Morgunblaðið - 14.07.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.07.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Nýtt markaðsátak Air Iceland Conn- ect hefur farið vel af stað. Ber átakið yfirskriftina „Kynnumst upp á nýtt“ og miðar að því að markaðssetja ferðalög innanlands. Þannig stendur Íslendingum til boða að kaupa flug- ferð og bíl eða flugferð og hótel á sér- kjörum í allt sumar. Að sögn Birnu Óskar Einarsdóttur, framkvæmdastjóra sölu- og þjónustu- sviðs hjá Icelandair, hefur verkefnið gefist vel. Þá hefur nýting um borð í vélum Air Iceland Connect aukist jafn og þétt síðustu mánuði. „Nýting- in frá því að samkomubanni lauk hef- ur verið mjög góð. Við höfum þurft að stækka vélar á ákveðnum leiðum til að bregðast við eftirspurn. Þetta hef- ur því gengið mjög vel,“ segir Birna, sem ráðgerir að nýtingin síðustu þrjá mánuði sé rétt um 70% af því sem hún var á sama tímabili í fyrra. Þar muni um erlenda ferðamenn sem áður voru 20% allra farþega Air Iceland Connect. Aðspurð segir Birna að ákveðið hafi verið að ráðast í markaðs- herferðina til að vekja athygli á öllu því sem Ísland hefur upp á að bjóða. Þannig hafi félagið viljað leggja sitt af mörkum til ferðaþjónustunnar í land- inu. „Þetta er okkar þáttur í því að gera Ísland að spennandi áfangastað. Við sjáum að pakkarnir okkar hafa já- kvæð áhrif á hótel og bílaleigur á ýmsum stöðum; sums staðar hafa hót- el og bílar verið að klárast,“ segir Birna og bætir við að sameining Ice- landair og Air Iceland Connect hafi falið í sér ákveðin tækifæri. „Við vor- um að sameina félög og sáum tæki- færi til að búa til flotta vöru fyrir Ís- lendinga þegar ljóst var að ferðalögin í sumar yrðu innanlands. Við vildum til dæmis bjóða þeim, sem fram til þessa hafa valið helgarferðir út, að gera eitthvað hér heima,“ segir Birna. Vekur athygli á landsbyggðinni Ljóst er að Icelandair hefur orðið fyrir gríðarlegu fjárhagslegu höggi í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Innanlandsflug er einungis brot af tekjum samsteypunnar og því hefur aukin eftirspurn hér heima lítil áhrif á tekjustreymið. Að sögn Birnu hefur markaðsátakið þó haft jákvæð áhrif á fjölmarga aðila víða um land. „Fólk streymir þangað sem góða veðrið er og þeir sem hafa verið heppnir með veður fá mikla umferð. Okkar mark- mið er að vekja athygli á ferðaþjón- ustuaðilum og við erum ánægð með hvernig til hefur tekist.“ Markaðsátak hefur farið vel af stað Morgunblaðið/Árni Sæberg Flug Markaðsátak Air Iceland Connect hefur farið af stað með miklum krafti. Tilboðin njóta talsverðra vinsælda.  Air Iceland Connect býður Íslendingum sérkjör á pakkaferðum innanlands  Gríðarleg eftirspurn eftir hótelum og bifreiðum á ákveðnum svæðum  Vilja leggja sitt af mörkum til ferðaþjónustunnar Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það er enn verið að senda upp fjóra veðurathugunarbelgi á dag frá Kefla- vík,“ sagði Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veður- stofu Íslands. Belgjasendingum var fjölgað þegar farþegaflug lagðist af vegna kórónuveirufaraldursins í vetur. Upplýsingar um veður frá flug- vélum hafa verið notaðar við gerð veðurspáa. Þegar flug lagðist af hættu upplýsingarnar að berast. Ákveðið var að halda áfram að senda fleiri belgi á loft dag hvern þar til al- þjóðlegt farþegaflug nær sér aftur á strik, að sögn Elínar Bjarkar. Hún sagði að gögn frá Evrópu- reiknimiðstöðinni sýndu að niður- felling farþegaflugs hefði haft minni áhrif á spágildi veðurlíkana en veður- fræðingar höfðu óttast. Mögulega mætti rekja það að hluta til þess að mjög víða var farið að senda upp fleiri veðurathugunarbelgi en áður. Það á t.d. bæði við um Keflavík og Fær- eyjar. Þessar veðurathuganir eru hluti af