Morgunblaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.07.2020, Blaðsíða 19
Við andlát Emmu móðursyst- ur minnar fara langar minning- ar á flug og hugsanir um þá ótrúlegu kempu sem hún var. Myndarskapurinn og dugnaður- inn uppmálaður, hverju sem hún snerti á. Um leið glæsileg stuð- manneskja sem elskaði að dansa. Hún var þeirrar gerðar að geta opnað nýjar veraldir í samtali. Hún hafði magnaða gáfu til þess að lýsa ástandi og hlutum. Hún var klæðskera- menntuð og það var sérstök un- un að heyra hana tala um efni, áferð og liti. Það var dýrmæt stund síðast þegar ég hitti Emmu fyrir nokkrum mánuðum. Þar rifjaði hún upp kjólana og kápurnar sem listasaumakonan í sveitinni hafði búið henni og systrunum, Veigu og Önnu Margréti, mömmu minni, þegar þær voru litlar. Í fínustu smáatriðum, svo allt lifnaði; litirnir, sniðin og ég sá þær fyrir mér dugnaðarstelp- urnar þrjár í þessum sparibún- aði með bláu stráhattana á bleik- um búðarskóm, ekki sauðskinnsskóm. Nú eru þær gengnar þessir merkilegu persónuleikar, syst- urnar frá Eyvík, og systkinin fjögur þar með öll, en Jóhannes er einnig látinn, í hárri elli eins og þær. Þær voru hver með sínu móti: Emma, Veiga og Magga, eins og mamma var kölluð heima hjá sér. En mér finnst þær allar hafa verið fyrirmyndir og að þær hafi komist afar vel frá því óskiljanlega hlutverki að vera kvenmaður fæddur um það bil 1920. Emma stýrði búinu í Ey- vík ásamt Reyni manninum sín- um þannig að þar var tvo al- vörubændur að finna. Það er til marks um töffarann Veigu að hún lærði á bíl fyrir allar aldir og fór að skokka löngu áður en það komst í tísku. Magga tók upp á því að læra hjúkrun, við mótbyr ef eitthvað var, og dreymdi um að komast til Afr- íku í hjálparstarf. Bærinn þeirra, Eyvík, er geymdur í mjög sérstöku lands- lagi við djúpa dularvatnið, Hestvatn, hjá furðulega löngu og aflíðandi Hestfjalli, sem er lifandi líka, með Snoppu og Eyru, eins og örnefnin segja. Og það sést til Heklu, með meiru. Saga systranna er að baki, en afkomendur búa enn á góða staðnum, í Eyvík. Verksum- merkin eru áþreifanleg, rækt- unin, uppbyggingin. Minning- arnar leika lausum hala um landmóðurina Emmu, valkyrj- una sístarfandi. Steinunn Sigurðardóttir.  Fleiri minningargreinar um Emmu Kolbeins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020 ✝ ArngrímurGeirsson fædd- ist 29. maí 1937 í Álftagerði í Mý- vatnssveit. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands Húsa- vík hinn 6. júlí 2020. Arngrímur var sonur Geirs Kristjánssonar bónda, f. 8.3. 1905, d. 3.3. 1977 og Freydís- ar Sigurðardóttur húsfreyju, f. 11.4. 1903, d. 3.3. 1990. Systkini Arngríms voru Ásmundur, f. 1.3. 1932, d. 24.6. 2019, og Málm- fríður, f. 14.2. 1934, d. 12.6. 2020. Arngrímur ólst upp í Álfta- gerði og gekk í farskóla í Mý- vatnssveit og Héraðsskólann á Laugum. Hann útskrifaðist frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1957 og lauk kennaraprófi frá haldsskólakennari, gift Herði Þór Benónýssyni. Börn þeirra: 2a) Arna Benný, maki Jónas Stefáns- son, sonur þeirra er Benóný Þór. 2b) Gígja Valgerður, maki Atli Sigurjónsson. 2c) Freyþór Hrafn, maki Lilja Katrín Gunnarsdóttir. 3) Sigurbjörn Árni skólameistari, giftur Gunnhildi Hinriksdóttur. Börn þeirra: Guðmundur Gígjar, Arney Dagmar og Hinrik Freyr. 4) Sigurður Örn vélfræðingur, giftur Málmfríði Einarsdóttur. Börn þeirra: Einar Örn, Kristján Örn og Álfhildur Ester. 