Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 4

Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 Vínlandsleið 16 Grafarholti urdarapotek.is Sími 577 1770 Opið virka daga kl. 09.00-18.30 og laugardaga kl. 12.00-16.00 Hugsaðu vel um húðina þína – alltaf Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdir eru hafnar við gerð útsýnispalls á Bolafjalli ofan Bol- ungarvíkur. Fyrstu framkvæmdir felast í því að fjarlægja jarðveg of- an af berginu þar sem pallurinn verður festur og hófst vinna við það í gær. Útsýnispallurinn verður úr stáli og gleri og slútir fram yfir kletta- vegginn á um 55 metra kafla í yfir 600 metra hæð yfir sjávarmáli. Til að festa hann verða boraðir um hundrað bergboltar í kletta- hamarinn, bæði til að gera tengi- punkta fyrir burðarvirkið og til að negla stuðla bergsins saman og tryggja með því festu þeirra. Bolungarvíkurkaupstaður samdi við Eykt um gerð útsýnispallsins, að undangengnu útboði. Gunnar Örn Steingrímsson, verkefnastjóri hjá Eykt, segir að klæðskerasauma þurfi pallinn á bergbrúnina. Því sé ekki hægt að smíða hann fyrr en búið verði að bora fyrir festingum og undirstöðum. Vonast hann til að undirbúningi ljúki fyrir haustið og pallurinn verði smíðaður í vetur. Mannvirkið verði síðan sett upp næsta sumar. Krefjandi verkefni Gunnar segir að verkefnið sé vissulega krefjandi. „Það þarf hug- rekki til að taka fyrsta skrefið. Í forgrunni er að öllum öryggis- atriðum sé fylgt út í æsar. Það er það fyrsta sem ég segi á morgnana og er efst í huga starfsmanna,“ segir Gunnar. Hann segir að ekki sé hægt að byrja að vinna utan á klettaveggnum fyrr en búið sé að styrkja hann. Mennirnir síga niður bergið með mannkörfum sem verða tryggilega festar í fjallið. Þar að auki eru þeir með fallvarnarbelti sem þeir hafa fengið námskeið í að nota. „Mestu loftfimleikarnir verða á næsta ári, þegar við setjum sam- an stálvirkið,“ segir Gunnar. Þess er vænst að útsýnispallur- inn hafi aðdráttarafl fyrir ferðafólk. Hann kostar um 160 milljónir króna. Að sögn Jóns Páls Hreins- sonar, bæjarstjóra í Bolungarvík, greiðir Framkvæmdasjóður ferðamannastaða kostnaðinn. Ljósmynd/Steinar Gunnarsson Bolafjall Jarðvegur er fjarlægður af bjargbrúninni svo hægt sé að kanna bergið og hefja borun. Bolafjall nær í 638 metra hæð yfir sjávarmáli og þaðan er stórfenglegt útsýni yfir Ísafjarðardjúp. Fjöldi fólks leggur leið sína þangað. Starfsmenn verða í loft- fimleikum við samsetningu  Framkvæmdir hafnar við útsýnispallinn á Bolafjalli Snorri Másson snorrim@mbl.is Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir röksemdir Ragnars Freys Ingvarssonar, deild- arlæknis á göngudeild COVID-19 á Landspítalanum, ekki vega þungt. Ragnar hefur látið í ljós óánægju sína með þá ráðstöfun stjórnvalda að fela Landspítala að annast greiningu á sýnum teknum við landamæri vegna kórónuveirunnar. Í Facebook- færslu á dögunum líkti hann því hlut- verki við það að Landspítali færi að sinna „þrifum í Smáralind“. Hann telur æskilegra að láta af skimun ferðamanna, en að Íslendingar verði skimaðir við komuna og svo aftur eftir stutta sóttkví. Sigurður Guðmundsson fyrrver- andi landlæknir og Bryndís Sigurð- ardóttir smitsjúkdómalæknir hafa lýst svipuðum sjónarmiðum og Ragnar. Þau telja æskilegra að láta af almennri skimun við landamæri, leita frekar uppi þá sem hafa ein- kenni og spara þar með þá fjármuni sem annars færu í skimunina. Sóttkví er kostnaður „Eina röksemdin sem þau hafa komið með,“ segir Kári, „er að þetta sé svo dýrt. En ef maður lítur á það sem hefur gengið á í þessari skimun, þá höfum við misst af tveimur illa smitandi einstaklingum inn í sam- félagið. Ein kona sem kom frá Bandaríkjunum en önnur frá Alban- íu. Við fundum þær ekki af því að þær urðu lasnar heldur vegna þess að, í fyrra tilvikinu, var hringt í kon- una frá Bandaríkjunum og henni sagt að hún hafi verið í návígi við smitaðan, og í seinna tilvikinu hringdi flugfélagið og gerði viðvart um smit um borð í flugvélinni. Þrátt fyrir að þessar tilkynningar bærust höfðu þær þegar smitað fjóra hvor um sig. Ímyndaðu þér að þær hefðu ekki borist, og þær hefðu leik- ið lausum hala áfram, báðar greini- lega með gífurlegt magn af veirunni (e. viral load). Bara á grundvelli þessara tveggja einstaklinga fóru um 700 í sóttkví, sem eru um 10.000 sóttkvíardagar. Er það ekki kostn- aður fyrir samfélagið?