Morgunblaðið - 17.07.2020, Page 25

Morgunblaðið - 17.07.2020, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞAÐ ERU MARGIR MILLJARÐAR AF ÞEIM HÉRNA! TRYGGÐU ÞAÐ AÐ ENGINN ÞEIRRA KOMIST UM BORÐ Í SKIPIÐ FYRIR FLUGTAK.” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hugsa til hennar í snjókomunni. ENN EINN MÁNUDAGURINN … ÞETTA ÆTTI AÐ VARÐA VIÐ LÖG FIMM MÁNUDAGAR Í EINUM MÁNUÐI ER BARA RANGT! HVERNIG ÆTTI ÉG AÐ VITA ÞAÐ? HEPPNI EDDI, ERTU ALLTAF VISS Í ÞINNI SÖK Í LÍFINU? ÉG HEF ALDREI KOMIÐ FYRIR DÓMARA! „KANNSKI ER FJARVINNAN ORSÖK ÞESS AÐ ÞÉR FINNST ÞÚ ÚR TENGSLUM VIÐ HLUTINA.” Í vetur er ég að fara að leika í sýn- ingunni Níu líf, en við náðum að sýna það þrisvar áður en kófið skall á.“ Áhugamál Björns eru tónlist, bóklestur, spunaspil og tölvuleikir. „Ég passa alltaf upp á að geta leikið mér og er í leikaraspilahóp þar sem við erum að spila Dungeons and Dragons og ég viðurkenni bara að mér finnst geggjað að spila það.“ Björn ætlar að halda veglega upp á afmælið og býður til rúmlega 100 manna veislu. „Þar verður farið yfir ferilinn og fullt af hljómsveitum sem munu spila. Maður verður páfugl í einn dag og ég hlakka rosalega til.“ Fjölskylda Eiginkona Björns er Íris Dögg Einarsdóttir, f. 5.1. 1984, ljósmynd- ari. Foreldrar hennar eru hjónin Einar Vignir Einarsson, f. 13.12. 1958, skipstjóri, og Sigríður Ólafs- dóttir, f. 16.9. 1961, sjúkraliði. Þau eru búsett í Kópavogi. Börn Björns og Írisar eru Salka, f. 13.12. 2005; Stormur, f. 4.8. 2011, og Sóley, f. 25.10. 2019. Alsystkin Björns eru Jóhann Stefánsson, f. 9.3. 1969, búsettur í Reykjanesbæ og Kristín Ebba Stef- ánsdóttir, f. 26.1. 1976, búsett í Mos- fellsbæ. Sammæðra bróðir Björns er Kristinn Lýður Vigfússon, f. 16.9. 1988, búsettur í Reykjavík, og sam- feðra systir er Jónína Berta Stef- ánsdóttir, f. 13.6. 1989, búsett í Keflavík. Foreldrar Björns: Marta Björns- dóttir, f. 17.7. 1950, búsett í Mos- fellsbæ, og Stefán Jóhannsson, f. 11.2. 1946, d. 26.10. 1992, trommu- leikari Dáta og Sumargleðinnar. Björn Stefánsson Jónína Gunnlaugsdóttir húsfreyja og vinnukona í Rvík, f. á Stóru- Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd Lárus Hansson verkamaður í Reykjavík, f. á Steindórsstöðum í Reykholtsdal Aðalsteinn Lárusson sjómaður í Reykjavík Jónína Jónsdóttir húsmóðir á Siglufirði Stefán Jóhannsson tónlistarmaður, síðast bús. á Siglufirði Kristín Margrét Jósefsdóttir húsfreyja á Sigríðarstöðum og víðar, f. á Krakavöllum í Fljótum Stefán Aðalsteinsson bóndi á Sigríðarstöðum í Fljótum og verkamaður á Siglufirði, f. á Kambi í Deildardal Maria Petersen húsfreyja í Danmörku Christian Petersen verkamaður í Danmörku Gurly Magnusson verslunarkona í Kastrup, Danmörku Björn Jónsson verslunarstjóri í Reykjavík Sigríður Björnsdóttir húsfreyja í Rvík, dóttir Björns Sigfússonar bónda og alþingismanns á Kornsá í Vatnsdal Jón Árnason bankastjóri í Reykjavík, f. í Syðra-Vallholti á Langholti, Skag. Úr frændgarði Björns Stefánssonar Marta Björnsdóttir húsmóðir í Mosfellsbæ Ámiðvikudag orti Ingólfur ÓmarÁrmannsson á Boðnarmiði: Árla morguns upp ég fer út í tómið gapi. Sljór og þreyttur oftast er og ekki í góðu skapi. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir sagði: „Það er nú bara það“: Ef að morgni upp ég rís undrun vekur hreina. Þá er engin vandi vís, vappa ég milli greina. Og Stefán Aðalsteinsson bætti við: Lítið finnst mér vera vit og viska í mannlífssora. Úti á svölum einn því sit, oft í nefið bora. Skúli Pálsson yrkir „Ítalskt kvöld (skammhent)“: Margir hveitilengjur langar láta maga í; gott er fyrir sveitir svangar svonefnt spagettí. Réttinn á er ráð að velja rifinn parmaost; matinn þennan mætti telja mesta veislukost. Matar skal í næði neyta, njóta, hafa frið, ítalskt eðalvín sér veita væri tilvalið. Vigfús M. Vigfússon segir „Ferða- sögu í fimm línum“: Á Kirkjubóli er sá kraftur í kaffinu að fúnasti raftur sem vöknar af því vaknar á ný, lifnar og laufgast svo aftur. Ármann Þorgrímsson skrifar um „íslenska ráðamenn“: „Menn fá stöðuhækkun ef þeir standa sig vel í starfi en svo stoppar það. Þess vegna má álíta að í mörg- um æðstu stjórnunarstöðum þar sem menn eru búnir að sitja lengi séu vanhæfir menn. Er þetta ekki kallað Peters-lögmál?“: Að venju stilla viti í hóf virðist skorta á þessum stað en færu þau í flónskupróf flest öll myndu standast það. „Það er ekki björgulegt ástandið,“ segir Tryggvi Jónsson og skal undir það tekið: Lífið það er bölvað bras er bresta gömul kynni. Ef ég fengið gæti í glas og gagnast kerlingunni. Og að lokum eftir Helga Ingólfs- son:: Stjórnmálamennirnir starfa við stjórnsýslu flókna og þarfa. Þeir slétta og greina og slóttugir reyna að sleikja upp geðstirða skarfa. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Árla morguns er vel ort

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.