Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 9

Morgunblaðið - 10.07.2020, Side 9
FRÉTTIR 9Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 2020 Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Vefverslun komin í loftið! mostc.is Gerið verðsamanburð ULL BÚÐ AF NÝJUM OG FALLEGUM VÖRUM 4.990 kr. Túnika 6.990 kr. Kjóll F 10. júlí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 139.39 Sterlingspund 174.69 Kanadadalur 102.55 Dönsk króna 21.101 Norsk króna 14.709 Sænsk króna 15.063 Svissn. franki 148.03 Japanskt jen 1.2956 SDR 192.64 Evra 157.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.6244 Hrávöruverð Gull 1799.35 ($/únsa) Ál 1596.5 ($/tonn) LME Hráolía 42.81 ($/fatið) Brent ● Hagfræðideild Landsbankans spá- ir 0,3% lækkun verðbólgu á milli mánaða, í nýrri Hagsjá sem birt var á vef bankans í gær. Hagstofan mun birta júlímælingu vísitölu neyslu- verðs 24. júlí. Í verðbólguspá deildarinnar segir að gangi spáin eftir lækki verðbólgan úr 2,6% í 2,5%. Í spánni segir að vísitala neyslu- verðs hafi hækkað um 0,44% milli mánaða í júní. Sú mæling kom bank- anum á óvart, en opinberar spár lágu á bilinu 0,1–0,3%. Hvað einstaka liði verðbólgunnar varðar segist bankinn eiga von á að áhrif sumarútsala á fötum og skóm og á húsgögnum og heimilisbúnaði verði svipuð og síðustu ár. „Heildarárif sumarútsala í spá okkar eru 0,56 pró- sentur. Matur og drykkjarvörur hækk- uðu um 4,0% milli mars og júní, aðal- lega vegna veikingar krónunnar. Við teljum líklegast að gengisáhrifin séu komin að fullu fram og búumst við lítilli breytingu á verðlagi mat og drykkjar- vara milli mánaða í júlí.“ Landsbankinn spáir lækkun verðbólgu Spá Telja að matar- verð breytist lítið. STUTT Baldur Arnarson baldura@mbl.is Atvinnuleysistryggingasjóður hafði í gær greitt út 20.140 milljónir í at- vinnuleysisbætur á þessu ári. Þá höfðu verið greiddar 17.364 millj- ónir í hlutabætur á árinu. Saman- lagt eru þetta um 37,5 milljarðar króna. Þessar upplýsingar fengust frá Vinnumálastofnun. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að einstaklingum á hlutabótum hefði fækkað úr 33 þúsund í apríl í um og yfir sjö þúsund. Hefur þeim því fækkað um 26 þúsund síðan fjöldinn náði hámarki í apríl. Boðið upp á 75% bætur Til upprifjunar var með hluta- bótaleiðinni boðið upp á greiðslu at- vinnuleysisbóta samhliða skertu starfshlutfalli. Tilefnið var sam- dráttur vegna veirunnar. Boðið var upp á allt að 75% bætur gegn 25% starfshlutfalli. Tekjurnar komu ekki til skerðingar atvinnuleysisbóta. Frá og með 1. júlí þarf starfshlut- fallið að vera minnst 50%. Úrræðið verður að óbreyttu í boði til 1. sept- ember. Áætlaðar 84 milljarðar Ríkisendurskoðun birti í lok maí skýrslu um atvinnuleysisbætur vegna minnkaðs starfshlutfalls. Þar er rifjað upp að áætlað var í upphafi árs að atvinnuleysisbætur árið 2020 yrðu 27,4 milljarðar. Til samanburðar var áætluð hækkun bótagreiðslna vegna aukins atvinnu- leysis 56,5 milljarðar. Samanlagt eru þetta um 83,9 milljarðar króna. Atvinnuleysis- og hlutabætur á árinu Greiðslur frá 1. jan.- 9. júlí 2020 Hlutabætur Atvinnuleysisbætur H ei m ild : V M ST 20,1 ma.kr. 17,4 ma.kr. Alls 37,5 ma.kr. 20 milljarðar í at- vinnuleysisbætur  Og 17,3 millj- arðar í hlutabætur það sem af er ári BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Reksturinn hefur verið að styrkj- ast. Við sjáum að akstur er aftur að aukast, sem hefur jákvæð áhrif á okkar sölu,“ segir Jón Ólafur Hall- dórsson, framkvæmdastjóri Olís. Vegna samkomubanns frá miðjum mars og fram í byrjun maí dróst umferð ökutækja mikið sam- an. Síðan hefur verið stígandi í um- ferðinni. „Íslendingar eru komnir af stað í sumarfrí og þeir virðast keyra meira og fara víðar en við höfum séð erlendu ferðamennina gera. Við finnum góð merki um að það er góð- ur bati í okkar rekstri. Salan er að aukast. Hún styrktist þokkalega vel í júní og það sem af er júlí hefur gengið nokkuð vel. Við