Morgunblaðið - 24.08.2020, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020
Pepsi Max-deild karla
KA – ÍA ..................................................... 2:2
FH – HK ................................................... 4:0
Staðan:
Valur 10 7 1 2 22:8 22
Breiðablik 11 6 2 3 24:17 20
FH 11 6 2 3 22:16 20
Stjarnan 9 5 4 0 17:8 19
KR 9 5 2 2 14:9 17
Fylkir 11 5 1 5 17:18 16
ÍA 11 4 2 5 26:25 14
Víkingur R. 11 3 5 3 19:18 14
HK 11 3 2 6 18:27 11
KA 10 1 6 3 8:13 9
Grótta 11 1 3 7 10:22 6
Fjölnir 11 0 4 7 10:26 4
Lengjudeild karla
Leiknir F. – Fram ................................... :2:3
Magni – ÍBV.............................................. 0:0
Grindavík – Þór ........................................ 1:0
Afturelding – Keflavík ............................. 2:2
Vestri – Víkingur Ó. ................................. 3:3
Leiknir R. – Þróttur R. ............................ 1:2
Staðan:
Keflavík 11 7 3 1 37:14 24
Fram 11 7 3 1 29:17 24
ÍBV 11 6 5 0 23:12 23
Leiknir R. 11 6 2 3 26:17 20
Grindavík 11 4 5 2 24:21 17
Þór 11 5 2 4 21:18 17
Vestri 11 4 4 3 13:15 16
Afturelding 11 3 3 5 22:17 12
Leiknir F. 11 3 1 7 13:26 10
Víkingur Ó. 11 3 1 7 14:28 10
Þróttur R. 11 2 1 8 9:23 7
Magni 11 0 2 9 7:30 2
2. deild karla
Fjarðabyggð – Haukar ............................ 2:1
Kórdrengir – Víðir ................................... 3:1
Þróttur V. – Dalvík/Reynir...................... 3:0
Selfoss – Kári............................................ 1:0
Völsungur – Njarðvík .............................. 0:4
KF – ÍR ..................................................... 3:2
Staðan:
Kórdrengir 11 8 2 1 24:7 26
Þróttur V. 11 6 4 1 16:9 22
Selfoss 11 7 1 3 18:12 22
Fjarðabyggð 11 6 3 2 20:11 21
Haukar 11 7 0 4 22:14 21
Njarðvík 11 6 2 3 19:13 20
KF 11 6 0 5 20:20 18
Kári 11 4 2 5 17:14 14
ÍR 11 3 1 7 18:21 10
Víðir 12 3 0 9 10:31 9
Dalvík/Reynir 11 1 2 8 11:24 5
Völsungur 12 1 1 10 16:35 4
3. deild karla
KV – Höttur/Huginn................................ 3:2
Einherji – Elliði ........................................ 2:1
Tindastóll – Vængir Júpíters .................. 1:5
Sindri – Álftanes....................................... 2:2
Pepsi Max-deild kvenna
ÍBV – Þór/KA ........................................... 1:0
Staðan:
Breiðablik 9 9 0 0 42:0 27
Valur 9 7 1 1 22:8 22
Fylkir 9 4 4 1 13:12 16
ÍBV 10 5 1 4 13:18 16
Þór/KA 10 3 2 5 14:22 11
Selfoss 8 3 1 4 10:9 10
Stjarnan 9 2 2 5 15:22 8
Þróttur R. 9 1 4 4 14:22 7
KR 8 2 1 5 9:18 7
FH 9 1 0 8 3:24 3
Lengjudeild kvenna
Grótta – ÍA................................................ 2:2
Völsungur – Augnablik ............................ 1:2
Keflavík – Tindastóll ................................ 1:2
Staðan:
Tindastóll 9 7 1 1 23:5 22
Keflavík 9 6 2 1 26:8 20
Grótta 9 5 3 1 12:7 18
Haukar 9 5 2 2 14:8 17
Afturelding 9 3 3 3 11:12 12
Augnablik 8 3 2 3 11:16 11
ÍA 9 1 6 2 15:14 9
Víkingur R. 9 2 2 5 11:17 8
Fjölnir 9 1 1 7 4:20 4
Völsungur 8 0 0 8 4:24 0
2. deild kvenna
Hamrarnir – HK....................................... 0:2
Álftanes – Sindri....................................... 2:1
Meistaradeild Evrópu
Úrslitaleikur:
Bayern München – París St. Germain ... 1:0
Meistaradeild kvenna
8-liða úrslit:
Arsenal París St. Germain .......................1:2
París áfram í undanúrslit.
