Morgunblaðið - 24.08.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020
FÓTBOLTINN
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Skoski framherjinn Steven Lennon
var í miklu stuði og skoraði þrennu í
4:0-sigri FH á HK á Kaplakrikavelli
í 13. umferð Íslandsmóts karla í
knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á
laugardaginn. FH-ingar skutu sér
upp í þriðja sætið með sigrinum, alla
vega tímabundið en bæði Stjarnan
og KR eiga leiki til góða.
Fyrsta mark Lennons í leiknum
var hans 80. í efstu deild á Íslandi
og er hann fyrsti erlendi leikmað-
urinn til að ná þeim áfanga. Hann er
nú 21 marki á undan næsta erlenda
markaskorara, Patrick Pedersen
Valsmaður er með 61 mark. Með því
að bæta við tveimur mörkum er
Skotinn svo kominn með 82 mörk
alls og dugar það honum til að kom-
ast upp í 10. sæti á markalista deild-
arinnar frá upphafi. Efstur er
Tryggvi Guðmundsson með 131
mark. Þá er Lennon enn betur bú-
inn að skipa sér í hóp fremstu
markaskorara í Hafnarfirðinum.
Þetta var þriðja þrennan hans fyrir
FH, aðeins Hörður Magnússon, All-
an Borgvardt og Atli Guðnason hafa
gert það líka.
„HK átti fína spretti í þessum leik
en að lokum sýndi FH einstaklings-
gæðin. HK er ekki með leikmann
sem er næstum því jafn góður og
Steven Lennon og að lokum réð
Skotinn úrslitunum,“ skrifaði Jó-
hann Ingi Hafþórsson meðal annars
í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Skotinn er nú með 11 mörk í 11
leikjum og spurning hvort marka-
met deildarinnar sé í hættu. Metið
er 19 mörk sem fimm leikmenn
deila. Pétur Pétursson, ÍA, setti það
árið 1978 og síðan hafa Guðmundur
Torfason úr Fram (1986), Þórður
Guðjónsson úr ÍA (1993), Tryggvi
Guðmundsson úr ÍBV (1997) og
Andri Rúnar Bjarnason úr Grinda-
vík (2017) náð að jafna það.
Lið sem eru í basli
Skagamenn neituðu að gefast upp
á Akureyri í leik KA og ÍA á laug-
ardaginn en liðin skildu jöfn, 2:2.
Heimamenn komust í tveggja
marka forystu og virtust um tíma
vera í vænlegri stöðu en þeim tókst
ekki að láta kné fylgja kviði. Arnar
Grétarsson, þjálfari KA, virtist vita
af hverju.
„Það er oft með lið sem eru í
basli, þegar hlutirnir eru ekki að
ganga þá vantar oft sjálfstraust í
mannskapinn og kannski að menn
séu rólegri á boltanum. Við eðlilegar
aðstæður þá eigum við að sigla þess-
um þremur stigum heim,“ sagði
Arnar í samtali við Baldvin Kára
Magnússon sem gerði leiknum góð
skil á mbl.is.
Bæði lið eru í neðri hluta deild-
arinnar, ÍA er í 7. sæti með 14 stig
og KA í 10. sæti með níu stig, þrem-
ur stigum fyrir ofan fallsæti. Bæði
lið hafa aðeins unnið einn af síðustu
fimm deildarleikjum sínum.
Stórveldaslagurinn eftir
Það er aðeins einn leikur eftir af
13. umferðinni og er það Reykjavík-
urslagur Íslandsmeistara KR og
toppliðs Vals í Vesturbænum á mið-
vikudaginn. Leiknum þurfti að
fresta vegna þess að KR-ingar hafa
verið í sóttkví eftir Glasgow-förina í
síðustu viku þar sem þeir mættu
Celtic í Meistaradeild Evrópu. KR-
ingar voru í sérflokki á síðustu leik-
tíð og unnu deildina með 14 stiga
mun en þessi lið eru Íslandsmeist-
arar síðustu þriggja ára. Valsarar
eru á toppnum sem stendur, með 22
stig eftir tíu leiki en KR-ingar eru í
5. sæti með 17 stig eftir níu leiki.
