Morgunblaðið - 17.06.2020, Qupperneq 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
60 ára Dóra Gerður er
fædd og uppalin í Nes-
kaupstað en býr á Sel-
tjarnarnesi. Hún er
hjúkrunarfræðingur að
mennt og vinnur hjá
Corpus Medica í Kópa-
vogi.
Maki: Bjarni Valtýsson, f. 1957, læknir.
Börn: Sigríður Ósk, f. 1983, Kristín Jóna,
f. 1985, Stefán, f. 1991, og Valtýr, f. 1993.
Barnabörnin eru fjögur.
Foreldrar: Stefán Halldórsson, f. 1918, d.
1993, netagerðarmaður, og Pálína Páls-
dóttir, f. 1917, d. 2002, húsmóðir. Þau
voru búsett í Neskaupstað.
Dóra Gerður
Stefánsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Óvænt tækifæri berst þér upp í
hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta
þér það til hins ýtrasta.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er allt í sómanum hjá þér um
þessar mundir í vinnunni svo þú getur
leyft þér að slaka svolítið á.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur nóg á þinni könnu
þessa dagana og skalt ekki taka meira að
þér í félagsstarfinu en þú ert fær um að
standa við.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Jákvæðni þín og nærverukraftur
er svo mikill að allir vildu vera í þínum
sporum. Aðeins þannig öðlastu virðingu
annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Erfiðleikarnir eru bara til að sigrast á
þeim og þú ert nú betur í stakk búinn en
oft áður. Notaðu innsæi þitt til þess að
stjórna og beina tilfinningunum í þá átt að
skapa betri framtíð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur ástæðu til þess að vera
fullur sjálfstrausts og ert í raun tilbúinn til
þess að stíga stórt skref fram á við.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur lagt hart að þér og átt nú
skilið að lyfta þér aðeins upp og njóta
ávaxta erfiðis þíns. Einnig er mögulegt að
þú reynir að fá einhvern til þess að breyta
lífi sínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að koma lagi á fjár-
málin og þarft því að beita þig aga og
sleppa öllu sem kallar á óþarfa eyðslu.
Leggðu allt kapp á að finna farsæla lausn
svo þú getir sofið rólegur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lífið brosir við þér annaðhvort
í einkalífinu eða fjármálunum. Hugsaðu
þig því vandlega um áður en þú lætur ljós
þitt skína.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þetta verður spennandi dagur
og þú ert að springa úr krafti. Farðu í
göngutúr úti í náttúrunni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það þarf ekki svo mikið til þess
að gleðja aðra. Fátt er betra en góður næt-
ursvefn svo gakktu snemma til náða.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Samstarfsfólkið er bæði sam-
vinnuþýtt og hvetjandi þessa dagana.
Treystu því að það sé regla og réttlæti í al-
heiminum.
„Ég minnist þess sérstaklega þeg-
ar við vorum nokkur send til út-
landa strax í kjölfar hrunsins til að
reyna að halda greiðslutrygging-
arlínum fyrir íslenskt atvinnulíf
opnum. Þessar greiðslutryggingar
liðka fyrir pöntunum og innflutn-
ingi á vörum að utan. Í sendinefnd-
inni voru auk mín fulltrúi frá Utan-
ríkisráðuneytinu, Seðlabanka
Íslands, Viðskiptaráði og Svavar
Gestsson, sem þá var sendiherra í
Danmörku. Við tókum maraþon-
fundi en allt kom fyrir ekki, það
lokuðu allir á Ísland. Það var bæði
sárt og erfitt að upplifa það hvern-
ig Evrópa talaði til okkar þá.
Það skemmtilega í dag er að nú
er ég komin aftur til baka á minn
gamla vinnustað, sem nú heitir
Sýn. Þar starfa ég með 60 manna
teymi á fréttastofu Stöðvar 2,
Bylgjunnar og Vísi og ritstýri um-
fjöllun um Atvinnulífið á Vísi, sem
er nýjung því til viðbótar við við-
skiptafréttir beinum við sjónum
okkar að öllu því mannlega sem
lýtur að vinnunni okkar.“
Rakel hefur setið í fjölda
stjórna, svo sem Viðskiptaráðs Ís-
lands og Félags kvenna í atvinnu-
lífinu, þar sem hún var formaður.
Um tíma var hún formaður bæj-
Endurmenntun Háskóla Íslands.
Frá Morgunblaðinu fór hún til
Norðurljósa sem þá hét, þ.e. Stöð
2, Bylgjan o.s.frv. „Það er gaman
að segja frá því að við sem sátum í
framkvæmdastjórn Norðurljósa á
þessum tíma hittumst enn reglu-
lega og með okkur ríkir mikill vin-
skapur.“
Rakel starfaði síðan um árabil
sem framkvæmdastjóri Creditinfo.
R
akel Sveinsdóttir er
fædd 17. júní 1970 á
sjúkrahúsinu á Ísa-
firði. Fram á annað ár
bjó Rakel á Suður-
eyri, eða þar til hún og móðir
hennar fluttust til Stykkishólms,
þaðan sem stjúpfaðir hennar er. „Í
Stykkishólmi hófst skólagangan
hjá kaþólsku nunnunum í St.
