Bæjarins besta - 14.09.1988, Blaðsíða 2
ísatjöröur:
2
BÆJARINS BESTA
- bílþjófnaður, ölvunarakstur, slagsmál
og skemmdarverk einkenndu síðastliðna helgi
Síðastliðin helgi var mjög eril-
söm hjá lögreglunni á ísafirði.
Mikill órói var í bænum aðfara-
nótt sunnudags og fylltust fanga-
geymslur lögreglunnar um tíma.
Einnig þurfti lögreglan að hafa
afskipti af ölvunarakstri á Þing-
eyri og sótti hún ökumanninn
þangað.
Upp úr hádegi á föstudag
fannst gul Lada bifreið í Sunda-
höfninni á ísafirði. Bifreiðinni
hafði verið ekið í höfnina nóttina
áður en fannst ekki fyrr en um
hádegisbilið daginn eftir eins og
áður sagði. Líklegasta skýringin
á því hversu seint hún fannst er
sú að mikið flóð var á þessum
tíma og sást hún því illa, en um
leið og fjaraði út kom hún í ljós.
Að sögn Jónasar H. Eyjólfsson-
ar yfirlögregluþjóns er málið nú
upplýst að fullu. Þar voru að
verki unglingspiltar sem stálu
bifreiðinni þar sem hún stóð við
höfnina. Hófu þeir akstur um
Ladabifreiðin kom ekki í ljós fyrr en um hádegi daginn eftir að hún fór í höfnina.
ísafjörður:
Skipadeild Sambandsins:
Hefur reglubundnar
siglingar til ísafjarðar
- „Erum komnir til að vera“ segir Ari Leifsson
hjá skipadeildinni í samtali við BB
Skipadeild Sambands ís-
lenskra Samvinnufélaga hefur
hafið reglubundnar áætlunarsigl-
ingar á ísafjörð ásamt öðrum
höfnum á ströndinni. Meiningin
er að skipið Karola R sem verð-
ur í þessum siglingum komi til
ísafjarðar á hverjum þriðjudegi
og þá á suðurleið. Skipið mun
einungis flytja ferskfisk, freð-
fisk, rækju og þess háttar vörur.
Að sögn Ara Leifssonar hjá
skipadeild Sambandsins mun
skipið fara frá Reykjavík á
fimmtudögum og taka stefnuna
norður til Akureyrar. Þó er
möguleiki á að koma við á ísa-
firði á föstudeginum en ekki er á
áætlun að fastsetja það strax.
Framtíðin yrði að leiða það í ljós
hvort af því yrði.
„Ástæðan fyrir því að við
komum inn á ísafjörð er fyrst og
fremst sú að við teljum að þar sé
markaður og við teljum óeðli-
legt að það sé bara einn aðili
sem þjóni þessum flutningum.
Við viljum gefa mönnum fleiri
möguleika, því ætlum við að
vera á ísafirði á þriðjudögum á
meðan Eimskip er á mánudög-
um og við vonumst eftir því að fá
einhver viðskipti“ sagði Ari.
Skipið sem verður í þessum
flutningum heitir eins og áður
sagði Karola R, og er alveg
splunkunýtt þýskt skip. Skipið
kom úr skipasmíðastöðinni í júlí
síðastliðnum. Karola R er 2500
tonn að stærð og ber 158, 20 feta
gáma. Umboðsmaður skipsins á
Isafirði er Gunnar Jónsson
skipamiðlari.
hafnarsvæðið með þeim afleið-
ingum að þeir misstu stjórn á bif-
reiðinni og lenti hún í sjónum.
Tveir unglingspiltar sem í bif-
reiðinni voru fóru með henni í
sjóinn en björguðu sér út og má
telja það mikla mildi að ekki fór
verr í þetta skipti.
Aðfaranótt sunnudags var
mikið annríki hjá lögreglunni.
Meðal annars þurfti hún að
sækja mann grunaðan um ölvun-
arakstur til Þingeyrar auk þess
sem mikið róstur var í bænum.
Næstkomandi sunnudag flytur
lögreglan sig um set í nýja
Stjórnsýsluhúsið. Við þann
flutning stækkar húsnæði lög-
reglunnar um helming en mesta
breytingin mun vera sú að þar
mun verða aðstaða fyrir gæslu-
varðhaldsfanga sem ekki var í
gömlu stöðinni. Þá er fangahúsið
alveg nýtt og væntanlega fólki
bjóðandi eins og Jónas orðaði
það.
f >
dTCMfTHC
FERÐASKRIFSTOFA
ISAFJARÐARUMBOÐ
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR
SfMAR 4111 & 3818
k______________________