5) Arn- fríður Gígja aðstoðarsaksóknari, gift Hallgrími Hallgrímssyni. Börn þeirra eru: Helga Freydís Brynjarsdóttir, Benedikt Kári Brynjarsson og Arndís Anna. Arngrímur byrjaði að kenna í farkennslu í Þingeyjarsýslu að loknu námi í Laugaskóla og veturinn eftir íþróttakennara- námið kenndi hann við Lauga- skóla og ferðaðist einnig um Suðurland og Vestfirði og kenndi þjóðdansa, skíðaíþróttir, glímu o.fl. Eftir kennaraprófið kenndi hann við Laugarnesskóla í fimm vetur en fór svo norður í Laugar og kenndi við skólann til 1973 ut- an einn vetur sem hann nam við kennaraháskóla í Kaupmanna- höfn. Frá 1973 til 2004 kenndi hann við Skútustaða- skóla/Reykjahlíðarskóla og við Framhaldsskólann á Laugum vet- urinn 1995-1996. Hann tók við búi föður síns við andlát hans árið 1977 en þau hjónin höfðu unnið við það öll sumur frá 1961. Arngrímur var liðtækur í öll- um þeim íþróttum sem hann próf- aði og ötull í félagsstörfum alla tíð. Hann þjálfaði frjálsíþróttir hjá HSÞ um langt árabil og var lengi í stjórn sambandsins. Þá sat hann í stjórn Hestamannafélagsins Þjálfa og Hrossaræktarfélags Þingeyinga og Eyfirðinga. Arn- grímur dæmdi bæði glímu og knattspyrnu og var margoft sér- greinastjóri á frjálsíþróttamótum. Hann hlaut eirmerki FRÍ og starfsmerki UMFÍ fyrir störf sín og var gerður að heiðursfélaga HSÞ árið 1994. Útför Arngríms fer fram frá Skútustaðakirkju í dag, 17. júlí 2020, og hefst athöfnin klukkan 14. Kennaraskóla Ís- lands 1960. Þar kynntist hann núlif- andi eiginkonu sinni, Gígju Sigurbjörns- dóttur, f. 11. júní 1940 á Grófargili í Skagafirði, og gengu þau í hjóna- band 27. desember 1962. Börn þeirra eru: 1) Þórhallur Geir verkfræðingur, giftist Kristínu Gunnarsdóttur. Þau skildu. Börn þeirra 1a) Birg- itta Guðmundsdóttir, maki Andri Björn Úlfarsson, dætur þeirra: Andrea Eygló og Aría Mist. 1b) Andrea, maki Ingvar Kári Þor- leifsson, börn þeirra: Rósa Kristín og Þorleifur Geir. 1c) Arngrímur, maki Hinrik Örn Hinriksson. 1d) Karlotta, maki Simon Bröndum Andersen. 2) Freydís Anna fram- Hrjúfar hendur, grásprengt rautt alskegg sem bæði stakk og kitlaði og hossast á kné pabba sem raulaði barnagælur t.d. „Ríðum, ríðum, hart út á skóginn hallast ég á hestinum en ríða vil ég þó“. Þann- ig minnist ég þín m.a. á uppvaxt- arárum mínum í Mývatnssveit. Ekki var mikill tími til leiks en stöku sinnum gafst tími til ljóna- leiks, þumalfingurstrixið tekið eða að þú sast nógu lengi þannig að hægt væri að sitja á pabbakné. Hins vegar tókst þú og mamma okkur yfirleitt með í búverkin og útreiðar þannig að samveru- stundirnar voru mýmargar og margt sem ég lærði og kann að meta nú, sérstaklega á seinni ár- um. Ég vildi samt að ég hefði tekið enn betur eftir og ég átti eftir að spyrja um svo margt, leita ráða eða segja þér frá – gott að ég hef enn þá mömmu. Þú sem þekktir hverja þúfu með nafni og fleira í þeim dúr. Þú sem allt gast og vissir og varst alltaf boðinn og búinn að rétta öðr- um hjálparhönd, hvort heldur sem var í leik eða starfi. Örlátur á tíma þinn, ekki síst þegar kom að kennslu eða félagsstörfum – ég sé það og finn sérstaklega undanfarið hve marga þú hefur snortið á lífs- leið þinni. Þú sem eftirlést mömmu meira uppeldið á okkur krökkun- um, en ef þú á annað borð byrstir þig hafði maður virkilega gert eitt- hvað af sér. Þú varst fáorður