E-PROFILE-verkefninu hjá Eumetnet sem er evrópskur sam- starfsvettvangur um veðurrann- sóknir. Belgirnir gefa mjög góðar upplýsingar um veðrið. Einnig hjálpaði það til að veðurfar í vor og sumar hefur yfirleitt verið til friðs og lítið um miklar sviptingar. „Það hefði verið verra ef flug hefði lagst af til dæmis í desember,“ sagði Elín Björk. Ekki eru tök á að senda upp loftbelgi til veðurathugana ótt og títt t.d. langt úti á hafi. Hún sagði að mik- ið af gögnum um veðurfar þar bær- ist frá gervitungl- um. „Við fáum meiri upplýsingar frá gervitunglunum eftir því sem dagsbirtu nýtur lengur á hverjum degi,“ sagði Elín Björk. „Það berast meiri upplýsingar um veður á Norður-Atlantshafi frá því í mars og fram á haust en ella og má því segja að árstíminn hafi unnið með okkur.“ Hundadagar byrjuðu í gær Hundadagar byrjuðu í gær. Áður trúði fólk því að ef það rigndi eða væri blautt um þann dag yrði blautt það sem eftir lifði sumars. Elín Björk sagði að vissulega væri spáð vætu fram undan og lægðagangi. Veðrið yrði þó ekki eins og það var í gær langt fram eftir mánuðinum. Hún sagði að veðurfar á Íslandi væri með stöðugasta móti á þessum árstíma og það hefði haldist fremur stöðugt framan af sumri. „Nú erum við komin í lægðabraut þannig að það er alls konar veður fram undan,“ sagði Elín Björk. Hún sagði að reikna mætti með því að það yrði þó alltaf gott veður einhvers staðar í sumar! Ljósmynd/Veðurstofa Íslands Keflavík Fjórir loftbelgir á dag eru sendir á loft frá þessum skúr. Loftbelgir leystu flugvélar af hólmi  Fleiri veðurathugunarbelgir á loft Elín Björk Jónasdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin hefur auglýst fyrsta út- boð á umdeildum kafla á Vestfjarða- vegi sem oft er kenndur við Teigs- skóg. Kaflinn sem nú verður lagður er samtals 6,6 km. Aðeins 1,2 km verða hluti af hinum nýja Vestfjarða- vegi en hinn hlutinn nýtist sem vega- bætur þar til firðirnir verða þveraðir og betri vegur verður kominn í gegn- um Teigsskóg. Umræddur kafli liggur frá slit- lagsenda Vestfjarðavegar á Skála- nesi og að Gufudalsá í Gufudal. Fyrsti hluti vegarins, kaflinn frá Skálanesi að Melanesi, sem er um 1,2 km að lengd, verður lagður í fullri breidd og styrk enda verður hann hluti af nýjum Vestfjarðavegi. Sá kafli sem liggur fyrir innan væntan- lega þverun Gufufjarðar verður end- urbyggður og breikkaður og lagt á hann bundið slitlag. Hann verður þó ekki í sömu breidd og hinn kaflinn. Ástæðan er sú að hann er fyrst og fremst hugsaður sem tenging Gufu- dalsbæja við þjóðveginn eftir að nýr Vestfjarðavegur verður kominn í gagnið. Er þetta 5,4 km langur kafli, frá Melanesi að Gufudalsá í botni fjarðarins. Sigurþór Guðmundsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni, segir að þessi kafli muni nýtast almennri umferð um Vestfjarðaveg þar til stóru framkvæmdinni við nýjan Vestfjarðaveg verði lokið. Vegfar- endur fái kafla með bundnu slitlagi fyrr en ella. Reykhólahreppur hefur afgreitt skipulag fyrir nýjan Vestfjarðaveg á þverunum yfir Gufufjörð og Djúpa- fjörð og í gegnum Teigsskóg, og hef- ur Vegagerðin fengið framkvæmda- leyfi fyrir lagningu hans. Leyfið var hins vegar kært til úrskurðar- nefndar. Þá hafa ekki náðst samn- ingar við alla landeigendur, meðal annars ekki við eigendur Grafar og Hallsteinsness við Teigsskóg. Ætlunin er að framkvæmdir við þennan kafla hefjist strax í sumar enda á henni að vera lokið um miðjan júlí á næsta ári. Sigurþór segir að hugmyndin sé að taka næst fyrir hinn enda um- deilda kaflans, veginn um Þorska- fjörð. Það skapar 10 km styttingu. Hugað verður að útboði hans í haust. Hænufet á nýjum vegi  Fyrsti áfangi umdeilds Vestfjarðavegar boðinn út

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.