Morgunblaðið - 17.07.2020, Page 27

Morgunblaðið - 17.07.2020, Page 27
fyrstu þremur leikjum og horfa fram á við. Þetta gerði okkur kannski gott, ef ég reyni að líta já- kvætt á þetta ástand. Liðið hefur oft talað um hvað í okkur býr og við höfum verið dug- legar að stilla saman strengina og bæta okkur sem hóp. Ég er spennt fyrir komandi leikjum og vonandi er þetta það sem koma skal hjá okkur.“ Allt öðruvísi umgjörð hjá KR Sem fyrr segir tók Katrín sér frí frá fótboltanum í fyrra vegna barn- eigna en hún spilaði þar áður þrjú tímabil með Stjörnunni og varð Ís- landsmeistari með liðinu árið 2016. Áður spilaði hún með Þór/KA á Akureyri og fyrstu árin var hún hjá uppeldisfélaginu KR, þangað sem hún er nú snúin aftur. „Þegar ég varð ólétt kúplaði ég mig alveg út, tók frí frá boltanum og einbeitti mér að öðru. Það var dásamlegt og ég hugsaði ekkert sér- staklega um fótbolta, þótt ég hafi horft á hann. En ég var ekki búin að ákveða hvort ég ætlaði yfirhöfuð að snúa aftur. Svo fundaði ég aðeins með Stjörnunni þegar ég var farin að pæla í þessu og síðan fundaði ég með KR og það verkefni heillaði mig rosalega,“ sagði Katrín en hún segir ekki hægt að bera sama umgjörð fé- lagsins í dag og þegar hún var þar síðast fyrir níu árum, enda hafa miklar framfarir átt sér stað. „Það er allt öðruvísi umgjörð um KR í dag og betur haldið utan um allt en þegar ég var þarna síðast 2011. Það stefnir allt í rétta átt í Vesturbænum og þetta eru spenn- andi tímar.“ Það stefnir allt í rétta átt í Vesturbænum  Tvö mörk Katrínar hjálpuðu KR að vinna sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu Morgunblaðið/Eggert Endurkoma Katrín Ásbjörnsdóttir er snúin aftur í fótboltann og mörk hennar riðu baggamuninn fyrir KR í vikunni. 6. UMFERÐ Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Framherjinn Katrín Ásbjörnsdóttir skoraði kærkomin tvö mörk í 3:2- sigri KR á Stjörnunni í Garða- bænum á þriðjudaginn í 6. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni. Mörk Katrínar dugðu KR-ingum til að vinna sinn fyrsta leik á mótinu og voru sömu- leiðis hennar fyrstu í deildinni síðan 2018, eftir að hafa tekið sér frí frá knattspyrnunni á síðasta ári vegna barneigna. Lið Vesturbæinga hefur tekið miklum breytingum frá því í fyrra og hefur gengið brösulega að slípa saman nýtt lið. Ekkert var hægt að keppa og lítið hægt að æfa um nokk- urra mánað skeið vegna kórónu- veirufaraldursins og byrjaði mót KR-inga eftir því; þrjú töp í fyrstu þremur leikjunum, gegn Val, Fylki og Breiðabliki. Þurftu KR-ingar svo að fara í sóttkví í tvær vikur eftir leik sinn gegn Blikum 23. júní eftir að upp komst um smit. „Það var sætt að fá loksins fyrstu þrjú stigin og gott að gera það strax eftir sóttkvíarruglið!“ sagði Katrín í sam- tali við Morgunblaðið í gær en hún fékk 2 M fyrir frammistöðu sína gegn Stjörnunni og er leikmaður umferðarinnar. „Þetta voru skrítnar tilfinningar, að skora á móti Stjörn- unni með KR. En auðvitað kærkom- ið og mikilvægt mark og sætt að ná þessum sigri,“ bætti hún við en hún lék með Stjörnunni um árabil og er uppalin í KR. Þurftum meiri tíma „Við finnum það með hverjum leiknum að við erum alltaf að bæta okkur. Í þessum fyrstu þremur leikjum sem tapast má svo sem al- veg hafa það í huga að þetta voru tveir erfiðir útileikir gegn bestu lið- um deildarinnar en við áttum vissu- lega að gera betur gegn Fylki heima,“ sagði Katrín um byrjunina á Íslandsmótinu en KR er á botni deildarinnar, hefur að vísu spilað leik minna en flest liðin fyrir ofan. Það hefur tekið tíma að slípa saman nýja leikmenn en ekkert óðagot er í Vesturbænum. „Við erum með marga nýja leik- menn í liðinu og þetta er mjög nýtt lið sem fékk fáa leiki til að slípa sig saman. Þetta voru kannski fimm, sex leikir sem við fengum á undir- búningstímabilinu og það var ekki nóg. Við þurftum meiri tíma og það má segja að þetta kórónuveiru- tímabil hafi komið á vondum tíma fyrir okkur hvað það varðar. Eftir að við fórum í sóttkví náðum við að núllstilla okkur, gleyma þessum ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 2020 Aðeins efstu fjögur sætin gefa þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og líklegt að annað þessara liða þurfi að lúta í lægra haldi. Það sem gerir baráttu þeirra spennandi er hins vegar að liðin mætast í lokaumferðinni á heima- velli Leicester, King Power- leikvanginum. Gylfi Þór Sigurðsson spilaði síð- ustu 17 mínúturnar í 1:1-jafntefli Everton gegn Aston Villa, og South- ampton og Brighton skildu einnig jöfn, 1:1. Manchester United