Morgunblaðið - 17.07.2020, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine í
Martin Slóvakíu
heldur inntókupróf í læknisfræði 15
ágúst nk online.
Umsóknarfrestur er til 17 júlí.
Uppl. kaldasel@íslandia.is og
s. 5444333
Bílar
Nýir 2020 Mitsubishi Outlander
Hybrid.
Flottasta typa með öllum búnaði.
Listaverð 6.690.000,-
Okkar verð er 800.000 lægra eða
5.890.000,-
Til sýnis á staðnum í nokkrum
litum.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Atvinnuauglýsingar
Álnabær
Verslunarstarf
Starfskraftur óskast í verslun okkar
í Síðumúla 32, Reykjavík.
Vinnutími frá kl. 10-18 eða kl. 13-18
alla virka daga.
Áhugasamir sendi umsókn á
ellert@alnabaer.is
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Austurvegur 7, Ísafjarðarbæ, fnr. 2119169, þingl. eig. Áslaug Jóhanna
Jensdóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum,
þriðjudaginn 21. júlí nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
15 júlí 2020
Tilkynningar
Verkefnislýsing fyrir tillögu að breytingu á
Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008–2028
Vegagerðin undirbýr jarðgangagerð undir Fjarðar-
heiði. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta
vegasamgöngur milli Seyðisfjarðar og annarra
byggðarlaga, einkum að vetrarlagi, auka umferðar-
öryggi og bæta sambúð vegar og umferðar við íbúa
og umhverfi. Í tengslum við framkvæmdir vegna
Fjarðarheiðarganga hefur Vegagerðin jafnframt
skoðað að færa Hringveginn út fyrir þéttbýlið á
Egilsstöðum.
Vegagerðin kynnti framkvæmdir vegna Fjarðarheið-
arganga og áætlað umhverfismat þeirra í drögum að
tillögu að matsáætlun í lok júní 2020.
Sveitarstjórn Fljótsdalshéraðs hefur ákveðið að
hefja undirbúning aðalskipulagsbreytingar þar sem
mörkuð verður stefna um staðsetningu ganganna,
gangnamunna og vegtengingar. Jarðgöng frá Héraði
yfir á Seyðisfjörð eru í aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs
en lega þeirra, áætlaður jarðgangamunni og veglínur
vegtengingar Héraðsmegin er ekki í samræmi við
núverandi áform Vegagerðarinnar. Sveitarstjórn
Fljótsdalshéraðs er jákvæð fyrir breyttri legu
ganganna, að gangnamunninn verði við Dalhús í
stað Miðhúsa og að Hringvegur 1 verði færður nær
Eyvindará vegna umferðaröryggis og hyggst breyta
aðalskipulagi til samræmis við það.
Útbúin hefur verið verkefnislýsing þar sem gerð er
grein fyrir ofangreindri breytingu á aðalskipulaginu
og umhverfismati hennar og er lýsingin aðgengileg
á vef sveitarfélagsins www.fljotsdalsherad.is. Íbúar
og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér
efni hennar og koma á framfæri ábendingum. Óskað
er eftir því að ábendingar komi fram fyrir 10. ágúst
2020. Ábendingar má senda til skipulagsfulltrúa í
tölvupósti á netfangið dandy@egilsstadir.is eða í
bréfi til bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs.
Kynning lýsingarinnar og tillögu að breyttu skipulagi,
þ.m.t. þessi auglýsing, er skv. 30. grein skipulags-
laga nr. 123/2010 og skv. lögum um umhverfismat
áætlana nr. 105/2006.
f.h. Bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Mánudaginn næsta 20. júlí er sumarhópurinn okkar
með viðburði. kl. 12 byrjum við á að fara í hamborgara í Hagavagni-
num hjá vesturbæjarlauginni og svo eftir hádegi kl. 14.30 er ís og stuð
í boði sumarhópsins. Allir velkomnir!
Árskógar Hádegismatur kl. 11:30 – 13. Félagsstarfið lókað eftir kl 13.
Allir velkomnir í Félagsstarfið sími: 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Blöðin, kaffi og spjall kl. 8.50.
Hreyfiþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10.30-11.30. Hádegismatur kl.
11.30-12.30. Leiksýning, Endalausir þræðir kl. 14. Síðdegiskaffi kl. 15.
ATHUGIÐ AÐEINS Í DAG. Við vinnum eftir samfélagssáttmálanum,
þannig höldum við áfram að ná árangri. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 8.30-16. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 13.45 -15.15. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Bingó í Jónshúsi kl.
13.
