Morgunblaðið - 14.07.2020, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skarphéðinn Steinarsson ferða-
málastjóri segir alla óvissu slæma
fyrir ferðaþjónustuna. Hins vegar sé
hann vongóður
um að gripið
verði til ráðstaf-
ana til að efla
skimun fyrir veir-
unni á Kefla-
víkurflugvelli.
„Allt sem setur
ferðalög í upp-
nám er vont.
Upplýsingar um
að mögulega
verði ekki af flugi
koma sér ekki vel fyrir ferðaþjón-
ustuna,“ segir Skarphéðinn um
óvissuþáttinn.
Tilefnið er að útlit var fyrir að
fella þyrfti niður flugferðir til lands-
ins vegna þess að Landspítalinn
gæti ekki fyllt skarð Íslenskrar
erfðagreiningar frá og með deginum
í dag.
Upp úr hádegi í gær var hins veg-
ar greint frá því að samið hefði verið
við fyrirtækið um að halda áfram að
skima í fimm daga og er stefnt að
því að spítalinn geti tekið við keflinu
í kjölfar þess.
Fleiri ferðamenn en spáð var
Þá kom fram í gær að sóttvarna-
læknir hefði til skoðunar að fjölga
þjóðum sem þurfa ekki að fara í
skimun og var m.a. rætt um Norð-
menn og Þjóðverja.
„Fjöldinn er þegar umfram það
sem menn gerðu ráð fyrir í afkasta-
getu í skimun í þessum mánuði. Þeir
sem eru með puttann á púlsinum í
sölu- og markaðsmálum erlendis
segja okkur að það sé klár ferðavilji
hjá nokkrum þjóðum, sérstaklega,
Dönum, Þjóðverjum og Norðmönn-
um. Og jafnvel líka Hollendingum.
Þannig að það er skýr ferðavilji.
Það er útlit fyrir að fjöldi erlendra
ferðamanna í júlí verði tæp 20% af
fjöldanum í júlí í fyrrasumar og að
hlutfallið hækki í 25% í ágúst,“ segir
Skarphéðinn um þróunina.
Gæti stuðlað að fjölgun
Skarphéðinn rifjar upp að sótt-
varnalæknir hafi rætt um að ein-
hvern tíma þurfi að hætta skimun
hjá ferðamönnum frá einstökum
löndum eða svæðum. Með því muni
afkastagetan aukast og fleiri ferða-
menn geta komið í landið.
Skarphéðinn segir mikla óvissu
um þróun ferðaviljans hjá ein-
stökum þjóðum. Hann sé enda mjög
mismunandi milli þjóðlanda.
„Ferðaviljinn reyndist meiri í til-
teknum löndum en spáð var en það
gat svo sem enginn séð fyrir. Sem
betur fer er ferðaviljinn meiri hjá
þeim þjóðum þar sem sóttvarnamál
eru í betra standi en hjá öðrum. Síð-
an breytist samsetningin í ágúst.
Við vitum enda að Norðurlandabúar
og Þjóðverjar eru fyrirferðarmeiri í
júlí en í ágúst og að Suður-Evrópu-
búarnir koma inn í ágúst. Þá er
komin upp ný staða.
Ítalir, Spánverjar og Frakkar
koma jafnan í ágúst en Þjóðverjar
og Norðurlandabúar eru fyrr á ferð-
inni,“ segir Skarphéðinn.
Samkvæmt talningu á brottförum
á Keflavíkurflugvelli fóru 1.182
Þjóðverjar um völlinn í júní og 1.050
Danir. Til samanburðar fóru 16.918
Þjóðverjar um völlinn í júlí í fyrra
og 4.366 Danir. Því varð 93% sam-
dráttur í komum Þjóðverja og 76%
samdráttur í komum Dana.
Samtals voru 194.912 brottfarir
erlendra ferðamanna frá flugvellin-
um í júní í fyrra en 5.943 í júní sl.
Það er 97% samdráttur milli ára.
Þjóðverjarnir sveigjanlegir
Arthúr Björgvin Bollason starfar
sem kynningarfulltrúi Icelandair í
Þýskalandi samhliða ritstörfum.
Hann segir aðspurður upplýsing-
ar um mögulegar tafir vegna skim-
unar á Keflavíkurflugvelli ekki
þurfa að draga úr eftirspurn eftir
Íslandsferðum í Þýskalandi. Það sé
enda almennt ólestur á fluginu.
„Samkvæmt upplýsingum frá
bókunardeildinni okkar í Frankfurt
er ekki verið að fella niður neinar
ferðir beinlínis vegna skimunar-
erfiðleika í Keflavík. Hins vegar eru
aðstæður skiljanlega mjög erfiðar
hjá Icelandair eins og öðrum flug-
félögum á þessum kórónutímum
þannig að félagið hefur þurft að
gera stöku breytingar á flugáætlun
sinni, og stundum með skömmum
fyrirvara. Farþegar hafa alla jafna
tekið þessum röskunum vel, enda
öllum ljóst að ferðalög eru þessa
dagana ekki jafn auðveld og fólk á
að venjast.
Ef því er að skipta taka Þjóðverj-
arnir öryggið fram yfir óvissuna,“
segir Arthúr Björgvin.
Hann segir um 350 manns smitast
af veirunni á dag í Þýskalandi. Sá
fjöldi hafi verið stöðugur í margar
vikur. Farið sé að bera á kæruleysi í
smitvörnum.
