Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.07.2020, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.7. 2020
LÍFSSTÍLL
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Safntu-Gheorghe. AFP. | Í rúma fjóra áratugi
hefur Iosif Acsente farið um ósa Dónár á báti sín-
um. Acsente er síðasti ræðarinn í Safntu-
Gheorghe, einu af fjölmörgum þorpum á svæðinu
þar sem Dóná rennur út í Svartahafið, og hann
kveðst gera sér rækilega grein fyrir því að þar
eru gamlir lífshættir og náttúran á undanhaldi og
nú veldur kórónuveirufaraldurinn áhyggjum.
„Ég þekki Dóná svo vel að ef mér væri hent út
úr þyrlu myndi ég vita hvar ég væri,“ segir
Acsente stoltur.
Það hefur hins vegar sína galla að búa í nátt-
úrulegu völundarhúsi, sem aðeins er hægt að
fara um á báti. Jafnvel þótt svæðið hafi sloppið
við kórónuveirufaraldurinn hafa íbúarnir áhyggj-
ur af því að læknisþjónusta sé utan seilingar.
„Það eru góðar líkur á því að það verði orðið of
seint þegar björgunarbáturinn kemur,“ segir
Acsente.
En þetta er ekki það eina sem ógnar við-
kvæmu jafnvægi við ósa Dónár. Svæðið er á
heimsminjaskrá Unesco, náttúruparadís, sem
nær yfir 5.800 ferkílómetra og hefur að geyma
300 fuglategundir og 45 tegundir ferskvatns-
fiska.
Þegar allt er með felldu laðar svæðið að fugla-
skoðara og aðra ferðamenn á sumrin, en í ár virð-
ist þessi mikilvæga tekjulind nánast ætla að
þorna upp vegna faraldursins.
Hvíld fyrir náttúruna
Aurel Bondarencu, varabæjarstjóri í Sfantu
Gheorghe, vonar að Rúmenar komi að einhverju
leyti í stað erlendu ferðamannanna.
Ferðmennskan er þó ekki án vandkvæða.
Marius er 51 árs gamall veiðimaður, en hefur
einnig tekjur af að vera leiðsögumaður ferða-
manna um skurði og tjarnir. Hann fer með þá
milli fenja og sýnir þeim gular vatnaliljur og
pelikanavörp. Hann viðurkennir að fækkun
ferðamanna hafi „gefið náttúrunni hvíld“.
Marius hefur áhyggjur af að úr sér gengnir
bílar, sem hafa komið í stað hestakerra, muni
eyðileggja Sfantu Gheorghe rétt eins og öflugri
vélar í bátunum hafi farið illa með ósasvæðið.
Hann telur að vaxandi hávaði og mengun séu
ekki til góðs fyrir þær milljónir farfugla, sem á
hverju ári snúa aftur frá Afríku til að gera sér
hreiður á óshólmunum.
Að sama skapi verði minna og minna um fisk,
sem hefur verið lífsviðurværi margra.
Harðir vetur
Það er kannski ekki að furða að íbúum fari
fækkandi í Sfantu Gheorghe. Fækkað hefur um
í kringum 1.500 íbúa frá falli kommúnismans í
upphafi tíunda áratugarins og þar búa nú um
500 manns. Börn bæði Bondarencus og Acsent-
es fluttu í burtu og slógust í hóp milljóna sam-
landa, sem ákveðið hafa að freista gæfunnar
vestar í álfunni.
„Ég elska allt við þennan stað, en ég myndi
ekki vilja að börnin mín settust hér að vegna
þess að þau væru einangruð sex mánuði á ári,“
segir Bondarencu.
Lífið hefur alltaf verið erfitt við ósana, sér-
staklega á köldum og stormasömum vetrum
þegar þokan torveldar siglingar og ána leggur
hér og þar.
Ilie Ignat er 75 ára gamall veiðimaður. Hann
man þá daga að hafa verið innilokaður vikum
saman á hörðum vetrum. Oft mátti litlu muna
að ferðir hans út á Svartahafið enduðu með
skelfingu. Hann sýtir þó liðna tíð. „Unga fólkið í
dag vill ekkert leggja á sig,“ segir hann með
beiskju í röddinni. „Dagar áranna eru liðnir.“
Acsente er meira að segja orðinn tímanna
tákn. Þegar haustar ætlar hann að yfirgefa
Sfantu Gheorghe og flytja til Tulcea, næstu
borgar, til að hafa vetursetu. Ferðin tekur fjóra
tíma, vitaskuld á báti.
Hópur fólks fylgist með sólinni rísa í þorp-
inu Sfantu Gheorghe þar sem Dóná rennur
til hafs. Ósar Dónár eru á heimsminjaskrá.
Lífshættir breytast við ósa Dónár
Iosif Acsente gerir netin klár fyrir veiðiferð á
ósum Dónár í júní. Hann er 74 ára og hefur
farið á báti sínum um ána í rúma fjóra áratugi.
Ósar Dónár eru mörg þúsund ferkílómetra náttúruparadís þar sem finna má fjölbreytt fuglalíf. Þar er farið um á bátum
og getur svæðið verið þeim sem ekki eru innvígðir eins og völundarhús. Við ósana eru fyrri lífshættir á undanhaldi.
Hvítur hegri virðir spekingslegur
fyrir sér umhverfið í sefgresinu.
Pelikani hefur sig til flugs skammt
frá Sakalíneyju í ósum Dónár.
AFP
Froskur situr á blaði
vatnalilju. Lífríkið í ósum
Dónár er fjölbreytt.