Gerðuberg 3-5 Föstudagur kl. 8.30-16. Opin handavinnustofa
kl. 10-12. Prjónakaffi
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Hreyfiþjálfun
með sjúkraþjálfara kl.9.30. Kennsla í notkun snjallsímatækja 10.30 -
11.30. Gönguferð kl. 13.30.
Korpúlfar Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9. í dag og
gönguhópar leggja af stað frá Borgum kl. 10. í dag, mismunandi
styrkleikar. Opið í Borgum frá 8. til 16. frjálst opið félagsstarf. Dans-
leikfimi kl. 14. í Borgum í dag. Hádegisverður hefst kl. 11.30 og
kaffihúsið opnar kl. 14.30 en heitt á könnunni alla daga. Hjartanlega
velkomin í Borgir, þar sem gleðin býr.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á hressandi
dansleikfimi klukkan 9.30 í setustofu. Um tíuleytið hittist vikulegur
spjallhópur í handverksstofu í morgunkaffi. Eftir hádegi verður
bingóið á sínum stað í matsalnum (spjaldið kostar 250 kr.) og
vöfflukaffi í framhaldi af því. Einnig verðum við með boccia í setus-
tofu klukkan 13.30. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í næstu viku verður haldið námskeið á
spjaldtölvur á Vitatorgi; mánudag, miðvikudag og föstudag. Fyrir
hádegi, kl. 9-12, verður kennt á Android stýrikerfi og eftir hádegi,
kl.13-16, Apple stýrikerfi. Námskeiðið er að kostnaðarlausu en
skráning nauðsynleg. Takmörkuð pláss. Hafið samband í síma 665-
7641 fyrir skráningu.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag föstudaginn 17.júlí. Kl. 10.30 er kaf-
fispjall í króknum á Skólabraut. Kl. 11:00 er leikfimi í salnum á
Skólabraut. Kl. 13:30 er samsöngur í salnum á Skólabraut. Kl. 14. er
menning og skemmtun á Skólabraut. Hlökkum til að sjá ykkur,
Sléttuvegur 11-13 Föstudagur Selið á Sléttuvegi er opið frá kl.
10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin.
Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15 og panta þarf matinn daginn áður.
Bíó kl. 13. (verður í boði með auglýsingu í Selinu). Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er: 568-2586.
með
morgun-
200 mílur
✝ Sveinn ÓliJónsson fædd-
ist á Akureyri 10.
nóvember 1935.
Hann lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi 8.
júlí 2020.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Stefánsson, rit-
stjóri og kaup-
maður á Akureyri,
f. 17. janúar 1881, d. 1. júní
1945, og Gerda Stefánsson, hús-
freyja og útsölustjóri ÁTVR á
Akureyri, f. 24. júlí 1906, d. 9.
nóvember 1985. Systkini Sveins
Óla eru Stefán, f. 1934, d. 2013,
og Gerða Ásrún, f. 1936.
Eiginkona Sveins Óla er
Anna Lilja Kvaran, f. 28. októ-
ber 1935, þau gengu í hjóna-
band 15. ágúst 1961.
Dóttir Sveins Óla og Önnu
Lilju er Anna Katrín, f. 24.
ágúst 1971, eiginmaður hennar
er Guðni Jónsson, fæddur 7.
maí 1971. Börn þeirra eru
Sveinn Óli, f. 7. júlí 2000, Kol-
brún Elsa, f. 24. febrúar 2005,
og Jón Atli, f. 21. apríl 2008.
Fyrir átti Guðni Hafdísi Rún, f.
14. desember 1992.
Sveinn Óli ólst upp á Akur-
eyri en fór reglulega til Dan-
merkur að heimsækja móð-
urfólkið sitt. Þegar
hann var 12 ára
dvaldi hann í Dan-
mörku í rúmt ár,
þegar hann kom
aftur heim til
Akureyrar talaði
hann nánast ein-
göngu dönsku og
upp frá því var
hann kallaður Óli
danski, það við-
urnefni hélst við
hann til æviloka.
Eftir grunnskólann hóf hann
nám í Menntaskólanum á Akur-
eyri, sú skólaganga var ekki
löng því hugurinn leitaði ann-
að.
Tónlistin skipaði stóran sess í
lífi Sveins Óla. Hann spilaði á
trommur með ýmsum hljóm-
sveitum bæði á Akureyri og í
Reykjavík. Hann spilaði meðal
annars með Chet Baker þegar
hann kom til Íslands og hélt
tónleika hér. Seinni árin tók
píanóspil við af trommuleik,
hann spilaði dinnertónlist í
mörg ár á Hótel Lofteiðum,
Hótel Örk og í Perlunni.
Sveinn Óli starfaði lengst af í
Vöruafgreiðslu Flugleiða á
Reykjavíkurflugvelli.
Útförin fer fram frá Bústaða-
kirkju í dag, 17. júlí 2020, og
hefst athöfnin klukkan 11.
