Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020 Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla Fyrir sex árum var kona í Súd-an dæmd til dauða fyrir að hafa snúist frá íslam til kristinnar trúar. Eftir alþjóðleg mótmæli slapp konan naumlega til Banda- ríkjanna en lögin, eða öllu heldur ólögin, giltu enn.    Fleiriand- styggileg lög hafa verið í gildi í Súdan, líkt og í mörgum ríkjum sem lúta stjórn strangtrú- aðra múslima. Sem dæmi má nefna refsingar sem fela í sér opinberar hýðingar, heimild til umskurðar á kynfærum kvenna og margvíslega aðra kúgun og ofbeldi í garð kvenna.    Í fyrra var leiðtoga Súdan tilþriggja áratuga velt af stóli og nú hefur dómsmálaráðherra lands- ins tilkynnt að hætt verði að dæma fólk til dauða fyrir að snúa frá ísl- am, þeir sem ekki séu múslimar megi drekka áfengi, að vísu ekki opinberlega, og ýmsar aðrar já- kvæðar lagabreytingar verði gerðar.    Vonast má til að þróunin verðiáfram jákvæð og verði til þess að fleiru svipi saman en hjörtunum í Súdan og Grímsnesinu. Og von- andi verður þetta til fyrirmyndar þeim löndum sem enn halda í ógeð- fellda lagasetningu í nafni íslam. Ekkert getur réttlætt að nota trúarbrögð til slíkrar kúgunar og ofbeldisverka.    Þá verður þessi breyting í Súdanvonandi líka áminning fyrir Vesturlandabúa um það hve lán- samir þeir eru að fá að lifa við frelsi og réttarríki. Og þetta mætti líka verða áminning til þeirra um að verja þessi gildi og láta aldrei grafa undan þeim. Jákvæð þróun STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Vegagerðin hefur auglýst eftir tilboðum í breikk- un hringvegar á Kjalarnesi, frá Varmhólum að Vallá. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðar- innar, Reykjavíkurborgar, Veitna og Gagnaveitu Reykjavíkur. Lengi hefur verið beðið eftir því að ráðist verði í þessa framkvæmd. Um er að ræða breikkun á 4,13 km löngum kafla hringvegar. Breikka á núverandi tveggja akreina veg í 2+1-veg með aðskildum akbrautum. Í verkinu eru hringtorg, tvenn undirgöng úr stál- plötum, áningarstaður, hliðarvegir og stígar. Fergja á vegstæði og framtíðarstæði stíga með- fram hliðarvegum. Verkinu tilheyra ræsi, regn- vatnslagnir, veglýsing, lagnir fyrir upplýsinga- kerfi Vegagerðarinnar og breytingar á lögnum veitufyrirtækja. Verkinu skal að fullu lokið fyrir júní 2023. Tilboðsfrestur er til 11. ágúst 2020. Út- boðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Verkið í heild felur í sér breikkun vegarins á um níu kílómetra kafla milli Varmhóla í Kollafirði og vegamóta Hvalfjarðarvegar. Seinni áfanginn, Vallá-Hvalfjörður, verður boðinn út í haust en verklok eru einnig áætluð 2023. sisi@mbl.is Breikkun á Kjalarnesi boðin út  Breikkun Vesturlands- vegar á að ljúka 2023 Morgunblaðið/sisi Kollafjörður 1. áfangi frá Varmhólum að Vallá. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur úthlutað 138 milljónum króna í sérstakt byggðarframlag til átta byggingarverkefna á lands- byggðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem byggðarframlagi er úthlutað, að því er segir í tilkynningu frá HMS. Framlaginu er ætlað að styðja við uppbyggingu á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging nýrra íbúða hefur verið í lágmarki vegna þess að byggingarkostnaður er hærri en markaðsvirði fasteignanna. Verkefnin sem fengu úthlutað byggðaframlag snúa m.a. að upp- byggingu leiguhúsnæðis fyrir ein- staklinga undir tekju- og eignamörk- um og annarra sértækra húsnæðis- úrræða sveitarfélaga. Framlögin fara til Norðurþings, Reykhólahrepps, Snæfellsbæjar, Skagafjarðar, Strandabyggðar, Vesturbyggðar og á Seyðisfjörð. Alls 3,6 milljarða framlög Byggðarframlögin voru hluti af út- hlutun HMS til byggingar og kaupa á 600 hagkvæmum leiguíbúðum víðs- vegar um landið, svokölluðum al- mennum íbúðum. Alls nema stofn- framlögin og byggðarframlagið 3,6 milljörðum króna. „Báðar úthlutanirnar eru liður í áætlunum stjórnvalda um að efla upp- byggingu húsnæðis á landsbyggðinni og slá á þann mikla húsnæðisvanda sem lægri og millitekjuhópar hafa mátt stríða við undanfarin ár. Fólk sem leigir íbúð í kerfinu þarf ekki að verja jafn stórum hluta af ráðstöfun- artekjum heimilisins til húsnæðis og það myndi í mörgum tilfellum gera á frjálsa leigumarkaðnum og býr við meira öryggi því ekki er hægt að segja upp leigunni nema að ýmsum skilyrðum uppfylltum,“ segir í til- kynningu HMS. Heimild til að úthluta sérstökum byggðarframlögum var veitt með breytingu á lögum um almennar íbúð- ir í desember síðastliðnum. 138 milljónir króna í byggðaframlag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Byggðaframlög Vesturbyggð er meðal þeirra sem fá framlög.  Til að mæta skorti á leiguhúsnæði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.