Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Það er fimmtudagur 9. júlí 1970.
Klukkan er að ganga þrjú eftir há-
degi. Fyrir utan reisulegt einbýlis-
hús í Háuhlíð 14 í Reykjavík bíður
Haraldur Guðmundsson bílstjóri
eftir Bjarna Benediktssyni, for-
sætisráðherra og formanni Sjálf-
stæðisflokksins, sem þar býr. Hann
er á leið til Þingvalla með konu
sinni, Sigríði Björnsdóttur, og ung-
um dóttursyni þeirra, Benedikt Vil-
mundarsyni. Þau ætla að dvelja í
bústað forsætisráðherra í þjóðgarð-
inum eina nótt, en hefja ferðalag
um Snæfellsnes og í Dali snemma
morguns daginn eftir að sækja hér-
aðsmót sjálfstæðismanna í sýslun-
um. Bjarni hefur í byrjun júlí bund-
ið það fastmælum við vin sinn
Ásgeir Pétursson sýslumann að
heimsækja hann í Borgarnes þenn-
an dag og gista á heimili hans um
nóttina áður en þeir fara á héraðs-
mótin. En nokkrum dögum seinna
hefur hann samband aftur og hefur
þá breytt áætlun sinni. Hann ætlar
fyrst til Þingvalla, gista þar, en
koma svo yfir Uxahryggi til Borg-
arness næsta dag.
Lagt er af stað frá heimili for-
sætisráðherra um klukkan hálfþrjú
og komið til Þingvalla um klukku-
tíma síðar. Ekki er ólíklegt að
margt sé skrafað á leiðinni enda bíl-
stjórinn góður vinur Bjarna og fjöl-
skyldu hans og með þeim gagn-
kvæm virðing. Haraldur hefur ekið
Bjarna í meira en áratug og hefur
orð á sér fyrir að vera einstaklega
traustur bílstjóri. Hann staldrar að-
eins við á Þingvöllum í hálftíma og
heldur síðan í bæinn að nýju. Ráð-
herrabústaðurinn er hvítmálað
bárujárnsklætt timburhús, einlyft,
reist í tilefni af konungskomunni
1907, og því stundum nefnt Kon-
ungshúsið. Það stendur á Hallinum
suðvestan við Hótel Valhöll; stein-
snar frá eru kirkjan og Þingvalla-
bærinn, heimili og aðsetur þjóð-
garðsvarðar. Við hlið ráðherra-
bústaðarins stendur minni bygging
og yngri, svefnskáli sem nefndur er
Gestahús. Þar gista stundum gestir
forsætisráðherra.
Sterkar taugar til Þingvalla
Bjarni Benediktsson hefur ætíð
haft mikið dálæti á náttúru Íslands
og sögu og notið þess að ferðast um
landið, ríðandi og gangandi ef því er
að skipta. Hann hefur sterkar
taugar til Þingvalla, þessa mikla
sögustaðar, og kýs að dvelja þar
eins oft og skyldustörfin leyfa. Hér
hafa örlög Íslendinga ráðist um ald-
ir og margir mestu viðburðir þjóð-
arsögunnar til gleði og sorgar,
framfara og hnignunar, orðið.
Bjarni hefur ekki séð ástæðu til að
tilkynna séra Eiríki Eiríkssyni
þjóðgarðsverði sérstaklega um
þessa fyrirhuguðu stuttu dvöl
þeirra hjóna í ráðherrabústaðnum.
En Eiríkur fréttir þó að afgreitt er
símtal frá bústaðnum og að það er
forsætisráðherra sem er að hringja
í bæinn. Enginn annar virðist hafa
orðið var við þau hjónin og barnið
eftir að þau komu í bústaðinn.
Þótt nú sé hásumar er frekar kalt
í veðri á Þingvöllum, aðeins fimm
stiga hiti en þurrt og skyggni gott.
Líklega hafa þau haldið sig innan-
dyra vegna veðursins og Bjarni
sleppt hinum vanalega göngutúr
sínum um nágrennið.
