Morgunblaðið - 17.06.2020, Side 68

Morgunblaðið - 17.06.2020, Side 68
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 2020 Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is AF MYNDLIST María Hilmarsdóttir majahilmars@gmail.com Altaristafla meistaranna Simoni Martini og Lippo Memmi af boðun Maríu er eitt fallegasta trúarverk síðmiðalda. Verkið var uppruna- lega gert sem tafla fyrir altari Sankti Ansanus, vendardýrlings Siena, í þverskipi hinnar stórkost- legu dómkirkju í Siena. Verkið er stórt og mikilfengið, gyllt og þokkafullt eins og dýrindisskart- gripur eða gullsmíði. Enn má sjá áritun með nöfnum listamannanna og dagsetningu á viðarparti frá upprunalega rammanum sem er nú hluti af hinni endurgerðu um- gerð frá 19. öld sem innrammar verkið í dag. Verkið er tempera- verk og málað á þrjú viðarspjöld – stórt miðspjald með aðalmynd- efninu og tveimur minni hliðar- spjöldum með dýrlingunum Ans- anusi og (líklegast) Margréti. Altaristaflan var tekin niður á 18. öld og í dag hangir hún á Uffizi- safninu í Flórens. Á þessum tíma var mikil upp- hefð á dýrkun og tilbeiðslu á Mar- íu mey og voru margar kirkjur sem og mörg trúarverk tileinkuð henni. Merkileg listaverk voru gerð fyrir dómkirkjuna í Siena – þar á meðal aðalaltaristaflan, Ma- esta, sem máluð var af meistaran- um Duccio, einum helsta lista- manni Siena á þessum tíma. Vel má vera að Martini og Memmi, sem voru af næstu kynslóð hæfi- leikaríkra síeneskra listamanna, hafi lært af Duccio, þar sem áhrif myndstíls hans eru vel sjáanleg í meistaraverkinu, Boðun Maríu. Hér blandast svo fallega sam- an ný áhrif og gamlar hefðir. Hægt er að sjá hinar miklu fram- farir sem fylgdu Giotto og þeirri byltingu sem list hans ýtti undir í hinu nákvæma formi blómavasans með liljunum, sem og gólfinu sem hann stendur á. Raunsæislegt form bænabókarinnar í hendi Maríu lýs- ist upp þegar ljós og skuggar leika um hálfopnar síðurnar og stóllinn sem María situr á sýnir dýpt og rými. En hér er líka haldið fast í hefðbundna býsanska formgerð þar sem enn lifa glóðir frá forn- klassíska stílnum og hinum franska (gotneska) skrúðstíl þar sem léttleiki og fínleg form, ásamt líðandi þokkalegum línum og fal- legu munstri, eru í fyrirrúmi. Listamenn í Siena höfnuðu ekki hinum gömlu miðaldahefðum held- ur blönduðu saman nýjum og gömlum straumum. Skipulagning og hönnun verksins er snilldarleg. Gylltur grunnur færir umhverfinu heilaga tilfinningu og skapar mótsögn við Einstakt jafnvægi Einstakt Boðun Maríu eftir Simone Martini og Lippo Memmi, frá árinu 1333. Tempera á viðarspjald með gylltum bakgrunni. Verkið er 184x168 cm að stærð og er eitt fallegasta trúarverk síðmiðalda, að því er segir í pistli. form Gabríels og Maríu sem skera sig frá bakgrunninum. Öllu er rað- að upp á svo fallegan hátt. Allir hlutir og öll form hafa sitt hlut- verk og skipta máli og hver einasti smáflötur og hvert lítið munstur eru meistaralega máluð. Verkið sýnir boðun Maríu, sem er ein mikilvægasta stund í kristinni trú. Myndefnið segir frá augnablikinu þegar erkiengillinn Gabríel svífur niður frá himnaríki og færir hinni ungu, saklausu Mar- íu boðun um að hún sé útvalin til að fæða son Guðs. Myndefnið sjálft var engin nýjung og mörg verk miðalda sýna þessa stund. En hér er gerð bylting með að blása lífi í þetta mikilvæga augnablik með fagurlegum og þokkafullum hreyf- ingum og svipbrigðum sem færa efninu léttleika og aukna mann- lega tilfinningu. Ef litið er á vængi Gabríels og möttul hans má sjá að enn er létt hreyfing í skikkjunni þar sem bylgjandi línur lyfta henni upp á við og sýna að engillinn er nýlent- ur. Fallega mynstraðir vængir fylla fullkomlega rýmið inn í boga rammans. Hann heilsar Maríu með orðunum Ave gratia plena dom- inus tecum sem renna af vörum hans og eru árituð yfir myndflöt- inn þveran og að vörum Maríu. Á milli þeirra stendur vasinn með liljum, tákn hreinleika og mey- dóms Maríu. Fyrir ofan hann undir miðboganum sést í dúfu, tákn hins heilaga anda, sem er umkringd há- englum. Heilagur Gabríel krýpur fyrir framan Maríu með ólífugrein í hendi sér, eins og riddari við hirð drottningar. En þótt hann birtist í allri sinni guðdómlegu gylltu feg- urð er það hið stórkostlega andlit Maríu sem grípur athygli áhorf- andans. Henni virðist brugðið og líkami hennar leitar verndar undir boganum. Hún dregur bláan mött- ulinn þétt