um tilfinningar þínar en aldrei hef ég dregið í efa hvaða hug þú barst til okkar í fjöl- skyldunni, gjörðir þínar hafa ávallt sagt meira en hægt er að færa í orð. Þú varst strangheiðarlegur, réttsýnn, fróður um menn og mál- efni og máttir ekkert aumt sjá, hvorki menn né málleysingja. Þú varst ekki mikið fyrir að berast á en steigst fram og tókst af skarið ef á þurfti að halda þótt það kæmi þér ekki endilega til góða eða kæmi þér áfram í metorðastiga þjóðfélagsins. Gott dæmi um það er stíflu- sprengingin í Laxá, við Miðkvísl, í ágúst 1970, „hernaðarverkið“ eins og þú jafnan kallaðir það. Þér þótti óþægileg athyglin sem þú fékkst í tengslum við heimildarmyndina „Hvellur“ er fjallaði um þennan at- burð og bentir réttilega á að þar hefðu margir verið að verki og allir staðið saman sem einn maður (ekki séns að þú hefðir eignað þér „heið- urinn“ einn). Í atvinnuviðtali um daginn var ég spurð hvort einhver nákominn mér hefði drýgt ein- hvern refsiverðan verknað sem varpað gæti rýrð á mig eða væri mér til vansa. Ég hugsaði mig lengi um, datt í hug að nefna stíflu- sprenginguna, svona í bríaríi, en þá hefði ég ekki verið að segja satt og rétt frá. Jú, vissulega var þetta refsiverður verknaður en hvorki gæti þetta varpað rýrð á mig né verið mér til vansa. Stórt skarð er höggvið í fjöl- skylduna, ættfaðirinn allur, síðast- ur sinna systkina, en mamma stendur eftir keik og munum við Hallgrímur og krakkarnir gera okkar besta til að styðja hana – þótt ég reyndar sé ansi hrædd um að það verði fremur á hinn veginn. Helga Freydís og Benni Kári minnast þín með hlýju í hjarta og við munum hjálpast að við að halda minningu þinni á lofti þann- ig að Arndísi Önnu („ljós í húsi“ eins og þú kallaðir hana oft) muni finnast hún muna eftir þér. Pabbi, við elskum þig. Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir. Arngrímur, okkar yndislegi kennari, hefur kvatt þessa jarð- vist. Yfirvegaður, rólegur og jarð- bundinn, allir báru virðingu fyrir honum. Stórkostlegur kennari. Hverfum nú aftur í tímann. Sviðið er Skútustaðaskóli, það er að byrja tími, Arngrímur er kennar- inn. Allir bíða inni í stofunni, mikil spenna í loftinu því nú á að hrekkja Arngrím, töflutuskan komin blaut í kennarastólinn. Bjallan hringir og inn gengur Arn- grímur, býður góðan daginn, legg- ur frá sér bækur og fleira, sest í stólinn. Urgur fer um bekkinn, Arngrímur stendur á fætur og byrjar kennsluna, skrifar eitthvað á töfluna og við sjáum hvar rass- inn á buxunum hefur blotnað. Engin viðbrögð hjá Arngrími, kennslan gengur eðlilega og bjall- an hringir út tímann. Þetta var Arngrímur, æðruleysið og stilling- in algjör. Ekki minnist ég fleiri hrekkja gagnvart Arngrími. Hans verður sárt saknað. Fjölskyldu hans og ástvinum öllum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi góður Guð geyma og blessa minningu Arngríms. Við kveðjum þennan öðlingskennara með orðum sem eiga vel við: Þú varst gull af manni. Dagný Hallgrímsdóttir og Herdís Steingrímsdóttir. Látinn er Arngrímur Geirsson, kennari og bóndi í Álftagerði í Mý- vatnssveit. Arngrímur var góður liðsmaður þjóðaríþróttar Íslend- inga og við félagar, sem gegndum formennsku í Glímusambandi Ís- lands samtals í 16 ár, vildum minn- ast hans á þeim vettvangi og þakka samstarfið. Arngrímur var frækinn íþrótta- maður, snarpur og fimur í hreyf- ingum. Sprettharður og góður