Morgunblaðið - 24.08.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Unnið er að klæðningu um fjögurra kílómetra
kafla af Dettifossvegi við Ásbyrgi. Til verksins
er vatn sótt í Jökulsá á Fjöllum, þar sem ekkert
annað vatn er að hafa á þessum slóðum. Vatnið
er notað til að rykbinda mölina undir klæðn-
inguna, en hún þarf að vera rök þegar vegurinn
er klæddur. Við verklok verða aðeins eftir fimm
kílómetrar óklæddir á Dettifossvegi, að sögn
Guðmundar Hjálmarssonar verktaka.
Klæða fjögurra kílómetra kafla Dettifossvegar
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Rykbinda mölina með vatni úr Jökulsá á Fjöllum
Sighvatur Bjarnason
sighvaturb@mbl.is
„Við ætlum ekki að taka þátt í laga-
klækjum af hálfu fyrirtækisins til að
takmarka og torvelda þann tak-
markaða verkfallsrétt sem starfs-
menn hafa,“ segir Vilhjálmur Birg-
isson, formaður Verkalýðsfélags
Akraness, um skriflega áskorun
Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd
Norðuráls, þess efnis að boðuðu yfir-
vinnubanni verði aflýst.
Vilhjálmur segir að samkvæmt
kjarasamningi hafi félagsmenn sem
starfa hjá Norðuráli takmarkaðan
verkfallsrétt, sem
birtist m.a. í því
að boða þurfi
verkfall með
a.m.k. þriggja
mánaða fyrir-
vara. Hann segir
samningsaðila
þeirra líta svo á
að yfirvinnubann
sem hefjast átti 1.
september, sé í
eðli sínu verkfall og því ekki löglega
boðað. Hjá verkalýðsfélaginu ætli
menn ekki að elta ólar við lagaklæki
heldur að efna til nýrrar atkvæða-
greiðslu um verkfall 1. desember.
„Það eina sem þetta framferði skilar
sér í er að auka samstöðu verka-
fólks,“ segir Vilhjálmur og bendir á
að verkfall hafi þegar verið sam-
þykkt með 97% atkvæða.
Kjarabætur lífskjarasamnings
Vilhjálmur rekur að kjaraviðræð-
ur hafi staðið í níu mánuði og hvorki
hafi gengið né rekið. Hann segir
kröfur verkalýðsfélagsins lúta ein-
göngu að því að ákvæði lífskjara-
samningsins verði uppfyllt. „Það
kemur mér verulega á óvart að
fulltrúar SA séu ekki tilbúnir að
fullnusta hann, sem þeir tóku þátt í
að móta á sínum tíma,“ segir Vil-
hjálmur og bætir við að kröfur Norð-
uráls séu þær að laun verði hækkuð
samkvæmt „launavísitölu“ en ekki
krónutölu á grunntaxta eins og lífs-
kjarasamningurinn kveður á um. Nú
hafi félagsmenn verið „reittir til
reiði“ og látið verði reyna á rétt
þeirra með verkfallsboðun í annað
sinn.
Í samtali við blaðið sagði Sólveig
Bergmann, yfirmaður samskipta hjá
Norðuráli, að viðræður væru í gangi,
en vildi ekki tjá sig um málið að öðru
leyti.
Reiði ríkir meðal félagsmanna
VLFA efnir til annarrar atkvæðagreiðslu um verkfall félagsmanna sem starfa hjá Norðuráli Vilja
að ákvæði lífskjarasamnings verði efnd Kjaraviðræður staðið í níu mánuði og hvorki gengið né rekið
Vilhjálmur
Birgisson
Morgunblaðið/Hari
Kjaramál Hlaupin er harka í kjara-
viðræður starfsmanna Norðuráls.