Lyon Bayern München ............................2:1
Lyon áfram í undanúrslit.
Sara Björk Gunnarsdóttir lék síðari hálf-
leikinn með Lyon.
Frakkland
Dijon – Angers ......................................... 0:1
Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamanna-
bekknum hjá Dijon.
B-deild:
Rodez – Grenoble .................................... 1:0
Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahópi Grenoble.
Skotland
St. Mirren – Ross County........................ 1:1
Ísak Snær Þorvaldsson var ekki í leik-
mannahópi St. Mirren.
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Gengi ÍBV í Pepsí Max-deild kvenna í knatt-
spyrnu í sumar hefur verið merkilega kafla-
skipt. Framan af tapaði liðið fjórum leikjum í
röð og virtist sem ÍBV þyrfti að berjast fyrir
sæti sínu í deildinni líkt og gerðist í fyrra. Lið-
ið tók hins vegar við sér 20. júlí og hefur ekki
tapað síðustu fimm leikjum. Raunar hefur liðið
unnið fjóra þeirra. Í gær bætti liðið þremur
stigum í sarpinn með 1:0 sigri á Þór/KA í Eyj-
um.
Nú er það svo sem ekki nýtt að lið á lands-
byggðinni séu að setja saman leikmannahópinn
skömmu fyrir mót og sæki í sig veðrið þegar
leikur liðsins hefur slípast til.
ÍBV er nú með 16 stig eftir tíu leiki og er
liðið með jafn mörg stig og Fylkir sem er í 3.
sæti en þessi lið gerðu jafntefli í síðustu viku.
ÍBV sleit sig fimm stigum frá Þór/KA með
þessum úrslitum því Akureyringar eru með 11
stig í 5. sæti.
Sigurmarkið í gær lét bíða eftir sér en kom
á 84. mínútu.
„Mikið jafnræði var í leiknum og hefði jafn-
teflið verið sanngjarnt, það sem skildi á milli
var þó skallamark Karlinu Miksone sem reis
hæst í teignum og stangaði knöttinn í netið af
stuttu færi á elleftu stundu. Fram að því hafði
Arna Sif Ásgrímsdóttir, varnarmaður Þórs/
KA, gjörsamlega átt vítateig norðankvenna og
stangað boltann í burtu í á þriðja tug skipta,“
skrifaði Guðmundur Tómas Sigfússon meðal
annars í umfjöllun sinni um viðureignina á
mbl.is.
Úrslitin eru mjög ólík þeim sem urðu í fyrri
leik liðanna á Akureyri hinn 20. júní en þá
vann Þór/KA 4:0 í 2. umferð mótsins. Miklar
sveiflur hafa verið í leik Þórs/KA ef horft er til
úrslita í leikjum liðsins. Liðið hóf mótið með
glæsibrag og vann Stjörnuna 4:1 og ÍBV 4:0.
En þá kom 6:0 skellur gegn Val og á dögunum
tapaði liðið 7:0 fyrir Breiðabliki í Kópavog-
inum.
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving hélt
marki ÍBV hreinu í þriðja sinn í deildinni í
sumar en hún varð 18 ára fyrr í þessum mán-
uði. Hefur hún aðeins fengið á sig eitt mark í
síðustu þremur leikjum.
Markið er það fyrsta sem Karlina Miksone
skorar á Íslandsmótinu en hún er landsliðs-
kona frá Lettlandi.
ÍBV sleit sig frá Þór/KA
Gott gengi ÍBV heldur áfram Fjórir sigrar í síðustu fimm leikjum Þór/KA
byrjaði Íslandsmótið með glæsibrag en hefur ekki tekist að fylgja því eftir
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Sigur Erfitt er að koma boltanum fram hjá Auði
Sveinbjörnsdóttur Scheving, markverði ÍBV, um
þessar mundir en hún hélt markinu hreinu.
Skagfirðingar geta gert sér vonir
um að eiga knattspyrnulið í efstu
deild á næsta ári því Tindastóll er
kominn upp í toppsæti Lengjudeild-
ar kvenna í eftir 3:1-sigur á Kefla-
vík í toppslag í Keflavík í gær.
