Morgunblaðið - 17.07.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020
Lengjudeild kvenna
Grótta – Tindastóll ................................... 0:2
Haukar – Víkingur R ............................... 1:3
Keflavík – ÍA............................................. 3:1
Augnablik – Fjölnir.................................. 2:0
Staðan:
Keflavík 5 4 1 0 17:2 13
Tindastóll 5 4 1 0 9:2 13
Haukar 5 2 2 1 8:7 8
Grótta 5 2 2 1 5:4 8
ÍA 5 1 3 1 9:7 6
Afturelding 4 1 1 2 3:4 4
Víkingur R. 5 1 1 3 6:10 4
Augnablik 4 1 1 2 3:7 4
Fjölnir 5 1 0 4 3:9 3
Völsungur 3 0 0 3 0:11 0
England
Everton – Aston Villa.............................. 1:1
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn sem vara-
maður hjá Everton á 73. mínútu.
Leicester – Sheffield United ................... 2:0
Crystal Palace – Manch.Utd ................... 0:2
Southampton – Brighton ......................... 1:1
Staðan:
Liverpool 36 30 3 3 77:29 93
Manch. City 36 24 3 9 93:35 75
Chelsea 36 19 6 11 64:49 63
Leicester 36 18 8 10 67:36 62
Manch. United 36 17 11 8 63:35 62
Wolves 36 14 14 8 49:38 56
Tottenham 36 15 10 11 57:46 55
Sheffield United 36 14 12 10 38:35 54
Arsenal 36 13 14 9 53:45 53
Burnley 36 14 9 13 40:48 51
Everton 36 12 10 14 42:53 46
Southampton 36 13 7 16 46:59 46
Newcastle 36 11 10 15 37:55 43
Crystal Palace 36 11 9 16 30:47 42
Brighton 36 8 13 15 37:53 37
West Ham 35 9 7 19 44:59 34
Watford 35 8 10 17 33:54 34
Bournemouth 36 8 7 21 37:62 31
Aston Villa 36 8 7 21 39:66 31
Norwich 36 5 6 25 26:68 21
B-deild:
Leeds – Barnsley...................................... 1:0
Svíþjóð
Östersund – Malmö.................................. 1:2
Arnór Ingvi Traustason var ekki í leik-
mannahópi Malmö.
Kalmar – Hammarby .............................. 1:2
Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna-
hópi Hammarby.
Norrköping – Örebro.............................. 2:0
Ísak B. Jóhannesson lék fyrstu 88 mín-
úturnar með Norrköping.
Häcken – Elfsborg................................... 6:0
Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik-
mannahópi Häcken.
Staða efstu liða:
Norrköping 8 6 2 0 20:7 20
Häcken 8 3 4 1 15:7 13
Djurgården 8 4 1 3 13:9 13
Varberg 8 4 1 3 11:7 13
Malmö 8 3 4 1 11:8 13
Mjällby 8 4 1 3 9:8 13
Noregur
Start – Rosenborg ................................... 0:0
Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í
leikmannahópi Start. Jóhannes Harðarson
þjálfar liðið.
Staða efstu liða:
Bodø/Glimt 8 8 0 0 32:8 24
Molde 8 7 1 0 24:7 22
Vålerenga 8 4 3 1 11:10 15
Odd 8 4 1 3 13:9 13
Brann 8 4 1 3 12:12 13
Spánn
Real Madrid – Villarreal.......................... 2:1
Barcelona – Osasuna................................ 1:2
Efstu lið fyrir lokaumferðina:
Real Madrid 37 26 8 3 68:23 86
Barcelona 37 24 7 6 81:38 79
Atlético Madrid 37 18 15 4 50:26 69
Sevilla 37 18 13 6 53:34 67
Villarreal 37 17 6 14 59:49 57
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Samsung-völlur: Stjarnan – HK .............. 20
1. deild karla, Lengjudeildin:
Grindavíkurv.: Grindavík – Fram....... 19.15
Eimskipsv.: Þróttur R. – Keflavík ...... 19.15
Ólafsvík: Víkingur Ó. – Afturelding.... 19.15
2. deild karla:
Fjarðab.höll: Fjarðab. – Dalv/Rey...... 19.15
Nesfiskvöllur: Víðir – Kári .................. 19.15
Hertz-völlur: ÍR – Njarðvík ................ 19.15
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Haukar........ 19.15
Vogaídýfuvöllur: Þróttur V. – Selfoss 19.15
3. deild karla:
Bessastaðav.: Álftanes – Augnablik ........ 20
Fjölnisv.: Vængir Júpíters – Reynir S .... 20
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Vodafonev.: Völsungur – Afturelding. 19.15
SUND
Íslandsmeistaramótið í 50 metra laug hefst
í Laugardalslaug klukkan 17 og fyrsta
hluta mótsins lýkur þar um kl. 19.30.
