Morgunblaðið - 24.08.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 24.08.2020, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020 ✝ Hulda VordísAðalsteins- dóttir fæddist 23. apríl 1928 á Öxnhóli í Hörgársveit, hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 11. ágúst 2020. Foreldrar Huldu voru Elísabet Pál- íana Haraldsdóttir, f. 11.maí 1904, d. 2. september 1993, og Aðalsteinn Sigurðsson, f. 26. september 1893, d. 3. september 1971. Bræður Huldu eru Hákon, f. 8. desember 1929, búsettur á Akur- eyri, og Hreiðar, f. 24. desember 1933, búsettur á Öxnhóli. 30. desember 1951 giftist Hulda Steini Dalmar Snorrasyni frá Syðri-Bægisá, f. 4. mars 1925, d. 17. ágúst 1999. Börn þeirra eru 1) Katrín f. 30. september 1953, gift Jóhannesi Sigfússyni, f. 13. desember 1951, búsett í Hafnarfirði, synir þeirra eru 1) 1995, dóttir þeirra er Helena Vordís, f. 3. febrúar 2020. 3) Hulda Kristín, f. 10. febrúar 1998, dæturnar eru allar búsett- ar á Syðri-Bægisá. Eftir hefðbundna skólagöngu þess tíma vann Hulda ýmist á búi foredra sinna eða var í vinnu hjá konum í sveitinni sem þurftu að- stoð við heimilisstörfin. Hún fór í Húsmæðraskólann á Laugalandi þar sem hún eign- aðist margar góðar vinkonur sem voru í sambandi æ síðan, hún var mikil hannyrðakona og liggja eftir hana mörg verk, saumuð, prjónuð og máluð. Hulda var húsfreyja á Syðri- Bægisá frá 1. júní 1951 þegar hún og Steinn keyptu jörðina, þau voru við búskap til 1992, en félagsbú með Helga Bjarna var stofnað 1981, Helgi Bjarni og Ragnheiður keyptu jörðina og bústofn 1992, það ár fluttu Steinn og Hulda í nýbyggt timburhús á jörðinni og bjó Hulda í því húsi til æviloka. Hulda var um árabil virkur fé- lagi í kvenfélagi Hörgdæla og er heiðursfélagi þess. Útför Huldu fer fram frá Gler- árkirkju í dag, 24. ágúst 2020, klukkan 13.30. Jarðsett verður á Bægisá. Aðalsteinn Arnar, f. 15. ágúst 1972, bú- settur á Akureyri, dóttir hans Hulda Dís, f. 13. febrúar 2006, móðir Erna Káradóttir, f. 9. jan- úar 1971. 2) Jóhann- es Steinn, f. 1. apríl 1980, giftur Erlu Jónsdóttur, f. 11. janúar 1983, synir þeirra eru 1)Jón Frank, f. 7. september 2007, 2) Óli Steinn, f. 20. desember 2012, þau eru búsett í Hafnarfirði. 2) Helgi Bjarni, f. 6. júní 1962, bóndi á Syðri-Bægisá, kona hans er Ragnheiður Margrét Þor- steinsdóttir, f. 22. nóvember 1967, dætur þeirra eru 1) Gunn- þórunn Elísabet, f. 12. ágúst 1993, gift Arnari Rafni Gíslasyni, f. 26. desember 1991, þau eiga Hafþór Dalmar, f. 16. febrúar 2020. 2) Jónína Þórdís, f. 14. október 1995, sambýlismaður Arnþór Gylfi Finnsson, f. 19. maí Elsku Hulda amma, aldrei hélt ég að sá dagur kæmi að ég þyrfti að kveðja þig. Þú hefur verið svo stór hluti af lífi okkar á Bægisá, við systur höfum hitt þig nær daglega síðan við fæddumst. Ég gat farið til þín hvenær sem mér hentaði, hvort sem það var til að föndra, prjóna, spila, spjalla, leika, baka, borða eða hvað annað sem okkur datt í hug. Elsku amma, þú kenndir okkur svo margt, hjá þér lærðum við systur að skrifa, lesa og prjóna áður en við hófum grunnskólagöngu, við lærðum að ganga vel um og vera