Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið
nýju
heimas
íðuna
islands
hus.is
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Andrzej Duda vann nauman sigur í
tvísýnustu forsetakosningum sem
fram hafa farið í Póllandi eftir hrun
kommúnismans. Hlaut hann 51,21%
atkvæða en mótframbjóðandi hans,
Rafal Trzaskowski, borgarstjóri
Varsjár, 48,79%. Kjörsókn var
68,2%.
Stjórnmálaskýrendur telja að hin
jöfnu úrslit eigi eftir að leiða til
átaka fyrir dómstólum. „Ég held að
úrslitunum verði tvímælalaust mót-
mælt og deilurnar rati alla leið upp í
hæstarétt,“ sagði stjórnmálafræð-
ingurinn Anna Materska-Sos-
nowska við Háskólann í Varsjá. Til
stóð að kosningarnar færu fram í
maí, en þá stóð Duda mun betur en
nú samkvæmt fylgismælingum. Var
þeim frestað vegna kórónuveirufar-
aldursins.
Tekist á um framtíðina
Flokkur Trzaskowskis (PO) sagð-
ist í gær hafa hafið söfnun upplýs-
inga um meint kosningasvindl.
Meðal annars lægi fyrir að Pólverj-
ar í öðrum löndum hefðu ekki fengið
kjörgögn sín í tæka tíð til að geta
kosið.
Í kosningunum var hart tekist á
um framtíðarsamskipti Póllands og
Evrópusambandsins (ESB) og
framtíð pólskrar þjóðar. Duda var
frambjóðandi hægriflokksins Laga
og réttlætis (PiS), sem er stærsti
flokkurinn á pólska þinginu og leiðir
bandalag hægriflokka á þingi. Rafal
Trzaskowski er frambjóðandi Borg-
aravettvangsins (PO), sem skil-
greinir sig sem frjálslyndan íhalds-
flokk og er langstærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn.
Umdeilt
Sigur Duda er talinn munu leiða
til umdeildra breytinga á
réttarfarskerfinu og áframhaldandi
andstöðu við fóstureyðingar og
réttindi samkynhneigðra. Í kosn-
ingabaráttunni sætti Duda harka-
legri gagnrýni eftir að hafa sagt
réttindi samkynhneigðra og trans-
fólks „hugmyndafræði“ sem meiri
eyðilegging stafaði af en kommún-
ismanum.
Með sigri Duda getur PiS-flokk-
urinn hrundið stefnumálum sínum í
framkvæmd óhindrað í það minnsta
fram að næstu þingkosningum, sem
fram fara eftir þrjú ár. Í ljósi mik-
illar kjörsóknar er Duda sagður
hafa hlotið óskorað umboð.
Þrátt fyrir að kórónuveirufarald-
urinn hafi bitnað hart á efnahagslífi
Póllands ætlar ríkisstjórnin að
halda áfram vinsælum aðgerðum í
velferðarmálum sem hjálpað hafa
margri fjölskyldunni að brjótast úr
sárri fátækt.
Sú stefna PiS að ganga alla leið
og ljúka yfirhalningu réttar-
farskerfisins er líkleg til að mæta
mikilli andstöðu. ESB hefur gagn-
rýnt áformin og margar alþjóðlegar
stofnanir segja þau grafa undan
lögum og reglu í Póllandi. Því er
spáð að áformin verði einungis til að
auka á deilur Pólverja og ESB.
Talið er að PiS kunni að notfæra
sér sigur Duda til að herða pólitísk
tök á sveitarstjórnum og einkarekn-
um fjölmiðlum. Með lögum um tak-
markaða eign útlendinga á fjölmiðl-
um gengu Pólverjar gegn reglum
ESB og kölluðu yfir sig reiði
Bandaríkjanna, en vinsælasta sjón-
varpsstöð Póllands, TVN, er í
bandarískri eigu.
Klofningur
Sigur Duda er talinn endurspegla
sterkan stuðning við félagslega
íhaldssemi og gjafmilt opinbert vel-
ferðarkerfi. Hin hnífjöfnu úrslit
þykja einnig gefa til kynna að marg-
ir kvíði tilraunum ríkisins til að inn-
leiða enn hleypidómafyllra lýðræði.
Pólskir fjölmiðlar sáu margar
brotalínur í kosningaúrslitunum.
„Ungir gegn öldnum, þéttbýlið
gegn dreifbýlinu,“ sagði vikublaðið
Polityka í fyrirsögn. Hið íhaldssama
dagblað Rzeczpospolita kallaði eftir
aðgerðum til að „sætta ágreining“
og sagði stjórnmálamenn alls póli-
tíska litrófsins meðvitaða um að
bráð nauðsyn væri á að „líma sam-
an“ tvískauta samfélag.