GOLF
Hvaleyrarbikarinn 2020, sem er fjórða
mótið á stigamótaröð GSÍ á árinu, hefst á
Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði í dag en það er
fyrsti keppnisdagurinn af þremur.
Í KVÖLD!
Efstu tvö liðin í Lengjudeild kvenna
í knattspyrnu, Keflavík og Tinda-
stóll, héldu uppteknum hætti og
unnu leiki sína í kvöld en alls fóru
fjórir leikir fram í 5. umferðinni í
kvöld. Keflavík er í efsta sæti á
markatölu en bæði lið eru með 13
stig eftir fimm leiki, hafa unnið fjóra
og gert jafntefli innbyrðis.
Tindastóll sótti þrjú stig á Sel-
tjarnarnes með því að leggja heima-
konur í Gróttu að velli, 2:0, á Vivaldi-
vellinum. Aldís María Jóhannsdóttir
kom gestunum yfir eftir um hálftíma
leik og Jacqueline Altschuld innsigl-
aði sigurinn um tuttugu mínútum
fyrir leikslok.
Keflavík vann 3:1-sigur á ÍA á
heimavelli sínum, Nettóvellinum.
María Rún Guðmundsdóttir, Amelía
Rún Fjeldsted og Natasha Anasi
komu heimakonum í þriggja marka
forystu áður en Fríða Halldórsdóttir
klóraði í bakkann fyrir Skagakonur.
Víkingur úr Reykjavík vann 3:1-
útisigur gegn Haukum á Ásvöllum
þar sem Stefanía Ásta Tryggvadótt-
ir kom gestunum yfir úr vítaspyrnu
áður en Nadía Atladóttir tvöfaldaði
forystuna og Stefanía bætti við öðru
marki. Birna Kristín Eiríksdóttir
minnkaði muninn fyrir Hauka sem
hafa tapað sínum fyrsta leik.
Þá skoruðu Birta Birgisdóttir og
Ísafold Þórhallsdóttir mörkin fyrir
Augnablik í 2:0-heimasigri á Fjölni á
Kópavogsvelli.
Haukar og Grótta eru í 3. og 4.
sæti með átta stig og Skagakonur
koma næstar með sex stig. Augna-
blik vann sinn fyrsta sigur í sumar
og lyfti sér upp í 8. sætið.
Toppliðin eru
áfram ósigruð
Tindastóll og Keflavík stinga af
Morgunblaðið/Arnþór
Fyrirliðarnir Bryndís Rut Haraldsdóttir og Tinna Jónsdóttir berjast um
boltann á Vivaldi-vellinum í leik Gróttu og Tindastóls í gær.
Real Madríd er spænskur meistari í
fótbolta eftir að liðið vann 2:1-sigur
á Villarreal á heimavelli í næstsíð-
ustu umferð efstu deildarinnar í
gærkvöldi. Þetta er fyrsti meistara-
titill Madrídinga í þrjú ár.
Franski framherjinn Karim
Benzema skoraði bæði mörk heima-
manna, sem hefðu ekki einu sinni
þurft sigur til að fagna þar sem
Barcelona mistókst að vinna Osas-
una á heimavelli, liðið tapaði 2:1.
Real er því með sjö stiga forystu á
toppnum fyrir lokaumferðina sem
fer fram um helgina.
Fyrsti titill Real
Madríd í þrjú ár
AFP
Meistarar Fyrirliðinn Sergio
Ramos með bikarinn á lofti í gær.
Atvinnumaðurinn og ólympíufarinn
Anton Sveinn McKee er á meðal
keppenda á Íslandsmótinu í sundi í
50 m laug sem hefst í Laugardals-
laug í dag. Anton, sem keppir fyrir
Toronto Titans í alþjóðlegri deild á
komandi vetri, tekur þátt í fjórum
greinum á mótinu og sú fyrsta er
100 m bringusund kl. 18.40 í dag en
mótið hefst klukkan 17. Um 150
keppendur eru skráðir til leiks,
margt af besta sundfólki Íslands en
einnig Danirnir Mie Nielsen og
Viktor Bromer frá Álaborg og Met-
in Aydin frá Tyrklandi.
Anton með í
fjórum greinum
Morgunblaðið/Eggert
Íslandsmótið Anton Sveinn McKee
keppir í 100 m bringusundi í dag.
Eiður Smári Guðjohnsen og Logi
Ólafsson hafa verið ráðnir þjálfarar
karlaliðs FH í knattspyrnu í stað
Ólafs Helga Kristjánssonar sem tek-
ur við danska B-deildarliðinu
Esbjerg.