Steven Lennon skipar sér
í hóp þeirra markahæstu
Frammistaða Skotans reið baggamuninn í sigri FH KA og ÍA í basli
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Gauragangur Hart barist á Akureyri um helgina.
Morgunblaðið/Íris
Þrenna Steven Lennon var beinskeyttur gegn HK og lætur hér vaða á markið.
Miklar breytingar urðu á leik-
mannahópi úrvalsdeildarliðs
Hauka í körfuknattleik um helgina.
Landsliðsmaðurinn Hjálmar Stef-
ánsson hefur ákveðið að leika á
Spáni næsta vetur og samdi við
Aquimisa Carbajosa eða sama lið
og Tómas Þórður Hilmarsson
samdi við á dögunum. Liðið leikur í
c-deildinni á Spáni.
Haukar voru ekki lengi að sækja
leikmann í staðinn og nældu í Aust-
in Magnús Bracey frá Val í gær.
Austin Magnús hefur leikið síðustu
fjögur tímabil með Val.
Breytingar hjá
Haukum
Morgunblaðið/Eggert
Spánn Hjálmar Stefánsson ætlar að
reyna fyrir sér erlendis.
Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jóns-
son bætti eigið Íslandsmet á Origo-
móti FH í frjálsum íþróttum í
Kaplakrika í dag er hann kastaði
sleggjunni 75,82 metra.
Fyrra met Hilmars var 75,26
metrar sem hann setti í Bandaríkj-
unum á síðasta ári en hann hefur
kastað vel að undanförnu. Hilmar
kastaði tvívegis yfir 75 metra í síð-
ustu viku en árangur hans um
helgina er sá átjandi besti í heim-
inum á árinu. Með þessu áframhaldi
gæti Hilmar hæglega komist á Ól-
ympíuleikana í Tókýó á næsta ári.
Hilmar Örn bætti
eigið Íslandsmet
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Methafi Hilmar Örn Jónsson er í
hörkuformi þessa dagana.
NBA-deildin
Úrslitakeppni, 1. umferð:
Brooklyn – Toronto ............................ 92:117
Staðan er 3:0 fyrir Toronto.
Utah – Denver .................................... 124:87
Staðan er 2:1 fyrir Denver.
Philadelphia – Boston .........................94:102
Philadelphia – Boston .......................135:133
Boston vann einvígið 4:0
Dallas – LA Clippers........................ 122:130
Dallas – LA Clippers ................(frl.) 135:133
Staðan er 2:2.
Orlando – Milwaukee ....................... 107:121
Staðan er 2:1 fyrir Milwaukee.
Miami – Indiana................................ 124:115
Staðan er 3:0 fyrir Miami.
Oklahoma – Houston........................ 119:107
Staðan er 2:1 fyrir Houston.
Portland – LA Lakers...................... 108:116
Staðan er 2:1 fyrir Lakers
KNATTSPYRNA
Pepsí Max-deild kvenna:
Kaplakriki: FH – Stjarnan .......................18
Origo-völlurinn: Valur – Þróttur R......19:15
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Selfoss..19:15
Í KVÖLD!
Rússland
CSKA Moskva – Rubin Kazan................ 1:2
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA og Arnór Sigurðsson lék
fyrstu 70 mínúturnar.
Kasakstan
Astana – Okzhetpes................................. 2:0
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði og
lagði upp mark fyrir Astana.
Hvíta-Rússland
Neman – BATE Borisov.......................... 0:2
Willum Þór Willumsson kom inn á sem
varamaður hjá BATE á 77. mínútu.
Slóvakía
Dunajska Streda – Spartak Trnava ...... 2:1
Birkir Valur Jónsson var á varamanna-
bekk Spartak.
