Morgunblaðið - 17.07.2020, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Tryggðu þér borð á
www.matarkjallarinn.is
fylgir hverri ferðagjöf sem innleyst
er hjá Matarkjallaranum
FORDRYKKUR
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Nýtt fyrirkomulag fyrir komu-
farþega, sem felur í sér að farþegar
frá vissum löndum eru undanþegnir
skimun og sóttkví, gekk vel í gær,
að sögn Jórlaugar Heimisdóttur,
verkefnastjóra skimunar á
Keflavíkurflugvelli.
„Þetta var náttúrlega bara dagur
númer eitt og hefur gengið vel
hingað til,“ segir hún.
18 farþegavélar með um 2.500
farþegum lentu í Keflavík í gær,
þar af 11 frá löndum frá skil-
greindum lágáhættusvæðum; Nor-
egi, Danmörku, Finnlandi, Þýska-
landi, Grænlandi og Færeyjum.
Farþegar þaðan voru að vonum
ánægðir með að þurfa hvorki að
fara í sýnatöku né sóttkví, nema
þeir hafi verið staddir utan lágá-
hættusvæða síðastliðna 14 daga.
Sýnataka úr fyrstu vélinni
Þó þurfa allir farþegar, að börn-
um fæddum 2005 og síðar undan-
skildum, að forskrá sig í gegnum
vef covid.is. Í forskráningu koma
fram samskiptaupplýsingar, upplýs-
ingar um dvalarstaði og heilsufar.
Farþegar sem komu með fyrstu
vél gærdagsins frá Luton fóru í
sýnatöku, þar sem Bretland telst
ekki enn öruggt svæði.
Gengið í gegn
án vandkvæða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Komufarþegar Talið er að um 2.500 ferðamenn hafi komið til landsins í gær. 18 vélar lentu á Keflavíkurflugvelli.
Farþegar streymdu til landsins í gær
Ørjan Aavik kom á Keflavíkurflugvöll með
flugi frá Osló klukkan níu í gærmorgun. Þar
sem Noregur er á meðal þeirra landa sem
falla undir lágáhættusvæði þurfti hann
hvorki að fara í sýnatöku né sóttkví, en
greiddi þó fyrir sýnatökuna.
„Það var smá skrýtið, ég hafði forskráð
mig og greitt níu þúsund krónur fyrir sýna-
töku, annars hefði ég þurft að greiða auka-
gjald. En síðan erum við undanþegin henni.
Mér finnst þetta ekkert hræðilegt en hefði
kannski viljað sleppa við að greiða þetta,“
segir Ørjan við Morgunblaðið.
Jórlaug Heimisdóttir, verkefnastjóri smit-
rakninga á Keflavíkurflugvelli, segir að far-
þegar sem lendi í því sama og Ørjan geti með
einföldum hætti sótt um endurgreiðslu á
covid.is.
Hann segist þó feginn að vera kominn til Ís-
lands eftir langa bið.
„Ég er feginn að þurfa ekki að fara í
sóttkví en sýnataka hefði ekki verið neitt
mál.“ Hann áformar að ganga Laugaveginn
og er vel undirbúinn og í góðu formi.
Hefði viljað vita
af undanþágunni
Ørjan Aavik frá Noregi
„Mér finnst ég vera örugg á Íslandi og í raun-
inni hvaða Evrópulandi sem er, að Bretlandi
undanskildu. Þar er ástandið alveg skelfi-
legt,“ segir Gill Bainbridge frá Manchester í
Bretlandi en landið hefur farið verr út úr
kórónuveirufaraldrinum en mörg nágranna-
löndin.
Bainbridge kom til landsins með fyrsta
flugi gærdagsins, með vél Easyjet frá Luton í
London. Hún fór í sýnatöku við komuna þar
sem Bretland er ekki á meðal þeirra landa
sem sóttvarnayfirvöld telja örugg.
Bainbridge hefur þrisvar áður komið til Ís-
lands og alltaf hefur verið meira um að vera á
Keflavíkurflugvelli en nú. „Það var svo tóm-
legt á flugvellinum að það var næstum
drungalegt,“ segir hún
Þó hafi sýnataka og allt komuferlið gengið
vel. „Það er alltaf jafngaman að koma á
Keflavíkurflugvöll,“ segir hún og bætir við:
„Að minnsta kosti hefur maður öryggi, það
er hægt að hvíla sig aðeins, í burtu frá heima-
landinu – þetta er enn meira eins og frí af
þeim sökum. En auðvitað þurfið þið að gæta
að ykkur, þessi veira virðist ekki vera að fara
neitt,“ sagði Gill Bainbridge.
Gill Bainbridge frá Bretlandi
Ástandið slæmt
í heimalandinu
Alex Blaga er frá Rúmeníu en kom til Íslands
með flugi frá London. Upprunalega ætlaði
hann að fara á knattspyrnuleik Íslands gegn
Rúmeníu, í undankeppni EM, en ætlar í stað-
inn að ferðast um Ísland yfir eina helgi.
„Ég ætlaði að horfa á leik Íslands gegn
Rúmeníu en öllu var frestað svo ég ákvað að
koma aftur núna, því þegar ég kem til Eng-
lands þarf ég ekki að fara í sóttkví í 14 daga
Ég ákvað bara að taka eina helgi í Reykjavík
og njóta þess,“ sagði hann.
Alex fór í sýnatöku líkt og allir aðrir far-
þegar sem koma til landsins, frá öðrum lönd-
um en þeim sem teljast lágáhættusvæði.
„Þetta var allt saman auðvelt, það var
skylda að vera með andlitsgrímu og ég bara
svaf eiginlega allt flugið,“ segir hann.
Hann setti smitrakningarapp almanna-
varna í símann að beiðni sóttvarnayfirvalda.
„Svo ég ætti að fá niðurstöður á næstu 12
klukkustundunum. Ég er búinn að bóka
Gullna hringinn og ætla að kíkja í Bláa lónið.
Á morgun [í dag] verður vonandi allt í lagi,“
segir hann að endingu.
Alex Blaga frá Rúmeníu
Ætlaði á leikinn
við Íslendinga
„Ég tók eftir því að það var ekki margt fólk á
flugvellinum en kannski er það venjulegt á Ís-
landi,“ segir Umar Hayat en hann kom til Ís-
lands í gær með Easyjet-vél frá Luton, ásamt
vinkonu sinni.
„Hún er búin að skipuleggja ferð á Vestfirði
og á nokkra aðra staði,“ segir hann.
Skylda var að bera grímu í flugi Easyjet en
að öðrum kosti áskildi félagið sér rétt til að
vísa farþegum á dyr.
Hayat segir sýnatökuna, sem allir farþegar
frá London þurfa að gangast undir, hafa tekið
fljótt af og gengið vel fyrir sig.
„Þeir tóku eitt úr hálsi og eitt úr nefinu. Það
sem var úr nefinu var óþægilegt, bara í smá-
stund samt,“ segir hann.
Þegar hann keypti flugmiða til Íslands voru
leiðbeiningar stjórnvalda um forskráningu og
smitrakningarappið góðar. „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég kem til Íslands og ferlið hefur
allt gengið mjög vel. Það voru gefnar góðar
leiðbeiningar um hvernig við eigum að bera
okkur að við komu og okkur skýrt sagt að við
eigum að bíða eftir niðurstöðum úr skimun.
Ég veit bara að allt verður í lagi ef ég fer eftir
öllu og prófið er neikvætt,“ segir hann.
Umar Hayat frá London
Ætlar að skoða
Vestfirðina
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI