Morgunblaðið - 24.08.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.08.2020, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020 Kveðja frá mennta- vísindasviði Há- skóla Íslands Dóra S. Bjarnason, prófessor emerita við menntavísindasvið Háskóla Íslands, var einstaklega gáfuð kona, traustur samstarfs- maður og baráttukona. Við syrgjum fráfall hennar og mun- um sakna góðs félaga. Dóra átti að baki einstaklega farsælan feril sem fræðikona og frum- kvöðull á sviði fötlunarfræði og menntunarfræða. Hún hóf störf við Kennaraháskóla Íslands, 1971 til 1981, fyrst sem stunda- kennari, þá lektor og síðar dós- ent í félagsfræði við sama skóla 1981 til 2004. Dóra varð prófess- or við KHÍ, síðar menntavís- indasvið Háskóla Íslands, frá 2004. Það er magnað að hugsa til þess hve miklu Dóra fékk áork- að og mun sagan leiða enn betur í ljós hve djúp áhrif verk hennar og starf hefur haft og mun hafa um ókomna tíð. Rannsóknir Dóru voru einkum á sviði fé- lagsfræði menntunar, fötlunar- fræði og skólastefnunnar skóli án aðgreiningar. Fræðistörf hennar mótuðust meðal annars af reynslu hennar af því að vera móðir fatlaðs barns, en það að eignast Benedikt taldi hún ávallt sína mestu gæfu. Verk Dóru mótuðust einnig af einstakri réttlætiskennd hennar og skarpri sýn á hvernig samfélag- ið gæti eða ætti að virka. Dóra áttaði sig á því að menntakerfið væri grunnurinn að því að vinna Dóra Sigríður Bjarnason ✝ Dóra SigríðurBjarnason fæddist 20. júlí 1947. Hún lést 5. ágúst 2020. Útför Dóru Siggu fór fram 21. ágúst 2020. að félagslegu rétt- læti og virkri þátt- töku allra. Þar er grunnurinn lagður, þar starfa börn og ungt fólk og læra að skipuleggja sam- félagið og móta leiðir til að leysa úr áskorunum lífsins. Framlag Dóru til þess að búa til betra samfélag var ríkulegt. Dóra áttaði sig á mik- ilvægi þess að skólakerfið þyrfti að mæta öllum nemendum þar sem þeir væru staddir, að öll ættum við sama rétt á gæða- menntun óháð fötlun eða fé- lagslegum bakgrunni. Dóra var einnig virt á alþjóð- legum vettvangi og átti sterkt tengslanet víða á erlendri grundu. Það er því skarð fyrir skildi á mikilvægu fræðasviði fötlunar- og menntunarfræða. Dóra lét formlega af störfum við Háskóla Íslands þegar hún varð sjötug árið 2013 en því fór fjarri að hún legði árar í bát. Dóra sinnti fræðimennsku fram á hinsta dag. Hún var einnig frá- bær rithöfundur og vakti bókin hennar Brot – konur sem þorðu sem kom út á síðasta ári mikla athygli. Dóra las kafla úr bók- inni fyrir okkur samstarfsfólk sitt á jólasamkomu menntavís- indasviðs í desember 2019 og var það einstök stund. Það er mikill missir að Dóru S. Bjarnason. Mestur er missir Benedikts Hákonar, og fjöl- skyldu og vina Dóru. Færi ég honum og öðrum ástvinum hug- heilar samúðarkveðjur. Megi minningin um Dóru, þessa öfl- ugu konu með stóra hjartað og skarpa hugann, lifa og ylja þeim sem hana þekktu um ókomin ár. f. h. Háskóla Íslands, Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands. ✝ Ellert Gunn-laugsson fædd- ist á Sauðá í Vatns- nesi 1. október 1955. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga 16. ágúst 2020. Foreldrar hann voru Sigríður Jóns- dóttir húsfreyja, f. 29. desember 1915, d. 17. janúar 1999, og Gunn- laugur Eggertsson, bóndi, f. 7. júní 1907, d. 2. september 1983. Systkini Ellerts eru Jón Egg- ert, f. 13. október 1946, d. 26. ágúst 2014, Nína Guðrún, f. 9. janúar 1948, d. 15. júlí 1968, Þorgeir, f. 20. ágúst 1950, febrúar 1987, og Stella Guðrún, f. 14. febrúar 1989, gift Tómasi Erni Daníelssyni, hann á tvö börn, Þorgerði Gló og Þórólf Huga. Ellert ólst upp við hefðbundin sveitastörf hjá foreldrum sínum á Sauðá. Hann gekk í farskóla að þeirra tíma hætti, barnaskól- ann í Ásbyrgi og unglinga- skólann á Hvammstanga. Að skólagöngu lokinni fór hann að vinna á búi foreldra sinna sem hann eignaðist svo 1981 og rak þar félagsbú með Jóni bróður sínum í nokkur ár. Ellert var mikill og góður sauðfjárbóndi og tók virkan þátt í fé- lagsstörfum í sveitinni, en þurfti að bregða búi 2017 vegna veik- inda. Útförin fer fram í dag, 24. ágúst, klukkan 13. Vegna að- stæðna í þjóðfélaginu er aðeins nánustu ættingjum og vinum boðið. Útförinni verður streymt á slóðinni http://www.sma- shcast.tv/sigurvald. Sverrir, f. 13. des- ember 1953. Ellert kvæntist 26. apríl 1987 Að- alheiði Jónsdóttur, f. 4. mars 1959. Foreldrar hennar voru Guðrún Bjarn- finnsdóttir, f. 1. maí 1923, d. 29. janúar 1989, og Jón Val- geir Ólafsson, 22. janúar 1915, d. 3. desember 2003. Börn Ellerts og Aðalheiðar eru Sesselja Aníta, f. 12. október 1978, gift Gísla Má Arnarsyni og eiga þau 3 börn, 1) Kolbrúnu Erlu, sambýlismaður Ísak Róbertsson og eiga þau Bríeti Sunnu, 2) Magneu Ósk og 3) Óskar Smára, Guðni, f. 9. Ég veit að auðveld ekki alltaf blessuð ástin er því svo ótrúlega flókin þessi mannkind er Ég er peð í þessu tafli eins og þú stundum erfitt er að finna von og trú Ljósið sem nú lýsir augum þínum úr ljómar eins og sólin eftir svarta skúr og þú sérð í gegnum sál mér eins og gler þar sést vel hvað ég er ástfanginn af þér Elska þig, elska þig, já elska þig alveg sama hvernig lífið leikur mig ég trúi að skrifað sé í skýin hvernig fer að ást mín hafi alltaf verið ætluð þér Það er komið sumar, blómin brosa á móti sól sjáðu hvernig lifnar yfir öllum, byggð og ból og ég finn að ástin sem ég til þín ber lifnar ung og sterk í hjartanu á mér Ljósið sem nú lýsir augum þínum úr ljómar eins og sólin eftir svarta skúr og þú sérð í gegnum sál mér eins og gler þar sést vel hvað ég er ástfanginn af þér Elska þig, elska þig, já elska þig alveg sama hvernig lífið leikur mig ég trúi að skrifað sé í skýin hvernig fer að ást mín hafi alltaf verið ætluð þér. (Magnús Eiríksson) Þín Heiða. Þegar ég hugsa um pabba er það fyrsta sem kemur upp í hug- ann hversu mikið góðmenni hann var. Hann mátti ekkert aumt sjá og var svo umhyggjusamur við allt og alla. Hann var einstaklega natinn við öll dýr og var fljótur að sjá á þeim ef eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Hann fór alltaf mjúkum höndum um skepnurnar og var hans búfé öfundsvert af hans umsjá. Ég man ekki eftir því að pabbi hafi sagt styggðaryrði um nokk- urn og hafði einstaklega létta lund. Í minningunni var hann nán- ast alltaf flautandi, brosandi eða hlæjandi. Hann hafði mikla og góða nærveru sem allir sóttu í, ekki síst börn. Mamma spurði pabba einhvern tíma að því hvað rómantík væri fyrir honum. Sennilega ætlaði hún að fiska upp úr honum eitthvað ægilega krúttlegt en svarið sem hún fékk var: „Rómantík er að vera einn uppi í fjalli og hlusta á hjartsláttinn í sjálfum sér.