þakklátar fyrir allt sem virtist okkur sjálfsagt. Með þér lærðum við að fara í berjamó og að fylla dallana áður en haldið væri heim aftur. Við systur elskuðum að fara í berjamó með þér, þú nennt- ir alltaf með okkur og eftir langan berjamó fórum við með þér heim og fengum kakósull. Þú sagðir okkur margar sögur í gegnum árin, til dæmis ótrúleg- ar sögur sem áttu sér stað þegar þú varst lítil. Þú hafðir alla tíð verið mikill dýravinur og tengsl þín við hin ýmsu dýr voru ótrúleg. Þú varst alltaf með ótrúlega gott minni og góðan húmor alveg fram á síðasta dag. Þú samdir margar vísur og hafðir mjög gaman af því. Með síðustu vísum sem þú samdir var þessi, ég skrifaði hana upp eftir þér í byrjun júní í ár: Andlitið er aumt á mér Afar ljótt því miður En heilabúið heldur sér Þó hárið hrynji niður Við systur fórum með þér í Skorradal á hverju sumri í nokk- ur ár, þá tókum við rútuna suður í Borgarnes og borðuðum pylsur í gamla Staðarskála. Þú varst ótrú- lega góð með okkur systur, við urðum fljótt óþolinmóðar í rút- unni og Hulda Kristín spurði upp á Öxnadalsheiði hvort við værum ekki að verða komnar. Við höfð- um það gott í Skorradal með þér og Katrínu og Jóhannesi. Þú samdir Skorradals-lög sem við sungum oft: Í Skorradal í Skorradal er skemmtilegt að vera. Við getum gengið út um allt grillað kjöt og drukkið malt. Í Skorradal í Skorradal er skemmtilegt að vera. Elsku amma við söknum þín og munum minnast þín að eilífu. Þú varst alltaf svo glöð og brosandi. Við eigum svo margar góðar minningar með þér og munum vera duglegar að rifja þær upp. Þú varst svo góð fyrirmynd og hugsaðir svo vel um fólkið í kring- um þig. Þér þótti svo vænt um nýjustu langömmubörnin þín, þau Hafþór Dalmar og Helenu Vordísi. Þú hlakkaðir til að kynn- ast þeim betur. En þau munu fá að kynnast þér í formi minninga okkar um þig. Hulda amma, takk fyrir allt. Kveðja, Jónína Þórdís. Ég kallaði ömmu mína alltaf Huldu ömmu, hún hefur búið á Bægisá í húsinu fyrir neðan frá því ég fæddist. Það hafa verið for- réttindi að hafa haft hana svona nálægt alltaf, ég var alltaf vel- komin til hennar sama hvað, hún kenndi mér svo margt, m.a. að lesa, skrifa, prjóna, teikna, föndra, sauma út og margt fleira. Mér þótti alltaf svo vænt um ömmu mína, ég leitaði alltaf til hennar ef eitthvað var að, því hún hressti mann við um leið. Þegar ég var 9 ára gisti ég 10 nætur í röð hjá henni því mér fannst svo gam- an að gista hjá henni og vera með henni. Við systur gistum stundum allar þrjár hjá henni þegar mamma og pabbi voru ekki heima langt fram eftir nóttu. Þá var svo gaman fannst okkur systrum, amma gerði pylsupasta handa okkur í kvöldmat og svo spiluðum við heilmikið svo las hún bækur fyrir svefninn. Við systur sóttum mikið til ömmu að föndra, prjóna eða spila, við spiluðum rosa mikið við ömmu alveg þar til hún fór. Það eru svo margar góðar minn- ingar að minnast með ömmu en ekki hægt að fara yfir allar, en allra helst vil ég bara minnast þess hversu heppin ég og allir sem þekktu ömmu voru, vita hversu góðhjörtuð hún var, vildi öllum vel og hugsaði alltaf vel um sína. Takk fyrir allt