Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020
✝ Bragi Björns-son fæddist á
Siglufirði 19. júní
1931. Hann lést 25.
júní 2020.
Foreldrar hans
voru Anna Frið-
leifsdóttir hús-
móðir með meiru,
fædd 1901, og
Björn Björnsson,
skipstjóri,
útgerðarmaður og
síðar yfirfiskmatsmaður, fædd-
ur 1903. Systir Braga var Alma,
fædd 1926, gift Stefáni Ólafi
Stefánssyni. Þau eru öll látin.
Bragi kvæntist Sólveigu
Sveinsdóttur frá Ólafsvík árið
1958. Börn þeirra eru þrjú:
bjó þar til ársins 1955. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá Siglu-
firði og stýrimannaprófi frá Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík auk
ýmissa námskeiða í tengslum við
fiskvinnslu og verkstjórn. Hann
var frá unga aldri vinnusamur,
stundaði ýmis störf á Siglufirði,
starfaði sem stýrimaður á fiski-
skipum en lengst af var hann yf-
irverkstjóri í Reykjavík við fisk-
vinnslu Júpiters og Mars, síðar
Sambandsins, á Kirkjusandi.
Bragi og Sólveig hófu búskap
í Eskihlíð 14a í Reykjavík, fluttu
síðan á Kirkjuteig 27 og árið
1974 flutti fjölskyldan í Voga-
tungu 12 í Kópavogi. Sólveig
lést árið 2010 og hélt Bragi einn
heimili í Vogatungu til 2018
þegar hann flutti á hjúkr-
unarheimilið Ísafold í Garðabæ.
Útför Braga fór fram í kyrr-
þey 8. júlí 2020.
Björn, fæddur
1957, maki Elín
Heiður Kristjáns-
dóttir. Þeirra börn
eru Jóhanna, Sól-
veig og Valdís
Birna. Barnabörn
Björns og Elínar
eru sex.
Anna Sigríður,
fædd 1961, maki
Ægir Magnússon.
Þeirra börn eru
Valur, Bragi og Alda. Barna-
börn Önnu og Ægis eru þrjú.
Sveinn Heiðar, fæddur 1966,
maki Svandís Kristinsdóttir.
Þeirra börn eru Sólveig Huld og
Silja Karen.
Bragi ólst upp á Siglufirði og
Tengdafaðir minn Bragi
Björnsson er fallinn frá.
Bragi var fæddur og uppalinn
á Siglufirði, hann var alltaf stolt-
ur af því að vera Siglfirðingur.
Það sem einkenndi Braga var
mikil vinnusemi, ósérhlífni og
dugnaður.
Bragi kláraði nám í Stýri-
mannaskólanum, náði sér í
skipstjórnarréttindi og var nokk-
ur ár á sjó eftir það. Eftir sjó-
mennsku var hann yfirverkstjóri
hjá Júpiter og Mars og síðan
Kirkjusandi hf.
Ég kynntist þeim hjónum
Braga og Sólveigu fyrir um fjór-
um áratugum, en þá bjuggu þau í
Vogatungu í Kópavogi, þar sem
þau áttu fallegt heimili. Þaðan
eiga ég og fjölskyldan góðar
minningar. Þau hjón áttu líka fal-
legan sumarbústað í Borgarfirði,
þar sem við áttum skemmtilegar
samverustundir í fjölda ára.
Bragi var harðduglegur og lagði
mikinn metnað í að hugsa um
sumarbústaðinn og þau Sólveig
ræktuðu upp fallegt svæði í
kringum hann, þar sem þau undu
sér afar vel.
Einnig ferðuðust þau erlendis
og fóru saman á hverjum vetri yf-
ir 20 ár til Kanaríeyja.
Bragi var mjög barngóður og
fannst gaman að fá barnabörnin í
heimsókn, hann dekraði oft við
þau og færði þeim ýmislegt góð-
gæti, grjónagrauturinn hans var
líka frægur, og stundum sendi
hann grjónagraut heim til barna-
barnanna.
