Morgunblaðið - 24.08.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2020
» Listamenn geta ver-ið jafnlitríkir og
listaverkin sem þeir
skapa og umfjöllunar-
efnin fjölbreytileg, allt
frá hugvekju yfir í póli-
tíska ádeilu.
Listin gegnir ólíkum hlutverkum á tímum kófsins
AFP
Hress Listamaðurinn Grayson Perry stillir sér upp við listaverk sitt „Tomb
of the Unknown Craftsman“, eða Grafhýsi óþekkta handverksmannsins, í
British Museum í London. Safnið verður opnað á ný 27. ágúst.
Í Barselóna Vegglistaverk eftir
listamann sem kallar sig TVBoy. Á
því sést fyrrum konungur Spánar,
Juan Carlos, í líki ferðamanns og
heitir verkið „Að ferðast eins og
kóngur“. Juan Carlos hefur yfirgef-
ið heimaland sitt eftir að upp komst
um leyndar bankabækur hans.
Bón Kona skokkar fram hjá Metropolitan-safninu í New York sem nú prýðir verk eftir Yoko Ono, Dream Together.
Ný rannsókn leiðir í ljós að draga
má úr líkum á kórónuveirusmiti ef
söngvarar syngja lægra og blást-
urshljóðfæraleikarar spila veikar
en ella. Einnig ætti að sleppa öllu
öskri á sviðum til að minnka vega-
lengd þeirra dropa sem koma frá
flytjendum. Í frétt breska dagblaðs-
ins The Guardian um málið kemur
fram að rannsóknarniðurstöðurnar
muni mögulega leiða til þess að tón-
listar- og sviðslistafólk fái senn að
stíga aftur á svið þar í landi.
„Þetta snýst ekki um hljóðið sem
slíkt, hvort sem sungið er eða talað,
heldur um styrkinn,“ segir Jonat-
han Reid, prófessor við Háskólann í
Bristol og einn meðhöfunda rann-
sóknarinnar, sem enn er ekki búið
að ritrýna. „Með því að syngja að-
eins veikar er hægt að draga úr
smithættunni.“
Rannsakendur létu 25 atvinnu-
söngvara draga andann, tala, hósta
og syngja inn í trekt til að mæla
dropamagnið sem frá viðkomandi
kom. Rannsóknin leiddi í ljós að því
lægri sem söngstyrkurinn var því
minna magn dropa barst í loftinu.
Declan Costello, háls-, nef- og
eyrnalæknir hjá Wexham Park-
spítalanum og einn meðhöfunda
rannsóknarinnar, bendir á að sýn-
ingarrýmið og loftræstingin hafi
líka mikið að segja varðandi smit-
hættuna. Með öðrum orðum felist
minni smithætta í því að syngja í
kirkju en að öskra á yfirfullum bar.
Oliver Dowden, menningarmála-
ráðherra Bretlands, fagnar rann-
sókninni og bendir á að yfirvöld séu
í nánu samstarfi við vísindafólk
landsins til að skipuleggja hvernig
best sé að aflétta samkomutak-
mörkunum sem haft hafa mikil
áhrif á menningarlíf landsins.
Minnkar líkur á smiti að syngja lægra
AFP
Útisvið Anita Rachvelishvili, mezzósópran
frá Georgíu, á sviði í Aþenu í júlí.
Var danski rithöfundurinn Karen Blixen rasisti? Þessu
veltir Elisabeth Nøjgaard, sem í fyrrahaust tók við starfi
forstjóra Karen Blixen-safnsins í Rungstedlund, fyrir
sér í viðamiklu viðtali við danska dagblaðið Berlingske
og segir að safnið verði að geta fjallað einlæglega um
dvöl Blixen í Afríku, þar sem hún rak um árabil kaffi-
búgarð á nýlendu Breta í Kenía. Nøjgaard segist í viðtal-
inu ekki ætla að taka afstöðu til þess hvort Blixen hafi
verið haldin kynþáttafordómum og eftirlætur safngest-
um að móta sér eigin skoðun. „Mér finnst algjörlega
eðlilegt að við upplýsum að lesa má Blixen með marg-
víslegum hætti. Okkur ber skylda til að læra af sögunni
og fjalla um hana með augum nútímans.“
Var Karen Blixen rasisti?
Karen Blixen
Félag íslenskra bókaútgefanda (Fíbút) leitar að ein-
staklingum á ólíkum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn
og menntun, til þess að velja athyglisverðustu bækur
ársins í dómnefnd Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
„Laun fyrir nefndarsetu eru kr. 125.000 auk þess sem
nefndarmeðlimir fá allar framlagðar bækur í sínum
flokki til eignar. Starfstímabilið er frá 10. september til
25. nóvember 2020. Horft er til 2. kafla, 3. gr. stjórnsýslulaga varðandi
hæfi dómnefndarfólks sem tengist höfundum eða útgefendum framlagðra
verka,“ segir í auglýsingu Fíbút á Facebook-síðu félagsins. Tekið er við
skráningu á þeirri sömu síðu til og með 31. ágúst.
Fíbút leitar að dómnefndarfólki