Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 16
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020
VINNINGASKRÁ
10. útdráttur 9. júlí 2020
Aðalv inningur
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
9044 12026 55802 61310 66000
734 7113 19498 30572 38802 49194 57008 70252
773 7386 19842 30585 39003 49407 57472 70296
846 7491 20649 30808 39334 49416 57759 70407
857 7697 20992 30883 39365 49864 58360 70459
903 8158 21220 31164 39438 50339 58368 71032
1048 8428 21424 31284 40247 50462 59062 71062
1135 8963 21591 31296 40307 50475 59301 71088
1220 9046 22509 31358 40382 50639 59361 71106
1289 9079 22545 31469 40422 50677 59401 71110
1371 9334 22564 31887 40582 50802 59780 71344
1844 10168 22821 32072 40583 50953 60105 71879
1851 10221 23204 33160 40742 51161 60108 72183
1891 11222 23297 33174 40761 51603 60604 73065
1964 11368 23719 33904 40810 51607 61447 73688
2445 11725 24503 34035 41929 51730 61874 74007
2516 11835 24529 34330 41971 52002 61898 74544
2876 11882 24921 34618 41999 52123 62126 74595
3180 12663 25087 34992 42301 52687 62820 74600
3380 12901 25101 35355 42379 53204 63237 75594
3841 13250 25131 35365 42766 53427 63372 75698
4318 13582 25271 35690 42854 53591 63629 75848
4362 14013 25427 35701 44000 53841 64049 75977
4494 14164 25687 35854 44103 53855 64347 76488
4648 14349 25725 36512 44434 53953 64355 77015
4657 14351 26018 36760 44522 54107 64401 77222
4790 14769 26454 36916 44870 54516 64464 77225
4861 14781 26959 37110 45311 54562 65369 77625
4926 14839 27033 37181 45813 54788 65843 77636
5084 15497 27036 37273 46003 55109 65923 79230
5108 15749 27507 37420 46289 55270 66008 79372
5232 17253 27999 37558 46313 55451 66620 79625
5774 17360 28409 37573 47289 56118 66720
6121 18183 28553 38102 48349 56427 67645
6406 18938 28773 38109 48609 56565 68374
6851 18977 29012 38123 48905 56626 68797
6992 18983 29607 38127 48952 56675 68799
7067 19260 30131 38611 49124 56789 69822
Næstu útdrættir fara fram 16., 23. & 30. júlí 2020
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Kr. 4.000.000 Kr. 8.000.000 (tvöfaldur)
114 11937 22519 30404 47440 54920
829 12424 24968 36624 49937 56963
5155 21621 27190 44709 50067 60026
5435 22093 27539 47378 54163 60986
198 11643 24974 34130 40067 50662 61056 72078
564 11674 25160 34546 41369 50878 62773 72807
960 15521 26266 35121 41415 52150 63951 72953
1335 15818 26777 35747 42390 53592 64055 74765
1338 18190 27457 35942 42485 54492 65368 75378
2498 18538 27826 36313 43422 56558 66582 76070
2837 18672 28115 36449 43544 56659 67349 77079
3453 19453 29481 37320 44319 57406 68000 77131
5178 19537 30425 38028 44815 58836 68260 79283
5673 20783 30454 38372 46026 59926 68325
6721 20924 30629 38868 46286 60117 68819
7035 21598 31037 38903 47604 60362 69642
11627 24950 31574 39725 48655 61055 70603
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 50.000 Kr.100.000 (tvöfaldur)
8 1 2 2
Hinn 3. júlí síðastlið-
inn kom fram að for-
seti Hæstaréttar Ís-
lands, Þorgeir
Örlygsson, myndi láta
af störfum 1. septem-
ber næstkomandi.
