Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 54

Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020 ✝ Sveinn PéturKjartansson fæddist 17. júní 1941 á Landspít- alanum. Hann lést 5. apríl 2020 á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Móðir: Borghild- ur Pétursdóttir húsfreyja, f. 2. nóv. 1917, d. 22. feb. 1995. Faðir: Kjart- an Sveinsson skjalavörður, f. 16. mars 1901, d. 1. júlí 1977. Stjúpfaðir: Guðmundur Guð- laugsson verslunarmaður, f. 24. okt. 1900, d. 23. apríl 1989. Uppeldismóðir/ráðskona Kjartans: Jóhanna Sigríður Sigurgeirsdóttir, f. 5. des. 1903, d. 27. des. 1993. Fannar Kára. Seinni eigin- kona: Helga Stefánsdóttir, f. 1. mars 1955. Þeirra synir: 4. Magnús Sveinsson, f. 2. maí 1979, maki Sólveig Krista Einarsdóttir, þau eiga 4 börn, Einar Erni, Tómas Vigur, Viðju Elísabetu og Silvíu Helgu. 5. Stefán Sveinsson, f. 3. júní 1982, maki Ragnhildur Sigurbjartsdóttir, þau eiga 3 börn, Bjart Inga, Arnar Helga og Emblu Marín. 6. Guð- mundur Sveinsson, f. 29. okt. 1984, maki Vala Hrönn Guð- mundsdóttir, þau eiga 2 syni, Alexander Sölva og Elmar Orra. Sveinn gekk í Vesturbæjar- barnaskólann og Verzlun- arskóla Íslands. Starfaði sem framkvæmdastjóri fyrst hjá Pappírsvörum og síðar sam- einað hjá Pappírsvörum og Kjörís um árabil. Eftir það starfaði hann sjálfstætt að rekstri og innflutningi. Jarðarförin fór fram frá Víðistaðakirkju 16. júní 2020. Fyrri eig- inkona: Áróra Ás- geirsdóttir, f. 14. maí 1942, d. 5. feb 1989, þau skildu. Þeirra börn: 1. Kjartan Sveins- son, f. 14. okt. 1965, maki Anna María Elíasdóttir, þau eiga 2 dætur, Kolbrúnu Láru, Lilju Karen og eitt barnabarn, Kjartan Óla. 2. Ás- geir Sveinsson, f. 23. jan 1967, maki Helga Sævarsdóttir, þau eiga 3 börn, Elvar, Hilmar, Ásu Maríu og eitt barnabarn Brynjar Leó. 3. Hanna Lára Sveinsdóttir, f. 29. sept. 1968, hún á eina dóttur, Áróru Lind, og tvö barnabörn, Snædísi og Foringinn er fallinn! Vinur minn til margra ára, Sveinn Kjartansson eða Svenni eins og hann var jafnan kallaður, varð bráðkvaddur þ. 5. apríl síð- astliðinn á öldrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði. Ekki voru nema örfáir dagar síðan ég heimsótti hann, fórum við í bíltúr, eins og við gerðum svo oft, brugð- um okkur í vertshús, fengum okk- ur kaffi og skiptumst á sögum en skemmtilegri sögumaður en Sveinn Kjartansson var vand- fundinn. Fyrstu kynni okkar Svenna voru í Verslunarskóla Íslands veturinn 1959-60, en áður hafði ég oft séð hann í Vesturbænum þar sem við bjuggum báðir, hann á Ásvallagötu og ég vestarlega á Víðimel. Með okkur tókust ágæt kynni. Svenni var maður ófeim- inn við ræðupúlt, hélt oft ræður á skólasamkomum auk þess að vera formaður bindindisfélags skólans. Svenni var mikill íþrótta- maður á þessum árum, keppti með KR bæði í handbolta og fót- bolta og var í keppnisliði Verslunarskólans. Framtakssemi Svenna, djörfung og dáð skapaði honum virðingu skólafélaga og vina. Það var á þessum árum að hann fékk viðurnefnið „Foring- inn“ í sínum nánasta vinahópi. Hann stóð vel undir því enda maður hugmynda og fyrstur til allra verka. Líklega hefur honum þótt það við hæfi að sá sem deildi afmælisdegi