elsku amma! Kveðja, Gunnella Helgadóttir. Elsku besta amma mín, ég trúi því ekki að þú sért farin frá okk- ur. Þú varst besta amma sem hægt var að hugsa sér. Við syst- urnar vorum mjög heppnar með þig, þú varst alltaf til staðar fyrir okkur og maður treysti þér fyrir öllu. Það að amma mannns búi á sama heimili og maður sjálfur er alveg ómetanlegt. Við systurnar máttum alltaf koma í heimsókn sama hvað og ég man hvað það var alltaf mikið fjör þegar við systurnar komum í pössun til þín þegar mamma og pabbi fóru eitt- hvað. Ég er endalaust þakklát fyrir þetta sumar sem við fengum sam- an, sumarið 2020. Þetta eru skrítnir tímar núna en eitt af því sem breyttist ekki var hvað þú varst alltaf hress og skemmtileg þrátt fyrir að vera veik. Ég naut þess að koma í heimsókn á kvöld- in og spjalla við þig um allt og ekkert. Ég mun aldrei gleyma þér elsku amma mín og segi eins og við systur skrifuðum litlar til afa: „Við skiljum ekki alveg hvern- ig þetta er hjá afa núna en við vit- um að hann er núna hjá Guði og hann er ekkert lasinn lengur.“ Það sama á við um þig elsku amma og ég vona að þú sért með afa. Ég er svo stolt að vera skírð í höfuðið á þér og þakklát fyrir allt sem þú gafst mér. Kveðja, Hulda Kristín Helgadóttir. Elsku amma mín, Þú varst alltaf svo hress og skemmtileg, ótrúlega dugleg og stoppaðir aldrei hvort sem þú varst að prjóna, mála, spila eða vinna í eldhúsinu. Þú kenndir mér svo ótrúlega margt. Takk fyrir allar góðu stundirn- ar sem við áttum saman í sveitinni þar sem ég fékk sem krakki að vera svo mikið hjá ykkur Steini afa. Takk fyrir allar sögurnar, spil- in og þegar ég var með þér í eld- húsinu, allar gönguferðirnar í skógræktina og berjaferðirnar. Takk fyrir að taka alltaf á móti okkur strákunum í rjúpnaferðun- um. Elska þig amma mín. Jóhannes Steinn. Í dag kveðjum við mikla kjarnakonu, Huldu á Syðri-Bæg- isá, hún hefur alla tíð verið heilsu- hraust og vinnusöm, jafnt við hefðbundin heimilisstörf sem og vinnu við búið. Hún hafði einstak- an hæfileika á að laða að sér dýr og oft tókst henni að handsama og gera gæfa hesta sem aðrir höfðu gefist upp við að ná, klappa og tala við og fyrsta kálfs kvígur sem ekki vildu láta mjólka sig. Hún fór flesta daga tvisvar á dag í fjós alveg þar til 2018 þegar hún missti vinnuna eins og hún sagði sjálf, þegar nýtt fjós með mjaltaþjóni var tekið í notkun. Hulda hafði alla tíð gaman af því að ferðast og fóru hún og Steinn í nokkrar bændaferðir er- lendis og margar ferðir hér innan lands, hún sagði í vor að hún hefði farið í gegn um öll jarðgöng á Ís- landi nema Vaðlaheiðargöng, en henni gafst ekki tími til þess. Hún og Steinn höfðu bæði mik- ið yndi af trjárækt og bera skóg- arreitirnir þess glöggt merki en byrjað var að gróðursetja sumar- ið 1962. Hulda var í félagi eldri borgara á Akureyri, fór í margar ferðir innanlands á þess vegum og taldi það ekki eftir sér að keyra á mánudögum til Akureyrar til að spila félagsvist í Víðilundi. Á heimilinu var oft mann- margt, vinnumenn og vinnukonur þar sem búið var stórt, allnokkrir verknemar frá bændaskólanum á Hvanneyri og börn sem