og Leicester eru jöfn að stigum í 4. og 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir að liðin unnu bæði leiki sína í 36. umferðinni en fjórir leikir fóru fram í gærkvöldi. Leicester vann 2:0-heimasigur gegn Sheffield United, þökk sé mörkum Ayoze Pérez og Demarais Grays og situr liðið í 4. sæti á marka- tölu. Manchester United hafði betur á útivelli gegn Crystal Palace, 2:0, þar sem Marcus Rashford og Ant- hony Martial skoruðu mörkin. Manchester United og Leicester berjast til loka AFP Hnitmiðað Marcus Rashford kemur Man. United hér yfir í leiknum í gær. Alexandra Jóhannsdóttir úr Breiðabliki er í þriðja sinn í liði umferðar Pepsi Max-deildar kvenna hjá Morgunblaðinu en hér fyrir ofan má sjá úr- valslið 6. umferðar sem lauk í fyrrakvöld þegar Valur og Fylkir skildu jöfn. Þetta er aðeins fjórða liðið sem er birt á þessu tímabili því bæði 4. og 5. um- ferð deildarinnar er ólokið vegna frestana. Elín Metta Jensen úr Val er efst í M-gjöfinni, hefur fengið 8 M í sex leikj- um Vals. Laura Hughes úr Þrótti og Hlín Eiríksdóttir úr Val koma næstar með 5 M en þar á eftir koma þrettán leikmenn með 4 M hver. Þar sem liðin hafa leikið frá fjórum og upp í sex leiki eiga margir leikmenn leiki til góða til að komast ofar í röðinni. vs@mbl.is 6. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2020 3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Sandra Sigurðardóttir Val Sólveig Larsen Fylki Birta Georgsdóttir FH Álfhildur Rósa Kjartansdóttir Þrótti Katrín Ómarsdóttir KR Alexandra Jóhannsdóttir Breiðabliki Berglind Björg Þorvaldsdóttir Breiðabliki Málfríður Anna Eiríksdóttir Val Taylor Sekyra FH Katrín Ásbjörnsdóttir KR Mary Vignola Þrótti 3 2 2 2 Alexandra þrisvar – Elín efst  Aron Kristjánsson handboltaþjálf- ari verður ekki áfram landsliðsþjálfari karla hjá Asíuríkinu Barein en hann staðfesti þetta í samtali við Morgun- blaðið í gær. Aron átti upprunalega að stýra liðinu á Ólympíuleikunum í Tók- ýó í sumar en þeir voru færðir til næsta árs vegna kórónuveirunnar. Þá hefur Aron verið ráðinn þjálfari karla- liðs Hauka á Íslandsmótinu frá og með næsta tímabili. „Þetta hefur svo sem legið í loftinu lengi. Þegar ég samdi við Haukana vildu þeir í Barein hafa mig fram yfir Ólympíuleikana sem áttu að vera í sumar. Svo er þeim frestað til næsta árs og þá er þetta orðið svolítið öðruvísi dagskrá,“ sagði Aron í viðtalinu sem lesa má í heild sinni á mbl.is.  Ísak Bergmann Jóhannesson og samherjar í Norrköping eru áfram ósigraðir á toppi sænsku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu eftir 2:0- heimasigur gegn Örebro í gærkvöldi. Ísak, sem er aðeins 17 ára, var í byrj- unarliðinu og spilaði nær allan leikinn fyrir toppliðið, sem er með sjö stiga forystu.  Guðmundur Ágúst Kristjánsson mun berjast meðal efstu manna síð- ustu tvo hringina á opna Euram Bank- mótinu í Austurríki sem er hluti af Evrópumótaröð karla í golfi. Annar hringurinn var spilaður í gær og sá þriðji og næstsíðasti fer fram í dag. Guðmundur er í áttunda sæti á sjö höggum undir pari eftir að hafa leikið á 66 höggum í gær. Haraldur Franklín Magnús lék einnig á 66 höggum og komst líka í gegnum niðurskurð en hann er í 33. sæti. Andri Þór Björns- son var einu höggi frá því að fara áfram eftir að hafa verið í 68. sæti eftir hring gærdagsins.  Atli Steinar Ingason, leikmaður 4. deildar liðs Skallagríms í knattspyrnu, var í gær úrskurðaður í fimm leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ. Hann má auk þess ekki koma á völl félagsins á meðan bannið varir. Þá var knattspyrnudeild Skallagríms sektuð um 100 þúsund krónur. Þetta er vegna kynþáttaníðs í garð leikmanns Berserkja í viðureign liðanna á Ís- landsmótinu fyrir skömmu. Fimm næstu leikir eru frá 21. júlí til 17. ágúst, bannið varir því í tæpan mánuð og Atli gæti spilað þrjá síðustu leiki Borgnesinga í riðlakeppni 4. deildar.  Axel Bóasson úr GK og Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR eiga titla að verja á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði um helgina en þar hefst í dag keppni í Hvaleyrarbikarnum í golfi. Það er fjórða mótið í stigamótaröð Golf- sambands Íslands á þessu sumri og er fyrsti hringurinn af þremur leikinn í dag. Axel er jafnframt efstur á stiga- lista GSÍ eftir þrjú fyrstu mótin en Haraldur Franklín Magnús úr GR er annar og Aron Snær Júlíusson úr GKG þriðji. Ragn- hildur er þriðja í kvennaflokki á eftir Ólafíu Þór- unni Krist- insdóttur úr GR og Guðrúnu Brá Björg- vinsdóttur úr GK. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.