að sér og á sama tíma er sem hún hlykkist af hræðslu frá erkienglinum. Þegar hann ávarpar hana lítur hún hann hornauga. Andlit hennar sýnir efasemdir hennar og hún er alls ekki ánægð með að hafa verið trufluð í lestri á bænabók sinni og allar hennar hreyfingar koma þessu svo vel til skila. Listmenn frá Siena héldu mun sterkar í hefðir miðalda en félagar þeirra frá Flórens. Þó sýnir þetta verk hvernig þeir fengu innblástur frá skrautlegum gotneskum stíl með sínum fínlegu og þokkafullu línum, löguðu sig að framförum og nýjungum sem kynntar voru af Giotto en náðu jafnframt að halda enn í gamlar hefðir hins tignarlega en formlega býsanska stíls. Hér líða falleg form og línur um mynd- flötinn sem og í dansi og sýna vel hinar mannlegu hliðar Maríu og Gabriels. Í þessu merkilega og óvenjulega verki náðu Martini og Limmi að skapa einstakt jafnvægi – að sýna nýjar framfarir í birt- ingu mannlegra tilfinninga og hreyfinga aðalpersónanna án þess að missa heilagleika stundarinnar. »En hér er gerðbylting með að blása lífi í þetta mikilvæga augnablik með fagur- legum og þokkafullum hreyfingum og svip- brigðum sem færa efn- inu léttleika og aukna mannlega tilfinningu. Myndlistarmað- urinn Snorri Ás- mundsson segist verða fjallkona Reykvíkinga í dag og að það verði í fyrsta sinn sem karl- maður gegni því hlutverki. At- höfnin mun fara fram í Pósthús- stræti 13 og hefst hún kl 10.45. Þar mun fjallkonan Snorri halda erindi um náttúruvernd, kynþátta- samruna og kórónupælingar, eins og því er lýst á Facebook. „Það má segja að ég hafi látið mig dreyma um fjallkonuhlutverkið síðan ég af- salaði mér forsetakandidat hlut- verkinu fyrir 16 árum, því fjall- konan gefur oft tóninn og ég hef því hlutverki að gegna í samtím- anum að gefa tóninn,“ skrifar Snorri þar. Snorri fjallkona Snorri Ásmundsson Tólf verk eru tilnefnd til tónlistar- verðlauna Norðurlandaráðs 2020 fyrir listrænt gildi sitt og þeirra á meðal er tónlist Hildar Guðnadótt- ur við sjónvarpsþættina Chernobyl og „Lendh“ eftir Veronique Vöku. Á meðal tilnefninga eru poppplöt- ur, kvikmyndatónlist, sinfóníur og konsertar sem eiga rætur í tónlist frá þremur kynslóðum, að því er fram kemur í tilkynningu, en til- kynnt var um tilnefningarnar í beinu streymi frá London og Kaup- mannahöfn 16. júní. Kynnar voru breski tónlistar- blaðamaðurinn Andrew Mellor og tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir, fyrrverandi handhafi verð- launanna, og sagði Mellor það hafa verið heiður fyrir hann að fá að kynna sér verkin sem tilnefnd eru til tónlistarverðlauna Norður- landaráðs í ár. „Það sem sameinar verkin tólf er tæknilegur agi og knýjandi þörf fyrir tjáningu í gegn- um tónlist. Öll tólf verðskulda þau að fá víðtæka hlustun og við von- umst til að geta stuðlað að því með þessari útsendingu,“ sagði Mellor m.a. við þetta tækifæri. Úr röðum Dana eru tilnefnd verkin „Songs of Doubt“ eftir Niels Rønsholdt og „Symphony II for Sampler and Chamber Orchestra“ eftir Den Sorte Skole og Karsten Fundal. Finnsku verkin eru „Lake“ eftir 3TM og píanókonsertinn „Konsertto neljäsosasävelaskelpia- nolle ja kamariorkesterille“ eftir Sampo Haapamäki. Fyrir hönd Færeyja er tilnefnt verkið „VÍN“ eftir Janus Rasmussen og fulltrúi Grænlands er Rasmus Lyberth með verkið „Inuunerup oqarfigaanga / Livet skal leves på ny“. Norsku verkin eru „Lyriske stykker“ eftir Ørjan Matre og „Theory of the Sub- ject“ eftir Trond Reinholdtsen og þau sænsku „Honey“ eftir Robyn og „Acanthes“ eftir Andreu Tarrodi. Dómnefnd skipuð fulltrúum frá löndunum tilnefndi verkin tólf til tónlistarverðlaunanna og verður tilkynnt um verðlaunahafa 27. október á verðlaunahátíð í Reykja- vík í tengslum við þing Norður- landaráðs. Verðlaunahafinn hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós og 350 þúsund danskar krónur. Tónlistarverðlaun Norðurlanda- ráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 1965 og er þeim er ætlað að vekja athygli á tónlistarsköpun og tónlist- arflutningi sem telst hafa mikið list- rænt gildi, eins og segir í tilkynn- ingu og eru verðlaunin til skiptis veitt annars vegar núlifandi tón- skáldi og hins vegar tónlistarhópi eða -flytjanda. Í ár renna verðlaun- in til tónskálds. Tilnefndar Hildur og Veronique Vaka. Hildur og Veron- ique tilnefndar Ljósmynd/Silvia Gentili

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.