“ Kannski var það ekki svarið sem hún vonaðist eftir en þetta var mjög lýsandi fyrir hann. Honum leið hvergi betur en lengst uppi í fjalli. Í smalamennsku var hann ótrúlegur. Þindarlaus. Hann fór alltaf hærra og lengra en allir, allt- af með hest en teymdi hann oftast megnið af tímanum. Hann sagði að það væri óþarfi að þreyta hest- inn áður en það þyrfti að beita honum fyrir fé. Honum leiddist þegar fólk varð æst og reitt í smalamennsku og sagði að fyrst og fremst ætti þetta að vera gam- an. Ég, eins og pabbi var, er afar heimakær og var því nánast alltaf heima eitthvað að bauka með pabba ef ég var ekki í skólanum. Ég var heima öll sumur til 18 ára aldurs og alltaf þegar ég gat eftir það. Það var aldrei leiðinlegt að vinna með pabba. Oft voru dag- arnir langir og strangir og oft gekk á ýmsu. Ég sá pabba aldrei skipta skapi. Ég hlakkaði alltaf mikið til þegar líða fór á sumarið að fá pabba með mér að þjálfa hrossin fyrir smalamennsku. Þar áttum við ómetanlegar stundir í Vatnsnesfjalli. Pabbi sagði mér margar sögur og kenndi mér nöfn á fuglum, plöntum, hólum og hæð- um. Við fórum líka oft að veiða saman í ánni og vorum langt fram í myrkur því við tímdum ekki að fara heim. Við vorum mjög náin og miklir vinir. Tengd saman á sál- inni. Dugnaðurinn og hugur pabba til dýranna varð honum svo að falli. Eftir að hann varð nærri úti eftir að hafa verið að ná í hross í fjallið missti hann heilsu. Það fór fljótlega að halla undan fæti og hrakaði pabba hratt. Það er það erfiðasta sem ég hef þurft að horfa upp á. Í sínum veikindum var pabbi alltaf kátur, yndislegur og þakklátur fyrir allt sem var gert fyrir hann. Þótt hann væri orðinn mjög mikið veikur var stutt í húm- orinn og sagði gjarnan „maður verður að reyna að hafa gaman af þessu“ og skellihló. Elsku pabbi minn mikið vildi ég óska þess að það hefði ekki farið svona. Ég á aldrei eftir að kynnast neinum eins og þér. Þú verður alltaf fyrirmyndin mín og hetjan mín. Ef einhver segir að ég líkist þér, þó að það væri bara smá, þá er það það mesta hrós sem nokkur maður getur gefið mér. Takk fyrir allt. Þín Stella. Ellert Gunnlaugsson Vert er að minn- ast mæts vinar og fyrrverandi sam- starfsmanns, Þor- bjarnar Á. Friðrikssonar, sem er fallinn frá. Honum kynntist ég haustið 1972 og tókst strax með okkur góður vinskapur. Þorbjörn var sérstaklega hug- myndaríkur og hafði einlægan áhuga á mörgum málum, sem mér voru hugleikin. Á fyrri hluta starfsævi fékkst Þorbjörn við kennslu. Hann fór oftast óhefðbundnar leiðir, en náði góðum árangri engu að síð- ur. Óhætt er að segja frá því, að í kennslustundum flutu með ýmsir fróðleiksmolar, sem virt- ust við fyrstu sýn í litlum tengslum við námsefnið. Eftir á að hyggja kom í ljós, að það voru einmitt þessir útúrdúrar, sem vörpuðu ljósi á það, sem mestu skiptir, enda var Þor- björn snillingur í öllum sam- ræðum. Á ofanverðri ævi sneri Þor- björn sér að ýmsum öðrum verkefnum. Hann tók sig upp og flutti austur fyrir Fjall og settist að í landi Strandar á Rangárvöllum, þar sem hann byggði sér lítið býli, Vörðu. Meðal annars tók hann sér fyrir hendur að hanna og smíða sér- stakan losunarbúnað björgun- arbáta og að framleiða skotelda Þorbjörn Ármann Friðriksson ✝ Þorbjörn Ár-mann