Lýkur þar með glæst-
um embættisferli
hans. Eftir nám við
Háskóla Íslands og
Harvard-háskóla var
Þorgeir dómarafulltrúi við embætti
yfirborgardómarans í Reykjavík,
prófessor við lagadeild Háskóla Ís-
lands og deildarforseti, vararektor
HÍ, ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytunum, dómari við
EFTA-dómstólinn og dómari og síð-
ar forseti Hæstaréttar Íslands. Ég
naut þeirra forréttinda að starfa
honum við hlið í EFTA-dómstólnum
í átta ár. Þorgeir var hinn fullkomni
Evrópudómari. Hann tengdist engri
tiltekinni fræðigrein framar öðrum,
en var vel kunnugur á nánast öllum
sviðum laga – einkaréttar, alþjóðlegs
einkamálaréttar, opinbers réttar og
refsiréttar. Og þökk sé stjórnmála-
reynslu hafði hann einnig tilfinningu
fyrir efnahagslegu samhengi hlut-
anna.
Ólíkt flestum Evrópudómurum
leit Þorgeir ekki á dómsmál frá
sjónarhóli tiltekins málefnasviðs, svo
sem stjórnskipunarlaga, stjórnsýslu-
laga eða þjóðaréttar, heldur setti
hann staðreyndir lífsins í öndvegi og
leitaði sanngjarnrar lausnar. Því
næst spurði hann hvort slíka lausn
mætti finna frá sjónarhóli laganna.
Þorgeir hefur aldrei litið á lögin eins
og mekkanókubba. Hann hefur
framúrskarandi tilfinningu fyrir því
hvað er sanngjarnt og framkvæman-
legt. Ég leyfi mér að benda á að
þetta eiga allir frábærir dómarar
sameiginlegt. Forveri Þorgeirs hjá
EFTA-dómstólnum, hinn ógleyman-
legi Þór Vilhjálmsson, hafði sömu-
leiðis þessa náðargáfu.
Líklega var Hjemfall-málið það
mikilvægasta sem Þorgeir hafði
framsögu um sem dómari. Fyrir
Norðmönnum hafði það mál nánast
jafn mikla sálfræðilega þýðingu og
Icesave-málið fyrir Íslendinga.
EFTA-dómstóllinn dæmdi að norsk
lög um sérleyfi til vatnsaflsvirkjana,
sem kröfðust þess að einkaaðilar
skiluðu ríkinu sérleyfum sínum að 60
árum liðnum en opinberir aðilar
gætu haldið sérleyfinu um óákveðinn
tíma, bryti gegn EES-lögum. Álykt-
anir Þorgeirs um meðalhófsregluna,
sem er meginstoð evrópskra laga,
ættu að vera skyldulesning fyrir alla
lögfræðinga sem fjalla um Evrópu-
rétt. Annað mál þar sem Þorgeir
markaði spor í sögu Evrópuréttar
var Inconsult-málið, sem vísað var til
dómstólsins frá einum virtasta dóm-
ara Liechtenstein, Wilhelm Unger-
ank. EFTA-dómstóllinn fjallaði um
lagalegt eðli háþróaðra vefsíðna og
gerði það með fágaðri hætti en Dóm-
stóll Evrópusambandsins. Á síðasta
ári dæmdi Hæstiréttur Austurríkis
nánast með nákvæmlega sama hætti
og EFTA-dómstólinn.
Mig langar að nefna tvö af
persónueinkennum Þorgeirs sem
hafa komið sjálfum mér mjög til góða
– glæsileika hans og kímnigáfu.
Þegar hrokafullur blaðamaður frá
Aftenposten skrifaði eitt sinn að
EFTA-dómstóllinn væri eini golf-
klúbburinn í heiminum þar sem
lögfræðigráða væri skilyrði fyrir inn-
töku svaraði hinn íslenski vinur minn
með hægð að hann léki ekki golf, en
að hann færi stundum um á öðrum
hvorum af tveimur hestum sínum
sem hann hefði flutt frá Íslandi til
Lúxemborgar. En ég á Þorgeiri
einnig skuld að gjalda af annarri
ástæðu: Hann kynnti heimaland sitt
fyrir mér. Að loknum
fyrirlestrum og fundum
fór hann með mig norð-
ur í land, til Akureyrar,
Húsavíkur og Mývatns-
sveitar, auk annarra
landshluta. Við laug-
uðum okkur í Jarðböð-
unum þegar aðstaðan
þar var enn ekki fyrir
hendi og gæta þurfti
þess afar vel að brenna
sig ekki. Sennilega
gerðum við það í trássi
við lög. Þorgeir kynnti mér einnig ís-
lenskan mat, einkum humar og lamb.
Ég reyndi að endurgjalda honum
það með því að sjá til þess að stund-
um fengist flaska af uppáhalds Char-
donnay-víni hans í Lúxemborg:
Grgich Hills frá Napa-dal. Þess má
geta að Mike Grgich, sem fæddist í
Króatíu, varð heimsfrægur þegar
hann vann vínsmökkunarkeppni í
París árið 1976 þar sem franskir sér-
fræðingar blindsmökkuðu bestu
Chardonnay-vín Frakklands og Kali-
forníu.
Mikilvægast var þó að Þorgeir sá
til þess að við heimsóttum eins
marga héraðsdómstóla á Íslandi og
við höfðum tök á. Og jafnframt að við
báðir prédikuðum um EES-
samninginn í íslensku háskólunum:
HÍ, HR, Bifröst og Akureyri.
Stundum voru dómarar og lög-
sögumenn ESB-dómstólanna með í
för. Ef minnið svíkur mig ekki kom
þáverandi lögsögumaður Dómstóls
Evrópusambandsins, Miguel Poiares
Maduro, fyrst til Íslands þegar hann
hélt erindi á Bifröst. Mörgum árum
síðar, þegar hann hafði látið af störf-
um hjá dómstólnum, varð hann hluti
af lögmannateymi Íslands í Icesave-
málinu.
Eftir að Þorgeir sneri aftur til Ís-
lands sá hann til þess að Hæstiréttur
Íslands vísaði fjölda mikilvægra
mála til EFTA-dómstólsins. Sam-
bandið milli EFTA-dómstólsins og
Hæstaréttar Íslands hefur raunar
þróast jafnt og þétt. Á fyrsta (og
hingað til eina) dómaraþingi EFTA-
stoðanna, sem fram fór 2.-4. maí
2017, mættu dómarar frá Hæstarétti
Íslands, undir forystu Þorgeirs
Örlygssonar, og Hæstarétti Noregs.
Fulltrúar Liechtenstein voru dóm-
arar frá þremur hæstu dómsstigum
landsins – Stjórnlagadómstólnum,
Hæstarétti og Stjórnsýsludóm-
stólnum. Þorgeir flutti eftirminni-
lega ræðu þar sem hann útskýrði
hvernig sjálfsöruggur en á sama
tíma tryggur hæstiréttur ríkis starf-
ar undir stjórn flókins marghliða
sáttmála eins og EES-samningsins.
Þar sem hann þekkti EFTA-
dómstólinn til hlítar hafði hann
hárnákvæma tilfinningu fyrir því
hvaða málum yrði með árangurs-
ríkum hætti vísað til dómstólsins.
Þorgeir Örlygsson hefur þjónað
framgangi EES með framúrskar-
andi hætti, bæði í Lúxemborg og í
Reykjavík. Ég þakka honum fyrir
vináttuna og óska honum, yndislegri
eiginkonu hans Iðunni Reykdal og
allri fjölskyldu þeirra alls hins besta í
framtíðinni. Doris eiginkona mín,
sem hefur margsinnis komið með
mér til Íslands (og á vonandi eftir að
gera það oft í framtíðinni), og Laura
Melusine dóttir okkar taka undir
kveðju mína.
Eftir Carl
Baudenbacher
Carl Baudenbacher
» Þorgeir Örlygsson
hefur þjónað
framgangi EES með
framúrskarandi hætti,
bæði í Lúxemborg
og í Reykjavík.
Höfundur er fyrrverandi forseti
EFTA-dómstólsins.
Þorgeir Örlygsson,
forseti Hæstaréttar,
lætur af störfum