Morgunblaðið - 17.06.2020, Síða 61
eru að fá betra rými á ný. Í sumar
er fyrirhuguð ferð á Vestfirði í lok
júní og um Norðurlandið í lok júlí.“
Fjölskylda
Rakel býr með börnunum sínum,
Jóhönnu Guðrúnu Gylfadóttur, f.
21.8. 2003, og Má Gylfasyni, f. 20.4.
2007, á Selfossi. Stjúpsonur Rakel-
ar, Konráð Axel Gylfason, f. 3.1.
1997, er búsettur í Reykjavík.
Sammæðra systkini Rakelar eru
Óðinn Másson, f. 18.5. 1973, smiður
og eigandi Alsmíði, búsettur í
Reykjavík, og Bryndís Björk Más-
dóttir, f. 3.8. 1978, starfsmaður
þjónustuíbúða fyrir fatlaða á Sel-
fossi, búsett á Selfossi. Samfeðra
systkini eru María Sveinsdóttir, f.
6.9. 1970, hjúkrunarfræðingur á
fíkniefnadeild Landspítalans, bú-
sett í Hafnarfirði; Bjarni Sveins-
son, f. 6.12. 1972, kerfisstjóri hjá
Landsbankanum, búsettur í Hafn-
arfirði, og Einar Logi Sveinsson, f.
12.5. 1978, verkfræðingur, búsettur
í Danmörku.
Móðir Rakelar er Jóhanna Guð-
rún Gissurardóttir, f. 19.10. 1949,
vann við afgreiðslu- og þjónustu-
störf, búsett á Selfossi, gift Má
Hinrikssyni múrarameistara, f.
29.11. 1949, en þau hafa verið gift
frá árinu 1973. Faðir Rakelar er
Sveinn Bjarnason f. 25.8. 1949,
verkefnastjóri, býr í Hafnarfirði
með eiginkonu sinni, Öldu Bene-
diktsdóttur, f. 13.4. 1946.
Rakel Sveinsdóttir
Ingibjörg Ágústsdóttir
húsfreyja á Svalbarðseyri
Sigmar Bergvin Benediktsson
vélstjóri á Svalbarðseyri
Ásta Sigmarsdóttir
kaupkona á Akureyri
Bjarni Sveinsson
múrari á Akureyri
Sveinn Bjarnason
verkefnastjóri,
bús. í Hafnarfirði
Björg Jóhanna Vigfúsdóttir
kjólameistari á Akureyri
Sveinn Bjarnason
kennari og framfærslufulltr.
á Akureyri
Rakel
Garðarsdóttir
framkvæmda-
stjóri í Rvík
Halldóra S.
issurardóttir
verkakona á
Suðureyri
Ingibjörg Bjarnadóttir
(Stúlla) spámiðill á Akureyri
Gísli Örn
Garðarsson
leikari og
leikstjóri á
Seltjarnarnesi
G
Kolbrún
Högnadóttir
sjúkraliði og
fjármálastj. í Rvík
Elín Þorbjarnardóttir
húsfreyja á Suðureyri
Friðbert Guðmundsson
hreppstjóri og útgerðarm.
á Suðureyri
Guðmunda Ingibjörg Friðbertsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Gissur Guðmundsson
húsasmiðameistari á Suðureyri
Herdís Þórðardóttir
húsfreyja í Ytri-Vatnadal
Guðmundur Júlíus Pálsson
bóndi í Ytri-Vatnadal í Súgandafirði
Úr frændgarði Rakelar Sveinsdóttur
Jóhanna Guðrún Gissurardóttir
vann við afgreiðslu- og
þjónustustörf, bús. á Selfossi
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Fánaprentun
„Æ, ÞETTA ER NÚ SVOLÍTIÐ
VANDRÆÐALEGT. ÞÚ ÞJÁLFAÐIR MIG OG
NÚ ER ÉG ORÐINN YFIRMAÐUR ÞINN.”
„EKKI SKIL ÉG HVERS VEGNA FÓLK ER
HRÆTT VIÐ HUNDA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hitta réttu
manneskjuna á réttum
tíma.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DÆS…
HEPPNI EDDI, MISTÖK ÞÍN
KOSTUÐU OKKUR SIGURINN Í
ORRUSTUNNI VIÐ JARLINN Í DAG!
ÉG ER SVO ÞAKKLÁTUR FYRIR
ÞAÐ AÐ LÍSA ER KÆRASTAN MÍN
ÉG SENDI HENNI
ÞAKKARKORT
JARLINN BAUÐ MÉR AÐ
FAGNA MEÐ MÖNNUM HANS
OG FÁ MÉR SIGURPÍTSU
MEÐ ÞEIM!
ÉG SENDI
HENNI
SAMÚÐAR-
SKEYTI
ÞETTA ER EKKI
TÓMT TJÓN!
Kvæðabók Hannesar Péturssonarkom út þegar ég var í 3. bekk í
menntaskóla og var á hvers manns
vörum. Við menntskælingarnir
skeggræddum bókina og fórum með
hendingar eins og:
Veistu hvað gleðin tefur tæpa stund
en treginn lengi.
Síðan hefur Kvæðabók verið sú
ljóðabók sem mér þykir vænst um.
Og í dag, 17. júní, gríp ég hana og
rifja upp „Bláir eru dalir þínir“.
Þetta er fyrsta erindið:
Bláir eru dalir þínir
byggð mín í norðrinu,
heiður er þinn vorhiminn,
hljóðar eru nætur þínar,
létt falla öldurnar
að innskerjum
- hvít eru tröf þeirra.
Nú í vor kom út lítið kver: „Til
Sölva frá Hannesi Péturssyni með
hugheilum árnaðaróskum á sjötugs-
afmæli, 10. maí 2020.“ Á þessum
blöðum er ekkert eldra en frá 2007
og gripið á stangli upp úr syrpu, sem
kallast í handriti „Lausakveð-
skapur“.
Erindin í bókinni eru af ýmsum
toga og auðvitað alltaf skemmtilegt
þegar Hannes lætur fjúka í kviðling-
um og leikur sér. „14.12. 2016“ er
yfirskrift þessarar vísu:
Gaman er enn að gá til stjarna.
Gaman er enn að hlátri barna.
Gaman er enn að grúska og skrifa.
Já gaman er enn sem fyrr að lifa.
Þessi heitir „Skammdegi“:
Hvort veitist mér enn að vorsins ilm ég
finni
og vangann strjúki sunnanblærinn heiti?
Ég á að sönnu minna en ekkert inni
hjá yfirsmiði heims að þessu leyti.
„Umbreyttar húsagötur“ orti
Hannes „eftir stutta viðstöðu á
Króknum“ og vel skil ég þessar hug-
renningar þegar ég renni huganum
til Laugavegar, þar sem ég er fædd-
ur:
Tilfinningin var næsta ný:
ég nuggaði augun sitt á hvað
og gat ekki fundið fyrir því
að fæðzt hefði ég á þessum stað.
Heima:
Ævi minni uni ég bezt
á Álftanesinu smáða.*
Þar vil ég faðma hinn fölva gest,
ef fæ ég einhverju að ráða.
*Sbr. kvæðið um Jörund hunda-
dagakóng eftir Þorstein Erlingsson
o.fl. gamalt.
Að Þrístöpum, 1830:
Eggin breiða skal bíta
bitur er nakinn háls.
Enginn má undan líta
er öxin tekur til máls.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bláir eru dalir þínir