komu til sumardvalar, alltaf tókst henni að baka, elda, sauma, prjóna, mála á postulín og halda heimilinu í góðu lagi jafnt innan dyra sem utan. Margoft tók hún að sér að hafa vinnuflokka í fæði sem voru í vegagerð, brúarsmíði og við lagn- ingu raflína á svæðinu, það er gott dæmi um dugnað hennar. Hulda hugsaði alltaf vel um barnabörnin sín fimm og var dug- leg að fylgjast með vexti og þroska þeirra, hún fékk allt of lít- inn tíma til að kynnast barna- barnabörnunum tveim sem fædd- ust í febrúar 2020. Öll barnabörnin sóttu mikið í að vera með ömmu sinni, það var mikið spilað, sögur sagðar og margvíslegan fróðleik gat hún gefið þeim. Hún Bægisár búinu unni bústofn’ og fólkinu kunni, blíðu að veita börn vildu leita til ömmu af fróðleiksins brunni. Kæra Hulda, hafðu þökk fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um með þér, þín verður sárt sakn- að af okkur öllum, við vitum að Steinn mun taka vel á móti þér. Hvíl í friði. Katrín og fjölskylda. Öxnadalurinn er fegurstur allra dala. Þar lék í ljósi sólar heiðurskonan Hulda Aðalsteins- dóttir. Hún fluttist ung yfir hreppamörkin frá Öxnhóli í Hörgárdal yfir að Syðri-Bægisá. Steinn Dalmar beið hennar þar í hlaðvarpa, en þau höfðu heitið hvort öðru ævarandi tryggð. Hver sá ferðalangur sem horfir og horft hefur heim að Bægisá, hefur dáðst að glæsilegu bænda- býli. Betur hýst jörð en gengur og gerist, túnin græn og grasgefin og öll umgengni til fyrirmyndar. Fallegt lítið hús stendur í hlað- varpa, en þar reistu þau Hulda og Steinn sér lítið hof ævikvöldsins. Þau glöddust yfir ungri kynslóð, syni og tengdadóttur sem tóku við merkinu, og búskapurinn blómstrar. En þau héldu áfram að sinna verkum, ferðast og njóta lífsins. Steinn fékk allt of fá ár í litla húsinu en Hulda hefur þar vakað, prjónað og málað af list sinni fast að þrjátíu árum. Enn fremur orti hún vísur og ljóð sem hún flíkaði ekki. Aldrei féll henni verk úr hendi. Hún þvoði júgrin og bar júgurfeiti á spena mjólk- urkúnna þar til nýja fjósið og ró- bótinn gerðu hana atvinnulausa, eins og hún orðaði það. Eitt sumar starfaði sá er þetta ritar hjá þeim hjónum. Þau voru ólík en mjög samtaka og áttu einn vilja, að láta hlutina ganga, og bú- skapur þeirra var margverðlaun- aður og fullyrði ég að á fáum bæj- um á Íslandi var jafn vel búið og á Syðri-Bægisá, og svo er enn. Með mér í vinnumennsku þetta sumar var fjörmikill strákur, Ari Jóns- son. Steinn var fljóthuga dugnað- arforkur, glettinn við okkur strákana, en Hulda róleg og yfir- veguð og nærvera hennar góð og hlý. Þau vöktu bæði yfir velferð okkar, enda bundu allir vinnu- menn þeirra tryggð við þau hjón. Aðeins í eitt skipti urðum við var- ir við að þeim mislíkaði gjörðir okkar og athafnaþrá. Það var þegar ég lét Ara síga í Bægisár- gljúfrið til að ræna hrafnsungum og varð að láta hann falla síðustu metrana, skorti afl til að draga hann upp. Þetta var glæfraskap- ur sem þeim hjónum mislíkaði. Okkur var gert tiltal en öxin og jörðin sá um hrafnsungana, og aldrei var minnst á málið framar. Mig kvöddu þau í lok sumars með bíltúr á Dalvík og Dagverðareyri og aldrei gleymi ég þegar þau stöðvuðu bílinn á fallegum stað við Fagraskóg, þar sem Eyja- fjörðurinn skartar sínu fegursta og Steinn flutti af munni fram ljóð Davíðs Stefánssonar, Sigling inn Eyjafjörð. Þess varð ég var í vist minni að Hulda bjó yfir dulrænum hæfi- leikum og vissi gjarnan þegar menn bar að garði. Þegar mig bar síðar að heimili hennar sagði hún jafnan; „ég vissi að þú kæmir í dag“ eða „mig dreymdi þig í nótt.