Hröð fjölgun ferðamanna
er umfram getu til að skima
Fjöldi koma og brottfara á Kefl avíkurfl ugvelli
40
35
30
25
20
15
10
5
0
15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30.
júní 2020
1. 2. 3.
16
14
17
15
18
21 21 20
15
18
15
22 22
27
22
18
26
24
35 3
Heimild: Isavia
Komur Brottfarir Sa
Væntingar um að fjöldi ferðamanna í ágúst verði 25% af fjöldanum í fyrrasumar
Skarphéðinn
Steinarsson
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Í aldanna raðir hefur neysla á rauðrófum
verið talin geta haft ýmis
heilsueflandi áhrif m.a.:
100% náttúrulegt og án allra aukaefna. -2 hylki á dag
Nítröt í rauðrófum hafa áhrif á blóðþrýsting. Þeir sem hafa lágan
blóðþrýsting eða taka blóðþrýstingslyf ættu að ráðfæra sig við lækni
áður en þeir bæta rauðrófum við mataræði sitt.
• Lækk blóðþrýstings
• Aukið blóðflæði
• Bætt súrefnisupptaka
• Aukið úthald, þrek og orka
• Minni bólguviðbragða
• Heilbrigðara hjarta-
og æðakerfi
RAUÐRÓFUDUFT
í hylkjum
Lífrænt
14. júlí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 140.73
Sterlingspund 177.47
Kanadadalur 103.45
Dönsk króna 21.342
Norsk króna 14.847
Sænsk króna 15.296
Svissn. franki 149.49
Japanskt jen 1.3179
SDR 194.84
Evra 158.97
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.1548
Hrávöruverð
Gull 1805.75 ($/únsa)
Ál 1639.5 ($/tonn) LME
Hráolía 42.36 ($/fatið) Brent
● Icelandair hefur undirritað samning
við lettneska flugfélagið airBaltic um
sammerkt flug félaganna. Um er að
ræða samstarfssamning sem felur í sér
að bæði flugfélögin geta selt og gefið út
flugmiða hvort hjá öðru. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu frá Icelandair. Í
tilkynningunni segir að þannig geti við-
skiptavinir Icelandair keypt einn farseð-
il frá Íslandi eða Bandaríkjunum til
fjölda áfangastaða airBaltic í Eystra-
saltsríkjunum og Austur-Evrópu. Á móti
geti viðskiptavinir airBaltic keypt miða
til Íslands og yfir hafið til fjölda áfanga-
staða Icelandair í Norður-Ameríku.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Iceland-
air segir í tilkynningunni að með því að
tengja leiðakerfin saman bjóði Iceland-
air viðskiptavinum sínum upp á aukna
valmöguleika varðandi tengingar í
Eystrasaltsríkjunum og Austur-Evrópu.
Martin Gauss, forstjóri airBaltic, segir í
tilkynningunni að það sé félaginu „sönn
ánægja að gera samstarfssamning við
öflugt félag á borð við Icelandair“.
Icelandair og airBaltic
gera samstarfssamning
Samstarf Möguleikar aukast.
STUTT
Yfir 70 þúsund hafa skráð sig hjá
rafhlaupahjólaleigunum tveimur hér
á landi. Hopp hefur um 300 hlaupa-
hjól til útleigu og samtals yfir 50 þús-
und notendur sem hafa skráð sig en
fyrirtækið hóf starfsemi í septem-
bermánuði á síðasta ári. Um er að
ræða bæði Íslendinga og erlenda
ferðamenn. „Notkunin hefur verið
sprengifín. Sérstaklega á góðum
sumardögum,“ segir Eyþór Máni
Steinarsson, rekstrarstjóri hjá
Hopp, en fyrirtækið uppfærði flot-
ann í apríl síðastliðnum og getur
fyrirtækið nú skipt út rafhlöðum á
hjólunum á staðnum í stað þess að
safna þeim saman og hlaða á einum
stað. Og það hefur haft sitt að segja
fyrir notkunina. „Við erum komin til
tunglsins og búin að fara yfir 400
þúsund kílómetra á hlaupahjólum
samanlagt,“ segir Eyþór Máni.
Hjá Zolo Reykjavík, appelsínu-
gulu hjólunum, er fjöldi skráðra not-
enda kominn upp í 22.500 og heildar-
vegalengdin 182.000 km að sögn
Adams Karls Helgasonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins. Hann
segir notkunina gríðarlega mikla og
því stefni fyrirtækið á að fjölga hjól-
um umtalsvert en þau voru 100 þeg-
ar fyrirtækið hóf starfsemi á síðasta
ári. „Við þurfum augljóslega að
panta fleiri hlaupahjól og það eru
200 stykki á leiðinni til landsins. En
komu þeirra hefur seinkað vegna
Covid-19 og þau koma þess vegna
ekki fyrr en í ágúst,“ segir Adam
Karl, en að hans sögn verða nýju
hjólin með útskiptanlegan rafhlöðum
og eru frá sömu framleiðendum og
þekktar leigur erlendis á borð við
Bird, Voi og Tier notast við.
peturh@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fararskjóti Rafmagnshlaupahjólin
eru mikið notuð í Reykjavík.
Yfir 70 þúsund
skráðir notendur
Heildarvega-
lengdin nær til
tunglsins