sjáum mestu batamerkin á höfuðborgarsvæðinu og í 100 til 200 kílómetra fjarlægð frá því en svo dregur úr áhrifunum,“ segir Jón Ólafur um þróunina í sumar. Meiri eyðsla hjá Íslendingum „Við erum kannski ekki að ná sömu sölu yfir sumartímann og í fyrrasumar en við erum farin að nálgast það. Það eru fáir erlendir ferðamenn á ferðinni en Íslending- arnir eru heima og þeir nýta sér tækifærin og ferðast um Ísland. Það virðist vera að eyðslan eða akstur- inn hjá íslensku ferðamönnunum sé meiri. Kannski eru þeir að keyra á stærri bílum og draga hjólhýsi. Við sjáum því ágætis batamerki í söl- unni og það er fyrst og fremst vegna þess að Íslendingarnir eru að ferðast meira,“ segir Jón Ólafur og rifjar upp ferðamynstrið síðasta sumar. „Við vitum að á hverjum mánuði yfir sumartímann eru 40-50 þúsund Íslendingar á ferðalagi erlendis. Nú eru flestir heima og við njótum þess svo sannarlega í okkar rekstri að fólk er að skoða Ísland og nýtir sér þá þjónustu okkar og annarra.“ Góð sala í veitingum Olís er jafnan með hátt þjónustu- stig á bensínstöðvum sínum og selur vörur og veitingar. En hvernig skyldi spurnin hafa verið eftir ham- borgurum og pylsum? „Hún hefur verið mjög góð. Það verður að segjast eins og er að þrátt fyrir að við höfum fundið verulega fyrir samdrætti í sölu eldsneytis þessa erfiðu mánuði sem voru vegna kórónuveirunnar í mars og apríl að þá hélst vörusalan býsna góð hjá okkur og meðal annars í veitingum. Hún er líka mjög góð um þessar mundir,“ segir Jón Ólafur. Hann segir aðspurður að salan undanfarið sé viss varnarsigur. „Auðvitað vissi maður ekki hversu lengi þetta myndi vara en sem betur fer virðist kúfurinn hafa verið í mars og apríl en svo fór að birta verulega til þegar sóttvarnalæknir og þríeyk- ið fóru að aflétta hömlunum. Við vorum komin á góðan skrið í júní, og erum mjög lukkuleg með hvernig þetta gengur núna, en eins og aðrir sem eru í rekstri hefur maður áhyggjur af haustinu.“ Haustið gæti orðið þyngra „Nú sjáum við að ferðaþjónustan á verulega undir högg að sækja. Maður óttast að atvinnuleysi muni aukast á haustmánuðum og þá kann að draga úr kaupgetu og kaupvilja hjá fólki. Þannig að verslun og þjón- usta mun vafalaust finna fyrir sam- drætti á haustmánuðum miðað við óbreytt ástand. Maður sér hvorki mikil batamerki í löndunum í kring- um okkur né veit maður hversu mik- ill ferðavilji verður hjá útlendingum með haustinu. Það fer eftir því hvort það verður seinni bylgja í þessum faraldri. Maður óttast því að það gæti þyngst aðeins undir fæti á haustmánuðum,“ segir Jón Ólafur um horfurnar. Vegur ekki upp samdráttinn Eggert Þór Kristófersson, for- stjóri Festis sem meðal annars rek- ur N1, segir að þótt Íslendingar séu á faraldsfæti sé umferðin engu að síður minni en á sama tíma í fyrra. Þannig dugi aukin innlend ferða- lög ekki til að vega upp samdrátt í komum erlendra ferðamanna. Um- ferð hópferðabifreiða hafi dregist stórlega saman og mun færri bíla- leigubílar séu á vegunum en í fyrra- sumar. Eggert Þór segir aðspurður að N1 sé með færri starfsmenn en í fyrra. Almennt sé sumarið sterkt hjá N1, enda hafi félagið víðtækt sölukerfi úti á landi. Félagið hafi 30 mannaðar bensínstöðvar og alls 100 dælustöðvar um landið allt. Óvissa um haustið „Ég hef meiri áhyggjur af haust- inu fyrir okkur Íslendinga almennt. Hvað gerist þegar sumarið er búið? Það er spurningin. Eftir að farald- urinn braust út gáfum við út lægri afkomuspá fyrir árið. Við teljum okkur hins vegar að vera að ná meiri árangri. Það verður þó ekki neitt til að hrópa húrra fyrir,“ segir Eggert Þór um stöðuna. Ekki náðist í Árna Pétur Jónsson, forstjóra Skeljungs, í gær. Ferðalög Íslendinga skila olíufélögunum tekjuauka  Framkvæmdastjóri Olís segir íslenska ferðamenn eyða meiru á ferðum sínum Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Á ferðalagi Umferðin er að aukast. Þá hefur sala á húsbílum aukist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.