með Jóni Sigurðs- syni forseta ætti nú viðlíka titil skilið, skuldlaust. Við vinirnir áttum margar góð- ar stundir í sumarhúsi föður Svenna í Stakkavík í Selvogi. Þangað brugðum við okkur oft, allan ársins hring, spiluðum bridge, stunduðum veiðar, feng- um okkur í tána en Svenni var þá hættur öllu bindindi og naut hann sín best góðglaður við sagn- astund. Seinna meir tókum við ásamt þremur öðrum félögum laxveiðiá á leigu í Hrútafirði, sem var svona frekar vatnslítil á en gat gefið nokkra tugi laxa á sumri. Við komum fyrir litlum kofa við ána með frumstæðri eldunaraðstöðu en það kom ekki að sök því hæfileikar Svenna í matseld voru töfrum líkastir og hann eldaði fínustu máltíðir og nutum við félagarnir þeirra kosta hans í ríkum mæli í gegnum árin. Ferðirnar norður í Hrútafjörð voru líka bráðskemmtilegar, því Svenni gat rutt upp úr sér kvæð- um, gamansögum og vísum við- stöðulaust í þá rúmu þrjá tíma sem leiðin tók. Það var margt svo snjallt og bráðskemmtilegt í sel- skap „Foringjans“. Svenni var tvígiftur og eignað- ist sex myndarbörn, þrjú í hvor- um hálfleik eins og hann sagði jafnan sjálfur. Fyrri kona Svenna var Áróra Ásgeirsdóttir, eignuð- ust þau tvo syni og eina dóttur. Seinni kona Svenna var Helga Stefánsdóttir. Þau eignuðust þrjá syni. Helga reyndist Svenna ein- staklega vel í hans veikindum. Aðstandendum votta ég samúð mína. Kjartan Norðfjörð. Kynni okkar á Syðra-Velli af Sveini Kjartanssyni og fjölskyldu hans hófust vorið 1993 er Magnús sonur Sveins og Helgu réðst til okkar sem kaupamaður, fólkið þekktum við ekkert fyrir, en þarna varð til vinátta sem enst hefur til þessa dags. Sveinn var enginn venjulegur maður, hvernig sem á hann var litið. Auk þess að vera stór á flesta kanta sagði hann tröllaukn- ar og oft mergjaðar sögur af sér og vinum sínum og samferða- mönnum, en sögur kunni hann margar og sagði skemmtilega frá. Mörg haust kom Sveinn hingað að Syðra-Velli til að skjóta gæs, voru þá vinir hans eða frændur með í för og var oft glatt á hjalla. Komu þeir ávallt síðdegis degin- um áður og Sveinn var alltaf jafn spenntur hvað ég myndi nú elda handa þeim, enda var hann mat- maður af Guðs náð og hafði mikla nautn af að borða góðan mat. Þessar kvöldstundir eru afar minnisstæðar og voru alltaf skemmtilegar, aðeins var kíkt í vískíflösku eða eitthvað annað sem flaut og svo voru sagðar sög- ur langt fram eftir kvöldi. Það var því ekki alltaf langur svefninn sem þeir félagar fengu áður en þeir lögðust út í skurð um miðja nótt til að sitja fyrir gæsinni. En það gerði ekkert til og ekki fengu þeir oft fugl, en það gerði heldur ekkert til, ferðin var skemmtileg eftir sem áður og samveran eft- irminnileg. Áhugi Sveins á gæsa- veiðum náði svo langt að hann fékk í félagi við Hallgrím frænda sinn að sá korni í lítinn blett hér í högunum. Gæsin lét nú ekki svo lítið að setjast þar, en frændurnir höfðu ánægju af stússinu og bletturinn er nú kenndur við Svein og heitir Sveinsakur. Allir strákarnir hans Sveins úr seinna hjónabandi, Maggi, Stebbi og Gumbó, voru hér í sveit, góðir strákar sem bera Sveini og Helgu fagurt vitni. Sveinn og Þorsteinn heitinn bóndi á Syðra-Velli urðu