Morgunblaðið - 17.06.2020, Page 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Tveimur styrkjum úr Minningarsjóði
Kristjáns Eldjárns gítarleikara var
úthlutað í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar síðdegis í gær. Venjan er að
einum styrk sé úthlutað en úthlut-
unin var höfð tvöföld að þessu sinni
vegna aðstæðna í tónlistarheiminum.
Þessi tvöföldun er framlag sjóðsins
til starfsstéttar tónlistarfólks, sem
hefur komið illa út úr samkomubann-
inu.
Að þessu sinni hlutu styrkina
Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari
og Sóley Stefánsdóttir, söngkona og
tónskáld, sem er betur þekkt einfald-
lega undir listamannsnafninu Sóley.
„Það er vægast sagt mjög óvænt
ánægja að fá þennan styrk,“ segir
Benedikt. „Ég er auðvitað búinn að
vera heima hjá mér í þrjá mánuði,
eins og kannski flestir aðrir tónlistar-
flytjendur.“ Hann segir tekjutapið
sem skapast hefur vegna ástandsins
„alveg sturlað“. Styrkurinn kemur
sér því vel.
Eitthvað sem tengist Íslandi
Benedikt segist vera búinn að
hugsa mikið um í hvað styrkurinn
eigi að nýtast en að hann sé ekki enn
kominn að niðurstöðu. „Mig langar
mjög mikið að nýta styrkinn í eitt-
hvað sem tengist Íslandi á einhvern
hátt.“ Hann býr í Berlín og hefur bú-
ið erlendis síðustu 13 ár. „Svo það
væri gaman að gera eitthvað tengt
Íslandi.“ segir Benedikt.
Hann segir frá því að upp hafi
meðal annars komið sú hugmynd að
vinna með verk Þórarins Eldjárns,
föður Kristjáns Eldjárns heitins.
„Þórarinn er frábært skáld og það
væri kannski hægt að búa til ný tón-
verk við ljóð hans og taka upp. Eitt-
hvað slíkt kemur upp í hugann.“
Benedikt hefur að mestu leyti
verið atvinnulaus í kófinu en hann
segir það aðeins vera að breytast.
„Núna er fólk að byrja að plana eitt-
hvað, þótt það sé líklega langt í land
að maður geti haldið tónleika þar
sem setið er í hverju sæti.“
Fram undan hjá Benedikt eru æf-
ingar á óperunni Così fan tutte eftir
Mozart. „Það verður sviðsetning sem
byggist mjög mikið á Covid-19.
Söngvararnir verða langt hver frá
öðrum, eins og einhverjar strengja-
brúður og færa sig ekki úr stað.“
Verkið verður svo flutt í næsta mán-
uði fyrir myndavélar og uppsetningin
er hugsuð fyrir netið. Benedikt nefn-
ir að í framhaldinu væri svo hægt að
selja þessa uppsetningu til óperu-
húsa þegar tónleikalíf kemst aftur í
eðlilegt horf.
Leikstjóri og söngvarar, sem eru
atvinnulausir vegna ástandsins,
standa að óperunni með Benedikt.
Hann segir uppfærsluna verða á
mjög háu gæðaplani. „Það góða er að
allir hafa tíma núna, það er enginn að
gera neitt. Það býr svo mikið af frá-
bærum listamönnum í Berlín og það
var tiltölulega auðvelt að sannfæra
fólk um að vera með. Þetta er mjög
spennandi og eiginlega í eina skiptið
sem hægt er að gera eitthvað svona
alveg fyrirvaralaust.“
Benedikt er, eins og áður sagði,
búsettur í Berlín og gat því ekki verið
viðstaddur afhendinguna. Hann
sendi þó myndband með þakklætis-
votti. Þar flutti hann lag fyrir við-
stadda; söng við eigin gítarleik.
Kristján Eldjárn var gítarleikari og
Benedikt þótti því vel við hæfi að
leika á gítar í þakkarkveðju sinni.
Hann getur þess einnig að fyrsti tón-
listarmaðurinn til að hljóta styrk úr
minningarsjóðnum hafi verið gítar-
kennari hans, Kristinn H. Árnason.
Gítarleikur átti því vel við.
Nýtir tímann til að semja
„Styrkurinn kemur sér alveg ótrú-
lega vel og er mikill heiður,“ segir
Sóley Stefánsdóttir, hinn styrkþeg-
inn. Hún segir styrkinn koma sér
sérstaklega vel á þessum tímum, í
ljósi þess að nánast öllum viðburðum
hennar hefur verið aflýst út árið, eins
og hjá flestum tónlistarmönnum.
Sóley á bókað tónleikaferðalag í nóv-
ember en hún segir að enn sé verið
að kanna hvort það muni ganga eftir.
Aðaltekjur Sóleyjar hafa verið af tón-
leikaferðum en hún nefnir þó að fólk í
hennar sporum sé vant því að inn-
koman sé misjöfn eftir tímabilum.
„Svona er lífið,“ segir hún.
Sóley segist nýta tímann í kófinu
til þess að semja tónlist. „Ég er að
klára plötu núna sem á að koma út í
haust. Tónleikaferðalagið í lok nóv-
ember ætti að vera til að fylgja þeirri
plötu eftir, en það er allt óljóst enn
hvernig það verður, hjá bókara og á
tónleikastöðum úti í heimi.“
Sóley segist ætla að nýta tímann,
og styrkinn, til þess að byrja á næstu
plötu. Hugmyndin að plötunni er
komin. Það verður að hennar sögn
framhald af því sem hún hefur verið
að gera, en verður þó fyrsta plata
hennar án söngs. „Ég ætla bara að
halda áfram að semja, semja og
semja.“
Sóley segist heyra það á vinum sín-
um og samstarfsfélögum að tónlist-
arfólk nýti þennan tíma til þess að
semja mikið, eins og hún sjálf. „Fólk
er mikið að finna upp á nýjum hug-
myndum og að framkvæma hug-
myndir sem það hefur gengið lengi
með í kollinum. Þessi plata sem mig
langar að byrja á er nokkuð sem mig
hefur lengi langað að gera.“
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Styrkhafi Tónlistarkonan Sóley Stefánsdóttir tók við styrk úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar sídegis í gær. Hún nýtir tímann í kófinu til þess að vinna að plötum og semja nýtt efni.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Rafrænt Tenórsöngvarinn Benedikt Kristjánsson nýtti tæknina til þess að
birtast viðstöddum á myndbandi og syngja lag til þakklætis.
Kemur sér vel á þessum tímum
Benedikt Kristjánsson og Sóley Stefánsdóttir hlutu styrki úr minningarsjóði Kristjáns Eldjárns
Tvöföld úthlutun er framlag sjóðsins til tónlistarfólks í kófinu „Vægast sagt óvænt ánægja“