Sumir fréttaskýrendur segja að
stórbokkar í fjölmiðlum og ríkis-
kerfinu hafi verið virkjaðir gegn
frambjóðanda stjórnarandstöðunn-
ar. Kallaði frjálslynda dagblaðið
Gazeta Wyborcza það bardaga
„Davíðs og Golíats“.
Polityka sér þeim sem urðu undir
það til framdráttar að Trzaskowski
hafi „blásið nýju lífi“ í „þreytulega“
stjórnarandstöðuna. Svipaða af-
stöðu tók þýska stórblaðið Süd-
deutsche Zeitung, sem bætti við að
Trzaskowski væri „hetja jafnvel
þótt sigur skorti“.
Þjóð Duda klofin í tvennt
AFP
Stuðningur Fylgjendur Rafals Trzaskowskis bíða eftir honum á útifundi í Varsjá, þar sem hann er borgarstjóri.
Stjórnmálaskýrendur telja að hin jöfnu úrslit eigi eftir að leiða til átaka um
gildi kosninganna fyrir dómstólum Tekist á um erlent eignarhald fjölmiðla
Yngsta dóttir
Nelsons og Winn-
ie Madikizela-
Mandela, Zindzi
Mandela, lést í
fyrrinótt,en hún
gegndi störfum
sendiherra
Suður-Afríku í
Danmörku á
dánarstundu.
Cyril Ramaphosa, forseti Suður-
Afríku, tilkynnti andlát hinnar 59
ára gömlu Mandela en tiltók ekki
banameinið. Lést sendiherrann á
sjúkrahúsi í Jóhannesarborg.
Zindzi Mandela hafði verið út-
nefnd sendiherra í Líberíu þegar
skipunartíma hennar í Kaupmanna-
höfn lyki. Hún fæddist í Soweto og
ólst þar upp á sama tíma og faðir
hennar sat í fangelsi, en þar fékk
hann að dúsa í 27 ár fyrir andstöðu
sína við aðskilnaðarstefnu stjórnar
Suður-Afríku. Eins og foreldrarnir
var Zindzi Mandela virkur þátttak-
andi í frelsisbaráttu Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC).
Zindzi Mandela
FRELSISHETJA DEYR
Zindzi Mandela látin
Viskíið Johnnie
Walker, sem á
sér 200 ára sögu,
verður senn selt í
pappírsflöskum.
Diageo, eig-
andi áfengis-
verksmiðjunnar,
kveðst munu
hefja tilraunir
með Johnnie Walker á vistvænum
pappírsflöskum næsta vor. Ætlunin
sé með því að draga úr notkun
plastefna í áfengisílátum.
Skoska veigin hefur að lang-
mestu leyti verið seld á glerflöskum
og munu þær víkja með tíð og tíma.
Pappírsflaskan verður búin til úr
trjákvoðu og verður að fullu endur-
nýtanleg. Drykkjarfyrirtæki eru
mörg að þróa pappírsflöskur til að
gera framleiðsluna sjálfbærari og
þar með draga úr mengun. Carls-
berg-fyrirtækið kemur senn með
bjórflösku á markað.
Hjá Coca-Cola eru hins vegar
engin áform fyrirliggjandi um að
segja skilið við plastflöskur því
neytendur vilji hafa glerið áfram.
Skoska Viskíið á
sér 200 ára sögu
á glerflöskum.
VISKÍ UMHVERFISVÆNT
Viskí selt í pappa
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
WHO segir að eðlilegt ástand í kjöl-
far kórónuveirufaraldursins sé
ekki í augsýn.
Sagði stofnunin í yfirlýsingu að
allt of mörg lönd tækju rangan kúrs
í stríðinu gegn faraldrinum. Því
væri aðeins hægt að segja að eðli-
legt ástand kæmist ekki á nándar
nærri strax.
„Ég vil vera algjörlega hreinskil-
inn við ykkur: til hins gamla góða
ástands komumst við ekki í fyrir-
sjáanlegri framtíð,“ sagði fram-
kvæmdastjóri stofnunarinnar,
Tedros Adhanom Ghebreyesus.
Kórónuveirufaraldurinn á eftir að
verða „enn skæðari“ ef tilteknar
ríkisstjórnir grípa ekki til afger-
andi ráðstafana til að stöðva út-
breiðslu veikinnar, bætti hann við.
„Við erum vitni að hættulegri
fjölgun tilfella í löndum þar sem að-
gerðum til að draga úr hættunni
hefur ekki verið hrint í framkvæmd
eða fylgt eftir þótt þær hafi sannað
sig. Veiran er óvinur fólksins núm-
er eitt en gjörðir margra ríkis-
stjórna endurspegla það ekki,“
sagði Ghebreyesus.
Alls hefur kórónuveiran kostað
um 570.000 mannslíf frá því hún
spratt upp í Kína í desember síðast-
liðnum. agas@mbl.is
AFP
Ókeypis Andlitsgrímum dreift á neðanjarðarlestarstöð í Montreal.
Langt í það eðlilega