Morgunblaðið - 17.06.2020, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 17.06.2020, Blaðsíða 62
Ljósmynd/Skagafréttir Glæsimark Andri Fannar Stefánsson, Almarr Ormarsson, Stefán Teitur Þórðarson og Pétur Guðmundsson dómari horfa á eftir boltanum þegar Stefán skoraði annað mark sitt og Skagamanna gegn KA með glæsilegu skoti. 1. UMFERÐ Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórð- arson fór á kostum fyrir ÍA og skor- aði tvö glæsileg mörk þegar liðið vann 3:1-sigur gegn KA í 1. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, á Akranes- velli á sunnudaginn. Miðjumaðurinn er 21 árs gamall en hann er uppalinn hjá ÍA og er af miklum knattspyrnuættum. Stefán á að baki 41 leik í efstu deild þar sem hann hefur skorað fimm mörk. „Þessi sigur gegn KA kom hvorki mér né liðinu á óvart,“ sagði Stefán Teitur í samtali við Morgunblaðið en hann er sá leikmaður sem þótti standa sig best í 1. umferðinni og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína. „Við erum búnir að æfa virkilega vel síðan við komum allir saman eft- ir samkomubann og við vorum með- vitaðir um það að við gætum vel unnið KA ef við færum eftir leik- planinu. Þeir byrjuðu leikinn betur og voru sterkari en við fyrstu tuttugu mínúturnar, en svo fannst mér við vera með þá eftir það. Við spiluðum virkilega vel og sköpuðum okkur góð marktækifæri líka. Það eru mikil gæði í okkar leikmannahóp, við höfðum allan tímann trú á verk- efninu og uppskárum sanngjarnan sigur,“ sagði Stefán Teitur sem á að baki 2 A-landsleiki fyrir Ísland og 12 leiki fyrir U21 árs landsliðið þar sem hann hefur skorað eitt mark. Fótbolti á Skipaskaga Skagamenn höfnuðu í tíunda sæti á síðustu leiktíð en liðinu var spáð níunda sæti deildarinnar í spá mbl.is, Morgunblaðsins og K100. „Við ætlum okkur ekki að vera í einhverri fallbaráttu í sumar, það er alveg á hreinu. Við viljum gera bet- ur en á síðustu leiktíð og svo auðvit- að spila okkar leik. Í fyrra vorum við mikið að sparka boltanum langt og vona það besta en markmiðið í sumar er að spila alvöru fótbolta. Við erum með fullt af góðum leik- mönnum í hópnum. Það vita allir að Árni [Snær Ólafsson] er frábær spyrnumaður en hann er líka mjög góður í fótbolta og getur spilað bolt- anum stutt. Tryggvi Hrafn [Haraldsson] og Bjarki Steinn [Bjarkason] eru mjög hættulegir fram á við þannig að gæðin eru svo sannarlega til staðar í okkar liði. Þá hafa ungu strákarnir verið að koma vel inn í þetta og þeir eru flestir búnir að bæta sig mikið undanfarna mánuði. Brynjar Snær [Pálsson] var sem dæmi í byrjunar- liðinu gegn KA en hann er fæddur árið 2001 og er enn í 2. flokki. Hann stóð sig virkilega vel og hann á bara eftir að vaxa, ásamt Jóni Gísla [Ey- land] sem er líka gjaldgengur í 2. flokkinn.