Morgunblaðið - 14.07.2020, Qupperneq 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 2020
✝ Unnur LeaPálsdóttir
fæddist á
Fæðingarheimili
Kópavogs 27. júlí
1966. Hún lést á
Landspítalanum 3.
júlí 2020. Foreldrar
hennar eru Páll
Kristjánsson, f. 7.9.
1942, og Rósa
Helgadóttir, f.
14.10. 1945. Systk-
ini Unnar eru Bjarnveig, f. 16.6.
1965, Viktor, f. 20.6. 1972, Íris
Björk, f. 3.8. 1972, og Örn Egill,
f. 1.3. 1976, d. 14.10. 2010.
Eiginmaður Unnar er Pétur
H. Pétursson, f. 14.4. 1964. Þau
giftu sig 9.8. 1992. Börn þeirra
eru Sara Rós, f.
15.3. 1994, og Rósa
Björk, f. 21.3. 1997.
Unnur Lea ólst
upp í Hafnarfirði
og stundaði nám
við Víðistaðaskóla,
Flensborg og síðar
í Hótel- og veitinga-
skólanum. Hún
vann í veitingageir-
anum þar til hún
hóf störf hjá
Tryggingamiðstöðinni, þar sem
hún starfaði í nær 30 ár. Sein-
ustu tvö ár barðist hún hetju-
lega við krabbamein.
Unnur verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju í dag, 14. júlí
2020, klukkan 15.
Þegar við kveðjum Unnsu
okkar er það með miklum sökn-
uði og tómleiki fyllir hjörtu okk-
ar. Hún var yndisleg eiginkona
og móðir sem umvafði fjöl-
skyldu sína með kærleik og
ósérhlífni. Hún var glæsileg og
hvernig sem á stóð tókst henni
á einhvern hátt að gera alla
hluti betri. Hún var þekkt fyrir
að bregða á leik, þá ýmist með
dansi eða frösum þegar henni
fannst einhver of þungur á
brún. Þannig tókst henni að
koma skapi annarra í betra
horf.
Hún elskaði að fara í frí til
Spánar og dugði þá helst ekkert
minna en fjórar vikur í senn.
Einnig leið henni vel í sum-
arbústaðnum okkar á Laugar-
vatni þar sem langir göngutúrar
voru teknir, farið var í heita
pottinn og góður matur eldaður
svo eitthvað sé nefnt. Unnsa var
vinnusöm og þekkt fyrir mikinn
dugnað í öllu sem hún tók sér
fyrir hendur. Umburðarlyndi og
stóísk ró var einkennandi fyrir
Unni.
Hún greindist með krabba-
mein á lokastigi fyrir rúmum
tveimur árum. Læknir sagði
okkur að engin lækning væri til
staðar og gaf upp í framhaldi
þann tíma sem við máttum bú-
ast við að eiga saman. Þá
hrundi veröld okkar og við
brotnuðum öll nema Unnur,
sem hélt utan um okkur og
hvíslaði huggunarorð til okkar.
Þegar út í bíl var komið upp-
lýsti hún að hún vildi kaupa
Lethal Weapon-kvikmyndirnar
og horfa á þær með okkur um
kvöldið, sem var gert. Þetta var
lýsandi fyrir elsku Unni okkar
sem gerði allt til að lina þján-
ingar annarra og var þessi
uppástunga líklega hugsuð til að
dreifa hug okkar.
Hún fór í göngutúra á hverj-
um degi hvernig sem henni leið.
Palli faðir hennar labbaði oft
með henni á morgnana og síðan
sat Rósa mamma hennar oft hjá
henni ásamt því að við héldum
vel utan um hana.
Margir í hverfinu töluðu um
dugnaðinn í Unnsu þegar hún
sást spígsporandi með göngu-
grindina sína langar leiðir. Þeg-
ar við sáum að þessari elsku leið
ekki vel og spurðum um líðan
hennar var svarið alltaf „ég er
ágæt“. Unnsa barðist hetjulega
við mein sitt í rúm tvö ár, sem
var meira en okkur var gefið
þennan erfiða dag þegar við
keyptum kvikmyndirnar góðu..