“ Svo þegar ég kom eitt sinn og með mér var í för Jóhannes Kristjánsson, eftirherman góða, sagði hún: „Er það rétt sem ég sé að Orginalinn og Eftirherman heiðra mig í dag.“ Mikið hlógum við þegar í stofu hennar sátu þjóðfrægir menn lífs og liðnir sem Jóhannes kallaði fram. m.a. Sig- urbjörn Einarsson biskup, Stein- grímur Hermannsson, Ólafur Ragnar Grímsson og að sjálf- sögðu Halldór Blöndal. Hulda leysti okkur síðar út með gjöfum, því fyrir jólin bárust okkur prjón- aðir vettlingar með nöfnum okk- ar, og Margrét kona mín fékk einnig sína vettlinga. „Ástar- stjarna yfir Hraundranga skín á bak við ský,“ þannig ómar berg- mál sögunnar þegar Öxnadæling- ar kveðja mikilhæfa og göfuga konu. Blessuð sé minning Huldu Aðalsteinsdóttur. Guðni Ágústsson. Hulda Vordís Aðalsteinsdóttir Það er sjaldan á lífsleiðinni sem mað- ur kemst í kynni við jafn stórkostlega menn eins og hann Andrés frændi minn var. Ef ein- hver hefði verið með hlutverkið „pabbi númer tvö“ þá var það hann. Ávallt borið mikla virðingu fyrir honum. Frábært að tala við hann. Við ræddum mikið saman um pólitík, viðskipti og annað sem þér bara kemur ekki við. Ég gæti setið hérna og sagt endalausar sögur en vegna þess að það er ekki nóg pláss þá ætla ég bara að segja eina. Það er nefnilega þann- ig að eitt sinn þegar ég kem í sundlaugina á Eskifirði hitti ég Adda frænda (hann var tíður sundgestur). Þá fæ ég þessa (að ég hélt) frábæru hugmynd að skora á hann í kappsund. Verandi tugum kílóa léttari hélt ég að ég ætti nú ekki í miklum erfiðleikum með þennan stóra mann. Til að gera langa sögu stutta þá algjör- lega jarðaði hann mig. Ég átti aldrei séns, svo mikið rústaði hann mér að eftir að hann kláraði umsamda vegalengd, lá ég á bakkanum andstuttur og slefandi. Eftir þessa útreið ákvað ég að æfa mig skipulega. Ég eyddi Andrés Elisson ✝ Andrés Elissonfæddist 22. ágúst 1957. Hann lést 6. ágúst 2020. Hann var jarð- sunginn 21. ágúst 2020. nokkrum mánuðum (á laun) í að æfa mig svo ég gæti nú bjargað einhverju af þessu brotna egói sem varð eftir í grunnu lauginni. Því miður næ ég aldrei að halda „rematch- ið“ þannig að þú Addi minn ferð með sigur af hólmi. Til hamingju. Við sjáumst svo í djúpu lauginni frændi. Heiðar Högni Guðnason. Árið 1983 fluttum við fjölskyld- an inn í nýtt raðhús á Eskifirði við götuna Brekkubarð, stuttu síðar flutti í hinn endann önnur fjöl- skylda sem samanstóð af þeim Andrési, Svönu og dætrunum Guðlaugu og Ingunni. Við börnin höfum kennt okkur við Brekku- barðsgengið síðan og hefur vin- áttan milli fjölskyldanna haldist í gegnum árin þrátt fyrir flutninga, milli húsa og landshluta. Í gegnum árin hafa margar minningar orðið til og eiga þær