“ Stefán Teitur lék alla deildarleiki ÍA síðasta sumar þar sem hann skoraði eitt mark en hann setur stefnuna á að gera betur í ár. „Miðjuspil liðsins fer mikið í gegnum mig og ég þarf þess vegna að stíga upp í sumar. Ég tel mig vel í stakk búinn til þess að gera það. Ég er þroskaðari núna en á síðustu leiktíð og kann stöðuna betur. Byrjunin á tímabilinu hjá mér persónulega lofar góðu og vonandi get ég byggt ofan á það. Ég vil virkilega sýna hvað ég get í hverjum einasta leik, ekki bara í einhverjum fimm til sex leikjum, eins og á síð- ustu leiktíð. Við sjáum svo bara hvert það mun skila mér og það er það eina sem ég er að hugsa um, ásamt því að gera vel fyrir ÍA auð- vitað. Hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér og fótboltinn í dag virkar þannig að ef maður stendur sig þá mun eitt- hvað gott gerast. Ég hef sett stefn- una á atvinnumennsku í framtíðinni og vonandi gengur það eftir á ein- hverjum tímapunkti á ferlinum.“ Hrósað þegar vel gengur Faðir Stefáns Teits er Þórður Þórðarson, fyrrverandi markmaður ÍA og núverandi þjálfari U19 ára landsliðs kvenna, en hann varð þrí- vegis Íslandsmeistari með ÍA á ár- unum 1994-1996. Þá er Ólafur Þórð- arson, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaður, leikmaður og síðan þjálfari ÍA, afabróðir Stefáns en þeir starfa saman hjá fjölskyldu- fyrirtækinu Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi. „Þeir sem eru af eldri kynslóðinni hérna uppi á Skaga pikka alveg í mann og minna á hvað þeir voru að afreka á sínum tíma. Þeir átta sig nú samt flestir á því að þetta hefur aðeins breyst og hlutirnir eru öðru- vísi í dag en í þá gömlu góðu daga. Okkur er hrósað þegar vel geng- ur og svo fáum við að heyra það líka þegar við stöndum okkur ekki. Ég var til dæmis mættur í vinnuna klukkan sjö í morgun [gær] með Óla Þórðar og hann var strax byrjaður að leggja mér lífsreglurnar. Ég og pabbi tölum svo mikið sam- an um leikina, bæði fyrir og eftir þá. Eftir síðasta tímabil ræddum við það mikið að ég þyrfti að vera dug- legri að koma mér inn í teiginn og það skilaði sér svo sannarlega gegn KA.“ Hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér í fótboltanum  Skagamaðurinn Stefán Teitur segir að ÍA ætli að spila alvörufótbolta í sumar 1. umferð í Pepsi Max-deild karla 2020 3-4-3 Hákon Rafn Valdimarsson Gróttu Björn Daníel Sverrisson FH Sölvi Snær Guðbjargarson Stjörnunni Stefán Teitur Þórðarson ÍA Andri Rafn Yeoman Breiðabliki Brynjar Snær Pálsson ÍA Steven Lennon FH Kennie Chopart KR Brynjar Gauti Guðjónsson Stjörnunni Óskar Örn Hauksson KR Sigurpáll Melberg Pálsson Fjölni 62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020 Noregur Aalesund – Molde .................................... 1:4  Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund og Hólmbert Aron Friðjóns- son kom inn á fyrir Daníel Leó Grétarsson á 58. mínútu. Stabæk – Mjöndalen................................ 0:0  Dagur Dan Þórhallsson var ekki í leik- mannahópi Mjöndalen. Odd – Sandefjord..................................... 1:2  Viðar Ari Jónsson og Emil Pálsson léku allan leikinn með Sandefjord. Sarpsborg – Vålerenga........................... 0:1  Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn með Vålerenga og lagði upp markið. Viking – Bodö/Glimt............................... 2:4  Axel ÓskarAndrésson var ekki í leik- mannahópi Viking.  Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Þýskaland Union Berlín – Paderborn...................... 1:0  Samúel Kári Friðjónsson var varamaður hjá Paderborn og kom ekki við sögu. Mönchengladbach – Wolfsburg .............. 