“ spyr Kári og bendir á að með skimuninni hafi tek- ist að koma í veg fyrir að um þrisvar sinnum fleiri smitandi einstaklingar hafi komist inn í landið en þegar hafa komist. Skima eða loka landinu Læknarnir hafa gagnrýnt að verið sé að verja hundruðum milljóna í að skima einkennalaust fólk. Kári segir þó að ekki minni hætta fylgi ein- kennalausu fólki en veiku. „Sam- kvæmt okkar mótefnamælingum fær helmingur þeirra sem smitast aldrei nein einkenni. Það mælir gegn röksemd þessara þriggja aðila um að leyfa fólki ósköp einfaldlega að koma inn í landið og bíða þar til það verður lasið og leitar læknis. Það er með öllu rangt að ganga út frá því að ein- kennalausir séu með litla veiru,“ seg- ir Kári. Kári telur ekki óeðlilegt að það komi í hlut Landspítalans að sinna þessu, eins og læknarnir, þó að hann teldi vissulega betra að hafa sér- staka stofnun sem sæi um að vinna þetta fyrir sóttvarnalækni. „En mér finnst allt í lagi að tjá sína skoðun og ég ber fulla virðingu fyrir þeirra skoðun um að gera þetta ekki áfram. Ég er samt hræddur um að þetta sé ekki spurning um að hafa landið áfram opið og skima eða skima ekki, heldur spurning um að hafa opið og skima, eða loka bara landinu.“ Röksemdirnar vega ekki þungt  Læknar vilja hætta skimunum  Kári og Þórólfur ósammála  Kostnaður af sóttkví ekki minni fyrir samfélagið  Ýmislegt réttmætt í gagnrýni læknanna en annað beinlínis rangt, segir sóttvarnalæknir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Deilt um skimanir Kári Stefánsson, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á blaðamannafundi á dögunum. „Það er hægt að segja að ýmis- legt í gagnrýni lækna á Land- spítalanum er réttmætt og gagnlegt en annað er beinlínis rangt,“ sagði Þórólfur Guðna- son sóttvarnalæknir í gær. Um- ræddir læknar hafa sagt það ut- an verkahrings Landspítala að skima ferðamenn á landamær- unum. Sóttvarnalæknir vísaði því á bug á blaðamannafundi og benti á að það stæði berum orð- um í leyfisveitingum og vinnslu- samningum að spítalanum bæri að stunda skimun fyrir smit- sjúkdómum sem hefði þýðingu fyrir almannaheill. Þórólfur sagði fyrirhugað að skima með óbreyttum hætti við landamær- in út júlí en að þá yrði tekin ákvörðun um framhaldið. Skim- uninni verði þá ekki alveg hætt, heldur verði hún útfærð þannig að litið verði ólíkt til mismun- andi áhættusvæða. Í það minnsta skimun út júlí SÓTTVARNALÆKNIR Jarðskjálftahrinan norður af Eyja- firði stendur enn og jarðvísinda- menn geta ekki útilokað að stærri jarðskjálftar komi. Stærsti skjálftinn sem komið hef- ur um tíma reið yfir klukkan 17.41 í fyrradag og var 4,2 að stærð. Upptök hans eru syðst á jarðskjálftasvæðinu úti af Eyjafirði og vegna þess hversu nálægt landi hann varð fannst hann vel á Siglufirði, Ólafsfirði og víðar á Eyjafjarðarsvæðinu. 13 þúsund jarðskjálftar Bjarki Kaldalóns Friis, náttúru- vársérfræðingur á Veðurstofu Ís- lands, segir að engin breyting hafi orðið á skjálftahrinunni. Hún haldi áfram. Heldur rólegra hafi verið á skjálftamælum um kvöldið og nótt- ina eftir miðvikudagsskjálftann og einnig fram eftir degi í gær. Stærstu skjálftar frá því á miðvikudag hafi verið um 2 að stærð. Frá því skjálftahrinan hófst, 19. júní, hefur sjálfvirkt jarðskjálfta- kerfi Veðurstofunnar staðsett yfir 13 þúsund skjálfta á Tjörnes-brotabelt- inu. Eins og áður hefur komið fram hafa þrír skjálftar yfir 5 að stærð mælst í hrinunni, sá stærsti var að kvöldi 21. júní, 5,8 að stærð. helgi@mbl.is Jarðskjálftahrin- an heldur áfram  Miðvikudagsskjálfti fannst í Eyjafirði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Siglufjörður Byggðin skelfur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.