Það er ákaflega erfitt að setj-
ast niður og skrifa minningar-
grein um elsku pabba minn,
mér finnst enn svo óraunveru-
legt að ég hitti hann ekki aftur.
Samband okkar var einstakt,
við náðum mjög vel saman og
oft voru orð óþörf í okkar sam-
skiptum, við skildum hvort ann-
að svo vel. Ég held að ég hafi
fengið allra stærsta vinninginn í
pabbalottóinu. Ég held að flest-
ir ef ekki allir sem þekktu hann
pabba minn séu sammála mér
að hann hafi verið einn sá ljúf-
asti maður sem til er. Ég man
ekki eftir því að hann hafi talað
illa um neinn, hann sá allt það
góða í öllum.
Hann tók ávallt virkan þátt í
því sem ég tók mér fyrir hendur
og voru hann og mamma oft
einu foreldrarnir sem mættu og
horfðu á handboltaliðið mitt
keppa. Í þá daga var það und-
antekning að foreldrar mættu á
leiki hjá börnum sínum, en þau
létu sig ekki vanta. Pabbi var
líka mjög duglegur að skutla í
leiki og sækja okkur og stund-
um setti hann einhverjar stelp-
ur í skottið á „station“-bílnum
sínum því ekki vildi hann skilja
neinn eftir. Þegar hann var ekki
að ferja okkur stelpurnar þá
var trommusettið hans í skott-
inu. Ég var svo heppin að vera
aðalrótarinn hans, ég fór með
honum á marga staði þar sem
hann var að spila og hjálpaði
honum með settið, að bera það
inn og stilla því upp. Pabbi var
tónlistarmaður af guðs náð,
trommur og píanó voru hans að-
alhljóðfæri en hann gat spilað á
fleiri. Hann fór aldrei í tónlist-
arnám og lærði ekki að lesa nót-
ur, hann spilaði ávallt eftir eyr-
anu.
Pabbi minn var einn allra
besti afi sem um getur, fyrsta
barnabarnið var skírt í höfuðið
á honum og var hann ákaflega
stoltur af því. Hann hafði alltaf
tíma fyrir barnabörnin, þegar
þau voru lítil kom hann oft í
óvæntar heimsóknir. „Ég átti
bara leið hjá,“ sagði hann ávallt
þegar hann mætti á svæðið.
Þegar þau byrjuðu að stunda
sínar íþróttir var pabbi ávallt á
hliðarlínunni ásamt mömmu,
þau slepptu varla leik. Hann var
mjög duglegur að aðstoða okkur
að skutla þeim á æfingar og oft
horfði hann á þær líka. Börnin
voru mjög glöð með þessar
stundir með afa sínum og ekki
skemmdi það fyrir að hann fór
stundum með þau í bakarí og
keypti snúð eða kom við í ísbúð
á leið á æfingu svo þau yrðu
ekki svöng, kannski ekki það
besta fyrir æfingu en afi var
einstakur.
Pabbi veiktist í byrjun árs,
hann var búinn að vera eitthvað
slappur um jólin en ekki vildi
hann fara til læknis því hann
vildi að heilbrigðisstarfsfólkið
fengi frí um jólin. Hann stóð sig
ótrúlega vel í veikindunum,
kvartaði aldrei. Hann gat sem
betur fer verið mikið heima þar
sem mamma var hans stoð og
stytta. Síðustu vikurnar var
hann á líknardeildinni í Kópa-
vogi, þar leið honum vel. Starfs-
fólkið sem þar vinnur hugsaði
vel um hann og sinnti honum af
mikilli hlýju og umhyggju, fyrir
það erum við litla fjölskyldan
hans ævinlega þakklát.
Í veikindunum nýttum við
fjölskyldan góðu dagana hans
vel, við áttum yndislegar stund-
ir með honum, grétum saman
og hlógum mikið.
Ég kveð elsku pabba minn
með hans kveðjuorðum: Hitt-
umst heil.
Anna Katrín.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.
(Ásmundur Eiríksson)
Elsku afi Óli.
Þú varst svo alltaf svo góður
við okkur og varst alltaf til
staðar.
Takk fyrir að leyfa okkur að
gista hjá þér og ömmu. Takk
fyrir allar ísferðirnar. Takk fyr-
ir að skutla okkur hvenær sem
var og hvert sem var. Takk fyr-
ir að styðja okkur í boltanum,
við eigum eftir að sakna þín á
hliðarlínunni.
Þú varst svo mikill húmor-
isti, við eigum eftir að sakna
þess að hlæja með þér.
Takk fyrir allt, við elskum
þig og söknum þín.
Þín afabörn,
Sveinn Óli, Kolbrún Elsa
og Jón Atli.
Sveinn Óli Jónsson
Fleiri minningargreinar
um Svein Óla Jónsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.