Búlgaría
Levski Sofia – Tsarsko Selo ................... 0:1
Hólmar Örn Eyjólfsson var ekki í leik-
mannahópi Levski Sofia.
Danmörk
Kolding – Nordsjælland ..........................2:1
Amanda Andradóttir kom inn á hjá Nor-
dsjælland á 80. mínútu.
Svíþjóð
AIK – Helsingborg .................................. 2:0
Kolbeinn Sigþórsson lagði upp mark og
lék fyrstu 69 mínúturnar hjá AIK.
Malmö – Falkenberg ............................... 2:1
Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá
Malmo eftir 59 mínútur.
Sirius – Hammarby ................................. 3:1
Aron Jóhannsson kom inn á hjá Hamm-
arby á 66. mínútu.
Rosengård – Gautaborg ......................... 3:0
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Kristianstad – Djurgården..................... 0:1
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan
leikinn með Kristianstad. Sif Atladóttir er í
barnsburðarleyfi. Elísabet Gunnarsdóttir
þjálfar liðið.
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården en Guðbjörg Gunnars-
dóttir er í barnsburðarleyfi.
Uppsala – Örebro .................................... 1:2
Anna Rakel Pétursdóttir lék fyrri hálf-
leikinn með Uppsala.
B-deild:
AIK – Kalmar ........................................... 3:2
Andrea Thorisson kom inn á hjá Kalmar
á 46. mínútu.
Mallbacken – Hammarby ....................... 1:1
Kristrún Rut Antonsdóttir lék fyrstu 61
mínútuna hjá Mallbacken.
Noregur
Aalesund – Haugesund ........................... 1:3
Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði fyr-
ir Aalesund, Daníel Leó Grétarsson lék all-
an leikinn og Davíð Kristján Ólafsson lék
síðari hálfleik.
Bodø/Glimt – Start.................................. 6:0
Alfons Sampsted lék allan leikinn hjá
Bodø/Glimt.
Guðmundur Andri Tryggvason var ekki í
leikmannahópi Start. Jóhannes Harðarson
þjálfar liðið.
Mjøndalen – Rosenborg .......................... 0:2
Dagur Dan Þórhallsson kom inn á hjá
Mjøndalen á 90. mínútu.
Strømsgodset – Viking ........................... 0:2
Ari Leifsson var ekki í leikmannahópi
Strømsgodset.
Axel ÓskarAndrésson lék allan leikinn
með Viking.
Vålerenga – Sandefjord ......................... 2:1
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
með Vålerenga.
Emil Pálsson lék allan leikinn með Sand-
efjord. Viðar Ari Jónsson var ekki í leik-
mannahópnum.
Lillestrøm – Vålerenga........................... 1:3
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan tím-
ann og skoraði fyrir Vålerenga.
FH – HK 4:0
1:0 Steven Lennon 30.
2:0 Þórir Jóhann Helgason 34.
3:0 Steven Lennon 85.
4:0 Steven Lennon 90.
MM
Steven Lennon (FH)
M
Gunnar Nielsen (FH)
Logi Tómasson (FH)
Daníel Hafsteinsson (FH)
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
Eggert Gunnþór Jónsson (FH)
Þórir Jóhann Helgason (FH)
Birnir Snær Ingason (HK)
Ari Sigurpálsson (HK)
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson – 7.
Áhorfendur: Ekki heimilað..
KA – ÍA 2:2
1:0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 29.
2:0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 48.
2:1 Gísli Laxdal Unnarsson 57.
2:2 Sjálfmark 67.
M
Guðmundur Steinn Hafsteinsson (KA)
Bjarni Aðalsteinsson (KA)
Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Ívar Örn Árnason (KA)
Rodrigo Gomes Matteo (KA)
Árni Snær Ólafsson (ÍA)
Brynjar Snær Pálsson (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Hlynur Sævar Jónsson (ÍA)
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 7.
Áhorfendur: Ekki heimilað.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.