Engan grun getur Bjarni haft um
það þegar hann gengur til náða
þetta kvöld að í dag hefur hann litið
Þingvelli augum í síðasta sinn og
örlög hans sjálfs eiga senn eftir að
verða samofin margbrotinni sögu
alþingisstaðarins forna.
Þegar líða tekur á kvöldið versn-
ar veðrið, það fer að hellirigna og
hvessa með norðan sjö til átta vind-
stigum.
Hvassviðri og rigning
Á tjaldstæðinu við Vatnsvík hafa
sjö ungir Hollendingar, piltar og
stúlkur, komið sér fyrir. Þau eru
nýkomin til landsins með Loftleið-
um og eru í hópi margra útlendinga
sem ætla á landsmót hestamanna
sem hefst á Skógarhólum í Þing-
vallasveit daginn eftir. Þegar tjaldið
fýkur ofan af þeim í einni vindhvið-
unni um kvöldið ákveða þau að
flytja farangurinn í stóran Land-
rover-jeppa sem þau hafa tekið á
leigu og fara að Hótel Valhöll þar
sem þau ætla að sofa í jeppanum í
skjóli húsanna það sem eftir er næt-
ur. Klukkan er hálftvö að nóttu þeg-
ar þau nema staðar við söluskálann
á hlaðinu og snúa bílnum í átt að
sumarbústöðunum undir Hallinum.
Ljós loga víða í Hótel Valhöll þótt
áliðið sé nætur. Þar er að venju
nokkur hópur gesta, sumir komnir
til herbergja sinna, sofnaðir eða
vaka enn og nokkrir eru að spjalli í
anddyrinu. Á skrifstofunni þar inn
af situr sonur þjóðgarðsvarðarins,
hótelstjórinn Jón Eiríksson, og ger-
ir upp kassann eftir daginn. Faðir
hans hefur stuttu áður farið í eftir-
litsferð um þjóðgarðinn, að þessu
sinni að ósk Páls Hallgrímssonar,
sýslumanns á Selfossi, vegna hesta-
mannamótsins sem er að hefjast.
Hann ekur meðal annars að Valhöll
um miðnætti og horfir til bústaðar
forsætisráðherra. Þar er engin bif-
reið og ekkert sem bendir til þess
að Bjarni sé enn á staðnum. Áður
en Eiríkur gengur til í hvílu heima í
Þingvallabænum lítur hann enn að
Valhöll og bústaðnum, án þess að
sjá þar nokkuð athugavert. Klukk-
an er hálfeitt að nóttu. En rúmum
klukkutíma síðar vekur frúin hann
og hefur slæmar fréttir að færa.
Eldur er laus í ráðherrabústaðnum.
Sonur þeirra hefur hringt frá Val-
höll til að fá línu frá Þingvallabæn-
um til að ná sambandi við slökkvilið
og lögreglu í Reykjavík.
Eldurinn uppgötvast
Það er unga fólkið frá Hollandi
sem fyrst verður eldsins vart. Þeg-
ar þau leggja jeppa sínum við sölu-
skálann klukkan hálftvö taka þau
eftir því að það er kviknað í einum
bústaðanna í sjónlínu frá bílastæð-
inu. Þau hlaupa þangað þegar í stað
og sjá að gluggi við suðausturhornið
hefur brotnað og logar teygja sig út
um hann. Þau hafa enga hugmynd
hver á þennan bústað eða hvort
nokkur er innandyra. Aðrir gluggar
en þessi eini eru lokaðir og útidyr
allar harðlæstar. Stúlka í hópnum
brennir sig þegar hún reynir að
opna einar dyrnar. Einn Hollend-
inganna hleypur nú að Valhöll til að
láta vita. Allt í einu heyrist spreng-
ing og þakið á norðanverðum bú-
staðnum lyftist upp og fellur síðan
aftur niður með brauki og bramli.
Eldurinn breiðist nú hratt út um
húsið og innan stundar er það
alelda. Fólkið sem statt er í anddyri
Hótels Valhallar hleypur út að bú-
staðnum en getur ekkert aðhafst.
