Morgunblaðið - 17.06.2020, Blaðsíða 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Velkomin
aftur
w w w. i t r. i s
L augarnar í Reykjaví k
Höldumbilinu
S ý n u m hve r t ö ð r u t i l l i t s s e m i o g v i rð u m 2 m e t r a
f j a r l æ g ð a r m ö r k i n a l l s s t a ð a r þ a r s e m m ö g u l e g t e r
G e s t i r e r u á e i g i n á by r g ð
Við erum öll almannavarnir
2m
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Vinalegri og afslappaðri mann en
Daða Frey Pétursson er varla að
finna; manninn sem margir telja
ókrýndan sigurvegara Eurovision
2020, keppninnar sem aldrei var
haldin. Lag Daða og Gagnamagns-
ins, „Think About Things“, sló eft-
irminnilega í gegn bæði hér á landi
sem erlendis og með hjálp nets og
samfélagsmiðla er Daði nú orðinn
ofboðslega frægur. Frægðin hefur
þó ekki stigið honum til höfuðs enda
má vinsældir hans að miklu leyti
þakka hlýlegu viðmóti hans, húmor
og grallaraskap.
Daði býr með eiginkonu og barni í
Berlín og sendir reglulega frá sér
skemmtilega glúrin vídeó þar sem
hann ýmist tekur fyrir eigin lög eða
annarra, nú síðast lag úr væntan-
legri grínmynd Wills Ferrells um
Eurovisionkeppnina. Myndbönd
Daða við eigin lög einkennast oftar
en ekki af dásamlegum einfaldleika,
spaugilegum danssporum og hug-
myndum og sem dæmi um vinsældir
hans má nefna að horft hefur verið
á myndbandið við Eurovisionlagið
fyrrnefnda um 11,2 milljón sinnum á
YouTube.
Árlega á Airwaves frá 2017
Daði kom seinast fram á Airwav-
es í fyrra og segist hann hafa komið
fram á hátíðinni árlega allt frá árinu
2017. Og nú er hann orðinn heims-
frægur, eða hvað? „Nú er ég orðinn
svakalegur, sko,“ svarar Daði
sposkur og er í framhaldi spurður
að því hvort fleiri en hann verði á
sviðinu. „Við verðum þrjú, ég er bú-
inn að bæta við gítarleikara, Pétri
Karli sem spilaði á gítar í „Think
About Things“ og svo er ég með
trommuleikara frá Noregi, hún heit-
ir Ylva. Við verðum líka með ein-
hvern ljósamann og svona, ætlum
að reyna að gera þetta almenni-
legt.“
– Gagnamagnið verður þá ekki
með þér á Iceland Airwaves?
„Nei, Gagnamagnið er ekki
alvöruhljómsveit, kemur bara fram
þegar Eurovision er, þá tökum við
skóna af hillunni.“
Evróputúr er fram undan hjá
Daða í árslok og verður komið víða
við. Að auki verður hann með tón-
leika í Dublin og London í apríl á
næsta ári og heyra má að það er
heldur betur nóg að gera hjá hon-
um. Sömu hljóðfæraleikarar verða
með í för og koma fram með Daða á
Airwaves.
– Kannski er of snemmt að spyrja
en ætlarðu að taka þátt aftur í
Söngvakeppninni?
„Ég veit það ekki alveg ennþá, er
opinn fyrir því að skoða það en það
er ekki komið á hreint.“
– Þetta hefur líka verið ansi mikil
óheppni, fyrst lendið þið í öðru sæti
og svo er keppnin slegin af út af
Covid-19-farsóttinni.
„Já, en það hefur spilast ágætlega
úr þessu þannig að ég er ekkert allt-
of svekktur,“ svarar Daði og bætir
við að helsta svekkelsið hafi verið að
geta ekki farið til Hollands með
hinu skemmtilega Gagnamagni.
Rússland, Finnland eða Írland?
– Þú fékkst rosalega mikla at-
hygli eftir að Eurovisionkeppnin var
blásin af og margir voru á því að þið
hefðuð unnið hefði keppnin verið
haldin. Þú fórst í alls konar viðtöl í
þáttum og fjölmiðlum, þetta hlýtur
að hafa breytt mjög miklu fyrir þig
og þú hlýtur að hafa fengið fjölda
tilboða um hitt og þetta, ekki satt?
„Jú, jú, þetta er orðinn allt annar
leikur fyrir mig núna. Fyrir tíu mín-
útum var ég í viðtali í írska útvarp-
inu og ég er í svo mörgum viðtölum
núna að ég veit ekki endilega hvaða
viðtöl ég er að fara í þegar þau
byrja. Ég hef alveg lent í því að
vera að tala við Rússland og halda
að ég sé að tala við Finnland og áð-
an þegar ég svaraði Írlandi í símann
vissi ég að ég væri að fara tala við
útvarpsstöð en hafði ekki hugmynd
um í hvaða landi,“ segir Daði og
hlær við.
– Hvernig lagðist í þig þetta æði
sem myndaðist í kringum ykkur í
Eurovision?
„Ef allt þetta hefði gerst fyrir
þremur árum þegar við kepptum
held ég að ég hefði ekki getað
höndlað það. Það er fínt að hafa þá
náð að verða heimsfrægur á Íslandi
og upplifa að fólk kannaðist við
mann áður en þetta fór út fyrir Ís-
land. Ég er mjög feginn að þetta er
að gerast núna en ekki þá,“ svarar
Daði.