3:0 Freiburg – Hertha Berlín........................ 2:1 Werder Bremen – Bayern München...... 0:1 Staðan: Bayern M. 32 24 4 4 93:31 76 Dortmund 31 20 6 5 82:35 66 RB Leipzig 31 17 11 3 77:32 62 Mönchengladb. 32 18 5 9 61:38 59 Leverkusen 31 17 6 8 57:41 57 Wolfsburg 32 12 10 10 44:41 46 Freiburg 32 12 9 11 43:44 45 Hoffenheim 31 12 7 12 42:52 43 Schalke 31 9 12 10 36:48 39 E.Frankfurt 31 11 5 15 53:56 38 Hertha Berlín 32 10 8 14 45:57 38 Union Berlin 32 11 5 16 38:54 38 Köln 31 10 5 16 48:59 35 Augsburg 31 9 8 14 42:57 35 Mainz 31 9 4 18 39:63 31 Düsseldorf 31 6 10 15 33:61 28 Werder Bremen 32 7 7 18 35:65 28 Paderborn 32 4 8 20 34:68 20  Bayern er meistari, Paderborn er fallið.  Bayern München tryggði sér í gær- kvöld sinn áttunda meistaratitil í röð í þýsku knattspyrnunni með því að sigra Werder Bremen 1:0 á úti- velli. Rétt einn ganginn var Robert Lewandowski á ferðinni og skoraði sigurmarkið á 43. mínútu eftir sendingu frá Jeróme Boateng en þetta var 46. mark Pólverjans fyrir Bayern á tímabilinu. Bakvörðurinn Alphonso Davies var rekinn af velli á 79. mínútu en tíu Bæjarar héldu fengnum hlut. Bayern er nú komið með 76 stig og er tíu stigum á undan Dortmund sem á leik til góða gegn Mainz í dag. Tveimur umferðum er ólokið í 1. deildinni. Samúel Kári Friðjónsson og sam- herjar hans í Paderborn féllu end- anlega úr deildinni í gærkvöld þeg- ar þeir töpuðu fyrir Union Berlín á útivelli, 1:0. Þeir eru nú átta stigum á eftir Fortuna Düsseldorf og Werder Bremen. Tryggði titilinn með 46. markinu á tímabilinu AFP Meistarar Robert Lewandowski skorar sigurmarkið í Bremen.  Matthías Vilhjálmsson og sam- herjar í Óslóarliðinu Vålerenga fengu óskabyrjun á keppnistímabilinu í norsku knattspyrnunni í gærkvöld þegar þeir lögðu Sarpsborg að velli, 1:0, á útivelli í fyrstu umferð úrvals- deildarinnar. Matthías lék allan leikinn í framlínunni hjá Vålerenga og lagði upp sigurmarkið fyrir Aron Leonard Dönnum á 41. mínútu.  Golfsamband Evrópu tilkynnti í gær að tvær stærstu mótaraðirnar í karla- flokki færu aftur af stað í júlímánuði. Haraldur Franklín Magnús og Guð- mundur Ágúst Kristjánsson úr GR eru á meðal þeirra sem eru með keppnis- rétt á næststerkasta mótinu, Áskor- endamótaröðinni, og gefið hefur verið út að fyrsta mótið þar verði Opna austurríska mótið dagana 9. til 12. júlí. Evrópumótaröðin i kvennaflokki, þar sem Valdís Þóra Jónsdóttir og Guð- rún Brá Björgvinsdóttir spila, fer væntanlega af stað í ágúst.  Tveir öflugir knattspyrnumenn eru orðaðir við enska félagið Tottenham sem er sagt hafa rætt við umboðs- menn þeirra beggja. Það eru belgíski bakvörðurinn Thomas Muenier sem verður laus allra mála hjá París SG í sumar og króatíski sóknartengilið- urinn Ivan Perisic sem Bayern Münch- en er með í láni frá Inter Mílanó.  Framkvæmdastjórn Knattspyrnu- sambands Evrópu kemur saman í dag til að ræða hvernig staðið verði að lokaspretti Evrópumótanna. Reiknað er með að staðfest verði að keppni í Meistaradeild karla verði haldin í Portúgal og keppni í Evrópudeildinni í Þýskalandi í ágústmánuði. Eitt ogannað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.