eftir að verma hjarta okkar allra um ókomna tíð. Minnisstæðar eru ferðirnar milli Eskifjarðar og Reykjavíkur og aðalsportið var að fá að fara í heimsókn milli bíla. Svana spilaði danstónlistina sína hátt og við stelpurnar dönsuðum í aftursætinu. Hjónin sköpuðu sér einnig góðar minningar á ófáum þorrablótum, í ferðalögum innan- og utanlands og samverustund- irnar yfir kaffi og með því. Andrés var höfuð sinnar fjölskyldu og passaði hann vel upp á allar sínar stelpur, honum var umhugað um okkur öll sem ólumst upp í Brekkubarðinu og vildi allt fyrir okkur gera. Hann var stoltur Eskfirðingur og má sjá mark hans á firðinum fagra út um allt, hann lagði t.a.m. grunn að stofnun sunddeildar Austra þegar dæt- urnar byrjuðu að stunda sundið af kappi. Andrés var einstaklega duglegur og setti hann mikinn kraft í allt sem hann tók sér fyrir hendur. Stórt skarð er höggvið í samfélagið okkar og litlu fjöl- skylduna úr Brekkubarði 1 við fráfall hans. Elsku Andrés, takk fyrir allt, það er sárt að þurfa að kveðja þig alltof fljótt en við fjölskyldan í Ystadal 3 erum þakklát fyrir sam- veruna og vináttuna við þig og yndislegu fjölskylduna þína, sem þarf að horfa á eftir þér. Þín verð- ur sárt saknað. Elsku Svana, Ingunn, Guðlaug, Palli, Lolli og barnabörn, innileg- ar samúðarkveðjur, það er sárt að missa og hann var svo stoltur af ykkur öllum. Fyrir hönd fjölskyldunnar úr Ystadal 3, Benedikt. Það var haustið 1980 að 10 nemendur sem ætluðu sér að verða löggiltir rafverktakar byrj- uðu í tveggja og hálfs árs námi í Tækniskóla Íslands, einn þeirra var Andrés Elisson. Andrés var sjálfsagt einn lit- ríkasti karakterinn í bekknum, framtakssamur, djarfur og lá ekkert á skoðunum sínum, keypti sér amerískan bíl þegar aðrir keyptu sér strætókort. Þá þótti honum skynsemi liggja í því að sameinast í einkabíl til að komast í skólann frá Breiðholti. Í slæm- um vetrarveðrum þá virkaði þetta gríðarlega vel, einn að austan, og tveir af Vestfjörðum, skóflur og keðjur í farteskinu. Með þessum ráðum vantaði hann aldrei í skól- ann, hvernig sem viðraði í borg- inni. Hann var góður námsmaður, fylginn sér og duglegur. Andrés var mannblendinn og alltaf til í umræður um verkefni líðandi stundar, framtíðina, stjórnmál og ekki síst sína heimabyggð. Hann var mikill Austfirðingur og það velktist enginn í vafa um það hvar hann yrði eftir nám. Hann átti sér draum, að eiga og reka eigið rafverktakafyrirtæki á Eskifirði, sínum heimabæ, sá draumur rættist, var Andrés góð- ur fagmaður, sótti sér þekkingu jafnt og þétt og hélt sér vel við í faginu. Hann ræktaði samband við nokkra af okkur alla tíð, hringdi gjarnan og velti upp mál- efnum tengd vinnu og rekstri og ekki síður heitum málefnum til lands og sjávar. Það var ætíð gleðilegt og ánægjulegt að fá hann í heimsókn eða heimsækja hann í sínum heimabæ, sem hann var ævinlega stoltur af og hafði mikinn metnað fyrir. Við bekkjarbræður hans kveðj- um nú góðan dreng og vottum við Svönu og fjölskyldu hans okkar dýpstu samúðarkveðjur. F.h. bekkjarbræðra TÍ, Pétur, Sævar og Sigurður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.