hér finnur þú mesta
úrval landsins af súkkulaði, konfekti,
súkkulaðiplötum og öðrum sætindum
– fullkomið fyrir nýliða og þá sem eru
lengra komnir og búnir að þróa sinn
smekk í súkkulaðiáti.
Vínberið – Laugavegi 43 –
101 Reykjavík
Vefslóð: vinberid.is/
Grillpakkar, veislur, smáréttir og úr-
val af allskyns meðlæti er það sem þú
finnur hjá sérfræðingunum í Kjöt-
kompaníinu. Hér starfa fagmenn á
bak við borðið þar sem áhersla er
lögð á gæði og vönduð vinnubrögð.
Það fer enginn sælkeri tómhentur út
úr þessari verslun – sem er eins og
sælgætisverslun fyrir matgæðinga.
Kjötkompaníið, Dalshrauni 13
og Grandagarði 29.
Vefslóð: kjotkompani.is/
Ferskasti fiskur landsins liggur í
borðinu hjá Fúsa! Fiskbúð Fúsa er
fiskverslun af gamla skólanum með
gríðarlegt úrval fiskrétta sem og
meðlæti og frosið sjávarfang. Hér
færðu uppáhaldsfiskinn þinn á grillið,
pönnuna, í pottinn eða í ofninn.
Fiskbúð Fúsa – Skipholti 70 –
105 Reykjavík.
Vefslóð: fiskbudfusa.com/
Fiskbúðin Vegamót er lítið fjöl-
skyldurekið fyrirtæki sem hóf rekst-
ur árið 2009 og hefur stimplað sig vel
inn í hjörtu landsmanna sem elska
góðan fisk. Laxaréttir, humar eða
þorskur í reyktri papriku – úrvalið
er endalaust hjá Fiskbúðinni Vega-
mótum.
Fiskbúðin Vegamót –
Nesvegi 100 – 170 Seltjarnarnesi
Vefslóð: fiskbuinvegamot.
business.site/
Veganbúðin er verslun fyrir alla
veganista þarna úti, sem býður upp
á spennandi vörur sem auðvelda
grænkeralífið og ábyrgan lífsstíl.
Hér finnur þú bætiefni, matvörur,
sætindi og drykkjarvörur í gríðar-
legu úrvali.
Veganbúðin – Faxafeni 14 – 108
Reykjavík
Vefslóð: veganbudin.is/
Þegar þig þyrstir í extra góðan kaffi-
bolla þá er Kaffibrugghúsið staður
til að sækja sér gott nýmalað kaffi.
Staðurinn er einnig heildsala og
heldur námskeið af ýmsum toga fyr-
ir sanna áhugamenn um kaffi.
Kaffibrugghúsið – Fiskislóð 59 –
101 Reykjavík
Vefslóð: kaffibrugghusid.is/
Súkkulaði beint frá býli! Hjá Om-
nom úti á Granda kemstu í nálægð
við framleiðsluna á einu bragðmesta
súkkulaði landsins.
Hér er regnbogann að finna í
súkkulaði – þar sem úrvalið af hand-
gerðu súkkulaði lætur ekki á sér
standa.
Omnom – Hólmaslóð 4 –
101 Reykjavík
Vefslóð: omnomchocolate.com/
Á Akranesi er að finna verslunina
Matbúr Kaju sem rekin er af hug-
sjónakonunni Karenu Jónsdóttur.
Karen trúir því staðfastlega að þú
sért það sem þú borðar og því er allt
hráefni í versluninni eins lífrænt og
vandað hugsast getur.
Gæði umfram allt og kökurnar
sem hægt er að fá á kaffihúsinu (sem
er í sama húsnæði) eru með þeim
betri sem bakaðar hafa verið.
Matbúr Kaju – Stillholti 23 –
300 Akranesi.
Vefslóð: facebook.com/mat
arburkaju/
Uppáhaldsverslanir matgæðinganna
Víða er hægt að gera
góð kaup og komast í
hráefni sem eru betri en
gengur og gerist. Hér er
listi yfir þær verslanir
sem eru sérlega vinsæl-
ar meðal matgæðinga
og þeirra sem vilja að-
eins það besta.
Morgunblaðið/Eggert
Fiskurinn klikkar ekki Fiskbúð Fúsa þykir mikil sælkeraverslun og ekki
spillir fyrir að Fúsi sjálfur er svo skemmtilegur.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Mekka matgæðinganna Í Kokku er hægt að fá allt sem tengist matargerð.
Verslunin er sannkallað ævintýraland fyrir gourmet-fólk.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verslun fyrir sælkera Vöruúrvalið í Hagkaupum er með því betra sem
þekkist hér á landi og kjöt- og fiskborðið er í sérflokki.
Morgunblaðið/Golli
Vinsæl Kaupmennirnir Pétur Alan
og Friðrik Ármann Guðmundssynir
standa vaktina í Melabúðinni alla
daga vikunnar. Þeim finnst mikil-
vægt að vera í nánum tengslum við
viðskiptavini sína og vilja þjónusta
þá sem best.
Morgunblaðið/Hanna
Fjársjóður Franska sælkeraversl-
unin býður upp á franskt góðgæti.