Sigraði með RetRoBot
– Þú varst býsna sjóaður sem tón-
listarmaður áður en þú tókst fyrst
þátt í Söngvakeppninni og allt þetta
eurovisionstúss byrjaði, búinn að
vera lengi að í tónlist, ekki satt?
„Jú, ég held ég hafi sett fyrsta
lagið mitt á netið fyrir 15 árum,“
svarar Daði en hann keppti fyrst í
Músíktilraunum árið 2008 með
hljómsveitinni Sendibíl, fjórum ár-
um áður en hann sigraði í tilraun-
unum með hljómsveitinni RetRo-
Bot. Í þeirri sveit gegndi hann stöðu
söngvara og rafheila.
Daði segist hafa verið að leika sér
að búa til lög og setja á netið allt frá
árinu 2006 og spila með bílskúrs-
hljómsveitum. „Þá var ég bara að
læra á upptökuforrit, meira það en
að búa til listræna músík,“ segir
Daði þegar hann er spurður hvort
tónlistin hans hafi ekki tekið mikl-
um breytingum á þessum tíma.
Avol sér um dreifinguna
– Varstu að semja á fullu og taka
upp í samkomubanninu?
„Ég náði að semja eitt lag og gaf
það út fyrir þremur vikum og er
kominn með nokkra grunna að ein-
hverju sem ég get haldið áfram
með. Annars er ég búinn að vera í
viðtölum og bissnesspartinum af
tónlistinni, var að semja við
dreifingarfyrirtæki og er að tala við
útgáfufyrirtæki núna,“ svarar Daði
og segist sjaldan hafa haft eins lít-
inn tíma til að vinna að eigin tónlist
og einmitt nú. Dreifingarfyrirtækið
nefnist Avol og er breskt og segir
Daði það teygja anga sína víða, sé
með skrifstofur í Bandaríkjunum,
Þýskalandi og víðar um lönd.
– Vonandi fer enginn að fikta við
ímynd þína?
„Nei og ég passa mig á því, er
ekki að semja við plötufyrirtæki og
ræð hvaða tónlist ég gef út og hve-
nær. Ég hef alltaf ákvörðunarvaldið
og vildi þess vegna ekki semja við
plötufyrirtæki þótt ég hefði mögu-
lega getað fengið meiri pening,“
svarar Daði. Hann muni áfram gefa
út tónlist í eigin nafni og því verði
ekki breytt. Hann vilji hafa stjórn á
því sem hann geri.
Hljóðgervlapopp og
„alternative“ dansmúsík
Tónlist Daða einkennist öðru
fremur af notkun hljóðgervla og
dúnmjúkum söng. Hún er tilvalin til
að dilla sér við, líkt og Daði gerir
oftar en ekki í myndböndum sínum
og myndi falla í flokk hljóðgervla-
popps, að hans sögn. „Alternative
dansmúsík líka stundum,“ bætir
hann við sposkur. „Ef maður segir
bara poppmúsík er það ekki nógu
fínt.“
– Kannski er fullsnemmt að
spyrja að því en hvað verða þetta
langir tónleikar á Airwaves?
„Ég veit ekki hversu langan tíma
ég fæ, ætli það verði ekki 40 mín-
útur. Mér finnst það eðlilegt á þess-
um stað í Airwaves en ég get alveg
spilað lengur,“ svarar Daði. Honum
þyki ekkert skemmtilegra en leika
og syngja fyrir gesti á tónleikum.
Tónleikahald og meiri músík
– Þú átt þér orðið ótrúlega marga
aðdáendur, hefurðu eitthvað velt
framtíðinni fyrir þér, hvert þú
stefnir? Er eitthvert plan komið?
„Ég er í rauninni bara að halda
áfram núna að plana þennan túr í
lok árs og síðan er ég aðeins farinn
að skoða tónleikahald á næsta ári.
Ég veit nokkurn veginn hvenær ég
ætla að gefa út meiri músík, þótt
hún sé ekki tilbúin veit ég hvenær
ég ætla að vera tilbúinn með hana.
Ég ætla ekki að segja neitt um það
núna því þá á það eftir að breytast.“
Brátt verður gamanmynd banda-
ríska leikarans og grínistans Wills
Ferrells um Eurovision frumsýnd
og blaðamaður veltir vöngum yfir
því hvort hún muni opna eurovision-
dyr fyrir Daða í Bandaríkjunum.
„Það væri ekki leiðinlegt og ég er
líka með teymi í Bandaríkjunum,
það er fullt af fólki að vinna í mús-
íkinni minni núna og það er alls
konar sem maður getur gert,“ segir
Daði að lokum og kveður blaðamann
með þeim orðum að hann hlakki til
að sjá hann meðal gesta á Airwaves.
Möguleikar „Það er fullt af fólki að vinna í músíkinni minni núna og það er alls konar sem maður getur gert,“ segir
poppstjarnan Daði Freyr sem hefur í nógu að snúast og sést hér súpa úr fagurlega skreyttum Daða-bolla.
„Nú er ég orðinn svakalegur“
Daði Freyr kemur fram á Iceland Airwaves „Ef allt þetta hefði gerst fyrir þremur árum þegar
við kepptum held ég að ég hefði ekki getað höndlað það,“ segir hann um Eurovisionfrægðina