Stofnendur nýs félags sem ber
heitið Garðyrkjuskóli Íslands, sem
er að mestu leyti starfandi fagfólk í
garðyrkju, hafa óskað eftir fundi
við menntamálaráðherra um hvort
hægt verði að halda úti námi í
garðyrkju á framhaldsskólastigi í
sérstökum skóla.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Gunnar Þorgeirsson, einn stofn-
enda Garðyrkjuskóla Íslands og
garðyrkjubóndi, að félagið hafi
verið stofnað sem viðbragð fag-
fólks við áhyggjum um garðyrkju-
nám á vegum Landbúnaðarháskól-
ans.
Morgunblaðið hefur áður greint
frá deilum sem risið hafa um rekst-
ur Garðyrkjuskólans á Reykjum,
eftir að hann var
settur undir
Landbúnaðarhá-
skóla Íslands.
Sjá mögulegar
fyrirmyndir
Deilurnar
snúa meðal ann-
ars að nýju
skipuriti skólans
og hugmyndum
um breytingar á umgjörð námsins,
sem kynntar voru hagaðilum í byrj-
un árs. Að sögn Gunnars voru strax
gerðar athugasemdir við skipuritið,
en ekki hafi verið hlustað á þær.
Töldu fagaðilar að breytingarnar
myndu veikja garðyrkjunámið. Það
ætti ekki heima í háskóladeildum.
Gunnar bendir meðal annars á
Fiskitækniskólann í Grindavík sem
mögulega fyrirmynd Garðyrkju-
skóla Íslands. „Við viljum gjarnan
tengja þetta framhaldsskóla og út-
skrifa nemendur úr Garðyrkju-
skólanum með stúdentspróf á
garðyrkjubraut,“ segir hann.
„Við sáum ekki annan flöt á
þessu nema að stofna Garðyrkju-
skóla Íslands og óska eftir viðræð-
um við menntamálaráðherra um
hvort við getum komið náminu fyr-
ir í sérskóla. Ef ráðuneytið hefur
engan áhuga á að vinna með okkur
þá sjáum við ekki fyrir okkur að
það verði einfalt að leysa þetta á
annan hátt.“ petur@mbl.is
Áhyggjur af garðyrkjunámi
Fagfólk í garðyrkju stofnaði Garðyrkjuskóla Íslands vegna
áhyggja af garðyrkjunámi innan Landbúnaðarháskólans
Gunnar
Þorgeirsson
Fresta þurfti skólasetningu í tveim-
ur skólum í Reykjavík, sem fram
átti að fara í dag, vegna smits hjá
starfsmönnum. Þetta eru Hvassa-
leitisskóli, sem verður lokaður fram
til 3. september, og Álftamýr-
arskóli, þar sem skólasetning verð-
ur 7. september.
Þá hefur Barnaskólanum í
Reykjavík, sem Hjallastefnan rek-
ur, verið lokað vegna smits og
sóttkvíar starfsmanna, en gert er
ráð fyrir að skólahald hefjist þar að
nýju hinn 7. september.
Eins voru meira en 30 starfs-
menn Hins hússins sendir í sóttkví
vegna smits hjá starfsmanni. Starf-
semi í húsinu, miðstöðvar Reykja-
víkurborgar fyrir ungt fólk, hefur
verið hætt fram til 2. september.
Foreldrar og forráðamenn hafa
einnig verið upplýstir um stöðuna.
Þrír skólar og Hitt
húsið lokuð vegna
smits og sóttkvíar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
telur sig vita af hverjum líkið, sem
fannst í skóginum neðan við Hóla-
hverfi í Breiðholti á föstudag, er.
Kennslanefnd hefur þó ekki lokið
störfum og því ekki hægt að full-
yrða með vissu af hverjum líkið
er.
Líkið er af eldri manni en þrátt
fyrir að hann hafi sennilega verið
látinn í skóginum í vikur eða mán-
uði var ekki lýst eftir honum.
Rannsókn málsins heldur áfram
hjá lögreglu. Ekki er talið að neitt
saknæmt hafi átt sér stað.
Telur sig vita af
hverjum líkið er