kastari og var oftar en einu sinni stigahæstur frjálsíþróttamanna á héraðsmótum HSÞ á yngri árum. Arngrímur tók þátt í glæsilegri glímusýningu Þingeyinga á Lands- móti UMFÍ á Akureyri 1955. Eftir það var glíman í nokkurri lægð norðanlands en Arngrímur lagði lið við endurvakningu hennar á sjö- unda áratug síðustu aldar og var einn þeirra sem leiðbeindu í Skjól- brekku á glímuæfingum og lögðu grunn að góðum árangri Þing- eyinga á komandi árum. Hann tók dómarapróf í glímu 1968 og var lengi einn af virkustu og bestu glímudómurum Þingeyinga. Það var gott að starfa með Arngrími á glímumótum og þar áttum við vini að mæta. Arngrímur var jafnan boðinn og búinn að leggja glímunni lið. Hann var sérgreinastjóri glímunnar á landsmótum UMFÍ á Akureyri 1881, í Keflavík 1984 og á Húsavík 1987. Á landsmótinu í Mosfellsbæ 1990 gerði hann sér lítið fyrir og tók sjálfur þátt í glímukeppninni og varð þar um miðjan hóp miklu yngri keppenda, en 38 ára aldursmunur var á honum og yngsta keppandan- um. Þá var Arngrímur kominn á sextugsaldur en sýndist engu hafa gleymt frá fyrri árum. Hann var fararstjóri fyrir glæsilegum hópi átta glímustúlkna sem fóru til Dan- merkur árið 2001 og sýndu glímu á unglingalandsmóti ungmennafélaga þar. Arngrímur Geirsson var prúð- menni í framgöngu og hafði hlýlega nærveru. Hann var einnig röskleikamaður og fremstur í flokki þegar Þingeyingar gengu fram fyrir skjöldu sem náttúruverndarmenn í Laxárdeilunni og sprengdu stífluna í Miðkvísl 1970 eins og frægt er orð- ið. Arngrímur var þá einn þriggja sprengjumanna og þar sem annars staðar í fararbroddi. Hann var ein- staklega fjölhæfur maður og lagði gjörva hönd á margt, en allt sem hann fékkst við var til þess hugsað að bæta mannlífið og umhverfi þess. Hann var að verðleikum sæmdur gullmerki GLÍ 2004. Við minnumst heiðursmannsins Arngríms Geirs- sonar með virðingu og þökk og sendum fjölskyldu hans og aðstand- endum samúðarkveðjur. Jón M. Ívarsson og Rögnvaldur Ólafsson. Arngrímur Geirsson sast á stólnum og brostir breitt, það gaf okkur mikið að geta glatt þig með því að gera garð- inn fínan með sumarblómum. Það var ávallt notalegt og hlýtt í kringum þig. Sannarlega dýrmætt að fá að alast upp við hlið þér og mun minning þín lifa að eilífu í hjörtum okkar. Hlökkum til að hitta þig aft- ur elsku amma, við elskum þig. Hannes Ísberg Gunnarsson og Kristín Rún Gunnarsdóttir. Elsku amma mín, nú hefur þú kvatt okkur í hinsta sinn og söknuðurinn er mikill. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til þín enda stóð heimilið þitt alltaf opið öllum. Þú sem vildir allt fyrir alla gera og allir voru jafnir fyrir þér, hvort sem það voru dýr eða menn. Eitt dæmi þess er þegar ég átti að fara til dagmömmu sem lítið barn, þá fannst þér tilhugsunin ómögu- leg. Sem varð til þess að ég var hálfa vikuna hjá dagmömmu og þú annaðist mig seinni part vik- unnar. Er ég þér svo óend- anlega þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum sam- an sem mótuðu mig alla tíð þó svo ég væri ung að aldri. Dag- urinn hjá ömmu var fullur af skemmtilegum stundum, hvort sem það var að baka, prjóna eða hvað sem okkur datt í hug hverju sinni. Þessar stundir gerðu okkur nánari fyrir vikið og tengdu okkur sterkum bönd- um. Við áttum því einnig margt sameiginlegt, sérstakan áhuga höfðum við á hundum og handa- vinnu, og þegar fram líða stundir sé