miklir mátar og þótti þeim báðum mjög vænt um þá vináttu. Það er skrýtið að þeir skulu nú báðir vera horfnir yfir móðuna miklu og vafalítið eru nú sagðar skemmtilegar sögur í Sumar- landinu fyrst Sveinn er farinn þangað. Það er mikils virði að eignast góða vini í lífinu og var Sveinn í þeim hópi. Minningar mínar um hann eru bjartar, hann var góður vinur og undir oft hrjúfu yfir- borðinu sló hlýtt hjarta. Ég þakka Sveini fyrir samfylgdina og allar góðu stundirnar. Helgu og börnunum hans öllum og fjöl- skyldum þeirra votta ég einlæga samúð mína við fráfall hans. Minningin um eftirminnilegan mann mun lifa áfram. Far í friði kæri vinur. Margrét Jónsdóttir. Við Sveinn vorum jafn skyldir og hálfbræður, mæður okkar systur og feður okkar bræður. Hann fæddist á þjóðhátíðardag- inn 17. júní 1941 þegar Ísland var ennþá konungsríki og bjó fjöl- skyldan á Ásvallagötu 69 í Vest- urbænum. Foreldrar hans skildu, sem á þeim tíma þótti mikið hneyksli (innan ættarinnar) og mátti helst ekki tala um. Með úr- skurði þáverandi dómsmálaráð- herra fékk faðirinn forræði yfir Sveininum, sem þótti og þykir enn sérstakt þar sem móðir hans var heilbrigð og með sterkt bak- land. Sveinn, uppalinn í Vestur- bænum, varð eðlilega káerringur, markmaður í handbolta. Eitt sinn þegar leikið var í Hálogalandi festist boltinn milli rima í einum þakbita hússins. Á þeim tíma áttu lið aðeins einn bolta. Sveinn var hraustur ungur maður, klifraði upp undir þak og handstyrkti sig að boltanum og sló hann niður við mikil fagnaðarlæti áhorfenda, mestu fagnaðarlæti sem hann upplifði við íþróttaiðkun. Sveinn var gleðimaður og hrókur alls fagnaðar í samkvæmum framan af ævi, og góður ræðumaður. Veiðimaður á fugla og fiska. Ég kynntist honum meir á seinni ár- um og fórum við í margar ferðir saman. Þegar við eitt sinn sigld- um skemmtibáti frá Reykjavík til Fáskrúðsfjarðar kom í ljós að sjó- mennska vafðist ekki fyrir Sveini, hann las á siglingatækin með full- um skilningi og stýrði fleyinu af öryggi. Hann útskýrði hæfileik- ann með því að afi okkar Sveinn hefði róið yfir tuttugu vertíðir frá Herdísarvík. Þá erum við að tala um útgerð á gamla mátann, róðra á árabátum, átján hundruð og súrkál. Sveinn var tvígiftur og tvískilinn. Átti miklu barnaláni að fagna, myndarbörn og barnabörn með báðum. Sveinn talaði ætíð hlýlega um eiginkonur sínar Helgu og Áróru, sem er látin. Helga var ætíð góð og rækt- arleg við Svein eftir skilnað þeirra. Við sendum fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúðar- kveðju. Hallgrímur Axelsson. Sveinn Pétur Kjartansson Afi Siggi hefur nú kvatt okkur og þótt hann hafi verið löngu tilbúinn þá eru þeir sem eftir eru aldrei alveg undir þetta búnir. Ég var svo heppin að vera elsta barnabarn hans og hann bara rétt fertugur þegar hann varð afi. Við áttum því langan tíma saman, margar góðar stund- ir og fyrir það er ég gríðarlega þakklát. Ég var sett í leikskóla nálægt ömmu og afa svo betra væri fyrir þau að sækja mig, afi sýndi mér ómælda þolinmæði og sérstak- lega þegar hann var að kenna mér. Hann afi var ótrúlega fróður maður og margar stundir sem við áttum, þar sem hann var að kenna mér, fræða