Frið- riksson fæddist 5. ágúst 1941. Hann lést 5. ágúst 2020. Útför Þor- bjarnar fór fram 21. ágúst 2020. um tíma. Þá má ekki gleyma því, að Þorbjörn tók að gera járn úr mýra- rauða eftir aðferð- um fornmanna. Hann kom sér upp aðstöðu til þeirra hluta vestur í Ólafsdal, sem um tíma var aðsetur nemenda Mennta- skólans við Tjörn- ina, síðar Sund. Þar lagði hann gjörva hönd á margt. Þorbjörn fékkst einnig við önnur hnýsileg verkefni, sem mörg hver náðu því miður ekki lengra en á til- raunastig, hvað svo sem síðar kann að verða, ef einhver verð- ur til að endurvekja hugmyndir hans. Þorbjörn var í eðli sínu mikill „grúskari“ og var einatt að þróa og prófa furður margar. Á sín- um yngri árum nam Þorbjörn efnafræði og kynnti sér sérstak- lega sprengiefni. Það var ekki ónýtt fyrir gamlan „sprengju- fíkil“ að fá að kynnast manni, sem kunni öll fræði í sambandi við púður og hvellettur. Við áttum saman margar ánægjustundir, aðallega á fyrri árum. Á leið um Suðurland renndi ég oftast við hjá Þorbirni í Vörðu. Fyrir skömmu kom ég þar í hlað, en hann var ekki heima. Þá var hann kominn á sjúkrahús, en það vissi ég ekki þá. Þorbjörn hefur nú safnazt til feðra sinna. Honum fylgir virð- ing og þakklæti fyrir áratuga vináttu og frjóar umræður. Syrgjendum votta ég samúð. Ágúst H. Bjarnason. Ég sakna vinar. Þorbjörn Ár- mann er fjölfróðasti maður sem ég hef kynnst. Leiðir okkar lágu saman fyrir tæpum 30 ár- um. Hér hef ég þann hátt á að telja upp nokkur hugðarefni hans. Þorbjörn eyddi nokkrum sumrum við rannsóknir á minj- um um rauðablástur og gaf út bækling þar um. Þegar Bretar undirbjuggu gerð Ermarsundsganga bað breskt fyrirtæki íslensk yfirvöld um leyfi til að reyna nýjan risa- bor og bora jarðgöng gegnum Reynisfjall, Íslendingum að kostnaðarlausu. Ekki man ég hvernig það verkefni barst í hendur Þorbjarnar, en hann fór með fulltrúa breska fyrirtækis- ins að Reynisfjalli. Þorbjörn hannaði sjálfvirkan sleppibúnað fyrir björgunar- báta og er búnaðurinn í all- mörgum fiskiskipum og í öllum varðskipunum. Aflgjafi búnað- arins er sprengiefni, en þau voru sérgrein Þorbjarnar. Margt hefur verið skrifað um mó í íslenskum mýrum. Þor- björn lagði á ráðin um að nýta móinn til að framleiða eldsneyti og sem kolvetnagjafa í efnaiðn- aði. Niðurstöður hans eru til á skýrslu. Nýting forða úr síkvik- um yfirborðslögum er vistvænni en nýting brennsluefna úr djú- plögum jarðar. Þorbjörn var lesinn í sagn- fræði og sameinaði sagnfræði, náttúrufræði og glöggan tækni- legan skilning. Hann hafði af ýmsu að taka: Sá háttur er í kvikmyndum heimsins að hafa fjölda rómverskra hermanna í rauðum skikkjum. Hvergi bryddir á gagnrýni sagnfræð- inga. Þorbjörn staðhæfði að hernum hefði borið nauðsyn til að aðeins herforinginn bæri rauða skikkju – brýnt var að foringinn væri auðkenndur. Svo einföld voru þau rök og dæmi- gerð fyrir Þorbjörn. Hann var lesinn í Caesari og sagði að þar væru samhljóða vitnisburðir um málið. Aðrar heimildir vitna að einungis auðmenn höfðu ráð á að skarta purpura. Þorbjörn var lesinn um sigl- ingar norrænna manna. Star- sýnt er mörgum á texta sagn- fræðinga, um siglingar eftir sól og stjörnum. Hvernig má það vera að sigla eftir stjörnum, þegar engar sjást um hásumar? Þorbjörn smíðaði húsasnotru til að mæla