Morgunblaðið - 17.07.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.07.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty Brjósthaldarar 8.990 kr. Boxer 3.990 kr. Strengur 3.650 kr. OFFBEAT Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is Vefverslun komin í loftið! mostc.is Gerið verðsamanburð FULL BÚÐ AF NÝJUM OG FALLEGUM VÖRUM 5.990 kr. Túnika Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarráð Fjallabyggðar hefur ákveðið að bjóða út alla dúntekju í landi sveitarfélagsins. Ákvörðunin var tekin vegna þess að maður sem byggt hefur upp æðvarvarp á Leiru- tanga í Siglufirði var hættur að geta sinnt varpinu og bað annan Siglfirð- ing að annast það. Fleiri hafa sýnt því áhuga um hríð að taka við æðarvarp- inu, meðal annars æðarbóndi í Fljót- um. Tveir menn hafa annast æðarvarp- ið á Leirutanga, í landi Steypustöðv- arinnar, fyrir eigin reikning og ekki greitt endurgjald til sveitarfélagsins. Þeir hafa byggt það upp svo nú eru þar um 900 hreiður. Annar maðurinn er látinn og hinn treystir sér ekki lengur til að sinna varpinu. Árni Rúnar Örvarsson, æðarbóndi á Hraunum í Fljótum, hefur frá því á síðasta ári boðið fram aðstoð sína við að hirða um æðarvarpið og sérstak- lega að þurrka dúninn við góðar að- stæður sem hann hefur, til að geta komið honum í betra verð. Hefur hann verið í sambandi við gamla æðarbóndann og Fjallabyggð vegna þess. Í maí bauð fullorðni æðarbóndinn Örlygi Kristfinnssyni að annast dún- tekjuna en Örlygur hefur unnið að því að byggja upp og hlú að æðarvarpi á Granda og Áróslóni austan fjarðar. Báðir sækjast eftir því við Fjalla- byggð að annast æðarvarpið á Leiru- tanga og hafa skrifað bæjarráði bréf þess efnis. Í bréfi Örlygs segir að þetta mikla varp, bæði æðarfugls og annarra tegunda, innan skipulagðra kaupstaðarmarka sé einstakt á Ís- landi og hluti af gríðarmiklu fuglalífi staðarins. Litið til fleiri þátta en tekna Erindi Árna og Örlygs voru tekin fyrir á fundi bæjarráðs Fjallabyggð- ar 7. júlí og ákveðið að bjóða út alla dúntekju í landi Fjallabyggðar, ekki aðeins á Leirutanga. Rætt var um að samið yrði um að girða svæðin af, halda vargi frá varplandi og annast umhirðu þeirra. Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, segir að við þau tíma- mót sem nú séu varðandi umhirðu æðarvarpsins á Leirutanga hafi bæjarráð talið rétt að auglýsa æðar- varp og gefa áhugafólki kost á að fá þau til umráða. Allir sitji við sama borð þegar þessum gæðum verði út- hlutað. Hann tekur fram að leigu- gjald sem hugsanlega verði boðið fram verði aðeins einn af þeim þátt- um sem litið verði til við úthlutunina. Tekur hann fram að ekki sé búið að móta reglurnar en þær muni koma fram í auglýsingu. Í bréfi Örlygs er vakin athygli á rusli á tanganum sem þyrfti að hreinsa og einnig væri æskilegt að koma upp göngustígum og aðstöðu til fuglaskoðunar. Elías segir að unnið sé að hreinsun og að bæta ímynd svæðisins. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Siglufjörður Æðarvarp er á Leirutanga við Siglufjörð. Sveitarfélagið ætlar að bjóða túntekju þar út sem og á öðrum svæðum innan Fjallabyggðar. Æðarvarpið í Fjallabyggð verður boðið út  Tveir menn vildu taka við Leirutanga Skráð hegningarlagabrot á höfuð- borgarsvæðinu í júnímánuði voru 706 talsins. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Að því er fram kemur í skýrsl- unni má sjá fjölgun í flokki minni- háttar skemmdarverka og umferð- arlagabrota. Þá varð mikil fækkun í nytjastuldi ökutækja og fíkni- efnabrotum borið saman við síð- ustu 12 mánuði. Að öðru leyti voru þeir brotaflokkar sem teknir voru fyrir í skýrslunni innan útreikn- aðra marka. Tilkynningum um þjófnaði fækk- aði á milli mánaða og var þar helst að sjá færri reiðhjólaþjófnaði. Til- kynningum um innbrot fjölgaði hins vegar á milli mánaða og fóru úr 44 í maí upp í 76 í júní. Vert er þó að taka fram að um 10% færri tillynningar hafa borist um innbrot það sem af er ári samanborið við síðastliðin þrjú ár. Skráðum of- beldisbrotum fjölgaði hins vegar milli mánaða en mest munaði þar um minniháttar líkamsárásir. Aft- ur á móti fækkaði tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur of- beldi. Tilkynningar um heimilis- ofbeldi héldust nær óbreyttar milli mánaða. Að því er fram kemur undir lok skýrslunnar fækkaði skráðum fíkniefnabrotum talsvert milli mánaða auk þess sem ölvun undir stýri var ekki algeng. aronthordur@mbl.is 706 afbrot í júnímánuði  Tilkynningum um innbrot fjölgaði talsvert milli mánaða

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.