Klukkan 1:38 um nóttina hringir
síminn á Slökkvistöðinni í Reykja-
vík. Jón Eiríksson tilkynnir að
kviknað sé í ráðherrabústaðnum á
Þingvöllum. Enginn veit þá hvort
fólk er í húsinu. Tveir slökkvibílar
eru þegar sendir af stað. Um tíu
mínútum síðar hringir síminn hjá
lögreglunni í Reykjavík og enn er
það Jón sem greinir frá atburðum.
Símasamband frá Þingvöllum er
slæmt og tefur það fyrir hjálpar-
beiðnum. En lögreglubíll með
tveimur mönnum er tafarlaust
sendur af stað austur. Sýslumaður-
inn og yfirlögregluþjónninn á Sel-
fossi eru einnig lagðir af stað. Þeg-
ar klukkan er langt gengin í þrjú
hringir séra Eiríkur þjóðgarðsvörð-
ur í slökkvistöðina og biður um að
einnig sé sendur sjúkrabíll á stað-
inn. Hann hefur stuttu áður náð
sambandi við heimili forsætisráð-
herra í Reykjavík og maður, sem
hann telur að sé tengdasonur ráð-
herra, svarar og segir honum að
þau hjónin séu í bústaðnum ásamt
dóttursyni þeirra. Haraldur Guð-
mundsson, einkabílstjóri forsætis-
ráðherra, staðfestir þetta. Öllum er
ákaflega brugðið þegar þetta frétt-
ist.
Þegar slökkviliðsbílarnir koma til
Þingvalla er klukkan orðin rúmlega
hálfþrjú. Ráðherrabústaðurinn er
þá að mestu brunninn niður. Dælt
er úr slökkviliðsbílunum til að
slökkva í rústunum og leita að þeim
sem voru innandyra. Forsætisráð-
herrahjónin, Bjarni og Sigríður,
finnast fljótlega, bæði látin. Nokkru
seinna finnst lík Benedikts litla.
Ljóst er að þau hafa öll vaknað við
eldinn en ekki komist út. Eftir þetta
eru gerðar ráðstafanir til að fá lík-
kistur og kemur bifreið á vegum
Einstök harmsaga á Þingvöllum
Ljósmynd/Sakadómur Reykjavíkur/Jón Eiríksson.
Bruninn Ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum í ljósum logum aðfaranótt 10. júlí 1970. Hann brann til grunna á rétt um einni klukkustund.
Ljósmynd/Ljósmyndasafn Reykjavíkur/GVA.
Rústir Ráðherrabústaðurinn rústir einar að morgni 10. júlí 1970. Svæðið
var fljótlega hreinsað og tyrft yfir. Ári síðar var þar reistur minnisvarði.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Heimsókn Hópur ungra sjálfstæðismanna heimsótti Bjarna Benediktsson í
ráðherrabústaðinn á Þingvöllum um tveimur vikum fyrir brunann.
Bjarni Benediktsson var 62 ára gamall þegar hann lést, fæddur 30. apríl
1908. Sigríður kona hans var ellefu árum yngri, fædd 1. nóvember 1919.
Benedikt var aðeins fjögurra ára, fæddur 14. apríl 1966. Hann var sonur
Valgerðar, næstelstu dóttur Bjarna og Sigríðar, og Vilmundar Gylfasonar.
Þau létust í brunanum
Sigríður
Björnsdóttir
Benedikt
Vilmundarson
Bjarni
Benediktsson
Hálf öld er í dag liðin frá því ráðherrabústaðurinn á Þingvöllum brann til kaldra kola
Þar létust Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, eiginkona hans og ungur dóttursonur þeirra
Morgunblaðið fékk aðgang
að öllum skýrslum rann-
sóknarinnar og endurriti
úr sakadómsbókinni. Gögn-
in eru varðveitt í Þjóð-
skjalasafni Íslands. Atburð-
irnir á Þingvöllum þessa
örlagaríku nótt hafa ekki
áður verið raktir á grund-
velli þessara gagna.
Hálf öld frá brunanum á Þingvöllum