Morgunblaðið - 24.08.2020, Side 12

Morgunblaðið - 24.08.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020 Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Þú finnur gæðin! Skoðaðu úrvalið í netverslun isleifur.is VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Bandaríski athafnamaðurinn Josh Linkner ætti að vera íslensku fagfólki kunnur en hann var fyrirlesari á morgunverðarfundi Origo í ársbyrjun 2019 þar sem hann fjallaði um hvernig betur megi virkja sköpunargáfur og frumkvöðlaeðli fólks. Linkner er raðfrum- kvöðull, fjárfestir og rithöfundur en tvær bæk- ur hans hafa komist á metsölulista New York Times. Þann 27. ágúst efnir Origo aftur til fundar með Linkner, en í þetta skiptið mun hann ræða við gesti rafrænt frá bækistöð sinni í Detroit. Umræðuefnið er hvernig nýsköpun og frumkvöðlastarf þarf ekki að snúast um risa- hugmyndir og tímamótauppfinningar heldur geri margt smátt eitt stórt. Linkner hefur skrifað nýja bók um þetta efni sem gefin verð- ur út í apríl á næsta ári: Big Little Breakthro- ughs: How Small, Everyday Innovations Drive Oversized Results. Mikla nýsköpun fyrir sér Linkner kveðst vera þess fullviss að allir búi yfir þeim hæfileika að geta verið skapandi í störfum sínum og fundið nýjar og betri leiðir til að gera hlutina, hver með sínum hætti. „En gallinn er sá að fólk miklar það fyrir sér að vera frumkvöðull og stunda nýsköpun, og læt- ur það aftra sér frá því að stíga fyrsta skrefið á meðan nýsköpun ætti að vera eitthvað sem við stundum daglega,“ segir hann og bendir á að umræðan um nýsköpun virðist oft snúast öðru fremur um risaverkefnin og risasigrana þar sem allt var lagt undir og frumkvöðlunum sem þar voru að verki tókst að leggja heiminn að fótum sér. „Það er heilmikið að græða á smásigrum hér og þar, og minni háttar fram- förum sem eru viðráðanlegar og safnast upp í tímans rás uns þær verða að meiri háttar ávinningi. Bara það eitt að auka t.d. afköst fyrirtækis eða stofnunar um 5% er ekki lítið afrek, hvað þá ef afköstin aukast um 5% ár eft- ir ár. Þá er áhersla á mörg smá framfaraskref besta leiðin til að auka líkurnar á að takist að koma auga á lausnirnar sem verða að risa- skrefum.“ Sem dæmi um hvað tiltölulega litlar hug- myndir úr grasrótinni geta breytt miklu fyrir rekstur fyrirtækja nefnir Linkner hvernig starfsfólk ferðavefsíðunnar Expedia kom auga á að algengasta ástæðan fyrir því að viðskipta- vinir hringdu í símaver fyrirtækisins var til að fá afrit af ferðaáætlun sinni. „Hjá svo stóru fyrirtæki þýddi það um 20 milljónir símtala ár- lega, og ef það kostaði um fimm dali að svara hverri beiðni um ferðaáætlun var heildar- kostnaðurinn af þessum símtölum um 100 milljónir dala ár hvert,“ útskýrir hann. Lausn- in var ósköp einföld: „Símsvörunarkerfinu var breytt svo að auðveldara væri að afgreiða þessar beiðnir, og á vefsíðuna var settur stór hnappur í áberandi lit fyrir fólk að ýta á til að fá ferðaáætlunina sína.“ Neikvæð viðbrögð kæfa sköpun Eldri kenningar um sköpunargleði og ný- sköpun hafa einblínt á menningu þjóða og fyr- irtækja og hvernig t.d. flatara stigveldi getur liðkað fyrir á meðan skrifæði og rótgrónar hefðir hægja á nýsköpun. Linkner er á annarri skoðun og telur að breytt og betri nálgun sé á allra færi, óháð öðrum þáttum. Hann segir það bæði undir starfsfólki og stjórnendum komið að gera það að vana að flétta nýsköpun saman við störf sín. Starfsfólkið verði að tileinka sér vissan hugsunarhátt, venjur og vinnubrögð en stjórnendur að skapa umhverfi þar sem frum- legar hugmyndir fá að þrífast. „Stærsta hindrunin er hræðsla starfsfólks við að segja það sem því dettur í hug. Um leið og stjórnandi bregst með neikvæðum hætti við hugdettu sem honum hugnast ekki þá gufar sköpunargleði starfsfólksins upp um leið,“ út- skýrir Linkner. „Lausnin er ekki heldur að halda reglulega „hugarflugs-fundi“, því þar verða yfirleitt ekki til nema miðlungsgóðar hugmyndir og fólki hættir til að nefna þar bara „öruggu“ hugmyndirnar sem það fær frekar en þær frumlegustu og óvenjulegustu.