Bandaríski framherjinn Murielle
Tiernan gerði sér lítið fyrir og
skoraði þrennur fyrir Tindastól.
Natasha Anasi skoraði mark Kefl-
víkinga.
Með sigrinum fór Tindastóll upp í
22 stig og upp fyrir Keflavík sem er
í öðru sæti með 20 stig. Grótta er í
þriðja með 18 og Haukar með 17.
Tindastóll fór
upp í toppsætið
Morgunblaðið/Hari
Þrenna Murielle Tiernan fór á kost-
um hjá Tindastóli í toppslagnum.
Sara Björk Gunnarsdóttir er komin
í undanúrslit Meistaradeildar Evr-
ópu í knattspyrnu með franska lið-
inu Lyon eftir 2:1-sigur á Bayern
München í 8-liða úrslitunum á
Spáni á laugardag. Sara var vara-
maður og lék síðari hálfleikinn.
Lyon mætir París Saint Germain
í rimmu frönsku risanna í undan-
úrslitum. París vann 2:1-sigur á
Arsenal en Parísarliðið hóf keppn-
ina með því að slá út Breiðablik.
Wolfsburg, sem Sara lék með áð-
ur, er komið í undanúrslit og mætir
Barcelona. sport@mbl.is
Sara í undan-
úrslit með Lyon
Morgunblaðið/Eggert
Velgengni Sara Björk er komin í
undanúrslit með Lyon.
Þýska stórveldið Bayern München
sigraði í Meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu en úrslitaleikurinn fór
fram í Lissabon í Portúgal í gær. Þar
hafði Bayern betur 1:0 gegn frönsku
meisturunum í París Saint Germain.
Kingsley Coman skoraði sig-
urmarkið með skalla á 59. mínútu
eftir sendingu frá Josshua Kimmich.
Ekki verður annað sagt en að Bæj-
arar fóru í gegnum keppnina með
stæl og unnu alla ellefu leiki sína.
Einhvern tíma hefði það verið talið
nær óhugsandi þegar saman koma
bestu félagslið álfunnar. Í riðla-
keppninni mætti liðið Tottenham
Hotspur, Olympiacos og Rauðu
stjörnunni frá Belgrað. Í 16-liða úr-
slitum var það Chelsea og þegar
þráðurinn var aftur tekinn upp í
keppninni nú í ágúst vann liðið
Barcelona, Lyon og París.
Ekki nóg með það heldur völtuðu
Bæjarar yfir andstæðinga sína og
þegar úrslitin eru skoðuð er engu lík-
ara en atvinnumenn hafi mætt
áhugamönnum. Í riðlinum vann liðið
Tottenham 7:2 og Rauðu stjörnuna
5:0. Chelsea var engin fyrirstaða
enda lauk leikjunum 3:0 og 4:1. Yf-
irburðasigur Bayern gegn Barcelona
8:2 verður væntanlega lengi í minn-
um hafður annars staðar en í Kata-
lóníu enda Barcelona eitt af elítul-
iðum íþróttarinnar. Í undanúrslitum
vann liðið Lyon 3:0.
Bayern München sigraði í keppn-
inni í sjötta sinn og hefur þá unnið
jafn oft og enska liðið Liverpool. Real
Madríd hefur unnið oftast eða þrett-
án sinnum og AC Mílanó sjö sinnum.
Bayern München byrjaði keppn-
istímabilið ekki ýkja vel fyrir tæpu
ári síðan og virtist ekki eins líklegt til
afreka og oft áður. Knattspyrnu-
stjórinn Nico Kovac lét af störfum 3.
nóvember og við tók Hans-Dieter
Flick. Þvílíkur sigur sem frammi-
staða liðsins er fyrir hann.
kris@mbl.is
Bayern vann alla leikina í keppninni
AFP
Óstöðvandi Bæjarar fögnuðu vel í gærkvöldi og höfðu unnið fyrir því.
ÍBV – ÞÓR/KA 1:0
1:0 Karlina Miksone 84.
M
Olga Sevcova (ÍBV)
Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV)
Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV)
Hanna Kallmaier (ÍBV)
Heiða Ragney Viðarsdóttir (Þór/KA)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Bríet Bragadóttir – 3.
Áhorfendur: Ekki heimilt.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar
um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.