Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Qupperneq 13
kasta yfir fólk hveiti eða setja post-it-miða á alla bílana,“ segir
hún og bætir við að í Reykjadal mæti allir með nóg af aukafötum,
bæði gestir og starfsfólk.
„Við erum alltaf að henda hvert öðru í sundlaugina. Við hent-
um leynigestinum Haffa Haff í laugina um daginn, en það er hefð
hjá okkur að henda leynigestum í laugina. Svo förum við bara öll
í fatasund með þeim. Það er mjög skemmtilegt,“ segir hún.
„Gestirnir elska að koma hingað og bíða jafnvel eftir því allt
árið. Þetta er svo gott sumarfrí fyrir ungmennin, en þau eru oft í
miklu prógrammi allan daginn, eins og skóla, talþjálfun, íþrótt-
um, frístund og sjúkraþjálfun. En hérna eru engar reglur og þau
fá bara að gera það sem þau vilja.“
Þóttumst prumpa í kodda
Vinkonurnar Anna Rósa, Úlfhildur og Katrín Erla eru allar bún-
ar að koma í Reykjadal síðan þær voru litlar.
Finnst ykkur gaman hér?
„Já, fyrir mér er Reykjadalur í rauninni besti staður í öllum
heiminum,“ segir Úlfhildur.
„Það er mjög gaman hérna og við erum alltaf að gera eitthvað
skemmtilegt, eins og þú sást hérna áðan. Í dag vorum við
hrekkjalómar og vorum að stríða smá. Við fórum í staffahúsið og
þóttumst prumpa í koddana og tókum myndir fyrir B-vaktina
sem er að koma á morgun. Svo settum við líka pítsu og brauð-
stangir undir rúm hjá starfsfólkinu,“ segir hún og þær skelli-
hlæja.
„Þetta var nú skemmtilegasti hrekkur sem við höfum gert,“
segir Anna Rósa.
„Það sem gerir Reykjadal að svona skemmtilegum og góðum
stað er að hér fáum við að hitta nýja krakka og kynnast fólki. Og
við höfum eignast fullt af nýjum vinum. Það finnst öllum gaman
hérna,“ segir Úlfhildur að lokum.
Morgunblaðið/Ásdís
Begga, Ágúst og Kári
sprella á pallinum. Í
Reykjadal er enginn
verri þótt hann vökni.
Eygerður Sunna og
Emma Lilja slaka á
á trampólíninu.
Kristjana Líf nýtur þess
að fara í laugina, sem er
mikið notuð í Reykjadal.
María Rós er ánægð að
geta rólað en rólan er
sérhönnuð fyrir hjólastóla.
5.7. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13