“ Það munar líka um litlu sigrana Ávinningur Josh Linkner segir brýnt að virkja nýsköpunargetuna í grasrót vinnustaða.  Atvinnulífinu hættir til að einblína á stórafrek á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfs en vanmeta gildi allra litlu framfarskrefanna  Nýsköpun í smáum skömmtum ætti að eiga sér stað daglega töluna vantar enn 6% upp á að ná síðasta toppi, að því er Reuters greinir frá. Mörg hlutafélög lemstruð Financial Times bendir á að sá bati sem orðið hefur á bandarísk- um hlutabréfamarkaði frá því botni kórónuveiru-niðursveiflunnar var náð hafi einkum verið borinn uppi af fyrirtækjum í tækni- og neytendavöruflokki. Mörgum stæstu fyrirtækjum Bandaríkj- anna, eins og Amazon, Apple, Go- ogle og Facebook, hafi gengið ein- staklega vel en allur þorri þeirra fyrirtækja sem mynda stóru vísi- tölurnar þrjár eigi enn langt í land með að ná fyrra verði. Á það við um nærri fimmtung fyrirtækja í S&P 500 vísitölunni að hlutabréfaverð þeirra í dag er meira en 50% lægra en þegar það var hæst og ef tekið er meðaltal af fyrirtækjunum fimm hundruð er hlutabréfaverð þeirra 28,4% frá því sem það var þegar best lét. Markaðsgreinendur segja við- snúninginn því vera „K-laga“ og að fregnir af styrkingu vísitaln- anna þriggja feli þá staðreynd að ákveðnir geirar vestanhafs glími enn við mikinn vanda. ai@mbl.is Bæði S&P 500 og Nasdaq-vísitöl- urnar slógu met á föstudag og munaði þar mest um hækkun á verði hlutabréfa Apple. Naut Apple, og fleiri félög, góðs af nýj- um hagtölum sem benda til að bandaríska hagkerfið hafi tekið að braggast í júlí eftir samdrátt kór- ónuveirumánaðanna. Rauk hluta- bréfaverð Apple upp um 5% á föstudag en fyrr í vikunni rauf markaðsvirði bandaríska tækniris- ans tveggja milljarða dala múrinn. Bæði S&P 500 og Nasdaq-vísi- tölurnar hafa núna náð sama styrk og áður en kórónuveirufaraldurinn skók markaði en Dow Jones-vísi- Hlutabréfavísitölur slá ný met K-laga Stærstu fyrirtækin hafa leitt batann á hlutabréfamarkaði.  Viðsnúningurinn á Wall Street dreifist ekki jafnt og margir geirar enn í lægð AFP ● Kínverski sam- félagsmiðillinn Tik- Tok sakar Banda- ríkjaforseta um að hafa brotið lög með tilskipunum sínum fyrr í mán- uðinum sem tak- mörkuðu notkun forritsins á banda- rískri grundu og skikkuðu eigendur TikTok til að selja starfsemi félagsins í Bandaríkjunum til innlendra aðila. Hyggst fyrirtækið leita réttar síns fyrir dómstólum og segir Reuters að málið verði höfðað í þessari viku. TikTok kveðst hafa leitað allra leiða til að vinna með bandarískum stjórn- völdum en rekið sig á að engir ferlar væru fyrir hendi til að tryggja eðlilega málsmeðferð og ráðamenn sýnt stað- reyndum málsins lítinn áhuga. „Til að tryggja að lög og reglur séu ekki látin lönd og leið, og að komið sé fram við bæði fyrirtækið og notendur [samfélagsmiðilsins] með sann- gjörnum hætti, sjáum við ekki annan kost í stöðunni en að leita til dóm- stóla til að verjast tilskipuninni,“ sagði í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér. Þann 6. ágúst ákvað Bandaríkja- forseti, með vísan til þjóðaröryggis- hagsmuna, að banna bandarískum fyrirtækjum og einstaklingum að eiga í viðskiptum við TikTok frá og með 20. september. Viku síðar fyrirskipaði for- setinn að ByteDance, móðurfélag Tik- Tok, skyldi selja frá sér rekstur sinn í Bandaríkjunum innan 90 daga og herma fregnir að bæði Microsoft og Oracle hafi áhuga á að kaupa. Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um óttast bandarísk stjórnvöld að Tik- Tok og önnur vinsæl kínversk forrit safni miklu magni upplýsinga um bandarískan almenning, og að kín- versk stjórnvöld geti mögulega komist yfir þessar upplýsingar og þannig not- að forritin sem njósnatæki. Áætlað er að um 100 milljónir Bandaríkjamanna hafi aðgang að TikTok en forritið er vinsælast á meðal ungs fólks. ai@mbl.is TikTok hyggst vísa ákvörðun Donalds Trumps til dómstóla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.