Bragi missti eiginkonu sína og
lífsförunaut fyrr tíu árum, það
var honum erfitt en Bragi bar
harm sinn í hljóði og kvartaði
aldrei, hann hélt áfram að búa í
Vogatungunni þar til fyrir tæp-
um tveimur árum þegar hann
flutti á Ísafold í Garðabæ.
Eftir að Sólveig féll frá kom ég
stundum í Vogatunguna og
„mallaði“ eins og Bragi orðaði
það.
Þetta voru gæðastundir þar
sem við spjölluðum mikið saman
meðan á eldamennskunni stóð,
mér fannst gaman að spjalla við
Braga og fékk stundum góðar
ráðleggingar.
Eftir að Bragi flutti á Ísafold
fór heilsu hans hrakandi, en það
sem vakti aðdáun mína var að
aldrei heyrði ég Braga kvarta yf-
ir neinu, hann hrósaði alltaf fólk-
inu sem annaðist hann og mat-
urinn var alltaf góður. Að lokum
vitna ég í orð Braga: „Ég hef átt
gott líf og hef ekki yfir neinu að
kvarta.“
Takk fyrir samfylgdina elsku
Bragi.
Elín H.
Kristjánsdóttir.
Kallið er komið og kveðju-
stundin runnin upp, núna sam-
einast þú ástinni þinni henni Sól-
veigu eftir 10 ára aðskilnað.
Elsku tengdapabbi, margs er að
minnast eftir 26 ára tíma í ykkar
fjölskyldu. Ég gleymi því aldrei
þegar ég hitti ykkur hjónin í
fyrsta skiptið, en mér var boðið í
mat til ykkar á fyrsta vetrardag
árið 1994. Þvílíkar móttökur sem
ég fékk þegar ég kom inn í fjöl-
skylduna. Svona hafði ég aldrei
kynnst.
Við Bragi náðum strax vel
saman og leið mér stundum eins
og prinsessu þegar ég var með
þeim hjónum. Við gátum talað
saman um allt milli himins og
jarðar. Bragi hafði skemmtilegan
húmor og oft var mikið hlegið.
Það voru ekki ófá matarboðin
sem okkur var boðið í Vogatungu
og oftar en ekki þá var heima-
tilbúin Toblerone ís í eftirrétt
sem Bragi hafi búið til en það var
uppskrift sem kom frá honum.
Fljótlega fékk ég þessa uppskrift
hjá honum og er þessi ís ómiss-
andi á jólunum á mínu heimili, afa
ís er bestur eins og dætur mínar
segja.
Sólveig og Bragi áttu sum-
arbústað við Langá á Mýrum og
voru ekki ófáar helgarferðir farn-
ar í bústaðinn með þeim hjónum.
Alltaf var sama fjörið, og þegar
dætur okkar hjóna voru fæddar
þá kom galsinn upp í afa Braga
sem hafði gaman af því að espa
stelpurnar upp og fá þær með í
alls konar fjör, keyra yfir ánna og
fleira. Þær dýrkuðu afa sinn enda
var hann mikill barnakall sem
gerði allt fyrir barnabörnin sín.
Takk fyrir allt elsku tengda-
pabbi Bragi Björnsson, minning-
arnar um þig munu hlýja mér og
fjölskyldu minni um aldur og ævi.
Svandís.
Bragi Björnsson fæddist á
Siglufirði 19. júní 1931. Áratug-
ina þar á eftir voru miklir upp-
gangstímar á Siglufirði, eins og
flestum er kunnugt. Hver einasta
útrétta hönd í bænum fékk vinnu
við hæfi. Bragi fór ekki varhluta
af þessu og byrjaði kornungur að
vinna. Hann var barn að aldri
kominn í fulla vinnu. Bragi var
með eindæmum duglegur og
smitaði gjarnan samferðamenn
sína með vinnusemi sinni og
dugnaði. Vinnan var hans vega-
kort og flaggskip í öldusjó lífsins.