Franciskusreglunni sem ráku leik-
skólann í bænum í áratugi. Stykk-
ishólmur var frekar hægrisinnaður
bær á æskuárum mínum en ég var
orðin fullorðin þegar ég áttaði mig
á því að fyrir þær sakir að nafna
mín, Rakel Olsen, var forstjóri
stærsta fyrirtæki bæjarins var mér
það eðlislægt sem barn að hugsa
tækifæri aldrei öðruvísi en að þau
væru jöfn fyrir konur og karla. Í
raun er það því umhverfið í Hólm-
inum sem hafði mest um það að
segja í hvaða félagsstörf ég leiddist
síðar meir á ævinni, bæði á sviði
jafnréttismála og í pólitík. Sem
barn naut ég líka þeirra forrétt-
inda að geta farið í sveit til ömmu
og afa á Akurtröðum í Eyrarsveit
við Grundarfjörð.“
Eftir grunnskóla fór Rakel til
Bandaríkjanna sem skiptinemi og
bjó í Ocean City í New Jersey-ríki.
„Óhætt er að segja að enskunámið
hafi nýst mér vel því þegar heim
var komið var verið að filma sjón-
varpsseríuna Nonna og Manna fyr-
ir vestan og ég strax kölluð til í
einhverja vinnu kringum það.“
Rakel varð stúdent af fjölmiðla-
braut FB og hélt áfram fjölmiðla-
námi í Los Angeles í Bandaríkj-
unum. „Það var á sama tíma og
ofbeldi lögreglunnar á blökku-
manninum Rodney King skapaði
óeirðir og mótmæli sem endaði
með útgöngubanni í borginni og
herinn var kallaður til. Í raun var
þetta smærri útgáfa af þeim óeirð-
um sem við erum að sjá núna
vegna George Floyd-málsins og
mér þykir afar miður að sjá að
baráttan gegn rasisma sé ekki
lengra komin.“
Í sjö ár starfaði Rakel á
Morgunblaðinu og fór samhliða því
starfi í viðskipta- og rekstrarnám í
arráðs fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Ölfusi. „Þaðan fluttist ég á Selfoss
og hætti þá í pólitík. Úr félags-
starfi minnist ég þess sérstaklega
þegar við Þorsteinn Víglundsson,
þáverandi jafnréttisráðherra,
hringdum inn bjöllunni í Kauphöll-
inni 8. mars 2017. Það var í fyrsta
sinn sem karl og kona gerðu það
saman, en þetta ár tók Kauphöll
Íslands upp það samstarf við Nas-
daq erlendis að á alþjóðadegi
kvenna ár hvert yrði minnt á mik-
ilvægi kynjajafnræðis með viðhöfn
sem þessari.“
Helblá gen í Hólminum
„Ræturnar liggja á Vestfjörðum,
Norðurlandi og á Snæfellsnesi því
móðir mín er ættuð frá Súganda-
firði, pabbi minn frá Akureyri og
stjúppabbi minn frá Stykkishólmi.
Í þessum fjölskyldulegg er alls
konar fjölbreytileiki. Til dæmis er
dóttirin að fara að leika í jarðarfar-
aratriði hjá Gísla Erni Garðarssyni
leikstjóra sem nú er í tökum á
sjónvarpsþáttaseríunni Verbúðin.
Föðursystur mína Stúllu heitna
þekktu síðan margir enda var hún
andlegur leiðtogi margra þekktra
einstaklinga, ekki síst fólks í fjöl-
miðlum, íþróttum og í viðskiptalíf-
inu. Stjúppabba mínum má síðan
þakka fyrir þessi helbláu pólitísku
gen enda var Hólmurinn mjög blár
í pólitík á æskuárum mínum. Ég
held líka sambandi við skiptinema-
fjölskylduna mína frá Bandaríkj-
unum 1986, hef heimsótt þau út og
þau komið hingað. Skiptinemabróð-
ir minn dvaldist síðan eitt sumar
hjá mér þegar hann var tvítugur
og í hittifyrra fór dóttirin og dvaldi
hjá fjölskyldunni hans.
Ég les mikið og hef haft ástríðu
fyrir því að skrifa frá því að ég
man eftir mér,“ segir Rakel, spurð
út í áhugamálin. „Ég er sérfræð-
ingur í skandinavískum spennu-
þáttum, elska rökræður um helstu
þjóðmál í góðra vina hópi og er svo
heppin að hafa ferðast vítt og
breitt um heiminn. Auðvitað
breyttist þetta aðeins eftir að börn-
in fæddust en nú eru þau orðin svo
stór að alls kyns gömul áhugamál
Rakel Sveinsdóttir, ritstjóri Atvinnulífsins á Vísi – 50 ára
Í Kauphöllinni Rakel og Þorsteinn Víglundsson hringja inn í kauphöllinni á
alþjóðadegi kvenna 8. mars 2017.
Elskar rökræður um þjóðmál
Fjölskyldan Rakel ásamt Jóhönnu
Guðrúnu og Má á ferðalagi.
30 ára Ásdís ólst upp
á Staðastað í Staðar-
sveit en býr í Reykja-
vík. Hún er læknir að
mennt frá Háskóla Ís-
lands en er í fæðingar-
orlofi.
Maki: Þorgeir Orri
Harðarson, f. 1988, læknir á Heilsugæsl-
unni á Seltjarnarnesi.
Börn: Kristrún, f. 2016, og Már, f. 2019.
Foreldrar: Guðjón Skarphéðinsson,
1943, fyrrverandi prestur á Staðastað,
og Klara Bragadóttir, f. 1955, sálfræð-
ingur á Reykjalundi. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Ásdís Braga
Guðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Már Þorgeirs-
son er fæddur 14. sept-
ember 2019 kl. 10.38.
Hann vó 3.608 g og var
50 cm að lengd. For-
eldrar hans eru Ásdís
Braga Guðjónsdóttir og
Þorgeir Orri Harðarson.
Nýr borgari