Unnur eyddi síðustu mánuð-
um sínum með okkur uppi í bú-
stað, sem var ógleymanlegur og
gefandi tími.
Lífið verður aldrei eins, við
munum ætíð sakna þín. Þú ert
ástin okkar, akkeri og styrkur.
Pétur Hörður Pétursson,
Sara Rós Pétursdóttir og
Rósa Björk Pétursdóttir.
Aldrei hvarlaði að mér að ég
ætti eftir að kveðja þig svona
snemma elsku systir. Að fylgj-
ast með þér berjast í tvö ár við
þennan óhugnarlega sjúkdóm af
þvílíkum krafti og jákvæðni var
ótrúlegt. Alltaf þegar að ég
spurði þig hvernig þú hefðir
það, sagðir þú alltaf, gott. Alveg
sama hversu illa þér leið þá
kvartaðir þú aldrei, naglinn sem
þú varst. Peddi, Sara og Rósa
stóðu eins og klettur með þér
og gerðu allt fyrir þig. Pabbi,
göngufélaginn þinn sem gekk
með þér í margar klukkustundir
þegar heilsan leyfði og jafnvel
þegar hún leyfði það ekki.
Mamma sem var hjá þér þegar
Peddi, Sara og Rósa gátu það
ekki. Það eru forréttindi að eiga
svona góða að. Ég á margar
góðar minningar sem að ég
vona að ég eigi eftir að rifja oft
upp með ykkur öllum í framtíð-
inni. Ég sakna þín nú þegar. Ég
veit að Öddi bróðir og amma
Lea taka vel á móti þér.
Síðan hittumst við aftur mín
kæra.
Þín systir
Bjarnveig (Badda).
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Hún var svo sannarlega fal-
leg rós hún Unnur okkar. Hún
bjó yfir einstakri fegurð sem
náði langt inn í hjarta hennar.
Ég þakka Guði fyrir að bróðir
minn kynntist henni.
Það var í ágúst 1991 að
Unnsa og Peddi, eins og við
kölluðum þau, kynntust á Spáni.
Þar var samankomin bróður-
partur úr báðum fjölskyldum
þeirra. Sameiginleg saga og lífs-
ganga þessara fjölskyldna hófst
þarna undir stjörnubjörtum
Miðjarðarhafshimni.
Lífsganga þar sem sorgin
hefur slegist með í för en oftar
verið björt og fögur. Þau eign-
uðust litlu fallegu og góðu
frænkur mínar Rósu og Söru,
bjuggu sér fallegt heimili og
hlúðu vel að sumarbústað fjöl-
skyldunnar.
Þau voru einstaklega sam-
rýnd og góð hvort við annað og
stelpurnar sínar. Ekki má
gleyma hversu ræktarleg þau
voru við vini og vandamenn.
Unnur bjó yfir einstöku jafn-
aðargeði og kunni listina að hlúa
að og láta fólki líða vel í kring-
um sig. Til marks um góðvild
hennar, þá tók hún að sér að
hlúa að móður minni þegar stór
hópur ættingja fór með föður
mínum og Lilju föðursystur á
Hornstrandir. Þetta var síðasta
heimsóknin á heimaslóðir
þeirra. Aldrei kvartaði Unnur
yfir álagi við að sinna tengda-
móður sinni, sem var orðin veik
af alzheimersjúkdómnum.
Reyndar talaði hún oft um
þessa viku með hlýju og af virð-
ingu og það var ljóst hversu vel
hún hugsaði um móður mína.
Unnur lagði sig fram um að
elda þann mat fyrir foreldra
mína sem hún vissi að þeim
þótti góður og þau Peddi hlúðu
að þeim á alla lund. Fyrir það
verð ég þeim ævinlega þakklát.