Rúmlega tvítugur fór Bragi til
Reykjavíkur og lauk prófi frá
Stýrimannaskólanum. Hann var
nokkur ár til sjós áður en hann
gerðist yfirverkstjóri hjá Júpíter
og Marz sem síðar, með samein-
ingu við Sambandið varð fisk-
verkunin Kirkjusandur. Það var
á þeim tíma sem Bragi kom inn í
líf mitt. Hann varð nefnilega
tengdafaðir minn. Föðurbróðir
minn, Jón Hjaltalín Gunnlaugs-
son hafði verið læknir Braga og
fjölskyldu á Siglufirði og svo aft-
ur síðar þegar Jón gerðist heim-
ilislæknir í Reykjavík. Bragi
hafði miklar mætur á Jóni
frænda mínum og tók mér strax
fagnandi.
Eitt sinn átti ég erindi við
Braga og lagði leið mína á
Kirkjusand. Hann var vant við
látinn, hafði verið í frystiklefan-
um frá því snemma um morgun-
inn. Þegar kom í frystiklefann
var Bragi í bláa sloppnum sínum,
berhentur að stemma af. Vett-
linga notaði hann aldrei, hvorki
til sjós né lands.
Síðar á ævinni, þegar mesti
hasarinn í fiskvinnslunni á
Kirkjusandi var yfirstaðinn,
reisti Bragi sér og sínum sum-
arbústað í Borgarnesi. Þar fékk
hann útrás fyrir iðjusemi sína og
þörf fyrir uppbyggingu. Hvert
einasta tré sem hann gróðursetti
fékk væna skóflu af hrossataði,
svo það braggaðist betur. Taðið
sótti hann langar leiðir með mik-
illi fyrirhöfn. Honum fannst mik-
ilvægt að tréð fengi langtím-
anæringu og trjávöxturinn, eftir
honum var tekið. Við sem að hon-
um stóðum grínuðumst stundum
með það þegar við vorum að fara í
sumarbústaðinn, að við værum að
fara í vinnubúðirnar í Borgar-
nesi.
Undir lokin dvaldi Bragi á
Hjúkrunarheimilinu Ísafold í
Garðabæ. Minnið lét undan síga í
takt við hækkandi aldur. En
æskuslóðirnar voru honum tam-
ar. Þegar minnst var á Gústa
guðsmann eða dregnar fram
minningar frá æskuárunum á
Siglufirði, mátti sjá gamalkunnan
glampa í augum hans. Þessum
glampa mun ég aldrei gleyma.
Ægir Magnússon.
Það var virkilega erfitt að
þurfa kveðja Braga afa, hann var
mér mjög kær og á ég eftir að
sakna hans mikið. Það var alltaf
gott að koma í heimsókn til afa í
Tunguna, hann tók alltaf vel á
móti manni og ekki skemmdi fyr-
ir að yfirleitt var til suðusúkku-
laði eða mjólkurgrautur. Það var
líka gaman að spjalla við afa,
hann hafði oft skemmtilega öðru-
vísi sýn á hlutina og gat verið
mjög fyndinn. Það sem mér
finnst þó eftirminnilegast við afa,
er hvað hann var duglegur og
kraftmikill maður, enda var hann
Siglfirðingur, en afi sagði alltaf
að þeir væru kraftmiklir sem
kæmu frá Siglufirði. Það þurfti
sko ekki að segja afa tvisvar að
gera hlutina, hann var yfirleitt
búinn að öllu áður en maður náði
að snúa sér við. Það var margt
sem ég lærði af afa, þá sérstak-
lega jákvæða lífsviðhorfið sem
hann hafði, sem mér fannst alltaf
aðdáunarvert og ég hef reynt að
tileinka mér. Ég trúi því að Bragi
afi sé kominn á góðan stað núna
og er vonandi búinn að hitta Sól-
veigu ömmu aftur.
