Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.09.1988, Blaðsíða 11

Bæjarins besta - 14.09.1988, Blaðsíða 11
BÆJARINS BESTA 11 Kampakátir deildarmeistarar hampa bikarnum. ísafjörðMr: BÍ 88 íslandsmeistari í 4. deíld Fríðrik Bjarnason sæmdur gullmerki KSÍ dómnefndar var ekki hægt að gera upp á milli tveggja þar, þeirra Péturs Jónssonar og Trausta Hrafnssonar. Þá voru valdir efnilegustu leikmenn liðanna. Þau völdu lið- in sjálf. í kvennaflokki var valin Kolbrún Kristinsdóttir og í karlaflokki Örn Torfasoni Ekki þótti hægt að gera upp á milli tveggja stráka í 3. flokki sem efnilegustu leikmenn liðsins, og hlutu því báðir viðurkenningu. Það voru þeir Unnar Hermanns- son og Gunnar Torfason. Vinsælasta stelpan í kvenna- flokki var valin Sigrún Sigurðar- dóttir. Guðmundur Gíslason. Að loknu glæsilegu keppnis- tímabili hjá BI 88 tryggði það sér nú sl. laugardag Islandsmeist- aratitilinn í 4. deild. Þá sigraði liðið Austra frá Eskifirði 2-1. Þeir sem skoruðu mörk ísfirð- inga í leiknum voru Haukur Benediktsson og Guðmundur Gíslason. Á laugardagskvöld var loka- hóf félagsins haldið að Uppsöl- um. Þar voru m.a. veitt verðlaun fyrir besta knattspyrnumann fé- lagsins í kvenna- og karlaflokki. Val á þeim var í höndum nefnd- ar, sem skipuð er fulltrúa gef- anda verðlauna, einum úr stjórn og einum manni sem fylgst hefur grannt með liðinu, sem áhorf- andi. Fyrir valinu urðu þau Guð- mundur Gíslason og Sigrún Sig- urðardóttir. Verðlaun voru veitt fyrir besta leikmann í þriðja fiokk,. Að mati Markakóngur í meistaraflokki var Stefán Tryggvason. Hann skoraði alls 10 mörk á þessu keppnistímabili. Mestar fram- farir innan félagsins þótti Fann- ey Pálsdóttir sýna. Að loknum verðlaunaafhend- ingum félagsins, tók Kristján Jónasson, sem einnig var veislu- stjóri, til máls. Hann afhenti fyr- ir hönd K.S.Í. heiðursmerki til þriggja manna, fyrir vel unnin störf í þágu knattspyrnunnar á ísafirði. Þeir Hans Haraldsson og Pét- ur Sigurðsson hlutu silfurmerki K.S.Í., en Friðrik Bjarnason (Diddi málari), hlaut gullmerki. Hann er fyrsti Vestfirðingurinn sem er sæmdur þessu merki. ATVINNA Laus er staða aðstoðarmanns átann- læknastofunni í Bolungarvík. Vinnutími fyrir hádegi. Upplýsingar í síma 7520, eftir kl. 20.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.