Morgunblaðið - 14.07.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.07.2020, Blaðsíða 6
Landsvirkjun hyggst láta gera göngu- og reiðbrú yfir Þjórsá, ofan við Þjófafoss, í haust og vetur. Auglýst hefur verið útboð fyrir framkvæmdina sem áætlað er að kosti 250-300 milljónir kr. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta aðgengi að Búrfellsskógi en hann hefur losnað aðeins úr tengslum við umhverfið eftir fram- kvæmdir við Búrfellsstöð 2. Þá mun brúin tengja saman kerfi reiðvega og göngustíga sem eru fyrir beggja vegna Þjórsár, það er að segja í sveitarfélögunum Rang- árþingi ytra að austan og Skeiða- og Gnúpverjahreppi að vestan- verðu. Verkið sem Landsvirkjun hefur auglýst felst í byggingu 102 metra langrar stálbitabrúar með timbur- dekki. Verktími er skilgreindur frá 1. september og er áætlað að meginþungi framkvæmda verði í haust. Skila á verkinu fyrir 31. maí á næsta ári. helgi@mbl.is Tölvuteikning/Landsvirkjun Þjórsá Nýja brúin er yfir hinn gamla farveg Þjórsár, ofan við Þjófafoss og á milli Bjarnalóns og Búrfellsstöðvar. Opnast betra aðgengi að Búrfellsskógi. Bættur aðgangur að Búrfellsskógi 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 TISSOTWATCHES .COM TISSOT, INNOVATORS BY TRADITION #ThisIsYourTime SKARTGRIPIR&ÚR SÍÐAN 1923 TISSOT seastar 1000 chronograph. WATER RESISTANCE UP TO 30 BAR (300 M / 1000 FT). Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is Dettifoss, nýjasta skip Eimskips, kom til hafnar í Reykjavík í gær eftir 68 daga siglingu frá Kína þar sem skipið var smíðað. Sextán manna áhöfn skipsins var að vonum vel tekið þegar skipið lagði að bryggju í Skarfahöfn, en fjöl- skyldur skipverja og forsvarsmenn Eimskips biðu á bakkanum. Á leið sinni til landsins hafði skipið við- komu í Singapúr og Srí Lanka, sigldi gegnum Súesskurðinn og þaðan inn á Miðjarðarhaf. Skipið er það stærsta sem ís- lenskt skipafélag hefur átt, er 26.500 brúttótonn og getur tekið 2.150 gámaeiningar. Síðar á árinu mun fyrirtækið taka í notkun annað jafnstórt skip, Brúarfoss, en skipin tvö koma í stað tveggja annarra, Laxfoss og Goðafoss, sem seld voru í fyrra. Edda Rut Björnsdóttir, markaðs- stjóri Eimskips, segir að koma nýja skipsins hafi gríðarmikla þýðingu fyrir fyrirtækið enda séu þau stærri og öflugri, og meðal um- hverfisvænstu skipa þessarar stærðar sem völ er á. Stoppið í Reykjavík var þó stutt því nokkrum klukkutímum var haldið til Nuuk í Grænlandi. Fostjóri Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, var stoltur þegar Dettifoss kom. Áhöfn Skipverjar á bryggju. Þeir sem héldu áfram til Nuuk komu ekki í land af sóttvarnaástæðum. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Dettifoss Skipið getur tekið 2.150 gámaeiningar og er flutningsgetan mun meiri en fyrirrennarans. Mannfjöldi Aðstandendur áhafnarinnar biðu spenntir eftir því að skipverjar kæmu í land og skein eftirvænting úr augum barnanna enda mánaða sigling að baki alla leið frá Kína. Komu stærsta skipsins fagnað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.