mig eða spyrja mig út úr. Rétt áður en hann Sigurður Richardsson ✝ Sigurður Rich-ardsson fædd- ist 17. júní 1932. Hann lést 27. maí 2020. Útför Sigurðar fór fram 5. júní 2020. kvaddi var hann spurður hvað tutt- ugu og fjórir sinnum tvö hundruð og fimmtíu væri og án þess að hugsa svar- aði hann „sex þús- und“. Þannig var hann, stálminnugur, hafsjór af fróðleik um allt milli himins og jarðar og mikill stærðfræðingur. Mjög skemmtilegt þótti mér þeg- ar hann sagði sögur af sér frá yngri árum, t.d. þegar herinn kom til Reykjavíkur, hann bara lítill strákur og hvernig það hafði áhrif á hann. Það var líka ótrú- lega gaman þegar hann sagði sögur af sér sem hæfilega mikl- um villingi á unglingsárum og námsárunum erlendis. Þetta voru ótrúlegar sögur og töluðum við Hjölli, maðurinn minn, oft um að ná þeim á upptöku til að geta haft þær eftir. Ég trúi því að afi sé nú kominn til ömmu. Hvíldu í friði, elsku afi, ég mun sakna þín um ókomna framtíð. Þín Hildur Pétursdóttir. Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Sigurður Bjarni Jónsson umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Minningarathöfn og jarðsetning okkar ástkæra föður, tengdaföður, stjúpföður, afa og langafa, VILHJÁLMS VILHJÁLMSSONAR bifreiðastjóra, Vogatungu 89, Kópavogi, sem lést 30. mars á krabbameinsdeild LSH við Hringbraut, fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 19. júní klukkan 13. Kistulagning og bálför hefur farið fram. Lára G. Vilhjálmsdóttir Pálmi Aðalbjörnsson Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson Elsa Kristín Helgadóttir Hjördís Vilhjálmsdóttir Anton Sigurðsson Klara Sveinbjörnsdóttir Helgi Valgeirsson Sigríður Sveinbjörnsdóttir Kim Sorning Guðmundur Baldursson barnabörn og barnabarnabörn Frænka okkar og fóstra, SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, Lækjarbrekku, sem lést sunnudaginn 7. júní, verður jarðsungin frá Stóra-Núpskirkju föstudaginn 19. júní klukkan 14. Einar Ólafsson Þorsteinn Ólafsson Einar Aagestad Sævar Aagestad Hlédís Guðmundsdóttir Helga Óladóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR INGÓLFSSONAR húsgagnabólstrara, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 30. maí. Kristín Júlíusdóttir Ingólfur Guðmundsson Nína María Reynisdóttir Júlíus Ágúst Guðmundsson Jóhanna J. Gunnlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VIGDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 41, áður Álftamýri 4, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík 6. júní. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 3. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Hrafnistu. Baldur J. Guðmundsson Sigríður I. Baldursdóttir Karl S. Sigurðsson Guðmundur H. Baldursson Harpa Gunnarsdóttir Sævar B. Baldursson Sigríður O. Marinósdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆBJÖRN REYNIR GUÐMUNDSSON, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 19. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Sveinbjörg Sæbjörns Gunnarsd., S. Arnar Jóhannesson Atli H. Sæbjörnsson Helena Drífa Þorleifsdóttir Ingvar Sæbjörnsson María Kristín Rúnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.