Heimili Unnar og Pedda er
mér ávallt opið og gisti ég jafn-
an hjá þeim á ferðum mínum til
Íslands. Við höfum átt margar
góðar stundir saman á Íslandi,
Spáni, Portúgal og Noregi og
ekki má gleyma í Gautaborg
fyrir þremur árum, þegar dóttir
mín gifti sig og Peddi leiddi
hana inn kirkjugólfið. Þá féllu
gleðitár hjá okkur Unnsu. Þau
heimsóttu mig til Lillehammer
þegar ég varð sextug fyrir
tveimur árum. Nokkrum dögum
síðar uppgötvaðist meinið henn-
ar.
Foreldrar Unnar sjá nú á eft-
ir öðru barni sem fer í blóma
lífsins og systkini syrgja á ný,
en Örn bróðir Unnar lést árið
2010, aðeins 34 ára að aldri. Ég
hef fylgst með bróður mínum
hlúa að Unni sinni síðustu tvö
árin. Umhyggja hans og stelpn-
anna hefur verið einstök, þar
sem kærleikurinn hefur birst í
sinni tærustu mynd. Þau eiga
hér vel við orð skáldsins um
rósina fögru.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Í þökk fyrir einstaka mág-
konu bið ég góðan Guð að helga
sorg og söknuð og gefa styrk á
veginum sem fram undan er.
Guð hefur nú tekið í hönd Unn-
ar og leitt hana í ríki sitt þar
sem eru endurfundir vina og
ættingja. Hvíl í friði fallega sál.
Ragnheiður Karítas.
Í dag verða sporin þung þeg-
ar við kveðjum æskuvinkonu
okkar Unni Leu í hinsta sinn
eftir hetjulega baráttu við
krabbamein síðustu tvö árin.
Minningar streyma um hugann
enda 48 ár síðan við hittumst
fyrst. Þar áttum við góðar
stundir. Þegar í unglingadeild
kom vorum við duglegar að
versla okkur föt, og fyrir Diskó-
ballið í skólanum keypum við
okkur allar diskó-glans galla og
skó… vá hvað okkur fannst við
flottar og svo voru það Millet-
úlpurnar, já allar vorum við
eins. Á þessum árum kom hjóla-
skautaæðið og auðvitað keypt-
um við allar hjólaskauta og
stunduðum hjólaskautahöllina
mikið. Við vinkonurnar áttum
vel saman strax og allar vildum
við byrja að vinna fyrir okkur.
Við bárum út Moggann frá 10
til 14 ára aldurs, en þá vorum
við farnar að vinna í sjoppu í
Vesturbænum líka, ásamt því að
vinna á bensínstöð Olís, við
Hildur í Hafnarfirði og Unnur
Lea í Garðabæ. Á þessum tíma
byrjum við líka að ferðast sam-
an. Eftirminnilegar ferðir voru
farnar t.d. í Húsafell, Þjóðhátíð
í Eyjum, Skaftafell og að
ógleymdum sumarbústaðaferð-
um bæði við stelpurnar og með
fjölskyldum okkar. Þegar við
fórum svo í fasta vinnu fórum
við Hildur að vinna í banka en
Unnur Lea lærði þjóninn og
vann við það um nokkurt skeið.
Eftir að hún kynnist Pétri fór
að vinna hjá TM, þar sem hún
vann alla tíð, meðan heilsan
leyfði. Unnur var staðföst á sínu
og vissi alltaf hvað hún vildi.
Gott dæmi er þegar hún kynnist
eiginmanni sínum. Það var sum-
arið 1991 þegar hún fékk
mömmu sína og pabba með sér
til Benidorm. Fljótlega í ferð-
inni hitti hún draumaprinsinn
Pétur sem ári síðar varð hennar
eiginmaður. Unnur Lea og Pét-
ur eignuðust tvær yndislegar
Unnur Lea
Pálsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Ó, þú Guð minn góði,
ég græt og bið í hljóði:
legg þú yfir mig helga hönd.
Lát mitt hjarta ei hræðast,
en helgu lífi fæðast
mína endurbornu önd.
(Matthías Jochumsson)
Elsku Pétur, Sara, Rósa,
foreldrar og systkini.
Guð gefi ykkur styrk í
sorginni. Minningin um
elsku Unni mun lifa í hjört-
um okkar.