Valdís Birna.
Elsku afi, nú er komið að
kveðjustund. Á þessari stundu
fara minningar um einstaklega
góðan afa í gegnum huga okkar
systra. Það fyrsta sem kemur
upp í huga okkar er hversu ein-
staklega duglegur og jákvæður
þú varst, alveg fram á síðasta
dag. Við fengum ávallt góðar
móttökur þegar við komum að
heimsækja þig og gátum við allt-
af verið vissar um að þú ættir alla
vega suðusúkkulaði fyrir okkur.
Þú varst líka alltaf til í að aðstoða
okkur barnabörnin, hjálpaðir við
flutninga, skutl og margt fleira.
Þá eru okkur minnisstæðar allar
ferðirnar í sumarbústaðinn við
Langá, en þar elskuðum við að
vera með ykkur ömmu og aðstoða
ykkur við garðrækt. Við eigum
eftir að sakna þín mikið, elsku afi,
en það er gott að hugsa til þess að
amma tekur vel á móti þér.
Jóhanna og Sólveig.
Nú hefur það því miður gerst
að vond frétt til manns berst.
Kær vinur er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá.
Rita vil ég niður hvað hann var mér
kær
afi minn góði sem guð nú fær.
Hann gerði svo mikið, hann gerði svo
margt
og því miður get ég ekki nefnt það
allt.
Að tala við hann var svo gaman
á þeim stundum sem við eyddum
saman.
Hann var svo góður, hann var svo klár
æ, hvað þessi söknuður er svo sár.
En eitt er þó víst
og það á við mig ekki síst
að ég sakna hans svo mikið, ég sakna
hans svo sárt
hann var mér góður afi, það er klárt.
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann.
Í himnaríki fer hann nú
þar verður hann glaður, það er mín trú.
Því þar getur hann vakið yfir okkur
dag og nótt
svo við getum sofið vært og rótt.
Hann mun ávallt okkur vernda
vináttu og hlýju mun hann okkur
senda.
Elsku afi, guð mun þig geyma
yfir okkur muntu sveima
en eitt vil ég þó að þú vitir nú
minn allra besti afi, það varst þú.
(Katrín Ruth)
Með þessi ljóði eftir Katrínu
Ruth sendum við systkinin afa
Braga okkar hinstu kveðju og
rifjum upp góðar minningar úr
Vogatungu og Háagerði. Minn-
ing afa okkar lifir.
Þín barnabörn,
Valur, Bragi og Alda.
Ég eyddi miklum tíma hjá afa
og ömmu í Vogatungu þegar ég
var yngri og á ótrúlega góðar
minningar þaðan sem ég verð
alltaf þakklát fyrir.
Ofarlega í huga mér er vetur-
inn þegar afi sótti mig í skólann á
hverjum degi, kom við í bakaríinu
og keypti snúð og við fórum svo
heim að spila áður en hann keyrði
mig á sundæfingu. Þetta vildi
hann gera með mér á hverjum
degi og er ég ótrúlega þakklát
fyrir þennan góða tíma sem við
áttum saman. Á seinni árum
snerist þetta svo við, og var það
ég sem kom með snúð í heimsókn
til hans og átti hann svo sann-
arlega nokkra snúða inni hjá
mér.
Einnig voru ófáar ferðirnar
upp í sumarbústað, ýmist vinnu-
helgar í beðunum, kartöflur tekn-
ar upp á haustin eða afslöppun.
Það voru alltaf hlýjar mót-
tökur hjá afa og ömmu í Voga-
tungu og öll barnabörnin velkom-
in í mat, og þá helst í „hringinn“
sem var þeirra réttur og aðeins
barnabörnin höfðu lyst á, enda al-
in upp við þennan heimilismat og
fátt þótti betra þá. Ef maður var
heppinn var heimagerður afaís í
eftirrétt og er það uppskrift sem
mun erfast með börnum og
barnabörnum, enda langbesti ís-
inn.