ég það alltaf betur og betur hversu líkar við vor- um. Það nýjasta er sameigin- legur áhugi okkar á blómum. Mun ég aldrei gleyma þeim stundum þegar við sátum sam- an við eldhúsborðið og ræddum saman um allt milli himins og jarðar. Helsta umræðuefnið var hundar, enda langaði mig ávallt að eignast minn eigin. Óskin rættist og ég eignaðist hund. Stuttu áður en ég eignaðist hundinn hringdi ég í ömmu og bað um að gista enda mjög mik- ilvægt að taka umræðuna um hundinn áður en ég fengi hann í fangið. Það er sárt að hugsa til þess að stundirnar verða ekki fleiri að sinni. Með baráttu þinni sýndir þú okkur hversu mikill töffari þú varst og gafst aldrei upp. Þegar þú varst orðin mikið veik og við ætluðum að styðja við þig kipptir þú jafnvel að þér hend- inni því þú varst enginn aum- ingi að þinni sögn. Um jólin tilkynnti ég þér að þú værir að verða langamma sem gladdi þig, ekki nóg með að þú værir að verða langamma heldur voru einnig miklar líkur á því að litli kall- inn gæti komið á sjálfan af- mælisdaginn þinn. Erfiðast er að hugsa til þess að þú munir aldrei hitta litla kallinn okkar en ég hugga mig við það að þú vissir að hann væri væntanleg- ur í heiminn og jafnframt að þú vissir að þú yrðir langamma á næstu dögum, enda ekki allir svo heppnir að ná því að verða langamma. Ég mun aldrei gleyma þér og mun ekki líða sá dagur sem ég mun ekki hugsa til þín. Með þakklæti og kærleika í huga kveð ég þig, elsku hlýja og hugrakka amma mín. Þín Guðrún Ósk Baldursdóttir. Í dag fer fram útför Rúnu vinkonu minnar. Við kynnt- umst gegnum eiginmenn okk- ar, þá Gunnar og Úlla, sem voru æskuvinir. Síðan eru liðin rúm 60 ár. Ég minnist Rúnu sem vin- konu sem alltaf var til staðar, hlý og notaleg. Rúna var mikill dýravinur og átti alltaf hunda, hún spurði mig gjarnan um hundinn minn hann Trygg. Fáir áttu fallegri garð, full- an af blómum, sem hún rækt- aði gjarnan sjálf. Færði hún mér alltaf sumarblóm á hverju vori. Ég á eftir að sakna vinkonu minnar og heimsóknanna á hið notalega heimili þeirra hjóna, og allra símtalanna okkar á kvöldin. Rúna vinkona mín var mjög stolt af sonum sínum, tengda- dætrum og barnabörnum, sem hún naut þess að vera með. Ég sendi Gunnari eigin- manni hennar og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Viktoría Valgerður Ólafsdóttir (Vigga).  Fleiri minningargreinar um Geirrúnu Marsveins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar og móður, ELÍNAR EBBU SKAPTADÓTTUR sem andaðist 2. júní, var jarðsungin frá Lindakirkju 10. júní og jarðsett í Kópavogskirkjugarði. Jóhannes Víðir Haraldsson Skapti Jóhannesson Haraldur Jóhannesson og fjölskyldur Ástkær móðir mín, ÞURÍÐUR FREYSDÓTTIR Rúrý Sólbrekku 10, Húsavík, lést þriðjudaginn 14. júlí. Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 22. júlí klukkan 14. Ágúst Örn Gíslason Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, RAGNHEIÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR Hamravík 16, lést á Líknardeildinni í Kópavogi sunnudaginn 5. júlí. Útför hennar fór fram í kyrrþey miðvikudaginn 15. júlí að ósk hinnar látnu. Við viljum þakka starfsfólki Líknardeildar Kópavogs og þökkum einnig auðsýnda samúð. Ágúst Guðjónsson Sigurbjörn Ágúst Ágústsson Hjördís Björk Þórarinsdóttir Jón Viðar Ágústsson Gréta María Grétarsdóttir Lára Björg Ágústsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.