Eiður er að þreyta frumraun sína
sem þjálfari hjá félagsliði en hann er
aðstoðarþjálfari 21-árs landsliðs
karla. „Ég var í raun ekkert að
hugsa um þetta,“ sagði hann í sam-
tali við Morgunblaðið, spurður hvort
hann hefði áður íhugað að taka þetta
skref. „Þetta var bara það spennandi
að ég gat ekki sagt nei. FH er með
bestu aðstöðu landsins og í raun er
allt til alls þarna til að einbeita sér
alfarið að fótboltanum og reyna að
ná árangri,“ bætti hann við en við-
talið í heild er að finna á mbl.is.
Logi er margreyndur þjálfari á
landsvísu, lék með FH á sínum tíma
sem leikmaður og þjálfaði liðið árin
2000 og 2001. Hann hefur þjálfað
meira og minna frá árinu 1987, síð-
ast Víkinga úr Reykjavík sumarið
2018.
„Mér þykir mjög vænt um það að
félagið hafi leitað til mín og beðið
mig að taka þetta að mér,“ sagði
Logi Ólafsson í samtali við Morg-
unblaðið og bætti því við að hann
hefði ekki getað sagt nei við þessu
tækifæri þótt hann hefði oft sagst
vera hættur. Viðtalið allt má lesa á
mbl.is.
Ljósmynd/FH
FH Eiður Smári Guðjohnsen og Logi Ólafsson eru nýir þjálfarar FH og stýra
liðinu í fyrsta skipti gegn Fjölni í Grafarvoginum á laugardaginn.
Eiður og Logi
gátu ekki sagt nei
Mæta Fjölni strax á laugardaginn
Guðjón Þórðarson mætti á sína fyrstu æfingu hjá Vík-
ingi í Ólafsvík í gær og hann tekur formlega við liðinu
eftir leik þess gegn Aftureldingu í 1. deild karla í knatt-
spyrnu, Lengjudeildinni, sem fram fer á Ólafsvíkurvelli í
kvöld.
„Ég hlakka mikið til að takast á við þetta og ég á von á
því að þetta verði krefjandi en jafnframt spennandi
verkefni. Maður er með fótboltann í blóðinu og ég hef
þess vegna alltaf fylgst mjög vel með boltanum hérna
heima í gegnum tíðina. Það ætti því ekki að vera margt
sem á að koma manni á óvart í þessu starfi,“ sagði Guð-
jón við Morgunblaðið í gær en viðtalið í heild sinni má
sjá á mbl.is/sport.
Guðjón tekur við Víkingum í níunda sæti deildarinnar en þeir eru jafnir
Aftureldingu og Leikni frá Fáskrúðsfirði í áttunda til tíunda sæti, sex stig-
um fyrir ofan fallsætin þar sem Þróttur úr Reykjavík og Magni sitja. Fyrsti
leikurinn þar sem Guðjón verður formlega við stjórnvölinn er útileikur
gegn Leikni í Reykjavík á miðvikudaginn kemur.
Krefjandi en spennandi
Guðjón
Þórðarson
Ólafur Helgi Kristjánsson er í þriðja sinn tekinn við sem
þjálfari í danska fótboltanum en hann var í gær ráðinn
þjálfari Esbjerg sem féll úr úrvalsdeildinni þar í landi í
sumar. Ólafur þjálfaði áður Nordsjælland á árunum
2014 til 2015 og Randers 2016 til 2017 en í bæði skiptin
léku liðin í úrvalsdeildinni. Þá lauk Ólafur ferli sínum
sem leikmaður hjá AGF í dönsku úrvalsdeildinni á ár-
unum 1997 til 2000.
„Ég hef verið 100% niðursokkinn í FH þessi tæpu þrjú
ár sem ég hef verið hér og ekki skimað eftir neinu öðru.
Það hefur öðru hvoru verið einhver áhugi og þá hef ég
skoðað það en núna var hann þess eðlis að ég óskaði eftir
því að fá að skoða þetta betur og niðurstaðan er þessi,“ sagði Ólafur við
Morgunblaðið en viðtalið í heild er að finna á mbl.is.
Hann tekur við af Troels Bech sem stýrði Esbjerg síðustu vikur tímabils-
ins en Lars Olsen, sem var landsliðsþjálfari Færeyinga um árabil, var sagt
upp í byrjun júní. Esbjerg hefur leikið 45 tímabil alls í úrvalsdeildinni og
fimm sinnum orðið danskur meistari en ekki unnið titilinn frá árinu 1979.
Fjórða lið Ólafs í Danmörku
Ólafur Helgi
Kristjánsson