Afi var einn duglegasti og
vinnusamasti maður sem ég
þekki, og ótrúlega skemmtilegur
og gaman að tala við hann um allt
á milli himins og jarðar. Mikið á
ég eftir að sakna hans en ég veit
að hann er ánægður að komast til
ömmu Dísu.
Sólveig Huld.
Við nafnar höfum alltaf þótt
líkir að mörgu leyti og vorum
jafnvel nánari en við áttuðum
okkur á, sérstaklega eftir sam-
veruna í Vogatungu. Þér tókst að
smita mig og Hrefnu með ýmsum
frösum og töktum sem við mun-
um halda á lífi. Við munum sakna
þess að stilla sjónvarpið, bulla um
„Stóra dóm“, tala um að „það
megi nú ekki opna dós“, er eitt-
hvað fram undan?
Maður tók þessu sem sjálf-
sögðu á sínum tíma en saknar og
kann enn meira að meta þessa
litlu hluti og minningar í dag. Við
munum allar góðu minningarnar
og sjáum þig fyrir okkur svaka-
lega sólbrúnan með Seattle der-
húfuna að spjalla meðan við grill-
uðum þó þú „hafir aldrei verið
mikið fyrir grill“.
Sjáumst nafni, nágranni og
elsku afi.
Bragi og Hrefna.
Bragi Björnsson
Okkar kæri
BRAGI BJÖRNSSON
Ísafold, Garðabæ,
áður Vogatungu 12, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 25. júní.
Útförin fór fram í kyrrþey 8. júlí frá
Digraneskirkju, að ósk hins látna.
Við þökkum öllum kærlega fyrir auðsýnda samúð.
Starfsfólki á Ísafold færum við þakkir fyrir hlýju og góða
umönnun.
Björn Bragason Elín Heiður Kristjánsdóttir
Anna S. Bragadóttir Ægir Magnússon
Sveinn Heiðar Bragason Svandís Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERNA SIGRÍÐUR KARLSDÓTTIR,
Hávegi 28, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Siglufirði föstudaginn 3. júlí.
Útför fer fram laugardaginn 11. júlí klukkan 11 frá
Siglufjarðarkirkju.
Guðný Þórhallsdóttir Örn Ingólfsson
Sigurlaug Þórhallsdóttir Sigurður Hólmsteinsson
Hjörleifur Þórhallsson Guðfinna Pálmadóttir
Jónbjörg Þórhallsdóttir Stefán Friðriksson
barnabörn og barnabarnabarn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
RAFNAR KARL KARLSSON
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 4. júlí. Útför fer fram frá
Lindakirkju mánudaginn 20. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, þeim sem vilja
minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Una Olga Løvdal
Karl Jóhann Rafnarsson
Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir
Rafnar Karl Rafnarsson Ragnheiður Kolviðsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Elsku eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR GUÐJÓNSSON
Smyrlaheiði 30,
Hveragerði,
lést á bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi 26. júní í faðmi fjölskyldu sinnar.
Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Kristín Dagbjört Ólafsdóttir
Soffía Dóra Sigurðardóttir Agnar Már Jónsson
Gísli Júlíus Sigurðsson Ágústa Erna Hilmarsdóttir
Jón Bjarmi Sigurðsson Elva Björk Ragnarsdóttir
Victor Gunnarsson Sólveig Guðjónsdóttir
Selma Rut Gunnarsdóttir
Ólafur Björn Gunnarsson Ingibjörg G. Huldarsdóttir
afa- og langafabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
HELGA SIGURÐARDÓTTIR
Árkvörn 2a, Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 2. júlí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 14. júlí klukkan 13.
Guttormur P. Einarsson
Einar Guttormsson Guðrún Svava Gunnlaugsd.
Sigurður Egill Guttormsson Þórunn K. Sigfúsdóttir
og barnabörn