Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Qupperneq 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2020 Í forsíðuviðtali helgarinnar er rætt um geðheilbrigðismál. Sá málaflokkurá ekki síður við um „venjulegt“ fólk en þá sem þurfa að leita sér hjálpar ágeðdeild. Eitt að því sem ég held að sé mikilvægt að huga að er stressið. Lífi nútímamannsins fylgir stöðugt stress; hann þarf að mæta í vinnuna, borga af lánunum, koma börnunum í skólann, borða ekki of mikið, horfa ekki of mikið á sjónvarpið og, eins og fólk kynntist í vor, eiga nóg af klósettpappír. Á síðustu misserum hefur stór stressvaldur, kórónuveiran, bæst í hópinn. Við fáum því stöðugar fréttir hve margir smituðust í gær og hve margir fóru í sóttkví út af hinum og þessum. Fréttirnar eru óteljandi. Að mínu mati er mikilvægt fyrir alla að fylgjast með því sem gengur á í samfélaginu hverju sinni. Fjöl- miðlar eru ómissandi enda veita þeir mótvægi við því valdi sem ríkisvaldið hefur yfir að búa og gefa fólki upp- lýsingar sem það hefur þörf á. Rann- sóknir hafa til að mynda sýnt að kostnaður við framkvæmdir stjórn- valda í Bandaríkjunum hækkar þeg- ar dagblöð leggja upp laupana. Þau veita nauðsynlegt aðhald og koma í veg fyrir spillingu. En allt gott er vont í óhófi og það sama má segja um fréttirnar. Tökum kórónuveiruna sem dæmi. Nú þegar fólk er aftur farið að smitast á Íslandi og við fáum af því fréttir þegar hver og einn smitast verðum við vör um okkur. Það er gott að huga að hreinlæti en stressið getur verið of mikið. Maður flakkar um fréttasíður, les frétt eftir frétt, talar við þennan og hinn um að nú sé allt að fara til fjandans og veiran yfirtekur hugsanagang manns. Þótt þú lesir 10 fréttir um að sjö hafi smitast þarf ekki að vera að þú sért í neinni raunverulegri hættu. Það er raunar mjög ólíklegt. Auðvitað getur faraldurinn farið aftur af stað hér á landi en best er einfaldlega að fylgja fyrirmælum stjórnvalda. Þar ræður lög- um fagfólk sem hingað til hefur tekið fá feilspor. Hringfarinn, Kristján Gíslason, sagði eitt sinn frá því í hlaðvarpsþætti að hann væri hættur að lesa fréttir. Hann hafði á ferð sinni um heiminn kynnst fjölskyldu sem hlustaði á hverjum degi á fréttir af loftárásum við landamæri óvinaþjóðar þeirra og lifði í stöðugum ótta. Eftir því sem ég best man áttaði fólkið sig á því að aldrei urðu þau fyrir loftárásum og ekki neinn sem þau þekktu. Þau tóku því þá ákvörðun að hætta að fylgjast með fréttum og öðl- uðust ákveðið frelsi við það. Það sama getur átt við um kórónuveiruna. Ekki lifa í stöðugum ótta Pistill Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is ’Fjölmiðlar eru ómiss-andi enda veita þeirmótvægi við því valdisem ríkisvaldið hefur yfir að búa og gefa fólki upp- lýsingar sem það hefur þörf á. En allt gott er vont í óhófi og það sama má segja um fréttirnar. Róska Hjálmarsdóttir Súkkulaðiís. Hann er bestur. SPURNING DAGSINS Hver er uppáhalds- ísinn þinn? Jóhann Pétursson Súkkulaðiís. Ann-Sofie Gremaud Auðvitað danskur lakkrís. Ég er einmitt á leiðinni á Ingólfstorg að smakka nýja ísinn þar. Colm O’Herlihy Einfaldlega vanilluís. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. ÁSGEIR TRAUSTI SITUR FYRIR SVÖRUM Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon Hveragerði, Hrísey og Hvammstangi í stað Sydney, Tokyo og New York. Ásgeir Trausti leggur land undir fót og heldur tónleika víða um land. Miðar fást á tix.is. Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Veislan á heima í Hörpu Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni Nánar á harpa.is/veislur Hvað ertu búinn að vera að bardúsa? Við fórum á túr til Evrópu í febrúar og í byrjun mars til Ameríku en þurftum að slútta túrnum þegar við vorum búin með helminginn. Við vorum að fylgja eftir plötunni sem kom út í febrúar og það var búið að bóka okkur út árið. En öllu var svo aflýst eða fært fram á næsta ár. Við ætluðum til Nýja-Sjálands, Ástralíu og Japans og svo var annar Evróputúr á dagskrá. Áttu aðdáendur úti um allan heim? Já, það er mesta furða. Það er misjafnt eftir löndum hvað aðdáendahópurinn er stór og á hvernig stöðum við spilum. En það er fólk að hlusta úti um allar trissur. Kallarðu þig bara Ásgeir í útlöndum? Já, það er aðeins einfaldara en Ásgeir Trausti, en þó nokkuð erfitt fyrir suma að bera fram. Hvað gerðir þú í Covid? Ég var með tíu ólíka streymistónleika. Það voru nokkrir erlendir miðlar sem höfðu samband sem vildu fá streymi sem þeir svo póst- uðu hjá sér. Svo gerðum við eina streymistónleika í Keflavík. Við fórum svo að huga að því hvernig best væri að kynna plötuna og þá kom þessi hugmynd að fara hringinn. Svo hef ég verið að vinna að nýju efni og hef samið töluvert. Hvert á að fara? Við byrjum í Hafnarfirði og förum svo austur og svo áfram hringinn. Það verða þrettán tónleikar á sextán dögum. Við mun- um spila bland af öllu. Á svo að sigra heiminn árið 2021? Já. Það er stefnan. Alla vega ná að klára að túra. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Spilum bland af öllu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.