sólargang og notaði tækið til að finna réttar höfuð- áttir. Hann benti á að tækið dygði til „að sigla jafnan“ frá Björgvin að Hvarfi á Græn- landi. Orðalagið er sótt í fornritin og vísar til þess að sigla til vesturs eða austurs. Er þá sólarhæð jöfn alla siglinga- leiðina og breiddarbaugnum haldið. Vínland staðsetur Þorbjörn á annan veg en aðrir og byggði á lýsingum fornrita. Ritin vitna um „meira jafndægra“ áfanga- stað, þ.e. um lengd dags og næt- ur samanborið við norður hér, hvernig vötn falla eftir áttum, um útfiri og gróðurfar. Hann sameinaði hin ýmsu fræði til að álykta. Í hugleiðingum við dauða vin- ar eru hugstæðar ábendingar hans um heimssýn norrænna manna. Þar benti Þorbjörn mér á lýsingu í Konungs skuggsjá um hnattlaga; „böllótta“ jörð. Orð Kolbeins Tumasonar „röðla gramur“ ber að skilja svo að skáldið viti að sólir séu margar í veröld allri. Ég leitaði á náðir Þorbjarnar vorið 2016 og bjó við hlið hans í gámi, en inni á gafli um aðstöðu. Við ræddum málin hvern morg- un. Ég gantaðist við hann, um að ég væri vel haldinn í aka- demíunni. Ég þakka góða samferð. Tómas Ísleifsson. Í dag kveðjum við ástkæra vin- konu okkar, Dísu hans Péturs frænda, sem kom inn í líf okkar fyrir um 30 árum. Með sinni alkunnu væntum- þykju og einstöku nærveru er óhætt að segja að hún hafi skap- að sér sess í hjörtum okkar allra. Frá fyrstu kynnum var mikill samgangur og samband gott með foreldrum okkar og Dísu og Pétri, sem svo fylgdi þeim alla tíð. Eftir að faðir okkar lést árið 1994 tóku þau hjón virkilega vel og af mikilli ástúð utan um móð- ur okkar, sem sýndi sig svo vel í þeim kærleika sem einkenndi samband þeirra ávallt. Það er óhætt að segja að þau hjónin hafi komið sérlega sterk inn með sinni áþreifanlegu hlýju, sam- heldni og mikla kærleik á erf- iðum tímum fyrir okkur fjöl- skylduna. Það var í nóvember 2019 sem Dísa tók mömmu með sér suður, eins og svo oft áður, en ekki ór- aði okkur fyrir hvað örlögin höfðu í huga þá. Dísa ætlaði að kíkja til læknis en mamma að kaupa jólagjafir. Elsku Dísa Þórdís Ósk Sigurðardóttir ✝ Þórdís Ósk Sig-urðardóttir fæddist 26. maí 1951. Hún lést 5. ágúst 2020. Útförin fór fram 18. ágúst 2020. fékk þá þær erfiðu fréttir að fram und- an væri barátta við krabbamein. Ekki lét hún það þó stoppa sig í því að styðja okkur í veik- indum mömmu, sem greindist líka með krabbamein um svipað leyti og lést skömmu síðar. Á erfiðum tímum fyrir fjölskylduna stóðu þau Dísa og Pétur eins og klettur við hlið okkar eins og þau höfðu áð- ur gert. Við vorum ávallt með þá von í brjósti að Dísa myndi ná sér, enda var hún manneskja sem kvartaði aldrei þótt henni liði illa. Það eru ekki margir sem taka slíkum örlögum af meira æðruleysi en hún, með sinni já- kvæðni og smitandi glaðværð og áttum við alls ekki von á að hún færi svona fljótt. Elsku Dísa, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og móður okkar. Við huggum okkur við það að nú hittist þið vinkon- urnar aftur og getið haldið áfram að tala saman um allt á milli himins og jarðar og lært handavinnu hvor af annarri. Elsku Pétur og fjölskylda, Guð blessi og styrki ykkur á þessum erfiðu tímum. Guð geymi þig elsku Dísa. Afkomendur Guðbjargar Stefánsdóttur og Gunnars Leóssonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.