Rannveig og Ásmundur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNA JÓNSDÓTTIR,
Staðarhrauni,
Hraunhreppi,
lést miðvikudaginn 8. júlí á Sjúkrahúsi
Akraness.
Útförin fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn
17. júlí klukkan 14.
Guðbrandur Guðbrandsson
Áslaug Guðbrandsdóttir Gísli Þórðarson
Úlfar Guðbrandsson
Guðrún St. Guðbrandsdóttir
Bjargey Anna Guðbrandsd.
Gunnhildur Guðbrandsdóttir Páll Halldór Björgúlfsson
Jón Guðlaugur Guðbrands.
Hugrún Lukka Guðbrandsd. Huginn Rafn Arnarson
Jóhannes Guðbrandsson Jónína Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
kennari,
frá Harðbak á Melrakkasléttu,
Lindarseli 7, Reykjavík,
lést á heimili sínu að morgni föstudagsins
10. júlí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
27. júlí klukkan 13.
Sæmundur Rögnvaldsson Ingibjörg Axelsdóttir
Elín Rögnvaldsdóttir Björgvin Guðmundsson
Margrét Rögnvaldsdóttir Magnús H. Ingþórsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SVEINBJÖRN JÓHANNSSON,
Snorrastöðum, Laugardal,
Bláskógabyggð,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi, miðvikudaginn 8.
júlí. Útför hans fer fram frá Skálholtsdómkirkju fimmtudaginn 16.
júlí klukkan 14:00.
Guðfinna M. Sigurðardóttir
Solveig Björk Sveinbjörnsd.
Davíð Örn Theodórsson Elísa Björk Jóhannsdóttir
Jóhann Reynir Sveinbjörnss. Guðbjörg Þóra Jónsdóttir
Unnur Kristín Sveinbjarnard. Nikhilesh R. Mohanty
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ARNGRÍMUR GEIRSSON,
kennari og bóndi,
Álftagerði í Mývatnssveit,
sem lést mánudaginn 6. júlí, verður jarðsunginn 17. júlí frá
Skútustaðakirkju klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á styrktarfélag Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Gígja Sigurbjörnsdóttir
Þórhallur Geir Arngrímsson
Freydís Anna Arngrímsdóttir Hörður Þór Benónýsson
Sigurbjörn Árni Arngrímsson Gunnhildur Hinriksdóttir
Sigurður Örn Arngrímsson Málmfríður Einarsdóttir
Arnfríður Gígja Arngrímsd. Hallgrímur Hallgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GEIRRÚN MARSVEINSDÓTTIR,
Rúna,
Nesbala 46,
Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi 5. júlí í faðmi
fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 17. júlí klukkan 13.
Gunnar Kr. Gunnarsson
Gunnar Grétar Gunnarsson Hrafnhildur Kristjánsdóttir
Baldur Þór Gunnarsson Sigrún Hauksdóttir
Rúnar Geir Gunnarsson
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir, amma og langamma,
EDDA ÓSKARSDÓTTIR,
Gunnarssundi 10,
Hafnarfirði,
lést föstudaginn 10. júlí.
Útför hennar verður fimmtudaginn 16. júlí klukkan 13 frá
Hafnarfjarðarkirkju. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta
FSMA á Íslandi njóta þess. Bankareikningur 315-13-300588,
kt. 6509022380.
Halldór Hannesson
Gunnþóra Halldórsdóttir Kjartan Guðmundsson
Arnar Hannes Halldórsson Helga Lúðvíksdóttir
Jósef Halldórsson Sólveig Arnarsdóttir
Katrín Halldórsdóttir Einar Árnason
Guðlaug Halldórsd. Forant Mark Forant
Jóna Björg Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur minn, faðir okkar, afi, bróðir
og mágur,
STEINAR VALBERG,
Reykjabraut 20,
Þorlákshöfn,
lést á líknardeild Landspítalans miðvikudaginn 8. júlí.
Útför mun fara fram í kyrrþey.
Eygló Reynisdóttir
Eyrún Eva Steinarsdóttir
Eyþór Örn Steinarsson
Íris Ósk Halldórsdóttir
Ingigerður Eyglóardóttir Guðni Birgisson